Morgunblaðið - 22.05.2019, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2019
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Sálm. 16.1-2
biblian.is
Varðveit mig, Guð,
því að hjá þér leita
ég hælis. Ég segi
við Drottin: „Þú ert
Drottinn minn, ég
á engin gæði nema
þig.”
✝ Bragi Hlíðbergfæddist við
Bragagötu í Reykja-
vík 26. nóvember
1923. Hann lést á
hjartadeild Land-
spítalans við Hring-
braut 14. maí 2019.
Bragi var sonur
hjónanna Kristínar
Stefánsdóttur Hlíð-
berg, húsmóður frá
Selalæk í Rangár-
vallasýslu, f. 24. febrúar 1894, d.
27. september 1966, og Jóns
Jónssonar Hlíðbergs húsgagna-
smíðameistara, f. í Holti í Njarð-
vík á Borgarfirði eystra 6. febr-
úar 1894, d. 21. ágúst 1984.
Foreldrar Kristínar voru Stefán
Brynjólfsson, f. 28. september
1852, d. 31. ágúst 1920, bóndi í
Háakoti í Fljótshlíð, Selalæk og
síðast í Flögu í Flóa, og kona
hans Guðríður Guðmundsdóttir,
f. 30. september 1856, d. 26. júlí
1946. Foreldrar Jóns voru Jón
Vilhjálmur Hallgeirsson, f. 2.
júní 1860, d. 20. ágúst 1908, Jón
bjó í Bakkafirði. Hann drukkn-
aði í Bakkafirði ásamt syni sín-
um Hallgeiri árið 1908. Kona
Jóns Vilhjálms, og móðir Jóns
Hlíðbergs, var Sigþrúður
húsi, eftir það varð ekki aftur
snúið og Bragi varð einn ástsæl-
asti tónlistarmaður þjóðarinnar
um langt árabil, bæði með eigin
hljómsveit og öðrum.
Bragi hóf störf hjá Sjóvá-
tryggingarfélagi Íslands sem
unglingur og starfaði þar alla
sína starfsævi samhliða tónlist-
inni, síðast sem deildarstjóri
endurtrygginga.
Bragi giftist eftirlifandi eigin-
konu sinni, Ingrid Jónsdóttur
Hlíðberg, 24. nóvember 1956.
Þau bjuggu fyrstu árin í Boga-
hlíð 12 í Reykjavík áður en þau
fluttu í hús sem þau byggðu á
Smáraflöt 36, þá Garðahreppi.
Frá 2008 hafa þau hjón búið í
Hofakri 5 í Garðabæ.
Börn Ingridar og Braga eru:
1) Ellert Þór Hlíðberg, f. 28.
ágúst 1954, maki Anna María
Gestsdóttir, f. 20. febrúar 1958.
2) Jón Baldur Hlíðberg, f. 29.
maí 1957, maki Ásta Vilborg
Njálsdóttir, f. 1. júlí 1965. 3)
Kristín Hlíðberg, f. 24. febrúar
1959, maki Ástvaldur Anton Erl-
ingsson, f. 23. desember 1957. 4)
Hrafnhildur Hlíðberg, f. 22. maí
1960, maki Magnús Jónas Krist-
jánsson, f. 24. maí 1955.
Barnabörn Ingridar og Braga
eru 11 og barnabarnabörn sjö.
Útför Braga fer fram frá Ví-
dalínskirkju í dag, 22. maí 2019,
klukkan 13.
Bjarnadóttir, f.
1868, d. 24. apríl
1902. Hún var dótt-
ir Bjarna Árna-
sonar, f. 1834, frá
Gagnstöð í
Hjaltastaðaþinghá.
Bragi var einn
fimm systkina, hin
voru: Stefán Brynj-
ólfur fulltrúi hjá
Sjóvá, f. 28. nóv-
ember 1920, d.
1992. Maki Gerd Josefa Jóns-
dóttir, f. 28. apríl 1917, d. 20.
júní 1982. Valur vélfræðingur, f.
25. febrúar 1929, d. 28. septem-
ber 1964. Maki Jóna Sigríður
Tómasdóttir, f. 23. október 1930.
Haukur flugstjóri, f. 25. febrúar
1929, d. 19. september 1990.
Maki Unnur Magnúsdóttir, f. 28.
mars 1930. d. 25. október 2012.
Dóra Sigþrúður, f. 25. júlí 1936,
d. 17. janúar 2004, maki Rafn
Sigurðsson, f. 27. febrúar 1927.
