Morgunblaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2019 ✝ Hafþór Þór-arinsson fædd- ist 20. apríl 1976 á Akureyri. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri 10. maí 2019. Foreldrar hans eru Sigurbjörg Jónsdóttir, skrif- stofumaður og sjúkraliði, f. 7.8. 1956, og Þórarinn Stefánsson stýrimaður, f. 11.10. 1945, d. 19.5. 2010. Hafþór var elstur af fimm systkinum, systkini hans eru Harpa Mjöll, f. 1.2. 2001, og Lotta Karen, f. 19.3. 2004. Hafþór kvæntist Lenu Mar- gréti Konráðsdóttur, f. 12.9. 1987, hennar börn eru Valgeir Elís, f. 14.8. 2009, og Alex- andra Sigríður, f. 7.8. 2011. Hafþór ólst upp með fjöl- skyldunni á Raufarhöfn þar til hann flutti til Akureyrar til að sækja nám. Hann útskrifaðist sem vélstjóri frá Verkmennta- skólanum á Akureyri árið 1999 og starfaði sem vélstjóri á sjó upp frá því, síðustu árin á Björgúlfi hjá Samherja. Hann var búsettur á Akureyri allt til ársins 2017 þegar hann flutti til Dalvíkur með eiginkonu sinni. Útför Hafþórs fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 24. maí 2019, og hefst athöfnin klukk- an 13.30. eru: 1) Petrína Soffía Eldjárn, f. 25.5. 1977, maki Hlynur Pálmason, 2) Jón Þórarinsson, f. 2.2. 1980, d. 11.5. 1980, 3) Jón Þór- arinsson, f. 31.7. 1981, maki Ásdís María Ægisdóttir, 4) Þorbergur Þór- arinsson, f. 10.3. 1988, maki Katrín Ósk Reykjalín Vilhjálmsdóttir. Hafþór kvæntist Ingveldi Myrru Sturludóttur, f. 16.6. 1979, þau skildu. Dætur þeirra Ein minna verstu martraða er orðin að veruleika. Hafþór bróðir, sem var mér samferða í lífinu, lést langt fyrir aldur fram. Sama dag og krían kom til landsins kvöddum við þennan dýrmæta mann og vor- um reið og sár við almættið. Hvernig getur vorið bara komið þegar svona stendur á? Ég held að vorið og loforðið um bjartari tíma sé komið til að standa með okkur, segja okkur að lífið sé ekki á enda og að hann sé á bjartari stað. Við Hafþór vorum sem tvíburar fyrstu árin. Það sem ég ekki gat gat hann og það sem hann ekki gat gat ég. Það var líf og fjör, leikið og slegist. Alltaf var hann að; ef ekki að dorga þá úti að leika, á fleka, veiða silung eða prílandi í björg- um. Krakkar soguðust að honum, það var alltaf gaman nálægt Haf- þóri. Hlédræga systirin naut líka góðs af því að eiga hann að og ég var svo stolt af honum, hann var minn. Uppátækin voru endalaus og nú sé ég alltaf betur hve hann líktist Emil í Kattholti, það var nefnilega ekki bara hárið. Hafþór var mjög laginn í höndunum, hug- myndaríkur, stríðinn, harðdugleg- ur í vinnu og vel liðinn. Sjórinn átti hann frá unglingsaldri og vél- stjórn varð fyrir valinu, kannski til að fylgja ekki alveg beint í fótspor pabba eða af því að hann skildi svo vel hvernig hlutir virkuðu. Við uxum upp og fallegi dreng- urinn varð fallegur maður með sinn strákslega sjarma og þanka- gang. Við vorum ekki lengur svona samrýnd en strengurinn milli okkar var samt ótrúlega sterkur. Við bjuggum saman og við bjuggum sundur, stundum var himinn og haf á milli okkar og stundum áttum við heiminn sam- an og töluðum sama tungumál. Börnin okkar komu í heiminn um svipað leyti og við áttum fjörugar stundir með hópinn okkar þar sem við skildum ekkert í því hvernig við gátum eignast svona uppá- tækjasöm börn. Það lifir margt frá Hafþóri í dætrum hans, frænd- systkinum og stjúpbörnum. And- lát pabba hafði mikil áhrif á Haf- þór, það var svo margt ósagt og svo margt ógert. Það er ekki fyrir hvern sem er að eyða sínum stundum fjarri ástvinum í landi en þar slógu hjörtun í fjölskyldunni engu að síður. Mínar bestu minningar eru fjöl- skyldusamverur okkar í bústaðn- um mínum þar sem honum leið alltaf vel. Þetta var okkar staður og allt varð auðveldara þegar hann kom með sinn drifkraft og sýn á lausnir. Enn gat