Morgunblaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2019 Inkasso-deild karla Njarðvík – Keflavík................................. 0:0 Haukar – Þróttur R ................................. 2:4 Sean De Silva 2., 20., – Jasper Van Der Hayden 25., 61., Ágúst Leó Björnsson 18., Lárus Björnsson 21. Afturelding – Fjölnir .............................. 1:3 Róbert Orri Þorkelsson 13. – Bergsveinn Ólafsson 7., Albert Ingason 64., Kristófer Óskar Óskarsson 81. Staðan: Keflavík 4 3 1 0 10:2 10 Fjölnir 4 3 0 1 11:6 9 Víkingur Ó. 3 2 1 0 4:1 7 Njarðvík 4 2 1 1 5:5 7 Þór 3 2 0 1 7:4 6 Þróttur R. 4 1 1 2 9:9 4 Fram 3 1 1 1 5:5 4 Grótta 3 1 1 1 5:6 4 Leiknir R. 3 1 0 2 6:5 3 Afturelding 4 1 0 3 4:12 3 Haukar 4 0 2 2 4:7 2 Magni 3 0 0 3 3:11 0 2. deild karla Selfoss – Víðir .......................................... 5:1 Hrvoje Tokic 17. (víti), 48., Ingi Rafn Ingi- bergsson 49., Valdimar Jóhannesson 59., Kenan Turudija 64. – Nathan Ward 29. Staðan: Selfoss 4 3 0 1 11:3 9 Víðir 4 2 1 1 8:8 7 KFG 3 2 0 1 5:2 6 Vestri 3 2 0 1 6:5 6 Völsungur 3 2 0 1 4:5 6 Kári 3 1 1 1 6:4 4 ÍR 3 1 1 1 4:4 4 Leiknir F. 3 0 3 0 5:5 3 Fjarðabyggð 3 1 0 2 3:4 3 Dalvík/Reynir 3 0 2 1 3:4 2 Þróttur V. 3 0 2 1 3:6 2 Tindastóll 3 0 0 3 0:8 0 3. deild karla KH – Vængir Júpíters ............................. 1:2 KV – Álftanes............................................ 5:1 Höttur/Huginn – Einherji ....................... 3:0 Staðan: Kórdrengir 4 3 1 0 9:3 10 KV 4 3 0 1 10:5 9 KF 3 2 1 0 9:3 7 Álftanes 4 2 1 1 9:7 7 Vængir Júpiters 4 2 0 2 6:6 6 Reynir S. 4 1 2 1 5:4 5 Augnablik 3 1 1 1 8:6 4 Höttur/Huginn 4 1 1 2 5:5 4 Sindri 3 1 0 2 3:6 3 Einherji 4 1 0 3 4:8 3 Skallagrímur 3 1 0 2 3:10 3 KH 4 0 1 3 6:14 1 Svíþjóð Piteå – Limhamn Bunkeflo .................... 2:1  Andrea Thorisson kom inn á sem vara- maður á 57. mínútu hjá LB. Noregur Bikarkeppnin, 2. umferð: Hinna – Viking......................................... 1:4  Samúel Kári Friðjónsson lék allan leik- inn og skoraði tvö fyrir Viking. Axel Óskar Andrésson er frá keppni vegna meiðsla. KNATTSPYRNA 4. UMFERÐ Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Ef einhver ein niðurstaða liggur fyr- ir að lokinni fjórðu umferð í úrvals- deild kvenna í fótbolta sem fram fór í vikunni, þá er hún sú að Þór/KA verður ekki með í baráttunni um Ís- landsmeistaratitilinn í ár. Akureyrarliðið sem varð Íslands- meistari 2017 og háði harðan slag við Breiðablik um titilinn í fyrra er búið að tapa fyrir bæði Val og Breiðabliki í fyrstu fjórum umferðunum og hef- ur fengið slæma skelli í báðum þar sem það hefur fengið á sig níu mörk, fimm gegn Val og fjögur í 1:4 ósigr- inum gegn Blikum á heimavelli á þriðjudagskvöldið. Til samanburðar fékk Þór/KA á sig 14 mörk allt síð- asta tímabil og 15 mörk árið 2017. Vissulega hafa orðið breytingar, sterkir leikmenn fóru frá Þór/KA og sá liðsauki sem kom í staðinn virðist ekki hafa fyllt nægilega vel í skörðin. Líklega er erfiðast