Morgunblaðið - 29.05.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2019
SAMSTARFSAÐILI
Hringdu í 580 7000
eða farðu á
heimavorn.is
HVAR SEM ÞÚ ERT
„Ég tek drenginn úr höndunum
á henni og næ að fara með hægri
höndina undir bringuna, einhvern
veginn beygi mig niður með hann
og slæ létt á milli herðablaðanna. Í
fimmta eða sjötta skiptið þá byrjar
hann að gráta og þá er eins og það
hafi hrokkið upp úr honum.“
Móðirin var í miklu áfalli í kjöl-
far atviksins. „Hún var alveg í
sjokki, skalf og nötraði og það voru
allir einhvern veginn í sjokki. Hún
var að sjálfsögðu gríðarlega þakk-
lát og kom ekki upp orði.“
Júlíus segir að viðbrögðin hafi í
raun verið ósjálfráð.
„Ég var að spjalla við fólkið við
borðið en á einhverjum tímapunkti
sögðu þau sem voru með mér við
borð að ég hefði allt í einu rokið
upp. Mér var sagt að ég hefði ekki
einu sinni verið að horfa til drengs-
ins, heldur í raun í hina áttina.“
Hending réð því að Júlíus var á
veitingastaðnum þegar atvikið átti
sér stað. Í fyrsta lagi átti liðið upp-
haflega ekki að keppa þessa helgi.
Í öðru lagi kom Júlíus aðeins
seinna en hinir út að borða og sat
því við endann á einum bás.
Blessun að sitja við endann
„Ég hefði auðvitað aldrei séð
þetta ef ég hefði setið inni í básn-
um með fararstjórum og liðs-
stjórum sem voru með mér,“ segir
Júlíus.
Þrátt fyrir að lífsbjörg sé gjarn-
an talin nokkurs konar hetjudáð
vill Júlíus ekki að sér sé fagnað
sem hetju.
„Allur staðurinn klappaði fyrir
þessu en það er ekki það sem ég sé
í þessu, það var bara gott að ég
var á þessum stað á þessari stund.
Ég er gríðarlega þakklátur fyrir
það að hafa fengið að bjarga lífi
þessa unga drengs og verð það alla
tíð.“
Júlíus hefur þjálfað knattspyrnu
í 32 ár og fer á skyndihjálpar-
námskeið árlega. „Það hjálpaði
mér virkilega mikið og ég hvet alla
til þess að koma sér einhvern tím-
ann á námskeið. Læra fyrstu við-
brögð, hvað maður á að gera og
hvernig maður á að bregðast við.“
Bjargaði ungu barni frá köfnun
Júlíus greip til skyndihjálpar þegar stóð í barni Segir röð tilviljana hafa valdið því að hann gat
gripið inn í Atvikið til marks um það að fleiri ættu að læra skyndihjálp, segir bjargvætturinn
Ljósmynd/Valdimar Thorlacius
Sáttur „Þetta var mjög sérstök tilfinning,“ segir Júlíus sem er virkilega ánægður með að hafa getað komið til bjargar.
VIÐTAL
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Ég veit ekki hvað það var, ég
einhvern veginn bara stökk inn í
þetta, tók drenginn og náði að gera
það sem þurfti að gera,“ segir Júl-
íus Ármann Júlíusson, knatt-
spyrnuþjálfari hjá Aftureldingu,
sem bjargaði ungum dreng sem
stóð í á Hamborgarafabrikkunni á
Akureyri um helgina.
Júlíus var fyrir norðan í keppn-
isferð með þriðja flokki karla. Þeg-
ar hann kom inn á veitingastaðinn
var svo margt fólk þar að hann
þurfti að sitja við endann á einum
básnum sem liðið sat í.
„Í næsta bás voru tvær ungar
konur, móðir og vinkona hennar
líklega með lítinn strák, tveggja
eða þriggja ára gamlan. Mér varð
einu sinni litið til hans á meðan við
vorum að panta matinn.“
Móðirin í áfalli
Stuttu síðar tekur Júlíus eftir því
að það stendur í drengnum en móð-
irin hefur tekið hann í fang sér og
ætlar að fara með hann út í ör-
væntingu sinni.
Gæsluvarðhald yfir Gunnari Jóhanni
Gunnarssyni, sem grunaður er um
að hafa orðið hálfbróður sínum, Gísla
Þór Þórarinssyni, að bana, var í gær
framlengt til 17. júlí. Gunnar er
grunaður um að hafa skotið Gísla
Þór á heimili hans í Mehamn í Finn-
mörku í Norður-Noregi aðfaranótt
27. apríl.