hann það sem ég gat ekki. Best leið honum þegar hann gat komið að gagni, oftast var það hann sem stóð við grillið, smíðarnar, garðvinnuna eða hugmyndasmíðina. Hann var fyrsti maður sem bauðst til að skríða undir hús eða geymslur til að laga og brasa. Hann sá til þess að mig skorti aldrei fisk og að ég hefði það gott. Það sást alltaf þeg- ar hann hafði komið við því þá var búið að koma einhverju í verk. Í bústaðnum búa okkar sameigin- legu góðu minningar. Þær áttu að verða fleiri. Hafþór skilur eftir sig mjög stórt skarð í fjölskyldunni og hjá ástvinum sínum, það eru margir í sárum. Enginn tengdist honum eins eða átti hann á sama hátt. Hann var hann sjálfur og það varð ekki frá honum tekið, lífið er ekki alltaf eins og maður óskar sér. Að því kom að hann gat ekki meira og því miður þá gat ég ekki lengur það sem hann gat ekki. Við eigum minningar og ástina á honum og það er það sem hann skilur eftir. Elsku fjölskylda, við áttum Hafþór og hann átti okkur. Við eigum enn hvert annað. Saman getum við byggt á grunninum sem hann skildi eftir, hann er sterkur. Petrína Soffía Eldjárn. Elsku bróðir. Það er varla hægt að lýsa því hversu erfitt það er að setjast niður til að skrifa minning- argrein um þig og þurfa þá að horfast í augu við að þú sért í raun farinn og að við hittumst ekki aftur. Margar minningar koma upp í hugann frá því við vorum krakkar, margar þeirra snúa reyndar að því að þú varst að pína mig en við átt- um margar góðar stundir og háð- um marga bardaga. Það sem skín í gegnum allar minningarnar er hversu mikið ég leit upp til þín og hvað ég reyndi allt til að fá að vera með ykkur stóru strákunum. Mamma sá til þess að ég fengi það með því að banna þér að fá leik- byssusafnið nema ég fengi að vera með. Við vorum nú ekki alltaf í stríði, það var líka hægt að vera vinir inn á milli og þá var ekki til betri bróðir. Ég á líka margar minningar um samveru okkar á sjónum þar sem þú varst einstaklega vel liðinn af samstarfsmönnum og öðrum. Reyndar held ég að ég hafi ekki hitt einn einasta mann sem hefur verið með þér á sjó sem hefur ekki haft orð á því við mig hversu dug- legur þú varst. Það var kannski ekki skrýtið, þar sem pabbi mótaði okkur í sjómennskunni og við ól- umst upp í henni. Þetta var okkar líf og tilvera. Kæri vinur og bróðir, það er hræðileg tilhugsun að hugsa til þess hversu illa þér hefur liðið. Ég vildi svo gjarnan að hlutirnir hefðu farið á annan veg og við hefðum haft fleiri tækifæri til samveru- stunda. En vonandi ertu kominn aftur á sjóinn með pabba, þar eigið þið báðir heima. Ég mun alltaf elska þig. Þinn bróðir, Jón Þórarinsson. Hafþór Þórarinsson  Fleiri minningargreinar um Hafþór Þórarinsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Petrea Guð-mundsdóttir fæddist á Sigurðs- stöðum, Kirkju- braut 53 á Akra- nesi, 24. nóvember 1921, og bjó þar til 30. apríl 2017. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Höfða á Akranesi 7. maí 2019. Foreldrar henn- ar voru Kristín Jónsdóttir og maður hennar, Guðmundur Guðmundsson. d. 2000, Kristinn Guðmundur, f. 1945, maki Ósk Axelsdóttir, f. 1944, Alda Björk, f. 1947, maki Guðlaugur Sigurðsson, f. 1945, Sigrún Birna, f. 1948, maki Ingi Þór Yngvason, f. 1952, Hugrún Peta, f. 1950, maki Hörður Björgvinsson, f. 1946, Skarphéðinn Elvar, f. 1956, maki Áslaug Ingibjörg Kristjánsdóttir, f. 1962, og Hulda Berglind, f. 1959, maki Þorsteinn Finnbogason, f. 1959. Afkomendur Petreu og Skarphéðins eru 83 talsins. Fimmtug hóf Petrea starf sem matráðskona við Sjúkra- hús Akraness og starfaði þar í 20 ár. Útför Petreu fer fram frá Akraneskirkju í dag, 24. maí 2019, klukkan 13. Petrea var næstyngst af syst- kinum sínum. Þau eru nú öll látin. Petrea giftist Skarphéðni Sig- urðssyni frá Móum á Skagaströnd 24. maí 1941. Skarp- héðinn lést 2. júní 1994. Foreldrar hans voru Björg Bjarnadóttir og Sigurður Jónasson. Petrea og Skarphéðinn áttu sjö börn. Þau eru: Gilbert Már, f. 1942, „Halló! Bíddu, ég þarf að lækka.