að fylla skarð Lillýjar Rutar Hlynsdóttur í varnar- leiknum og að sjálfsögðu var Sandra María Jessen liðinu gríðarlega mikil- væg. Stjarnan virðist eina liðið sem gæti mögulega fylgt Val og Breiða- bliki eftir en það er samt langsótt þrátt fyrir góða byrjun hjá ungu og mikið breyttu Garðabæjarliði. Það verður prófraun fyrir Kristján Guð- mundsson og hans stúlkur að fara til Eyja á mánudagskvöldið. Breiðablik og Valur mætast ekki fyrr en í áttundu umferð í byrjun júlí og það þyrfti engum að koma á óvart þó bæði kæmu í þann slag með fullt hús stiga. Nýliðar Keflavíkur hafa ekki heppnina með sér og eru enn stiga- lausir á botninum. Lið HK/Víkings er í basli, hefur skorað eitt mark og þessi tvö lið virðast eiga á hættu að festast við botn deildarinnar. „Þórunn var ótrúlega traust“  KR-ingurinn Þórunn Helga Jónsdóttir var besti leikmaður 4. umferðar að mati Morgunblaðsins en hún átti mjög góðan leik þegar Vesturbæjarliðið krækti í sín fyrstu stig með því að sigra ÍBV 2:1 á Meistaravöllum á þriðjudagskvöldið. Þórunn var þar í lykilhlutverki sem varnartengiliður en KR hélt fengn- um hlut manni færri í rúmar 50 mín- útur eftir að hafa misst Laufeyju Björnsdóttur af velli með rautt spjald í fyrri hálfleiknum. Andri Yr- kill Valsson skrifaði í Morgunblaðið: „Þórunn Helga Jónsdóttir var ótrú- lega traust, hvort sem var á miðj- unni eða í vörninni þar sem hún bjargaði meðal annars á línu.“ Þórunn, sem er fyrirliði KR, er í hópi reyndustu leikmanna deild- arinnar. Hún lék með KR frá 2001 til 2008 og lék alla leiki liðsins þegar það varð Íslandsmeistari 2002 og 2003. Þórunn lék síðan í rúm átta ár sem atvinnumaður erlendis, fjögur ár í Brasilíu þar sem hún varð m.a. Suður-Ameríkumeistari með Santos og lék einnig með Bangu og Vitoria, en spilaði síðan í hálft fimmta ár með Avaldsnes í Noregi og fékk tvívegis silfurverðlaun í úrvalsdeildinni með liðinu. Þórunn sneri síðan heim og leikur sitt þriðja tímabil með KR eft- ir það. Hún er orðin sjötta leikja- hæsta knattspyrnukona Íslands í deildakeppni heima og erlendis með 284 deildaleiki í þremur löndum. Bakvörður á skotskónum  Áslaug Munda Gunnlaugs- dóttir úr Breiðabliki var besti ungi leikmaður 4. umferðar að mati Morgunblaðsins. Hún hefur leikið mjög vel í nýrri stöðu sem vinstri bakvörður og skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu sem inn- siglaði 4:1 sigurinn gegn Þór/KA á þriðjudagskvöldið. Hún hóf einmitt tímabilið á því að skora tvö mörk gegn Akureyrarliðinu í Meistara- keppni KSÍ. Áslaug Munda er aðeins 17 ára gömul, verður átján ára um helgina, en lék 15 leiki með Breiðabliki á síð- asta tímabili og þar á undan var hún í tvö ár með Völsungi í 1. og 2. deild. Áslaug skoraði 6 mörk fyrir Völ- sungsliðið í 2. deildinni 2017. Hún er þó frá Egilsstöðum og lék með Hetti í yngri flokkunum. Áslaug hefur nú skorað þrjú mörk í 19 leikjum með Breiðabliki í efstu deild og hún á að baki 24 leiki með yngri landsliðum Íslands.  