Morgunblaðið - 22.05.2019, Síða 6

Morgunblaðið - 22.05.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2019 Einstakur möguleiki á að fá einkafund með talsmanni EBK, Anders Ingemann Jensen, um uppsetningu á EBK sumarhúsum á Íslandi. Á fundinum verður farið yfir byggingarferlið, kost- naðaráætlanir og allt það sem viðkemur því, að fá nýtt EBK sumarhús byggt á íslandi. Föstudaginn 24. maí og laugardaginn 25. maí 2019 – Báða dagana frá kl. 10-17 Fundarstaður og stund: Stepp ehf., Ármúla 32, 108 Reykjavík Nauðsynlegt er að panta fundartíma gegnum netfangið aj@ebk.dk, í síma +45 4020 3238 eða á vefnum ebk-hus.is. Anders talar dönsku og ensku. Komið og upplifið hið stórkostlega MUSHOLM FRI hús Dagverðarnes 24, 311 Skorradalshreppur Frekari upplýsingar um staðsetningu er hægt að nálgast í síma 696-9899 Bókið fund með EBK í Reykjavík, sérsniðin að ykkar óskum OPIÐ HÚS Sunnudaginn 26. maí kl. 13-16 EBK HUSE A/S, Skovsøvej 15, DK-4200 Slagelse Anders Ingemann Jensen, Sími +45 4020 3238, Netfang: aj@ebk.dk 19 18 9 Hefur þú hug á að byggja nýtt sumarhús? WWW.EBK-HUS.IS DÖNSK HÖNNUN OG ARKITEKTÚR Guðrún Hálfdánardóttir guna@mbl.is Hjördís Eva Þórðardóttir, sem stýrir innanlandsstarfi UNICEF, segir að ofbeldi sé ein stærsta ógn- in sem börn á Íslandi standa frammi fyrir. Tæplega eitt af hverjum fimm börnum hefur orðið fyrir ofbeldi fyrir 18 ára aldur en alls eru 80.383 börn búsett á Ís- landi og miðað við þann fjölda eru það rúmlega 13 þúsund börn. 16,4% barna verða fyrir lík- amlegu og/eða kynferðislegu of- beldi fyrir 18 ára afmælisdaginn sinn, sum hver daglega. Hér er ekki meðtalin vanræksla, andlegt ofbeldi, rafrænt ofbeldi eða einelti, en þá væri þessi tala mun hærri. Kynferðisofbeldi gegn drengjum hefur tvöfaldast á síðustu 6 árum, 9% stúlkna í 10. bekk hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu jafnaldra og 6% drengja verða fyrir líkamlegu of- beldi á heimili sínu. Um 70% skjól- stæðinga Stígamóta urðu fyrir kyn- ferðislegu ofbeldi í barnæsku en leita sér fyrst hjálpar þegar þeir verða fullorðnir, segir Hjördís. #Me too bylting fyrir börn Í ljósi þessa kallar UNICEF eft- ir byltingu fyrir börn. Þjóðin taki höndum saman og læri að bregðast við ofbeldi um leið og þrýst er á stjórnvöld að standa vaktina. „Við sem samfélag erum ekki nægjanlega meðvituð um hvað það er sem við eigum að gera til þess að standa með barni þannig að barnið njóti vafans. Við vitum ekki hvert og hvort við eigum að láta vita. Þess vegna fer UNICEF á Ís- landi í þessa herferð – að leita til alls samfélagsins um að taka þátt og mynda með okkur breiðfylkingu fyrir börn. Einskonar #Me too byltingu fyrir börn þar sem fólk skráir sig og heitir því að standa með börnum. Að binda enda á þann feluleik sem einkennir þennan málaflokk,“ segir Hjördís. Hún segir að allir þeir sem skrái sig fái skriflegar leiðbeiningar frá UNICEF um hvað þeir geti gert og brugðist við í ólíkum aðstæðum þegar þá grunar að barn búi við of- beldi. Mikil aukning í kynferðis- ofbeldi af hálfu barna Á undanförnum árum hefur þeim börnum, sem hafa orðið fyrir kyn- ferðislegu ofbeldi af hálfu annarra barna, fjölgað