“ Þannig byrjuðu mörg samtölin þegar hringt var í Petu á Sigurðs- stöðum. Í því húsi var nefnilega alltaf tónlist. Tónlist úr útvarpi, tónlist af vínylplötum sem Peta átti dýrmætt safn af, og tónlist af snældum sem skiptu hundruðum, flestar með upptökum úr útvarp- inu. Það var einmitt ást á tónlist sem batt okkur Petu svo sterkum böndum. En fleira kom til. Á forsíðu Fálkans, sem var vinsælt tímarit, birtust þessi orð árið 1938: „Fyrir þrennt hefur Akranes löngum verið talið frægt: Hrausta sjó- menn, fallegt kvenfólk og ágætar kartöflur.“ Á Sigurðsstöðum var Skarphéðinn hennar Petu, sjó- maður annálaður fyrir dugnað og snyrtimennsku, húsið virtist fullt af fallegum konum og fyrir utan var gróskumikill kartöflugarður. Það er skemmst frá að segja að ein dóttirin féllst á að giftast mér og við fengum í heimanmund poka af kartöflum; útsæði í nýja garðinn okkar. Síðan hef ég verið tengdur Sigurðsstaðafólkinu órjúfanlegum böndum. Peta fæddist á Sigurðsstöðum og þar var hún öll sín búskaparár. Það voru 95 ár! Það er því skemmtileg þversögn að þessi heimakæra kona var með ríkt flökkueðli. Fátt vissi hún skemmtilegra en að ferðast um landið þvert og endilangt með börnum sínum og tengdabörnum. Hún var sannfærð um að Ísland væri besta land í heimi og hafði ósjaldan orð á því. Við Hugrún fórum margar slíkar ferðir með Petu og þær eru minnisstæðar. Í nær hverju plássi var kaupfélag og þar gerð- um við alltaf stuttan stans. Þá tókum við Peta strikið beint á rekkann með vínylplötunum, sem var í hverju kaupfélagi. Þar var gramsað og keypt og stundum gáfum við hvort öðru. Þetta voru góðar stundir. Peta vildi að útför hennar ein- kenndist af tónlist, ekki lof- ræðum. En hún gleymdi að nefna minningagreinarnar, svo þar hef ég óbundnar hendur. En málið er einfalt: Peta var góð kona. Það þarf ekki að hafa fleiri orð um það. Síðustu tvö árin bjó Peta á Hjúkrunarheimilinu Höfða við yndislegt atlæti. Hún var stund- um ósátt, því minnið var farið að gefa sig og hún vildi komast heim á Sigurðsstaði. Fyrir nokkrum mánuðum vor- um við hjónin í heimsókn á Höfða. Peta dottaði öðru hvoru og til að nota tímann tók ég með mér blað með texta sem ég þurfti að læra. Allt í einu spurði Peta: „Hvað ertu að lesa, Hörður minn?“ „Ég er að læra texta,“ svaraði ég, „Enn syngur vornóttin, eftir Tómas Guðmundsson.“ Og Peta söng Enn syngur vornóttin vögguljóð sín, bæði erindin. Ekki biðja mig að muna, móða hylur ævi langa. Í hvíld og ró vil hjá þér una með hönd í lófa og koss á vanga. Veikin þyngri en tárum taki, týnd og döpur, horfið minni. Bæn mín er að börn mín vaki blessi mig með nálægð sinni. Andleg veiki alla þreytir; ekki skammast, gráta, blóta. Örlögunum enginn breytir, enn er hægt að lifa og njóta. Munið hversu mjög ég þrái mildi ykkar, ást og hlýju, þar til Drottinn himinhái heim mig flytur enn að nýju. (Lauslega þýtt – HB) Góða ferð heim, elsku Peta. Hörður. Þá er komið að kveðjustund- inni. Það er margt að þakka og margs að minnast. Fyrst koma upp í hugann vorferðirnar, en þegar skóla lauk á vorin og skóla- félagar flykktust í sauðburð í sveitinni hoppuðum við systkinin með mömmu upp í Norðurleiðar- rútu og brunuðum suður til að eiga gæðastundir á Sigurðs- stöðum. Það var spennandi að sofa uppi á lofti, hitta frænkur og ókunnuga krakka í leikjum í garðinum þínum, skjótast yfir götuna í Skagaver, bókabúðina og síðar Harðarbakarí, eða út á fólksbílastöðina að kaupa nammi. Fylgjast með ótrúlegum gesta- ganginum frá morgni til kvölds, borða matinn þinn og