Morgunblaðið - 22.05.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2019
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Einstök gæði frá
40 ár
á Íslandi
Öflugar og
notendavænar
sláttuvélar
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Margt var um manninn á Blöndu-
ósi í gær þegar nýtt gagnaver
Etix Everywhere Iceland ehf.,
dótturfélags Etix Everywhere Bo-
realis, var tekið í notkun. Gagna-
verið nær yfir sex mismunandi
byggingar, sem hýsa samtals
26.000 tölvur eða reiknivélar og
eru sjö fastir starfsmenn á vegum
versins.
Gagnaversiðnaðurinn er ört
vaxandi hér á landi, þar sem að-
stæður þykja einkar hentugar,
meðal annars með tilliti til veð-
urfarsins þar sem tölvur reiða sig
gjarnan á góða kælingu. Etix Eve-
rywhere Iceland var á sínum tíma
þriðja fyrirtækið til þess að hefja
raforkuviðskipti við Landsvirkjun
til þess að knýja gagnaver, og af-
hendir Landsvirkjun 35 MW til
versins á Blönduósi. Þá rekur Etix
Everywhere Borealis einnig
gagnaver á Reykjanesi.
Nýtt gagnaver Etix tekið í notkun á Blönduósi
26.000
tölvur í
sex húsum
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hreint Suðurland er yfirskrift átaks
sem Heilbrigðiseftirlit Suðurlands
hefur hrundið af stað og á að standa
allt árið. Lóðarhafar, landeigendur
og aðrir eru hvattir til að hreinsa af
lóðum og lendum allt sem getur
valdið ónæði, mengun eða er til lýta.
Einnig geta heilbrigðisyfirvöld kraf-
ist lagfæringa og viðgerða á lóðum,
girðingum og mannvirkjum. Þá er
heimilt að láta fjarlægja númers-
lausa bíla og bílflök og annað slíkt
sem er á almannafæri, innan og utan
einkalóða og -lendna, á kostnað eig-
enda að undangenginni viðvörun.
„Átakið fór strax að hafa áhrif um
leið og það var kynnt,“ sagði Sigrún
Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Hún
sagði fólk sanka ýmsu að sér og ætla
að nýta það síðar. Svo liði tíminn og
ekkert yrði úr áformunum. Í sumum
tilvikum hefði verið kvartað vegna
umgengni. „Það er oft nóg að hnippa
í menn og benda á að þetta sé komið
út fyrir öll mörk. Það eru bæði bíl-
flök, brotajárn, vinnuvélar, landbún-
aðartæki og annað sem safnast upp.
Svo kemur að því að þetta er orðið of
mikið.“
Fyrirmynd af Suðurnesjum
Sigrún sagði að Heilbrigðiseftirlit
Suðurnesja hefði farið í svona átak
og það væri haft til fyrirmyndar. Til-
tektin á Suðurnesjum var kærð í
tveimur tilvikum og féllu úrskurðir
þar um heilbrigðiseftirlitinu í vil.
„Við erum í fullum rétti að taka á
þessum málum og höfum verkfærin
til þess að knýja á um tiltekt á lóðum
fólks,“ sagði Sigrún. Hún sagði þörf
á að taka til bæði í þéttbýli og dreif-
býli. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands
starfar í umboði 14 sveitarfélaga og
nær starfssvæðið frá Skeiðarársandi
að Selvogi auk Vestmannaeyja.
Sveitarfélögin útvega sérstaklega
starfsmann í Hreint Suðurland.
Fyrsta skrefið er að fara um og
skoða hvar þarf að taka til hendinni.
Næsta skref er skrifa eiganda eða
umráðamanni lóðar eða lands þar
sem þarf að hreinsa til og benda
honum á það sem betur má fara.