töluvert. Hjá drengj- um hefur hlutfallið tvöfaldast frá árinu 2012 og mælist nú 4%. Umtalsverð aukning mælist einnig hjá stúlkum en árið 2012 sögðust 5,1% stúlkna hafa orðið fyrir slíku ofbeldi en nú er hlut- fallið komið í 8%. Hjördís segir að þetta sé graf- alvarleg staða bæði fyrir stúlkur og drengi og megi leiða líkur að því að klámvæðing og skortur á samtali um heilbrigt og eðlilegt kynlíf hafi hér mikil áhrif. Hún bendir á að rannsóknir sýni að drengir og stúlkur leita oft á náðir kláms varð- andi kynfræðslu í stað þess að fá þessa fræðslu annað hvort hjá for- eldrum og eða skólum. Viðmið þeirra séu því oft brengluð af rang- hugmyndum á þessu sviði. Að sögn Hjördísar skortir mjög á að gerðar séu rannsóknir á of- beldi gagnvart börnum á Íslandi. Þar á meðal kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt tölfræði, sem Rann- sókn og greining vann fyrir UNI- CEF, hafa 4% stúlkna og drengja orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu fullorðins einstaklings. Hlut- fall stúlkna hefur ekki breyst frá árinu 2012 en hlutfall drengja hef- ur rúmlega tvöfaldast. Það er því jafn algengt að drengir í 9. og 10. bekk verði fyrir kynferðislegu of- beldi af hálfu fullorðinna og stúlk- ur. Spurð út í þetta hlutfall segir Hjördís erfitt að svara því hvað valdi þessari miklu aukningu meðal drengja. Orðið auðveldara að greina frá „Við getum velt fyrir okkur hvort smánin í kringum ofbeldið hafi verið svo mikil hér áður að það skýri hversu fáir drengir greindu frá ofbeldi hér áður. Þetta er von- andi að breytast með minni feluleik varðandi kynferðislega misnotkun drengja og sennilega orðið auðveld- ara fyrir þá að greina frá ofbeldinu í spurningakönnun sem þessari. Það er mikilvægt að rannsaka þetta frekar og vonandi verður það gert. Það sem er verra er að þessir drengir eru ekki að skila sér inn í barnaverndarkerfið. Þeir verða fyr- ir kynferðislegu ofbeldi af hálfu fullorðinna í sama mæli og stúlkur en fá ekki hjálpina sem þeir þurfa svo sannarlega á að halda,“ segir Hjördís. Hugrekki til að standa með börnum „Höfum við hugrekki til að standa með börnum sem þurfa á aðstoð að halda?“ spyr Hjördís. Hún segir að það minnsta sem við sem samfélag getum gert fyrir börn á Íslandi sé að skrá okkur og vera með í þessari breiðfylkingu sem ætlar að taka þátt í átakinu með UNICEF, að lyfta hulunni af þessu samfélagsmeini og stöðva feluleik sem bitnar alltaf á þeim sem minnst mega sín – börnum. Kallað eftir byltingu fyrir börn  UNICEF á Íslandi hefur sett af stað átak sem beinist að ofbeldi gagnvart börnum  Eitt af hverjum 5 börnum verður fyrir ofbeldi  Allir eru hvattir til þess að skrifa undir og stöðva feluleikinn Ofbeldi gegn börnum á Íslandi Tölur frá 2018 og 2019 7% 6% 5% 4% 3% 2% 1% Aldur er ofbeldi var fyrst framið: 0-4 ára 5-10 ára 11-17 ára 13-15 ára 16-18 ára 17 ára og yngri 18 ára og eldri 2006 2009 2012 2018 9,1% 29,6% 16,4% 15,4% Hlutfall barna sem hafa orðið fyrir kynferðislegu eða líkamlegu ofbeldi* Hlutfall 13-15 ára barna sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi 2006-2018 Hlutfall einstaklinga sem hafa reynt sjálfsvíg