Stephany Mayor, mexíkóska landsliðskonan hjá Þór/KA, skoraði sitt 50. mark í efstu deild í ósigrinum gegn Breiðabliki. Þessi fimmtíu mörk hefur hún skorað í aðeins 57 leikjum með liðinu. Hún er fjórða markahæst hjá Þór/KA í deildinni frá upphafi.  Þór/KA lék sinn 300. leik í efstu deild gegn Breiðabliki og er sjöunda leikjahæsta liðið frá upphafi.  Andrea Rán Hauksdóttir, landsliðskona úr Breiðabliki, lék sinn 100. leik í efstu deild gegn Þór/ KA.  Barbára Sól Gísladóttir úr Sel- fossi, Renae Cuéllar úr Stjörnunni og Sophie Groff úr Keflavík skoruðu báðar sitt fyrsta mark í deildinni í viðureign liðanna á Selfossi.  Tveir nýir leikmenn léku í 4. umferð. Aytac Sharifova markvörð- ur frá Aserbaídsjan var á milli stanganna hjá Keflavík í fyrsta sinn og bandarískur framherji, Simone Kolander, lék sinn fyrsta leik með HK/Víkingi. Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019 Þessar eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik. Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 6 Birta Guðlaugsdóttir, Stjörnunni 5 Cloé Lacasse, ÍBV 5 Elín Metta Jensen, Val 5 Hildur Antonsdóttir, Breiðabliki 4 Natasha Moraa Anasi, Kefl avík 4 Alexandra Jóhannsdóttir, Breiðabliki 3 Andrea Mist Pálsdóttir, Þór/KA 3 Berglind B. Þorvaldsdóttir, Breiðabliki 3 Dóra María Lárusdóttir, Val 3 Emma Kelly, ÍBV 3 Halla M. Hinriksdóttir, HK/Víkingi 3 Ída Marín Hermannsdóttir, Fylki 3 Jasmín Erla Ingadóttir, Stjörnunni 3 Stephany Mayor, Þór/KA 3 Sveindís Jane Jónsdóttir, Kefl avík 3 Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 5 Stephany Mayor, Þór/KA 4 Berglind B. Þorvaldsdóttir, Breiðabliki 3 Hildur Antonsdóttir, Breiðabliki 3 Hlín Eiríksdóttir, Val 3 Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 3 Andrea Mist Pálsdóttir, Þór/KA 2 Cloé Lacasse, ÍBV 2 Elín Metta Jensen, Val 2 Grace Rapp, Selfossi 2 Ída Marín Hermannsdóttir, Fylki 2 Sveindís Jane Jónsdóttir, Kefl avík 2 Markahæstar Breiðablik 24 Valur 20 Stjarnan 19 ÍBV 16 Þór/KA 14 Fylkir 14 Selfoss 14 HK/Víkingur 14 Kefl avík 14 KR 13 Leikmenn: Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 23-4-3 Birta Guðlaugsdóttir Stjörnunni Fanndís Friðriksdóttir Val Hólmfríður Magnúsdóttir Selfossi Katrín Ómarsdóttir KR Dóra María Lárusdóttir Val Hildur Antonsdóttir Breiðabliki Renae Cuéllar Stjörnunni Cassie Boren Selfossi Þórunn Helga Jónsdóttir KR Agla María Albertsdóttir Breiðabliki Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir Breiðabliki 4. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2019 2 Lið: 3 4 2 2 Geta gleymt titilbaráttu  Akureyrarliðið fékk á sig níu mörk gegn Breiðabliki og Val  Þórunn Helga besti leikmaður 4. umferðar  Áslaug Munda besti ungi leikmaðurinn Morgunblaðið/Hari KR Þórunn Helga Jónsdóttir fékk 2 M fyrir frammistöðuna gegn ÍBV. Morgunblaðið/Árni Sæberg Breiðablik Áslaug Munda Gunn- laugsdóttir skoraði glæsimark.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.