Morgunblaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 32
Eftir óteljandi tónleikaferðir um
heiminn síðastliðin ár mun hljóm-
sveitin Mezzoforte snúa aftur á
Græna hattinn á Akureyri og halda
þar tónleika í kvöld kl. 22. Hljóm-
sveitin mun þar flytja öll sín þekkt-
ustu lög. Næst er förinni heitið til
Þýskalands og Hollands en þangað
heldur hljómsveitin í næstu viku í
tónleikaferð. Fram undan eru 32
tónleikar í Evrópu og verða þeir ef-
laust fleiri, að sögn Mezzoforte-
manna. Miðasala er á tix.is.
Mezzoforte leikur
á Græna hattinum
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 144. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Í blaðinu í dag er rætt við hinn eitil-
harða varnarmann Íslandsmeist-
araliðs Selfoss í handknattleik,
Sverri Pálsson. Sverrir er 25 ára
gamall og menntaður tölvunarfræð-
ingur en starfar á sumrin á kúabúi
foreldra sinna í Stóru Sandvík.
Sverrir sprakk út í hjarta varn-
arinnar í úrslitakeppninni og vakti
frammistaðan athygli. »24-25
Hátíðarstemning að
sögn varnarjaxlsins
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Vorinu verður fagnað með tón-
leikum í Skálholtskirkju á morgun
kl. 15. Þar verður flutt ítölsk bar-
okktónlist en flytjendur eru Hólm-
fríður Jóhannesdóttir mezzósópr-
an, Victoria Tarevskaia sellóleikari
og Julian Hewlett, orgel- og píanó-
leikari. Stiginn verður fínlegur dans
með meistaraverkum eftir Gluck,
Pergolesi, Caldara, Torelli, Durante,
Scarlatti og fleiri tón-
skáld.
Kaffihlaðborð
verður til sölu eft-
ir tónleika og
miðar fást á tix-
.is og við inn-
gang en að-
gangur er
ókeypis fyr-
ir börn.
Ítalskt barokk leikið
í Skálholtskirkju
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Martha Ernstsdóttir, einn fremsti
hlaupari landsins um árabil, er í hópi
þjálfara frjálsíþróttafólksins sem tek-
ur þátt í Smáþjóðaleikunum í Svart-
fjallalandi 27. maí til 1. júní næstkom-
andi. Dagbjartur Daði Jónsson,
sonur hennar, keppir í spjótkasti á
leikunum, en eiginmaður hennar og
annar sonur þeirra hafa líka verið
með á Smáþjóðaleikum.
Martha keppti á sex Smáþjóðaleik-
um og á enn leikjametið í 5.000 m
hlaupi, setti það í Lúxemborg 1995.
„Met eru til þess að slá þau og Andr-
ea Kolbeinsdóttir, Elín Edda Sigurð-
ardóttir og Aníta Hinriksdóttir hafa
alla burði til þess að slá metið mitt í
framtíðinni,“ segir hún.
Hlaupadrottningin hefur ekki að-
eins látið að sér kveða á hlaupabraut-
inni heldur líka sem þjálfari hjá ÍR
með hléum frá 2003. Hún hefur farið
sem þjálfari með frjálsíþróttafólki á
nokkur landsliðsmót en fer nú í fyrsta
sinn sem slík á Smáþjóðaleika. „Þetta
er allt svipað í eðli sínu en Smáþjóða-
leikar eru öðruvísi því þar er keppt í
mörgum greinum eins og á Ólympíu-
leikum, þeir eru eins og smækkuð
mynd af Ólympíuleikum,“ segir hún.
Ein helsta hugmyndin með Smá-
þjóðaleikunum var að búa til umgjörð
sem væri í anda Ólympíuleikanna,
ekki síst fyrir keppendur sem næðu
aldrei að fara á stærsta sviðið.
Martha segir að vel hafi tekist til.
„Þetta er góður vettvangur fyrir þá
sem komast ekki á stórmótin,“ segir
hún, en Íþrótta- og ólympíusamband
Íslands sendir 120 keppendur, 35
liðsstjóra og þjálfara, níu sjúkraþjálf-
ara og átta dómara á leikana.
