Morgunblaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 4. M A Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 121. tölublað 107. árgangur
GRÆNIR FINGUR,
GRILL OG
KRYDDJURTARÆKT
GARÐAR 40 SÍÐUR
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Það stefnir í alvarlegt ástand hjá
Sorpu á höfuðborgarsvæðinu ef ekki
finnst lausn á því hvaða förgunar-
úrræði tekur við af urðunarstaðnum
í Álfsnesi, verði hann tekinn úr notk-
un í lok árs 2020 eins og samkomulag
eigenda Sorpu kveður á um.
„Það fer að liggja á því að tekin sé
ákvörðun um framhaldið,“ segir
Björn H. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Sorpu.
Fáist land á Kjalarnesi fyrir nýja
urðunarstaði tekur að sögn Björns
fimm til sjö ár að undirbúa það til
urðunar. Í minnisblaði sem Björn
hefur lagt fyrir stjórn Sorpu er farið
yfir nokkra aðra kosti. Niðurstaðan
er að urðunarstaðir á Vesturlandi og
Suðurlandi komi ekki til greina, ekki
séu tæknilegir möguleikar á að flytja
úrgang til förgunar í útlöndum þótt
það kunni að breytast með nýrri gas-
og jarðgerðarstöð og ný brennslu-
stöð sé mjög dýr kostur. Augljósa
leiðin sé að óska eftir því við eig-
endur Sorpu að lokun Álfsness verði
frestað þar til viðunandi lausn til
framtíðar verði fundin. Núverandi
svæði gæti dugað fram til loka árs
2022.
Björn segir að verið sé að byggja
gas- og jarðgerðarstöð sem muni
taka við hluta af úrgangi sem áður
fór í Álfsnes, t.d. heimilisúrgangin-
um. „Það er samt sem áður fullt af
efni sem á eftir að finna lausn fyrir,“
segir Björn.
Urðunarstaðurinn í Álfsnesi var
tekinn í notkun árið 1991 og í mars
sl. höfðu 2,8 milljónir tonna af rusli
verið urðaðar þar.
Óljóst um arftaka Álfsness
Urðunarstaðurinn í Álfsnesi að fyllast Óljóst hvar farga má ruslinu þegar svo
verður Samkomulag kveður á um að urðun á Álfsnesi skuli hætt í lok 2020
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reykjavíkurflugvöllur Aðflug að
vellinum úr norðurátt.
Baldur Arnarson
baldur@mbl.is
Hvassahraun er ekki eini raunhæfi
kosturinn fyrir nýjan innanlands-
flugvöll, að sögn Dags B. Eggerts-
sonar borgarstjóra. Athuganir hing-
að til bendi hins vegar til þess að það
sé besti kosturinn.
Dagur gerði hátt hlutfall ferða
með bílaleigubílum frá Keflavíkur-
flugvelli, alls 55%, að umtalsefni á
ráðstefnu í Osló um skipulagsmál
borga. Verið er að skoða möguleika á
fluglest til að efla almenningssam-
göngur á þessari leið og draga um
leið úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Segist Dagur hafa verið opinn fyrir
þeirri hugmynd frá upphafi.
Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi
segir að uppbygging á fyrrverandi
helgunarsvæðum við Reykjavíkur-
flugvöll sé hluti af umbreytingu
Vatnsmýrarinnar. Telur hann engan
vafa á því að flugvöllurinn muni fara
úr Vatnsmýri og vonar að borgar-
flugvöllur verði lagður í Hvassa-
hrauni. Telur hann líklegt að völlur-
inn verði farinn eða svo gott sem
farinn um 2030. »10
Hvassahraun besti kostur
Reykjavíkurborg horfir til borgarflugvallar í Hvassahrauni
Bandaríski rit-
höfundurinn Siri
Hustvedt hlaut
hin virtu bók-
menntaverðlaun
Asturias á Spáni
á dögunum fyrir
höfundarverk
sitt. Hún hefur
gefið út sex
skáldsögur,
ljóðabók og greinasöfn. Hustvedt
dvaldist sumarlangt á Íslandi þegar
hún var þrettán ára og faðir hennar
var hér við rannsóknir á Íslend-
ingasögunum. Hefur hún lýst því
yfir að sumarið á Íslandi hafi verið
eitt það yndislegasta sem hún hafi
lifað. Siri Hustved var gestur Bók-
menntahátíðar í Reykjavík árið
2005. »29
Íslandsvinur verð-
launaður á Spáni
Siri Hustvedt
Átak til að stytta biðlista eftir lið-
skiptaaðgerðum á hnjám og mjöðm-
um bar ekki tilætlaðan árangur m.a.
vegna þess að sífellt yngra fólk fer í
slíkar aðgerðir og offita fer vaxandi.
Þetta er meðal þess sem fram kom á
fundi í gær þar sem niðurstöður
skýrslu Embættis landlæknis um
árangur af biðlistaátakinu, sem stóð
yfir árin 2016-2018, voru kynntar.
Að fjölga aðgerðum sem þessum
dugar ekki eitt og sér til að stytta
biðina, þörf er á samstilltu átaki
þeirra sem koma að heilbrigðismál-
um. Meðal þess sem litið er til er að
fólk fái svokallaða forhæfingu þann-
ig að það sé hraustara þegar það
leggst undir hnífinn.
Meðal þeirra ábendinga til heil-
brigðisráðuneytisins sem landlæknir
nefnir í skýrslunni er að þessum að-
gerðum verði útvistað tímabundið til
einkaaðila, takist ekki að fjölga þeim
á þeim þremur sjúkrahúsum þar
sem þær eru gerðar.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra segir að nær væri að ein-
faldari verkefnum væri útvistað
þannig að rými skapaðist til að gera
aðgerðirnar á sjúkrahúsunum. »6
Landlæknir vill skoða
útvistun aðgerða
Tæplega níu af hverjum tíu bílum
fóru um Vaðlaheiðargöng í vetur,
eftir opnun þeirra, og rúmlega einn
af hverju tíu fór um Víkurskarð.
Þetta breyttist þegar leið á vet-
urinn. Hlutfall þeirra sem fóru um
Víkurskarð hækkaði á kostnað
ganganna. Það sem af er maí-
mánuði hafa um átta bílar af hverj-
um tíu farið göngin.
Heildarumferðin hefur aukist og
þrátt fyrir að meiri umferð sé um
Víkurskarð en reiknað var með er
umferðin um göngin svipuð og bú-
ist var við, að sögn Valgeirs Berg-
mann, framkvæmdastjóra. Unnið
er að lokafrágangi og snyrtingu ut-
an við göngin. »8
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Vaðlaheiðargöng Göngin voru opnuð
formlega við athöfn 12. janúar sl.
Fleiri fara um Víkur-
skarð en áætlað var
Fjöldi göngufólks tók þátt í hátíðinni Úlfarsfell
1000 sem Ferðafélag Íslands stóð fyrir á fjallinu
í gær. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
ávarpaði samkomuna og tónlistarfólk skemmti
fólki með söng og hljóðfæraleik. Þetta er í annað
sinn sem hátíðin er haldin á Úlfarsfelli.
Göngufólk sækir hátíð í veðurblíðu á Úlfarsfelli
Morgunblaðið/Eggert