bakkelsið, hlusta á yndislega skemmtilega sönginn þinn og sögurnar, svo ekki sé minnst á dillandi, smit- andi hláturinn sem var engum hlátri líkur. Ekki var svo minni spenningur þegar von var á þér með Norðurleiðarrútunni síðar að sumri til að dvelja hjá okkur. Við þrættum um hvort ætti að fá að sofa uppi í stofu með ömmu, al- veg þangað til hroturnar héldu eitt sinn fyrir mér vöku, jafnvel þótt ég flýði eins langt í burtu og hægt var í litlu íbúðinni í Skjól- brekku, og ég neyddist til að eftirláta Skarphéðni þennan heiður þaðan í frá, þótt það væri mér þvert um geð. Síðar meir varð ég samt svo sátt við það, enda samband ykkar Skarp- héðins svo einstaklega fallegt. Þrjátíu árum síðar gátum við enn hlegið jafnt dátt þegar við rifj- uðum þessa nótt upp. Og það var eitthvað svo einstaklega notalegt við að hafa ykkur mömmu báðar í eldhúsinu að reiða fram kræsing- ar handa okkur í öll mál, spjalla eða hlusta á ykkur spjalla, fara í göngutúra og heldur oftar en venjulega út í Sel að kaupa ís á kvöldin. Þegar afmælisgjafirnar okkar komu í pósti fékk hitt okkar alltaf Andrésblað, sem var alltaf alveg jafn spennandi og að fá afmælis- gjöf. Þar sem afi Skarphéðinn var svo oft mikið í burtu, í mínu minni alltaf inni í Hvalfirði, auk þess sem hann fór í sumarlandið svo langt á undan þér, þá er myndin í huga mér; glæsileg keik kona, með hrafntinnusvart hár, sem bjó alla sína ævi í sama húsinu, fór allra sinna ferða fótgangandi, stóð fast á sínu, reiddi fram dýr- indis mat á Sigurðsstöðum og á sjúkrahúsinu. Söng, hló og gerði að gamni sínu en var hinn allra mesti þverhaus þegar sá gállinn var á henni. Trúuð, hjátrúarfull, áhyggjufull og smeyk við ýmis- legt, en umfram allt alltaf góð. Og með þinni háu elli rættist ósk mín til margra ára, að börnin mín fengju líka að kynnast þér. Ástar- þakkir fyrir allt, elsku amma Peta. Íris Dögg. Petrea Guðmundsdóttir  Fleiri minningargreinar um Petreu Guðmundsdóttur bíða birtingar og munu birt- ast í blaðinu næstu daga. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, RAGNA KRISTÍN KARLSDÓTTIR frá Garði, lést á hjúkrunarheimilinu Hornbrekku, Ólafsfirði, sunnudaginn 12. maí. Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 25. maí klukkan 14. Hulda Gerður Jónsdóttir Aðalsteinn Friðþjófsson Magnús Símon Jónsson Silvia Putta Hólmfríður Sólveig Jónsd. Gísli Heiðar Jóhannsson Helena Reykjalín Jónsdóttir Vilhjálmur Sigurðsson Rögnvaldur Karl Jónsson Björg Traustadóttir Harpa Hlin Jónsdóttir Magnús Rúnar Ágústsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Okkar ástkæri og skemmtilegi faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRSÆLL EGILSSON skipstjóri, Tálknafirði, lést á Landspítalanum Fossvogi laugardaginn 18. maí. Útför hans fer fram frá Tálknafjarðarkirkju laugardaginn 25. maí klukkan 14. Kristín G. Ársælsdóttir Njáll Torfason Hrefna Ársælsdóttir Níels Adolf Ársælsson Sigurlaug Guðmundsdóttir Tryggvi Ársælsson Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Hlynur Ársælsson Hallveig Guðný Guðnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, LUDWIG H. GUNNARSSON húsgagnasmíðameistari, Birkihlíð 4b, Hafnarfirði, lést í Noregi þriðjudaginn 14. maí. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 29. maí klukkan 13. Guðrún Jónsdóttir Guðm. Geir Ludwigsson Þóra Kristín Ludwigsdóttir Davíð Þór Marteinsson Eva Sóley og Lilja Karen Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HÖRÐUR SIGURÐSSON, vélstjóri og svæðanuddari, lést 19. maí á Hjúkrunarheimilinu Mörkinni, Suðurlandsbraut 66, Reykjavík. Útför hans fer fram í Fossvogskirkju laugardaginn 11. júní klukkan 15. Ásta Harðardóttir Björn Helgason Ingólfur Harðarson Berglind Líney Hafsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.