Morgunblaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2019 Raðauglýsingar Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Álfaskeið 84, Hafnarfjörður, fnr. 207-2965 , þingl. eig. Halldór I Stefánsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., miðvikudaginn 29. maí nk. kl. 10:30. Sörlaskeið 21, Hafnarfjörður, fnr. 224-9358 , þingl. eig. Guðmundur Sindri Harðarson og Dagmar Ósk Harðardóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., miðvikudaginn 29. maí nk. kl. 10:00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 23. maí 2019 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs verður háð á skrifstofu sýslumanns, Hlíðasmára 1, herb.201, Kóp. sem hér segir GÆSKUR, KÓ, Kópavogur, (SKEMMTISKIP) , þingl. eig. VIP Iceland ehf, gerðarbeiðandi Kópavogsbær, miðvikudaginn 29. maí nk. kl. 13:30. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 23. maí 2019 Tilboð/Útboð Breyting Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 Í landi Indriðastaða á svæði er nefnist Dyrholt KYNNING – OPINN DAGUR Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á 131. fundi sínum þann 10. apríl 2019 að kynna fyrir almenningi og öðrum hagsmunaaðilum breytingu Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar breytta landnotkun í landi Indriðastaða skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br. Í megin dráttum felur skipulagsbreytingin í sér að svæði sem eru skilgreind, annars vegar sem verslun og þjónusta og er 2 ha að stærð, og hins vegar opið svæði til sérstakra nota og er 5 ha að stærð, verði breytt í samfellda frístundabyggð. Breytingin liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3 á Hvanneyri, 311 Borgarnes og á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is. Opinn dagur verður á skrifstofu sveitarfélagsins þann 28. maí 2019 milli kl. 10 og 12 þar sem allir eru velkomnir til að kynna sér tillögu breytingar aðalskipulags. Skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps Tillaga nýs deiliskipulags tveggja íbúðalóða Í landi Fitja KYNNING – OPINN DAGUR Tillaga nýs deiliskipulags tveggja íbúðalóða í landi Fitja er kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum með opnum degi sbr. 3. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Deiliskipulagstillagan tekur til afmörkunar tveggja íbúðalóða. Samkvæmt tillögu deiliskipulags er heildar byggingarmagn 200 fm á hvorri lóð og hámarks mænishæð verði 7.5 m frá óhreyfðu landi. Tillaga deiliskipulags liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3 á Hvanneyri, 311 Borgarnes og á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is. Opinn dagur verður á skrifstofu sveitarfélagsins þann 28. maí 2019 milli kl. 10 og 12 þar sem allir eru velkomnir til að kynna sér tillögu nýs deiliskipulags. Skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps Félagsstarf eldri borgara Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535 2700. Boðinn Hugvekja kl. 13.30. Vöflukaffi kl. 14.30. Línudans kl. 16. Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.50. Opin Listasmiðja kl. 9-16. Thai Chi kl. 9-10. Boccía kl. 10.15-11.20. Hádegismatur kl. 11.30. Hádegisskemmtun kl. 11.30. Börn úr Breiðagerðiskóla koma og syngja kl. 11.30. Afi kl. 12.30. Útskriftar- verkefni Réttarholtsskóla Góðgerðarbingó til styrktar Píata samtök- unum kl. 13.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790. Furugerði 1 Íslenskumorgnar kl. 10, leikfimi kl. 11, hádegismatur kl. 11.30-12.30, ganga kl. 13, kaffisala kl. 14.30-15.30. Föstudagsfjör: Alltaf mismunandi. Garðabæ Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í Jóns- húsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20, Hleinum kl. 12.30, og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni félagsvist ef óskað er. Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Gler- vinnustofa m/leiðb. kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10. Gönguhópur um hverfið kl.10.30. Bókband m/leiðb. kl. 13-16. Kóræfing kl.13-15. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 Boccia, kl. 20 Félagsvist. Gullsmári Handavinna kl. 9. ATH Leikfimi / Fluguhnýtingar /Ljósmyndarklúbbur /Bingó og Gleðigjafarnir eru komin í sumar frí Hraunsel Kl. 8-12 ganga í Kaplakrika alla virka daga, kl. 11.30 línudans, kl. 13 brids, kl. 13 botsía, kl. 10.45 leikfimi, Hjallabraut, kl. 11.30 leikfimi Bjarkarhúsi. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, bridge í handavinnustofu kl. 13, bingó kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45, tréútskurður kl. 9-12, lesið upp úr blöðum kl. 10.15. Upplestur kl. 11-11.30, opin listasmiðja kl. 9- 12, hádegismatur kl. 11.30-12.30, Bingó kl. 13.30. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í sal- num á Skólabraut kl. 11. Spilað í króknum kl. 13.30. Ath. engin dagskrá verður í salnum á Skólabraut næstu viku vegna uppsetningar hand- verkssýningarinnar sem opnar fimmtudaginn 30. maí á degi aldraðra, uppstigningardag. Sýningin verður opin fimmtudag 30. maí, föstudag 31. maí og laugardag 1. júní i kl. 13.- 17. Vöfflukaffi og sölubás. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Spænsku-námskeið kl. 13. Kennarar frá Spænskuskólanum Háblame. Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23. Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Jessenius Faculty of Medicine í Martin Slóvakíu heldur inntökupróf í læknisfræði 3. júní í MK Kópavogi. 4 júní í MA á Akureyri og 9. ágúst í MK Kópavogi. Upplýsingar í síma 8201071 og kaldasel@islandia.is Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Færir þér fréttirnar mbl.is ✝ Hilmar E. Guð-jónsson fæddist í Skarðshlíð, A- Eyjafjöllum, 15. nóvember 1938. Hann lést á dvalar- heimilinu Eir 15. maí 2019. Foreldrar hans voru Jón Hjörleifs- son, bóndi og oddviti í Skarðshlíð, og kona hans Guðrún Sveinsdóttir frá Selkoti. Kjörfor- eldrar Hilmars voru Guðjón Sveinsson og Marta Eyjólfsdóttir húsmóðir. Hilmar var næst- yngstur átta systkina. Hilmar giftist Ólöfu Magnús- dóttur gjaldkera 21. september 1963. Ólöf fæddist 23. apríl 1944 og andaðist í apríl 2018. Synir þeirra eru: 1) Magnús Guð- jón, f. 28.12. 1963, börn hans eru Ólöf Sunna, Hilmar Örn, Hekla Sóley og Æv- ar Magnús. 2) Hauk- ur, f. 13.3. 1972, kvæntur Helgu Mar- íu Finnbjörnsdóttur, börn þeirra eru Heiðar Darri, Finn- björn Orri og Sveinn Magnús. Hilmar lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands og starf- aði lengst af sem bókari hjá Fóðurblöndunni. Útför Hilmars verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag, 24. maí 2019, klukkan 11. Í hjörtum okkar ríkir bæði sorg og fögnuður. Sorg yfir að kveðja góðan, einlægan og traustan vin, en gleði yfir því að lífsins þjáning- um sé lokið og að hafa fengið að vera samferða honum í svo mörg ár. Hilmar var afar hjálpfús, iðinn og viljugur til allra góðra verka. Hann var glaðlyndur og viðmót hans allt skapaði góða nærveru. Hann var tónelskur og góður pí- anóleikari. Gleymum aldrei orgel- leik hans við brúðkaup okkar. Öll- um þótti ljúft að dveljast og vera í samvistum við hann. Fyrir hug- skotssjónum okkar sjáum við hann ungling í KFUM, glaðan og ljúfan á samverustundum í Kristilegum skólasamtökum þar sem við sátum saman í stjórn. Á þeim samveru- stundum var oft kátt á hjalla í góðra vina hópi. Jafnframt sé ég hann hressan, iðinn og hugljúfan samstarfsmann til margra ára í sumarbúðum KFUM í Vatnaskógi. „Minningar taka að tala, töfra- magn Skógur á,“ orti sr. Friðrik um Lindarrjóður; Kapellan, lindin helga, bátaskýlið, Eyrarvatn, Oddakot, kyrrð, friður og fugla- söngur, kvöldvökur með svellandi söng, sögum, lifandi orð Guðs. Og tvær kexkökur og ísköld mjólk með fallega sálminum í lok dags: „Ó, vef mig vængjum þínum.