Morgunblaðið - 24.05.2019, Page 12

Morgunblaðið - 24.05.2019, Page 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2019 Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Fallegar 3ja og 4ra herbergja íbúðir í nýbyggingu • Sérinngangur í allar íbúðir • Svalagangar vindvarðir með öryggisgleri • Vönduð og viðhaldslétt bygging • Lyftuhús • Stórar svalir, minnst 15,5 m2 • Einfalt að setja upp svalalokun • Nýr grunnskóli í göngufæri Dalsbraut 4 - Reykjanesbæ VERÐ FRÁ KR. 29.900.000 Sölu- sýning Laugardag og sunnudag frá kl.13-14 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnson tobj@mbl.is Síðasta ár var annað besta ár frá upphafi í rekstri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði, sé horft til veltu- fjár frá rekstri, sem var 1,5 millj- arðar króna árið 2018, 88% meira en 2017. Friðrik Mar Guðmundsson fram- kvæmdastjóri segir í samtali við Morgunblaðið að niðurstaðan sé vel viðunandi. „Við vorum að vinna á mjög sterku gengi krónunnar fyrstu níu mánuði síðasta árs, en svo veikt- ist gengið síðustu þrjá mánuðina. Veltufé frá rekstri sýnir hvað rekst- urinn gefur raunverulega af sér, og sé horft til þess var árið 2018 annað besta árið í sögu fyrirtækisins.“ Hann segir að sé horft til síðustu fimm ára í rekstrinum hafi fyrir- tækinu gengið ágætlega, en hagn- aður hefur á þessum árum verið samtals 5,6 milljarðar króna og veltufé frá rekstri sjö milljarðar. Eigið féð hefur vaxið á sama tíma- bili úr tæpum þremur milljörðum í tæpa átta milljarða króna. Á heimasíðu Loðnuvinnslunnar segir í frétt að hagnaður á síðasta ári hafi verið 700 milljónir króna eftir skatt, sem sé 135% hærra en 2017. Tekjur LVF af frádregnum eigin afla voru rúmir níu milljarðar króna á síðasta ári, sem er 24% veltuaukn- ing. Brúttótekjur félagsins voru 11 milljarðar, þegar eigin afli félagsins er talinn með. „Á síðasta ári tókum við við 93 þúsund tonnum af hráefni, þar af 48 þúsund tonnum að utan, aðallega frá Noregi og Færeyjum. Þetta er alvanalegt hjá okkur og fer aðallega í bræðslu, hrogn og frystingu.“ Tekjur af loðnu 2,7 milljarðar Í fyrra tók félagið á móti 30 þús- und tonnum af loðnu, og tekjur af loðnuvinnslu voru 2,7 milljarðar. Engin loðnuveiði verður í ár og seg- ir Friðrik að það sé mikill skellur fyrir félagið, enda sé um 15% af tekjum ársins að ræða. „En við er- um vel sett. Við erum alltaf með bolfiskvinnslu í gangi og því er nóg fyrir starfsfólkið að gera. Þá má segja að við séum heppin að því leyti að við vorum búin að framleiða svo mikið af hrognum síðustu ár að við áttum birgðir sem hafa hækkað verulega í verði. Það hjálpar okkur á þessu ári.“ Íbúarnir vel settir með félagið 150 manns vinna hjá félaginu, sem er umsvifamikið í sveitar- félaginu, en á Fáskrúðsfirði búa 730 manns. Stærsti eigandi félagsins er Kaupfélag Fáskrúðsfjarðar. „Þetta þýðir að Loðnuvinnslan er sam- félagslega uppbyggð og kvótinn fer aldrei úr byggðarlaginu. Þegar okk- ur gengur vel getum við byggt hratt upp því við borgum lítinn arð út úr byggðarlaginu. Íbúar á Fáskrúðs- firði eru mjög vel settir að eiga þetta félag.“ Friðrik segir að endingu að félag- ið sé búið að byggja upp mjög tæknivædda bolfiskvinnslu, og fjár- festi til dæmis í tveimur vatns- skurðarvélum og öðrum búnaði fyr- ir tveimur árum sem hafa aukið afköst um 70% með sama mann- skap. Annað besta ár í sögunni Ljósmynd/Loðnuvinnslan Vinnslusalur Stór hluti hráefnisins kemur frá Noregi og Færeyjum.  Loðnuvinnslan hefur hagnast um 5,6 milljarða á síðustu fimm árum  Loðnubresturinn í ár er skellur fyrir félagið  Hátæknivædd bolfiskvinnsla 24. maí 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.89 124.49 124.19 Sterlingspund 156.94 157.7 157.32 Kanadadalur 92.5 93.04 92.77 Dönsk króna 18.519 18.627 18.573 Norsk króna 14.169 14.253 14.211 Sænsk króna 12.854 12.93 12.892 Svissn. franki 122.62 123.3 122.96 Japanskt jen 1.1211 1.1277 1.1244 SDR 170.68 171.7 171.19 Evra 138.31 139.09 138.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.8938 Hrávöruverð Gull 1274.0 ($/únsa) Ál 1765.5 ($/tonn) LME Hráolía 71.91 ($/fatið) Brent ● Aðeins ein viðskipti áttu sér stað með bréf leigufélagsins Heimavalla í Kauphöll Íslands í gær. Námu viðskiptin ríflega fimm milljónum króna og dró það gengi félagsins niður um tæp 8%. Er markaðsvirði félagsins nú 13,2 milljarðar króna. Í lok mars síðastliðins nam bókfært eigið fé félagsins 18,9 milljörðum króna. Ein viðskipti drógu Heimavelli niður um 8% STUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.