Eftir aldri brotaþola þegar ofbeldi var framið Einstaklingar sem leituðu til Stíga- móta 2016-2018 sem voru beittir kynferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára aldur *Hér er ekki meðtalin vanræksla, andlegt ofbeldi, rafrænt ofbeldi eða einelti H ei m ild ir: U N IC EF á Ís la nd i, Ra nn só kn o g gr ei ni ng o g St íg am ót 5% 54% 41% Alls 770 einstaklingar Stúlkur Drengir Hjördís Eva Þórðardóttir Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Ís- lands, segir ánægjulegt að samning- ar samflots iðnaðarmannafélaganna hafi verið samþykktir af þeim fimm félögum sem niðurstaða liggur fyrir hjá, en úrslit atkvæðagreiðslnanna voru kynnt í gær. Úrslitin hjá félög- unum Grafíu, Matvís, VM og Félagi hársnyrtisveina voru afgerandi, en mjótt var aftur á mununum hjá Raf- iðnaðarsambandinu. Kristján segir að þátttakan hjá sambandinu hafi verið góð, en að niðurstaðan hefði mátt vera meira afgerandi. 1.713 eða 47,97% af þeim sem voru á kjörskrá sögðu álit sitt á samningunum. Þar af sögðu 840 já eða 49% og 816 eða 47,6% sögðu nei. Aðspurður hvers vegna fé- lagsmenn Rafiðnaðarsambandsins virðist ekki jafneinhuga um samn- ingana og meðlimir hinna félaganna segir Kristján Þórður það ekki liggja í augum uppi, þar sem allir samningarnir eru samhljóða. „Og við þurfum þá að rýna í það hvað liggur þarna að baki.“ Niðurstaðan sé þó sú að samning- arnir hafi verið samþykktir. „Nú er það bara okkar að vinna með þetta og hámarka þau verðmæti sem eru í samn- ingunum fyrir okkar fé- lagsmenn,“ segir Kristján Þórður og bætir við að gríðarleg sóknar- færi séu í samn- ingunum um hærra kaup og styttri vinnutíma, sem hafi verið megin- markmiðið í kjaraviðræðum iðnað- armanna. Samningurinn gildir til nóvember ársins 2022, en forsenduákvæði eru í samningunum, sem heimila uppsögn í september á næsta ári og aftur árið 2021. Segir Kristján Þórður að horft verði sérstaklega til vaxtaákvörðun- ar Seðlabankans, sem von er á í dag. „Við berum miklar vonir til að stýri- vextir bankans muni lækka, og það gæti skipt verulegu máli fyrir okkar félagsmenn,“ segir Kristján Þórður og minnir á að lækkun stýrivaxta sé á meðal þeirra forsendna sem horft sé til. sgs@mbl.is Kjarasamning- arnir samþykktir  Mjótt á munum hjá rafiðnaðarmönnum Kristján Þórður Snæbjarnarson Þegar hóparnir tveir (ein- staklingar sem urðu fyrir kyn- ferðisofbeldi í fyrsta sinn fyrir 18 ára aldur og eftir) eru bornir saman með tilliti til sjálfsvígstil- rauna kemur mikill munur fram á milli hópanna. Einstaklingur sem verður fyrst fyrir kynferðislegu ofbeldi sem barn er mun líklegri til að hafa reynt að svipta sig lífi en fullorð- inn einstaklingur, segir Hjördís Líklegri til að svipta sig lífi FÓRNARLÖMB KYNFERÐISOFBELDIS Á BARNSALDRI Eva Þórðardóttir, teymisstjóri innanlandsstarfs UNICEF á Ís- landi. Tæplega tvöfalt fleiri ein- staklingar sem urðu fyrir kyn- ferðisofbeldi í æsku reyndust hafa reynt að enda sitt eigið líf og reyndist munurinn milli hóp- anna tveggja marktækur. Jafn- framt eru þeir miklu líklegri til þess að ánetjast áfengi og fíkni- efnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.