“ Allt stendur þetta ljóslifandi fyrir hug- skotssjónum mínum og ekki er síð- ur eftirminnilegt þegar kyrrð færðist yfir að kvöldi og foringjar gengu til náða í foringjaherbergi þar sem Hilmar var hrókur alls fagnaðar með skemmtilegum sög- um og eftirhermum sem léttu lund okkar eftir erilsama og oft erfiða daga. Á kveðjustund þökkum við fyrir einlæga og trausta vináttu, sam- veru og fögnuð með honum, Ólöfu og fjölskyldu þeirra um áraraðir á heimilum okkar, á skólamótum og námskeiðum í Vindáshlíð og Vatnaskógi. Í heimsóknum okkar til Hilmars undanfarin rúm tvö ár hefur hann lítið getað tjáð sig. Við erum því innilega þakklát fyrir síðustu sam- veru sem við áttum með honum nú í apríl. Þegar við nálguðumst hann álengdar rétti hann sig upp þar sem hann sat í stól, opnaði augun upp á gátt, brosti út að eyrum og sagði glaður í bragði: Nei, Þórir! Við biðjum þess að farsæld og friður megi fylgja sonum hans, tengdadætrum og barnabörnum um ókomna tíð. Þórir S. Guðbergsson og Rúna Gísladóttir. Góður samferðamaður minn gegnum lífið allt frá barnæsku er horfinn á braut. Við fregnina af andláti Hilmars komu í hugann minningar af hon- um spila undir söng í KFUM í Laugarnesi, við strákarnir sungum það hátt að þakið var næstum að rifna af salnum. Hilmar las upp og sagði sögur enda sögumaður góður. Þátttaka í leiksýningum þar sem hann fór á kostum og sem eft- irherma er okkur „pottormunum“ ógleymanlegar stundir. Fundarefn- ið var fjölbreytt en allir fundir end- uðu með Guðsorði og bæn. Hilmar var formaður KSS í nokkur ár, þar stjórnaði hann fund- um og skólamótum, m.a. í Vatna- skógi, af röggsemi eins og honum var lagið, húmorinn var sjaldan langt undan. Mynd kemur upp í hugann af Sveini Guðmundssyni og Hilmari, hálfgerðum gúrú þar sem Hilmar þóttist vera að dáleiða Svenna, áhorfendur veltust um af hlátri. Hilmar var félagi í kristniboðs- flokki sem nefndist Kátir drengir, þegar Hilmar mætti á fundi var ekki skortur á skemmtisögum. Hilmar var KFUM-ari og sótti AD-fundi eldri félaga af trúfesti. Þegar Hilmar hætti að vinna vegna aldurs fluttu þau Ólöf til Hellu þar sem þau gerðu sér gott heimili, bókamaður var hann mikill, merki- legt fannst mér að sjá ljósrit af Guð- brandsbiblíu á heimilinu. Fjöldamörg ár spilaði Hilmar undir söng í félögunum, þegar hann flutti austur fyrir fjall hélt hann áfram að aka yfir Hellisheiðina í misjöfnum veðrum til að spila á AD- fundum. Fyrir nokkrum árum veiktist hann af erfiðum sjúkdómi. Hann og Ólöf fóru þá á hjúkrunarheimilið Eir þar sem þau eyddu síðustu ár- um sínum saman. Guð blessi minninguna um Hilm- ar Guðjónsson. Gunnar Örn Jónsson. Kveðja frá Skógar- mönnum KFUM Í dag kveðja Skógarmenn KFUM góðan félaga, Hilmar Guð- jónsson. Vatnaskógur var Hilmari hugleikinn, hann sat í stjórn Skóg- armanna KFUM frá 1960 til 1980 eða í 20 ár alls, lengst af sem gjald- keri. Á þessum árum átti sér stað mikil uppbygging á staðnum og reyndi oft á útsjónarsemi og að finna nýjar leiðir til fjáröflunar, reyndist Hilmar drjúgur í þessu hlutverki. Glaðlegt yfirbragð Hilm- ars á viðburðum sem Skógarmenn héldu til stuðnings starfinu í Vatna- skógi smitaði út frá sér og setti mark sitt á þá viðburði. Hilmar tók einnig þátt í félags- starfi KFUM og sótti AD fundi og sá gjarnan um undirleik sem hann gerði af mikilli alúð og fagmennsku. Hilmar lét ekki aftra sér að mæta á þótt hann þyrfti að ferðast mun lengra en aðrir en hann bjó á Hellu síðustu árin sem hann sótti fundina. Skógarmenn KFUM þakka samfylgd við góðan félaga og senda fjölskyldu Hilmars innilegar sam- úðarkveðjur. Fyrir hönd Skógarmanna KFUM, Ársæll Aðalbergsson og Ólafur Sverrisson. Hilmar E. Guðjónsson  Fleiri minningargreinar um Hilmar E. Guðjóns- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.