Bragi ólst upp í föðurhúsum,
lengst af á Leifsgötu 12 í Reykja-
vík. Hann lærði á harmoniku
sem barn og náði fljótt ein-
stökum tökum á hljóðfærinu og
spilaði fyrst opinberlega 12 ára
að aldri. 14 ára hélt hann tón-
leika í Gamla bíói fyrir fullu
Kær frændi okkar og föð-
urbróðir Bragi Hlíðberg er lát-
inn.
Við fráfall hans reikar hug-
urinn aftur og upp koma marg-
ar ljúfar og góðar minningar
um einstakan mann.
Bragi var næstelstur Leifs-
götusystkinanna og er sá síð-
asti úr systkinahópnum sem
kveður. Það var alltaf gaman
þegar systkinin komu saman,
tístandi hlátur þeirra, glettni
og gleði og alltaf stutt í grínið.
Bragi var stór þáttur í
veisluhöldum fjölskyldunnar,
bóngóður þegar hann var beð-
inn um að taka nikkuna með og
spilaði eins og meistara er lagið
undir söng og dans, hvort sem
það voru afmælisveislur eða
fermingar og við gleymum
aldrei þegar þeir frændur
Bragi þá 84 ára og ferming-
ardrengurinn Haukur „yngsti“
14 ára spiluðu saman í ferm-
ingu þess síðarnefnda, ekki
nema 70 ára aldursmunur á
milli þeirra.
Þau Bragi og Ingrid voru
sannkallaðir farfuglar, fóru af
stað á vorin og ferðuðust með
hjólhýsið sitt og komu svo til
byggða þegar fór að hausta.
Það var gaman að hitta þau á
tjaldsvæðum víðs vegar um
landið, alltaf svo huggulegt í
kringum hýsið þeirra og
ógleymanlegt hvað þau tóku
okkur alltaf fagnandi.
Við minnumst heimsóknar
þeirra hjóna til okkar í bústað-
inn. Hann úti á palli að spjalla
við strákana á meðan þeir voru
við smíðar og tók þátt í öllum
vangaveltum sem upp komu því
að Bragi var áhugasamur um
allt það sem sneri að smíðum
og framkvæmdum og var lag-
hentur á tré og járn. Það var
auðfundið hvað hann naut þess
að koma að Flögu og rifja upp
gömlu dagana því það var
greinilegt að hann bar sterkar
taugar til sveitarinnar og
frændgarðsins þar.
Með þessum fáu orðum
kveðjum við góðan frænda með
þökk fyrir allt og allt. Minn-
ingin mun lifa.
Systkinin af Álfhólsveginum.
Alma Hlíðberg.
Látinn er Bragi Hlíðberg,
heiðursfélagi Sambands ís-
lenskra harmonikuunnenda,
SÍHU, á nítugasta og sjötta
aldursári.
Bragi hefur aukið veg harm-
onikunnar hér á landi meira en
flestir aðrir og hann var um
áratugaskeið einn allra besti
harmonikuleikari landsins.
Tónlistarferill hans er líka
ótrúlega langur og glæstur að
sama skapi, en nú eru rúm
áttatíu ár síðan hann hélt
fyrstu einleikstónleika sína í
Gamla bíói 1939, þá aðeins
fimmtán ára að aldri.
Bragi byrjaði 10 ára gamall
að spila, fyrst á hnappaharmon-
iku en svo valdi hann sér píanó-
harmoniku og hélt sig við þær
síðan.
Ferill Braga er stórglæsileg-
ur og hann var öll þessi áttatíu
ár mjög starfsamur sem harm-
onikuleikari auk þess sem hann
tók virkan þátt í félagsstarfi
hljóðfæraleikara.
Bragi sigraði í fyrstu harm-
onikukeppni sem haldin var hér
á landi 1939. Hann var kosinn
vinsælasti hljóðfæraleikari
landsins 1949 og fékk heiðurs-
viðurkenningu Norðmanna í
Bergen 1987. Hann var einn af
stofnendum Félags harmoniku-
unnenda í Reykjavík og heið-
ursfélagi þess. Bragi var kosinn
harmonikuleikari tuttugustu
aldarinnar af áskrifendum
blaðsins Harmonikan og fékk
heiðursviðurkenningu frá
SÍHU 2001 fyrir fórnfúst starf
í þágu harmonikutónlistar á Ís-
landi. Hann var heiðursfélagi
SÍHU frá árinu 2011.
Bragi var alltaf áhugasamur
um félagsstarf íslenskra harm-
onikuleikara og sótti harmonik-
umót á sumrin, ásamt Ingrid
konu sinni, fram á síðustu ár.
Þau ferðuðust um á hjólhýsinu
sínu, síðast á Landsmóti SÍHU
á Ísafirði fyrir tveimur árum.
