Morgunblaðið - 22.05.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2019
Fyrir fáum árum breyttist hiðdaglega heiti Alþingis úr „lög-
gjafarstofnun“ yfir í „fjölskyldu-
vænan vinnustað“. Þess vegna var
næturfundum hætt. Sjálfstæðismenn
viðurkenndu að „afturköllun“ ESB
umsóknar væri í skötulíki en sögðu
ómögulegt að breyta stórmálinu í
rétt horf því það myndi kosta „mál-
þóf“. Og af því að næturfundir væru
nú bannaðir á hinum fjölskylduvæna
vinnustað mætti tefja mál endalaust.
Orkupakkinn, sem „snýst ekki umneitt“ að sögn sömu manna,
fær einn að gera þingið að vondum
vinnustað. Það er rétt hjá Styrmi
Gunnarssyni að „forvitnilegt er að
fylgjast með þingmönnum stjórn-
arflokkanna þessa dagana á meðan
þeir bíða eftir því að rétta upp hend-
ina með orkupakka 3, margir hverj-
ir gegn eigin samvizku.
Þingmenn Framsóknarflokksinsþegja flestir enda gera þeir sér
áreiðanlega ljóst að þeir kunna að
vera að rétta upp hendina með því
að þurrka flokk sinn út.
Þingmenn VG virðast lifa í ein-
hvers konar tómarúmi, sem bendir
til að þeir viti ekki lengur hverjir
þeir eru eða hvaðan þeir koma.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
eru kokhraustari.
En háttsemi þeirra bendir til aðþeir átti sig ekki á því að það
kemur dagur eftir þennan dag. Þeir
virðast a.m.k. ekki hafa nokkurn
áhuga á því að hljóta endurnýjað
umboð frá flokksfélögum og kjós-
endum.
Það er rétt að þeir viti af því, að
þótt þeir hafi atkvæðin í sínum
höndum á Alþingi eru það aðrir, sem
hafa þau utan þess.“
Allt fyrir ekkert
STAKSTEINAR
Skólahald verður lagt niður í Gríms-
eyjarskóla næsta vetur. Þrír nem-
endur stunduðu nám við grunnskól-
ann í vetur og tveir í leikskóla en ein
fjölskylda er að flytja burt úr eyj-
unni og eftir verður einn nemandi á
leikskólaaldri og einn á grunn-
skólaaldri.
Fræðsluráð Akureyrarbæjar hef-
ur samþykkt að fella niður skólahald
í Grímseyjarskóla tímabundið næsta
vetur en gert er ráð fyrir að sú
ákvörðun verði endurskoðuð að ári.
Nemandinn sem eftir verður hef-
ur nám í 9. bekk og fellur hann undir
reglur um skólagöngu nemenda í 9.
og 10. bekk í Grímsey en nemendur í
þeim bekkjum sækja skóla að eigin
vali á Akureyrarsvæðinu.
Karen Nótt Halldórsdóttir, skóla-
stjóri Grímseyjarskóla, sagði í sam-
tali við mbl.is að um væri að ræða
mikla sorgarfréttir en við þessu
hefði verið búist. Hún er hins vegar
bjartsýn á framhaldið. „Ég vonast til
að skólastarfið hefjist aftur sem
fyrst. Aðstaðan er til staðar, öll
námsgögn og kennslugögn. Það er
ekki verið að leggja niður skólann.“
Óvenjuleg staða er á sama tíma
komin upp í leikskólanum í Grímsey
þar sem aðeins eitt barn á leik-
skólaaldri verður búsett í eyjunni
næsta vetur. „Ég býst ekki við því að
það verði rekinn leikskóli fyrir eitt
barn,“ segir Karen.
„Sorgarfréttir“ af skólahaldi í Grímsey
Skólahald lagt niður næsta vetur Aðeins er einn nemandi á grunnskólaaldri
Morgunblaðið/Golli
Grímsey Skólahald lagt niður.
Verktaki sem Akureyrarbær hefur
samið við um endurbætur á nokkr-
um götum í Hrísey er að vinna efni í
námu við Austurveg. Alls verða um
1,4 kílómetrar af götum teknir fyrir
og er lengsti kaflinn á Austurvegi
sem liggur austur úr þorpinu.
Akureyrarbær, Norðurorka og
Rarik stóðu saman að útboði á end-
urbótum gatnanna og lögnum sem
þeim tengjast. Einnig tilheyra verk-
inu jarðvegsskipti fyrir dælustöð
Norðurorku, fjölgun ljósastaura og
hellulögn. Finnur ehf. átti lægsta til-
boðið, tæpar 72 milljónir, sem er
fimm milljónum undir kostnaðar-
áætlun. Skútaberg tók að sér efnis-
vinnsluna.
Verktakinn hefur flutt tæki út í
Hrísey til að vinna efni í námunni.
Gatnagerð á að vera lokið að fullu
fyrir lok október. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Náma Vinnuvélar Skútabergs grafa upp upp grjót og efni í námu við Aust-
urveg og mala til að undirbúa lagfæringar á nokkrum götum í Hrísey.
Verktaki undirbýr
gatnagerð í Hrísey
Austurvegur verður endurbyggður
ALLIR ÚT AÐ HJÓLA
MEÐ TUDOR
TUDOR TUDOR
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Veldu
öruggt
start me
ð
TUDOR
Eitt mesta úrval landsins
af rafgeymum í allar
gerðir farartækja
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/