Keppti fyrst og æfði svo
Martha tók fyrst þátt í opinberu
móti 1984, þegar hún keppti í 800 og
1.500 m hlaupi í bikarkeppni Frjáls-
íþróttasambandsins. Hún kom sá og
sigraði í síðarnefnda hlaupinu. „Ég
byrjaði á öfugum enda, keppti áður
en ég byrjaði að æfa,“ rifjar hún upp
og segir að árangurinn hafi kveikt í
sér. „Sigurinn kom öllum á óvart
enda var ég óþekkt á hlaupabrautinni
en árangurinn mótaði lífið og hlaup
hefur verið lífsstíll síðan, rétt eins og
að bursta tennurnar.“ Með tímanum
fór Martha hægt og sígandi að takast
á við lengri vegalengdir og hún
keppti í maraþoni á Ólympíuleikun-
um í Sydney 2000, fyrst Íslendinga.
„Ég var líka fyrsta íslenska móðirin
til þess að keppa á Ólympíuleikum,“
bætir hún við.
Smáþjóðaleikarnir hafa verið
haldnir á tveggja ára fresti frá 1985
og Martha var fyrst með á Kýpur
1989. „Þegar við komum þangað var
yfir 40 stiga hiti og þessi hitabylgja
situr einna helst eftir í minningunni
þaðan,“ segir hún. Annars segist hún
almennt hafa góðar minningar frá
Smáþjóðaleikum. Hún hafi kynnst
fallegu umhverfi, til dæmis í An-
dorra, Lúxemborg og Liechtenstein,
og framundan sé mikil skemmtun.
„Það er líka sérstakt að við erum
nokkur í fjölskyldunni sem höfum
farið á Smáþjóðaleika,“ heldur hún
áfram. Jón Oddsson, eiginmaður
hennar, hefur farið bæði sem kepp-
andi og þjálfari, Darri, sonur þeirra,
keppti í júdó 2007 og Dagbjartur
Daði, annar sonur þeirra, keppir í
spjótkasti í næstu viku. Aníta Hin-
riksdóttir, systurdóttir Mörthu,
keppir í 800 og 1.500 m hlaupi á leik-
unum. „Við erum mikil íþrótta-
fjölskylda og það er fjölskyldusport
að fara á Smáþjóðaleika. En það sem
situr eftir er menningin, stemningin
og náttúran.“
Morgunblaðið/Eggert
Smáþjóðaleikarnir í Svartfjallalandi Mæðginin Marta Ernstsdóttir og
Dagbjartur Daði Jónsson eru komin í búningana og tilbúin í slaginn.
Martha í 7. sinn
á Smáþjóðaleika
Sonur hennar og systurdóttir á meðal keppenda
Honda Civic Prestige
Honda HR-V Comfort
Honda CR-V Executive dísil
Honda CR-V Lifestyle Plus 2WD
Honda Civic Sedan 1.5 Turbo
Bílakjarnanum • Eirhöfða 11 • Sími 551 7171 • notadir.bernhard.is
Nýskráður 3/2018, ekinn 1 þús.km.,
bensín, sjálfskiptur, leðurinnrétting,
sóllúga, sýningarbíll frá umboðinu.
Nýskráður 11/2016, ekinn 48 þús.km.,
bensín, sjálfskiptur.
Nýskráður 7/2018, ekinn 8 þús.km.,
dísel, 9 gíra sjálfskipting, leðurinnrétting,
glerþak, dráttarkrókur.
Nýskráður 5/2019, ekinn 1 þús.km., dísel,
beinskiptur, leðurinnrétting, vindskeið.
Nýskráður 10/2017, ekinn 14 þús.km.,
bensín, beinskiptur, 182 hestöfl.
Ásett kr. 3.990.000
Tilboð
kr. 3.490.000
Afborgun kr. 45.356 á mánuði
Ásett kr. 5.190.000
Tilboð
kr. 3.990.000
Afborgun kr. 51.831 á mánuði
Verð
kr. 3.190.000
Afborgun kr. 41.471 á mánuði
Verð
kr. 2.690.000
Afborgun kr. 34.996 á mánuði
Verð
kr. 5.790.000
Afborgun kr. 75.142 á mánuði