Morgunblaðið - 22.05.2019, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2019
Pepsi Max-deild kvenna
KR – ÍBV................................................... 2:1
Þór/KA – Breiðablik................................. 1:4
Selfoss – Keflavík ..................................... 3:2
HK/Víkingur – Valur ............................... 0:4
Staðan:
Breiðablik 4 4 0 0 13:2 12
Valur 4 4 0 0 13:2 12
Stjarnan 3 2 0 1 2:1 6
Fylkir 3 2 0 1 4:4 6
Þór/KA 4 2 0 2 8:10 6
Selfoss 4 2 0 2 5:7 6
ÍBV 4 1 0 3 4:7 3
KR 4 1 0 3 3:7 3
HK/Víkingur 4 1 0 3 1:6 3
Keflavík 4 0 0 4 3:10 0
Úkraína
Chornomorets – Karpaty Lviv............... 3:1
Árni Vilhjálmsson skoraði fyrsta mark
Chornomorets og lék í 87 mínútur.
KNATTSPYRNA
0:1 Hildur Antonsdóttir 29.
0:2 Agla María Albertsdóttir 35.
0:3 Berglind B. Þorvaldsdóttir 53.
1:3 Stephany Mayor 69.
1:4 Áslaug M. Gunnlaugsdóttir 82.
I Gul spjöldLára Kristín Pedersen, og
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Þór/KA).
Stephany Mayor og
Bianca Sierra (Þór/KA)
I Rauð spjöldEnginn.
ÞÓR/KA – BREIÐABLIK 1:4
M
Stephany Mayor (Þór/KA)
Karen Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
Agla María Albertsdóttir (Bbliki)
Áslaug M. Gunnlaugsdóttir (Bbliki)
Hildur Antonsdóttir (Breiðabliki)
Heiðdís Lillýardóttir (Breiðabliki)
Kristín Dís Árnadóttir (Breiðabliki)
Berglind B. Þorvaldsdóttir (Bbliki)
Dómari: Bríet Bragadóttir - 6.
Áhorfendur: 314.
AKUREYRI/KÓRINN/
VESTURBÆR/SELFOSS
Baldvin Kári Magnússon
Edda Garðarsdóttir
Andri Yrkill Valsson
Guðmundur Karl
Stórleikur fjórðu umferðar Pepsi-
Max deildar kvenna fór fram á Þórs-
velli í gær þegar Þór/KA og Breiða-
blik áttust við. Leiknum lauk með
afar afgerandi sigri Breiðabliks 4:1.
Þessi lið voru tvö efstu liðin frá sein-
asta tímabili og því var búist við
jöfnum leik fyrir fram.
Lið Breiðabliks var mun sterkara
frá upphafi. Vörn gestanna var
sterk og Þór/KA liðinu gekk afar illa
að skapa færi í leiknum. Sóknir Þór/
KA enduðu oftast með langskotum
sem Sonný átti ekki í neinum vand-
ræðum með, ef skotin náðu að hitta
markið.
Sigurinn er gríðarlega mik-
ilvægur fyrir Breiðablik enda ekki
mörg lið sem ná í þrjú stig á Þórs-
velli. Þetta er í fyrsta skipti sem
Breiðablik vinnur Þór/KA á útivelli í
deildinni síðan 2015. Sóknarleikur
Blika gengur vel og eru mörkin að
dreifast vel á liðið. Agla er strax
komin með fimm mörk á meðan
Hildur og Berglind eru báðar komn-
ar með þrjú mörk
Leikur Þór/KA í gær var ekki
góður. Eins og fram kom áðan gekk
liðinu afar illa að skapa sér færi en
varnarleikurinn er ekki síður
áhyggjuefni. Liðið, sem hefur verið
byggt á sterkum varnarleik und-
anfarin ár hefur fengið á sig 10
mörk eftir fjóra leiki nú í ár sam-
anborið við 14 mörk á öllu tímabilinu
þar í fyrra.
Það hafa orðið mjög miklar
mannabreytingar og reynslumiklir
leikmenn horfið á braut. En öflugir
leikmenn hafa einnig komið inn í lið-
ið. Halldór Jón Sigurðsson þjálfari
Þór/KA á nú verkefni fyrir höndum
að ná betri frammistöðu úr liðinu en
þá sem sást í gær.
Létu skotin dynja á HK/Víkingi
Sigursigling Valskvenna hélt
áfram í gær þegar þær sóttu stigin
þrjú gegn HK/Víkingi í efri byggðir,
0:4. Heimaliðið mætti varkárt til
leiks með fimm varnarmenn í öft-
ustu línu og vissi að til að halda von-
inni á lífi þyrftu þær að verjast óað-
finnanlega.
Þær vörðust vel framan af og
reyndu að sækja hratt og á fáum, en
höfðu ekki erindi sem erfiði. Halla
Margrét varði oft mjög vel en Vals-
konur létu skotin dynja á markið all-
an leikinn. Það var svo hin sjóðandi
heita Elín Metta sem kom Vals-
konum yfir með snyrtilegu sentera-
marki. Blaut tuska í andlit leik-
manna HK/Víkings.