Gefinn er mánaðarfrestur til að
bregðast við. Hann fær einnig heim-
sókn þar sem hann getur útskýrt sitt
mál. Sé ekki brugðist við er skrifað
annað bréf og gefinn lokafrestur í
tvær vikur. Sé ekki brugðist við því
getur heilbrigðiseftirlitið látið
hreinsa á kostnað eigandans. Heil-
brigðiseftirlitið hefur lögveð í lóð og
fasteign og getur krafist uppboðs á
eigninni til greiðslu fyrir hreinsun-
arstarfið.
Hrein Heimaey á morgun
Almennur hreinsunardagur verð-
ur í Vestmannaeyjum á morgun, 23.
maí. Hreinsunarátakið er liður í
átakinu Hreint Suðurland og tengist
einnig 100 ára afmælisári bæjar-
félagsins. Hugmyndin er að byrja
með pylsuveislu á Stakkagerðistúni
klukkan 17.30 og síðan verður unnið
að hreinsun í um tvo klukkutíma.
Þetta er hugsað sem fjölskyldu-
viðburður þar sem kynslóðirnar
sameinast um að hreinsa Heimaey.
Átak í að hreinsa rusl á Suðurlandi
Ljósmynd/Heilbrigðiseftirlit Suðurlands
Suðurland Víða er þörf á að taka til og fjarlægja það sem hefur safnast upp.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands ætlar að hvetja lóðar- og landeigendur, þar sem ástæða þykir, til að
laga til Hefur ríkar heimildir til að grípa inn í sé ekki brugðist við ábendingum um slæma umgengni
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Skattamáli íslenska ríkisins gegn
þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og
Tryggva Jónssyni var vísað frá
Hæstarétti í gærmorgun. Var þar
með fallist á aðalkröfu ákæruvalds-
ins, en þeir Jón Ásgeir og Tryggvi
kröfðust þess að ákæruliðum í málinu
yrði vísað frá héraðsdómi.
Málið tengdist skattalagabrotum
Jóns Ásgeirs, Tryggva og Kristínar
Jóhannesdóttur í tengslum við rekst-
ur Baugs og fjárfestingafélagsins
Gaums. Þau þrjú voru dæmd árið
2012 til refsingar og greiðslu sekta og
sakarkostnaðar, en áður hafði þeim
verið gert að greiða sektir með úr-
skurði yfirskattanefndar á árinu
2007. Mannréttindadómstóll Evrópu
komst hins vegar að þeirri niðurstöðu
árið 2017 að íslenska ríkið hefði brotið
gegn þeim með því að refsa þeim
tvisvar fyrir efnislega sömu brotin.
Í kjölfar niðurstöðu Mannréttinda-
dómstólsins sendi Jón Ásgeir erindi
til endurupptökunefndar með beiðni
um að mál hans frá 2012 yrði endur-
upptekið, sem samþykkt var í fyrra.
Hæstiréttur hafnaði aftur á móti
þeirri ákvörðun í gær en dómstóllinn
hefur úrskurðarvald um ákvarðanir
nefndarinnar.
Í úrskurði Hæstaréttar segir m.a.
að hvergi sé „í íslenskum lögum mælt
berum orðum fyrir um heimild til
endurupptöku máls að gengnum
dómi mannréttindadómstólsins. End-
urupptaka yrði því ekki reist á beinni
lagaheimild“.
Þá liggi fyrir að „óhlutdrægur og
óháður dómstóll“ hafi fjallað um mál-
ið og komist að þeirri niðurstöðu að
meðferð þess bryti ekki í bága við 4.
grein 7. viðauka mannréttindasátt-
málans. „Var málið tekið til meðferð-
ar um sekt eða sýknu dómfelldu af
háttsemi samkvæmt ákæru og að lög-
um komist að þeirri niðurstöðu að
dómfelldu væru sekir um stórfelld
brot gegn skattalögum og þar með al-
mennum hegningarlögum,“ segir í
dómi Hæstaréttar.
Endurupptöku Baugsmáls
hafnað af Hæstarétti
Ekki heimild til endurupptöku eftir ákvörðun MDE