Morgunblaðið - 22.05.2019, Page 27

Morgunblaðið - 22.05.2019, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2019 Eirvík flytur heimilistæki inn eftir þínum séróskum Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is  Hægri hornamaðurinn Finnur Ingi Stefánsson snýr aftur á Hlíðarenda á næsta tímabili í handknattleiknum. Hann kemur nú til liðsins frá Aftureld- ingu en Valur tilkynnti í gær að hann hefði gert tveggja ára samning. Þá gerði Vignir Stefánsson nýjan samn- ing við Val sem gildir til 2021.  Handknattleikskonan Kristín Guð- mundsdóttir er gengin í raðir HK þar sem hún verður spilandi aðstoð- arþjálfari í úrvalsdeildinni. Kristín kemur til HK frá Stjörnunni en HK fékk einnig til sín Hafdísi Iura frá Fram á dögunum.  Martin Her- mannsson átti frá- bæran leik fyrir Alba Berlín þegar liðið vann annan sigur á Ulm, 98:83, í 8-liða úrslitum þýsku 1. deildarinnar í körfu- knattleik í gær. Martin var stigahæstur á vell- inum með 23 stig en hann hitti úr 3 af 6 þriggja stiga skotum sínum og var með 75% nýtingu innan þriggja stiga lín- unnar. Hann átti auk þess sjö stoðsend- ingar og tók þrjú frá- köst. Alba Berlín er nú 2:0 yfir í rimm- unni og þarf bara einn sigur í viðbót til að komast áfram í undanúrslitin. Eitt ogannað 1:0 Barbára Sól Gísladóttir 3. 1:1 Sophie Groff 29. 1:2 Sveindís Jane Jónsdóttir 34. 2:2 Grace Rapp 69. 3:2 Hólmfríður Magnúsdóttir 90. . I Gul spjöldCassie Boren (Selfossi), Mai- read Fulton, Natasha Anasi, Dröfn Einarsdóttir og Ísabel Jasmín Al- marsdóttir (Keflavík). I Rauð spjöldEnginn. SELFOSS – KEFLAVÍK 3:2 M Barbára Sól Gísladóttir (Selfossi) Áslaug Sigurbjörnsd. (Selfossi) Cassie Boren (Selfossi) Hólmfríður Magnúsd. (Selfossi) Kelsey Wys (Selfossi) Natasha Anasi (Keflavík) Sophie Groff (Keflavík) Sveindís J. Jónsdóttir (Keflavík) Anita Lind Daníelsdóttir (Keflavík) Ísabel Almarsdóttir (Keflavík) Dómari: Guðni Þór Þórsson, 5. Áhorfendur: 222. 0:1 Elín Metta Jensen 45. 0:2 Elísa Viðarsdóttir 55. 0:3 Guðrún K. Sigurðardóttir 81. 0:4 Mist Edvardsdóttir 88. I Gult spjaldKarólína Jack, HK/Víkingi. I Rauð spjöldEnginn. HK/VÍKINGUR – VALUR 0:4 M Fatma Kara (HK/Víkingi) Arna Eiríksdóttir (HK/Víkingi) Dóra María Lárusdóttir (Val) Fanndís Friðriksdóttir (Val) Elín Metta Jensen (Val) Dómari: Þórður Már Gylfason, 7. Áhorfendur: 200. Rut Jónsdóttir varð í gær danskur meist- ari í handknattleik fyrst íslenskra kvenna þegar lið hennar Esbjerg fagnaði sigri eft- ir úrslitarimmu við Herning. Esbjerg vann Herning 20:19 í öðrum leik liðanna í úrslitarimmunni um titilinn og sigraði samtals 2:0. Esbjerg var 1:0 yfir eftir átta marka sig- ur 28:20 á heimavelli í fyrri leiknum á laugardaginn. Esbjerg náði í gær 20:15 forystu þegar sex mínútur voru til leiks- loka. Leikmenn Herning neituðu að gefast upp og náðu að minnka muninn í eitt mark þegar enn var rúm mínúta til stefnu, en fleiri urðu mörkin ekki. Rut átti eina stoð- sendingu í leiknum og fiskaði eitt vítakast. Þetta er í annað sinn á síðustu fjórum leiktíðum sem Esbjerg verður danskur meistari en liðið fagnaði einnig sigri árið 2016. Rut og samherjar hennar urðu í 2. sæti EHF-keppninnar nú í vor og einnig í 2. sæti dönsku deildakeppninnar. Rut kom til Esbjerg sumarið 2017 en var þá orðin ófrísk og spilaði því ekki með liðinu þá leiktíð. Hún glímdi svo við meiðsli í kjöl- farið og spilaði sína fyrstu leiki fyrir liðið því ekki fyrr en á miðri þessari leiktíð. Viðtal við Rut er að finna á: mbl.is/sport/handbolti Rut Jóns danskur meistari Meistari Rut Jónsdóttir varð í gær danskur meistari. sinn. Einum fleiri fékk ÍBV sann- arlega tækifærin, en liðsheildin var ekki til staðar á meðan hún reyndist sterkasta vopn KR-inga. Hólmfríður til bjargar Hólmfríður Magnúsdóttir tryggði Selfyssingum dramatískan sigur á botnliði Keflavíkur á Selfossi í gær- kvöldi. Keflvíkingum hlýtur að líða ömurlega eftir þennan leik en þær réðu lögum og lofum lengst af og leiddu 2:1 fram á 70. mínútu. Hólmfríður kom inná sem vara- maður á 66. mínútu og fjórum mín- útum síðar var hún búin að leggja upp jöfnunarmarkið, 2:2. Lokakafl- inn var tíðindalítill og fátt sem benti til þess að annað hvort liðið myndi sigra. Selfoss fékk hornspyrnu á 90. mínútu og Hólmfríður stangaði bolt- ann í netið. Þvílík reynsla í þessu marki. Selfyssingar voru með krummafót í fyrri hálfleik og áttu ekki von á því að Keflavík myndi pressa þær hátt á vellinum. Sóknarleikur Keflavíkur var frá- bær í fyrri hálfleik og unun að fylgj- ast með Sveindísi Jane. Hún var allt í öllu í leik Keflvíkinga, dugleg að dreifa boltanum og klók að hlaupa inn í svæði, með og án bolta. Seinni hálfleikurinn var mun jafn- ari og þegar leið á leikinn var ljóst að Selfoss átti meira á bensín- tanknum. Reynsla Hólmfríðar kom þeim til bjargar á ögurstundu. Ekki amalegt að hafa svona leikmann á bekknum. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason Morgunblaðið/Árni Sæberg Skoraði Varnarmaðurinn Lilja Dögg Valþórsdóttir skoraði fyrir KR og verst hér Kristínu Ernu Sigurlásdóttur í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.