Heimakonur mættu út í seinni
hálfleik í sóknargír, þær stóðu fram-
arlega með varnarlínuna og reyndu
hvað þeir gátu til að jafna. Eftir að
Elísa jók forystu gestanna í 0:2 var
sem allur vindur færi úr heimakon-
um, sem urðu þreyttar og gleiðar í
vörninni. Valur spilaði eins og sá
sem valdið hefur, var mun meira
með boltann, skapaði ógrynni færa
og lék á als oddi það sem eftir lifði
leiksins. Varamenn Vals létu að sér
kveða áður en yfir lauk en það tók
Guðrúnu Karítas 5 mínútur að skora
mark, en það gerði hún með fínni
spyrnu úr markteig eftir fyrirgjöf
Fanndísar. Fjórða og alls ekki sísta
mark Vals skoraði svo Mist með
þéttingsfastri skrúfu af 25 metra
færi: Youtube-gæði.
Liðsheildin frábær hjá KR
Eftir þrjú töp í fyrstu þremur
leikjunum vann KR langþráðan
fyrsta sigur þegar liðið tók á móti
ÍBV, 2:1. Miðað við öfluga spila-
mennsku KR lengst af í leiknum er
ansi magnað að liðið hafi ekki náð í
stig fyrr en nú. KR stjórnaði leikn-
um algjörlega í fyrri hálfleik og upp-
skar eitt mark, en missti svo Lauf-
eyju Björnsdóttir af velli vegna
tveggja gulra spjalda á 37. mínútu.
Einum færri var liðið hins vegar
gríðarlega skipulagt, uppskar annað
mark og barðist sem ein heild þegar
sóknarþungi Eyjakvenna fór að
þyngjast verulega eftir hlé.
Hjá KR sýndi Katrín Ómarsdóttir
enn hversu mikill yfirburða-
leikmaður hún er. Ásdís Karen Hall-
dórsdóttir var síógnandi og Þórunn
Helga Jónsdóttir var ótrúlega
traust, hvort sem var á miðjunni eða
í vörninni manni færri þar sem hún
bjargaði meðal annars á línu.
Hjá ÍBV fangaði Clara Sigurð-
ardóttir vandamál Eyjaliðsins vel
við Morgunblaðið í leikslok þegar
hún sagði að það væri líkt og leik-
menn hefðu verið að hittast í fyrsta
Breiðablik
sendi skýr
skilaboð
Blikar og Valskonur með fullt hús
stiga Fyrsti sigurinn hjá KR
Tilfinningar Hildur Antons-
dóttir fagnar marki sínu
fyrir Breiðablik í gær.
Berglind Björg Þorvaldss-
dóttir samfagnar henni.
Þýskaland
8-liða úrslit, annar leikur:
Ulm – Alba Berlín................................ 83:93
Martin Hermannsson var stigahæstur
allra með 23 stig fyrir Alba. Gaf auk þess 7
stoðsendingar og tók 3 fráköst.
Staðan er 2:0 og þriðji leikur á heimavelli
Alba á sunnudag. Þrjá sigra þarf til að
komast áfram.
Argentína
San Martin – Regatas Corrientes ..... 85:89
Ægir Þór Steinarsson skoraði 4 stig fyr-
ir Regatas, tók 2 fráköst og átti 2 stoðsend-
ingar en hann lék í 20 mínútur.
Staðan er 2:1 fyrir Regatas og liðin mæt-
ast aftur á heimavelli San Martin í nótt.
Þrjá sigra þarf til að komast áfram.
Úrslitakeppni NBA
Vesturdeild, fjórði úrslitaleikur:
Portland – Golden State.......... (frl.) 117:119
Golden State vann einvígið 4:0 og mætir
Milwaukee eða Toronto í úrslitaeinvíginu
um titilinn. Staðan var 2:1 fyrir Milwaukee
fyrir fjórða leik liðanna í nótt. Sjá mbl.is/
sport.
KÖRFUBOLTI
HANDBOLTI
Danmörk
Annar úrslitaleikur:
Herning-Ikast – Esbjerg .................... 19:20
Rut Jónsdóttir gaf eina stoðsendingu og
fékk eitt víti fyrir Esbjerg.
Esbjerg sigraði 2:0 samanlagt og varð
þar með Danmerkurmeistari.
Svíþjóð
Annar úrslitaleikur:
Sävehof – Alingsås ...............................16:22
Ágúst Elí Björgvinsson varði 8/1 skot í
marki Sävehof.
Staðan er 1:1.
1:0 Lilja Dögg Valþórsdóttir 13.
2:0 Ingunn Haraldsdóttir 45.
2:1 Cloé Lacasse 77.
I Gul spjöldIngunn Haraldsdóttir og Boj-
ana Besic, þjálfari, (KR). Sigríður
Lára Garðarsdóttir (ÍBV).
I Rautt spjaldLaufey Björnsdóttir (KR) 37.
MM
Þórunn Helga Jónsdóttir (KR)
KR – ÍBV 2:1
M
Ásdís Karen Halldórsdóttir (KR)
Birna Kristjánsdóttir (KR)
Grace Maher (KR)
Katrín Ómarsdóttir (KR)
Sandra Dögg Bjarnadóttir (KR)
Cloé Lacasse (ÍBV)
Guðrún Bára Magnúsd. (ÍBV)
Emma Kelly (ÍBV)
Kristín Erna Sigurlásdóttir (ÍBV)
Dómari: Gunnar Freyr Róbertss., 7.
Áhorfendur: 100.