Morgunblaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2019
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Úrslit þingkosninganna á Indlandi –
fjölmennustu kosninga í sögu lýð-
ræðisins í heiminum – eru mikill sig-
ur fyrir Narendra Modi forsætisráð-
herra og þjóðernisflokk hindúa, BJP.
Forsætisráðherrann og flokkur hans
lögðu áherslu á þjóðernishyggju í
kosningabaráttunni og töluðu minna
um efnahagsumbætur en í kosning-
unum fyrir fimm árum þegar Modi
komst til valda.
Stjórnmálaskýrendur segja að þótt
niðurstaða kosninganna sé skýr sé
óljóst hvernig forsætisráðherrann
notfæri sér sterka stöðu flokksins á
þinginu næstu fimm árin. Meðal ann-
ars sé óvissa um hvort Modi haldi
áfram að leggja áherslu á þjóðernis-
hyggjuna og mál, sem hafa aflað hon-
um mikilla vinsælda meðal hindúa,
eða hvort hann nýti þingmeirihlutann
til að koma á umbótum sem eru tald-
ar nauðsynlegar til að bæta efnahag
landsins til langs tíma litið en eru lík-
legar til að minnka vinsældir hans.
Velji hann síðarnefnda kostinn og
komi á efnahagsumbótum í þessu
fjölmenna landi gæti það haft mikla
þýðingu fyrir efnahag heimsins.
Gandhi missti þingsætið
Um 900 milljónir manna voru á
kjörskrá og kjörsóknin var 67%, sú
mesta í sögu kosninga til indverska
þingsins. Samkvæmt kjörtölum sem
voru birtar í gær stefnir í að BJP fái
um 300 af 543 sætum á indverska
þinginu. Kongressflokkurinn fékk að-
eins um 50 sæti og Rahul Gandhi – af-
komandi þriggja forsætisráðherra –
missti þingsæti sem fjölskylda hans
hafði haldið í áratugi, að sögn AFP.
BJP þurfti 272 sæti til að fá meiri-
hluta og hann fékk 282 í kosning-
unum árið 2014. Fyrir þær hafði eng-
inn flokkur náð meirihluta á
indverska þinginu í þrjá áratugi.
Eftir sigurinn fyrir fimm árum hóf
Modi kjörtímabilið með metnaðar-
fullum áformum um ráðstafanir til að
auka fjárfestingar og hagvöxtinn sem
hefur verið um 7-8% á Indlandi síð-
ustu árin og meiri en í nokkru öðru
stóru landi í heiminum. Hægja fór þó
á umbótunum á síðari hluta kjörtíma-
bilsins og hagvöxturinn mældist und-
ir 7% í lok síðasta árs, að sögn The
Wall Street Journal.
Sagðir ala á sundrungu
Modi og aðrir forystumenn
stjórnarflokksins lögðu miklu minni
áherslu á efnahagsumbætur og at-
vinnumál fyrir kosningarnar nú og
höfðuðu aðallega til þjóðarstolts Ind-
verja, einkum hindúa sem eru um
80% íbúanna. Þeim varð m.a. tíðrætt
um nýleg átök Indverja og Pakistana
í tengslum við deiluna um Kasmír.
Þeir gerðu einnig mikið úr eld-
flaugarskoti Indverja fyrr á árinu,
þegar þeir grönduðu indverskum
gervihnetti í tilraunaskyni, og sögðu
það sönnun þess að Indland hefði
bæst í hóp helstu „geimvelda heims“.
Þeir hreyktu sér einnig af því að hafa
beitt sér fyrir banni við því að slátra
kúm, sem eru álitnar heilagar í
hindúasið, og fjölyrtu um fleiri mál
sem hljóma vel í eyrum þjóðernis-
sinnaðra hindúa. Andstæðingar
stjórnarflokksins saka hann um að
kynda undir sundrungu í landinu og
ætla að skerða réttindi minnihluta-
hópa, einkum múslíma sem eru um
14% íbúanna. Þeir skírskota m.a. til
þess að morðum á múslímum og fólki
í öðrum minnihlutahópum hefur
fjölgað á síðustu árum. Modi hefur
neitað þessum ásökunum og segist
ætla að starfa í þágu allra Indverja.