Hann spilaði um áratuga-
skeið með hljómsveit FHUR
allt fram yfir nírætt. Auk þess
að vera snillingur á harmonik-
una samdi hann fjölda laga og
gaf út hljómplötur og diska.
Lagasmíðar hans voru, eins og
tónlist hans, fágaðar og vand-
aðar. Hann var jafnvígur á
danstónlist og klassísk verk.
Við í stjórn Sambands ís-
lenskra harmonikuunnenda
söknum vinar í stað og minn-
umst þessa hógværa og prúða
snillings með djúpri virðingu.
Jafnframt sendum við Ingrid
konu hans og fjölskyldu þeirra
hugheilar samúðarkveðjur.
Fyrir hönd stjórnar SÍHU,
Filippía Sigurjónsdóttir,
formaður.
Lítillátur, ljúfur og kátur
leik þér ei úr máta.
Varast spjátur, hæðni, hlátur
heimskir menn sig státa.
Það er líkt og mannkosta-
maðurinn Bragi hafi tamið sér
að fara eftir heilræðum Hall-
gríms Péturssonar. Við sem
þekktum Braga vel fundum að
þar fór einstaklega hógvær
maður. Vandvirkni var hans
höfuðdyggð og handlagni hans
vakti aðdáun margra. Hann
taldi aldrei eftir sér að leika á
harmonikuna í útilegum og víð-
ar.
Margir muna eftir honum og
Flemming Viðari Valmunds-
syni, núna einum efnilegasta
harmonikuleikara Íslands, í Ár-
nesi, þegar Flemming var níu
ára og Braga langaði til að þeir
spiluði saman. Flemming sagði
þá við meistarann: „Hvað
kanntu?“
Ég held við gleymum aldrei
brosinu hans Braga þá. En um
leið og Bragi er nefndur þá er
Ingrid líka á staðnum með gít-
arinn eða að mála. Ingrid taldi
ekki eftir sér að keyra eins og
herforingi með hjólhýsið
þeirra.
Og af mörgum sumarútileg-
um er ein sérstaklega minnis-
stæð, á Breiðamýri 2001. Þar
voru Bragi, Ingrid, Grettir
Björnsson og Erna kona Grett-
is og fleiri góðir félagar. Við
bjuggum til torg á miðju svæð-
inu og Hilmar Hjartarson
nefndi þetta Stjörnutorgið.
Þetta var alveg einstök upp-
lifun. Ingrid skrautmálaði,
Bragi og Grettir spiluðu og
Erna hlustaði með okkur hin-
um.
Í Harmonikublaðinu eru
margar greinar um Braga en
hann ritaði mjög góða og þarfa
grein í 3. tbl. 1998-1999, m.a.
um „sjöundarsýki“ þ.e. til-
hneigingu manna að spila sjö-
und í harmonikubassanum þeg-
ar spila ætti dúrhljóm. Þetta er
ekki ósvipað því og er haft á
orði um íslenskuna að rita frek-
ar einfalt i ef fólk er í vafa,
heldur en ypsílon.
Árið 2000 var Bragi valinn
harmonikuleikari aldarinnar
1900-2000. Bragi samdi mikið
af góðum lögum sem komið
hafa út í hefti, á plötum og síð-
ar á geisladiskum auk þessa
hefur hann leikið mörg vel val-
in lög. Bragi var gerður að
heiðursfélaga Félags harmon-
ikuunnenda í Reykjavík
(FHUR) þegar hann varð sjö-
tugur. Hann var alltaf tilbúinn
að styrkja hljómsveit FHUR.
Hljómsveitin hefur haft unun
af að leika lögin hans, m.a. í
níutíu ára afmælisveislu Braga.
Ég undirrituð varð þess
heiðurs aðnjótandi að Bragi lék
á harmoniku í 50 ára afmæli
mínu ásamt Gretti og fleirum.
Ég hitti Braga síðastliðið vor
og sagði honum að ég væri að
æfa tvö lög eftir hann, þ.e. lög-
in Dansað á þorranum og Í
Húsafellsskógi og ég ætlaði að
spila þau fyrir hann þegar ég
væri orðin nógu vel æfð. Ég
hafði orð á hvað mér fyndist
þau vel samin og góðar fingra-
æfingar og þá sagði Bragi: „Þú
hefur greinilega skilið að þetta
var einmitt tilgangurinn með
lagasmíðunum mínum.“
Ég vona að hann heyri í mér
í Sumarlandinu þar sem þeir
Grettir og fleiri stilla saman
nikkurnar sínar.
Margt höfum við upplifað
saman og allar minningarnar
munu geymast og verða rifj-
aðar upp. Við kveðjum þennan
ljúfling með söknuði og þakk-
læti.