Fram kemur í yfirlýsingu lögreglu
að mikil vinna hafi þegar verið unnin
í tengslum við rannsóknina og m.a.
hafi lögregla yfirheyrt vitni á Íslandi
og í Noregi. Nokkuð hefur hins veg-
ar að sögn lögreglu verið um að vill-
andi upplýsingar séu birtar í fjöl-
miðlum og vill lögregla leiðrétta
slíkt.
Er meint brot Gunnars á nálgun-
arbanni meðal þess. Fullyrt hefur
verið að Gunnar hafi brotið gegn
banninu nokkrum dögum eftir að sá
úrskurður féll, en að sögn lögreglu
er þetta ekki rétt þar sem Gunnar
hafi ekki dvalið í Gamsvik frá því
bannið féll hinn 17. apríl fyrr en
föstudaginn 26. apríl. Þetta hefur
lögreglan fengið staðfest frá stofnun
sem Gunnar dvaldi á þessa daga og
er utan sveitarfélagsins. „Hann gat
því ekki hafa heimsótt þau í Mehamn
og lögreglu var kunnugt um hvar
hann var á þessum tíma,“ segir í til-
kynningunni.
Kveðst lögreglan í Finnmörku
vera komin með nokkuð góða yfirsýn
yfir málið, m.a. með upplýsingum úr
símum, rafrænum sporum, rannsókn
á vettvangi og vitnalýsingum.
Gæsluvarðhald yfir Gunnari
Jóhanni framlengt fram í júlí
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta er klárlega framtíðin. Við
sjáum það úti um allt að matvöru-
verslun á netinu er að aukast og það
vantar hentuga staði þar sem fólk
getur sótt pantanir sínar,“ segir
Ragna M. Guðmundsdóttir, annar
helmingur hönnunartvíeykisins
MStudio Reykjavík.
Ragna og Kristbjörg M. Guð-
mundsdóttir fengu á dögunum einn-
ar og hálfrar milljónar króna styrk
úr Miðborgarsjóði vegna verkefn-
isins Markaðurinn á horninu. Hug-
mynd þeirra er að setja upp mið-
stöðvar sem taka á móti mat sem
fólk pantar sér af netinu. Sífellt fleiri
Íslendingar nýta sér þjónustu fyr-
irtækja á borð við Eldum rétt og
Bændur í bænum auk þess að panta
frá matvöruverslunum. Misjafnt er
hvernig staðið er að afhendingu
slíkra sendinga, víða er hægt að fá
sent heim á ákveðnum tíma eða boð-
ið upp á að sækja á bensínstöðvar
svo dæmi sé tekið. Það hentar ekki
öllum, að mati Rögnu. Þeir sem búa í
fjölbýlishúsi geta ekki látið skilja
vörur eftir ef þeir eru ekki heima og
þeir sem kjósa bíllausan lífsstíl eru
ekki að fara að sækja vörur á bens-
ínstöðvar.
„Við erum að hugsa þetta út frá
minna kolefnisfótspori, bæði fyrir
fyrirtækin og neytendur. Hug-
myndin er að búa til skilvirkara ferli
við afhendingu nú þegar þétting
byggðar er í kortunum og margir
vilja tileinka sér bíllausan lífsstíl.“
Hún segir að erlendis sæki fólk
sendingar gjarnan á fjölfarna staði
eins og lestarstöðvar. Í Bandaríkj-
unum sé Amazon farið að bjóða fólki
upp á að fá vörur sendar beint í
skottið á bílnum.
„Það verður vandamál í framtíð-
inni ef það er ekki hugsað um hvern-
ig á að taka á móti þessum vörum
hér. Þessi lausn gæti komið mark-
aðinum á hornið aftur – með nútíma-
tækni,“ segir Ragna.
Þær stöllur munu á næstunni
kortleggja þarfir söluaðila og not-
enda og svo verður farið í að finna
hentuga afhendingarstaði í samráði
við verkefnastjóra borgarhönnunar.
Nútímamarkað-
ur á horninu
Þjónusta fyrir breytta kauphegðun
Nýsköpun Kristbjörg María Guðmundsdóttir og Ragna Margrét Guð-
mundsdóttir vilja skilvirkari lausnir fyrir breytta kauphegðun landsmanna.