Nokkrir stjórnmálaskýrendur telja
að þjóðernisáherslur stjórnarflokks-
ins séu tímabundnar og markmiðið
með þeim hafi aðeins verið að auka
fylgi hans meðal hindúa. Þeir spá því
að BJP notfæri sér sterka stöðu sína
á þinginu til að knýja fram umbætur
sem séu nauðsynlegar til að efla efna-
haginn og bregðast við mikilli fjölgun
ungs fólks sem kemur inn á vinnu-
markaðinn. Fjölga þarf störfunum
um nær milljón á mánuði að meðaltali
til að tryggja unga fólkinu atvinnu.
Aðrir stjórnmálaskýrendur segja
hins vegar að mikill kosningasigur
flokksins verði til þess að hann telji
sig ekki þurfa að koma á erfiðum
efnahagsumbótum sem gætu minnk-
að fylgi hans í næstu kosningum.
„Sigurinn sendir þau skilaboð að þeir
þurfi ekki að hafa svo miklar áhyggj-
ur af efnahagsmálunum, þeir geti náð
endurkjöri án mikilla efnahags-
umbóta sem myndu ganga á pólitísk-
an höfuðstól þeirra,“ hefur The Wall
Street Journal eftir Vivek Dehejia,
hagfræðiprófessor við Carleton-
háskóla í Ottawa.
Jók fylgið með þjóðernisáherslum
Óljóst er hvort Modi forsætisráðherra nýti sterka stöðu flokks síns á þingi Indlands til að koma á erf-
iðum efnahagsumbótum Lagði meiri áherslu á þjóðernishyggju en efnahagsmál í kosningabaráttunni
AFP
Fögnuður Stuðningsmenn stjórnarflokksins BJP fagna kosningasigri hans í indversku borginni Bangalore.
Fátæki testrákurinn
hófst til metorða
» Narendra Modi er 68 ára,
fæddist í bænum Vadnagar í
Gujarat-ríki. Þegar hann var
barn hjálpaði hann föður sínum
að selja te í sölubás í lestastöð
bæjarins.
» Modi er sagður hafa gengið í
þjóðernishreyfingu hindúa,
RSS, þegar hann var átta ára og
farið að heiman á unglingsaldri
til að starfa fyrir hana.
» Hann kveðst vera „sonur
moldarinnar“ og hafa brotist úr
fátækt, ólíkt helsta keppinaut
sínum, Rahul Gandhi – syni,
barnabarni og barnabarnabarni
þriggja forsætisráðherra.
» „Já, maður sem kom úr fá-
tækri fjölskyldu varð forsætis-
ráðherra. Þeir leyna ekki fyrir-
litningu sinni á mér vegna
þessarar staðreyndar. Jú, ég
seldi te, en ég seldi ekki landið
mitt,“ sagði hann á kosninga-
fundi.
Vinsæll Narendra Modi nýtur mik-
illar hylli meðal hindúa á Indlandi.
Löng biðröð myndaðist við tind
Everestfjalls í gær eftir að skýrt
var frá því að tveir fjallgöngumenn
hefðu látið lífið á fjallinu. Meira en
200 manns notfærðu sér gott veður
til að klífa hæsta fjallstind jarðar en
margir þeirra þurftu að bíða
klukkustundum saman áður en þeir
komust á hann. Á meðal þeirra sem
klifu tindinn í gær eru þrír Íslend-
ingar, Bjarni Ármannsson, Leifur
Örn Svavarsson og Lýður Guð-
mundsson. Alls hafa níu Íslend-
ingar komist á tindinn. 807 manns
klifu tindinn á síðasta ári, fleiri en
nokkru sinni fyrr, og búist er við að
metið verði slegið í ár, að sögn
fréttaveitunnar AFP.
AFP
Löng biðröð á Everest
T Í S K A & L Í F S S T Í L L
S k ó l a v ö r ð u s t í g 1 6 a
Op i ð v i r k a d a g a 11 -18 / l a u g a r d . 11 -17 / Sk ó l a v ö r ð u s t í g u r 16 a , 10 1 Re y k j a v í k / S ím i 5 6 2 0 0 16
Lemon Jelly – stígvél
Stærð: 36-41
margir litir/glans/matt
Verð: 12.995.-