Við félagarnir í FHUR send-
um okkar dýpstu samúðar-
kveðjur til Ingridar og allrar
fjölskyldunnar. Minningin um
meistarann Braga Hlíðberg
mun lifa.
Elísabet Halldóra Einars-
dóttir, formaður FHUR.
Bragi Hlíðberg
Elsku fallega
litla frænka mín
hefur kvatt þennan
heim, aðeins 25 ára.
Ég á erfitt með að
átta mig á því eða
lýsa þeim tilfinningum sem bær-
ast í brjósti mér. Andlát hennar
var sviplegt og mikið áfall en
ljúfar minningar lifa sem hægt
er að hlýja sér við.
Þegar Hekla Lind fæddist
hafði ég verið eina barnið í fjöl-
skyldunni í 13 ár. Það sem ég
var spennt og glöð að eignast
litla frænku. Ég man þegar ég
fékk að sjá hana fyrst og halda á
henni, svo fallegri og fínni, eins
og hún var alla sína stuttu ævi.
Ég vildi alltaf fá að halda á henni
og knúsa og til eru ófáar myndir
af okkur saman frá þessum
fyrstu árum hennar. Fljótlega
bættust svo í hópinn fleiri fræn-
kukrútt.
Ég rifja með ánægju upp
stundirnar okkar í Búðardal, hjá
ömmu og afa og í sumarbústaðn-
um okkar, þar sem litlu krakk-
arnir voru alltaf eitthvað að
bralla. Eina verslunarmanna-
helgi voru tónleikar á pallinum í
bústaðnum sem gáfu söngva-
Hekla Lind
Jónsdóttir
✝ Hekla Lindfæddist 8. mars
1994. Hún lést 9.
apríl 2019.
Útför hennar fór
fram 30. apríl 2019.
keppninni ekkert
eftir. (Ég lít svo á
að ég eigi svolítið í
þeim öllum.)
Ég passaði
Heklu þegar hún
var barn og fannst
ég heppin, við fór-
um meðal annars
saman í bíó og leik-
hús. Svo reiknaði ég
með henni stærð-
fræðidæmi þegar
hún varð unglingur. Þá leitaði
hún til mín.
Hekla var alltaf svo hlý, metn-
aðarfull og dugleg. Hún kláraði
stúdentspróf með góðum árangri
og verðlaunum og stefndi á að
verða læknir. Eftir stúdentspróf
hittumst við ekki eins oft og áður
en ég fylgdist með henni í gegn-
um pabba hennar, móðurbróður
minn, og samfélagsmiðla. Mér
féll þungt að vita af henni í glímu
við fíkniefnavanda en var eins og
aðrir vongóð um að hún hefði
betur. Nýlega benti allt til þess.
Mikið þótti mér vænt um að
hún kom og heimsótti okkur
mæðgur þegar Sigurrós Inda
var nýfædd í sumarlok í fyrra.
Þá var Hekla í bata og ákveðin
að halda því áfram.
Við hittumst svo aftur um jól-
in hjá ömmu og þegar Sigurrós
Inda var skírð. Þá fékk ég hlýtt
faðmlag sem yljar enn.
Við vorum sammála um að
þegar við hrösum sé ekkert
annað í boði en að rísa upp aftur
og halda áfram, þótt það kunni
að vera erfitt. Hekla fékk ekki
tækifæri til þess. Örlögin gripu í
taumana.
Hekla Lind hefur verið í bæn-
um mínum frá því að hún fædd-
ist og verður það áfram. Ég veit
að afi okkar hefur tekið vel á
móti þér og að þið vakið saman
yfir okkur fjölskyldunni.
Ég bið góðan Guð að vera með
ástvinum Heklu og styrkja, þá
sérstaklega foreldrum hennar og
bróður, Gunnari Aroni.
Síðast þegar við kvöddumst
kvaddi ég hana meðal annars
með þessum orðum: „Það er
aðeins ein Hekla Lind.“ Orð að
sönnu. Minning hennar lifir.
Gunnur Rós.
Hjartans elsku Hekla Lind
mín. Þú varst yndislegt barn,
góð og falleg stúlka.
Ég minnist þín með sárum
söknuði.
Vertu Guði falin um eilífð alla.
Þín amma
Sigurrós Kristín.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Jessenius Faculty of Medicine í
Martin Slóvakíu
heldur inntökupróf í læknisfræði
3. júní í MK Kópavogi. 4 júní í MA á
Akureyri og 9. ágúst í MK Kópavogi.
Upplýsingar í síma 8201071 og
kaldasel@islandia.is
Smáauglýsingar
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Félagslíf
Samkoma kl. 20
í Kristniboðssalnum. Guðlaugur
Gunnarsson talar.
Allir velkomnir.