Morgunblaðið - 29.05.2019, Page 26

Morgunblaðið - 29.05.2019, Page 26
Eitt ogannað 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2019 Fagmennska og þjónusta SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS ASSA ABLOY á heima hjá okkur - Lyklasmíði og vörur Í KÓPAVOGI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Breiðablik er enn með fullt hús stiga eftir fimm umferðir í Pepsi Max- deild kvenna í fótbolta. Blikar unnu sannfærandi 4:2-heimasigur á KR í gærkvöldi. Þrátt fyrir að KR hafi komist yfir strax á sjöttu mínútu var sigur Breiðabliks ekki í neinni hættu. Eft- ir markið herjuðu sóknarmenn Ís- landsmeistaranna að marki KR, þar til eitthvað varð undan að láta. Þeg- ar flautað var til hálfleiks var Breiðablik komið í 3:1 og með fjórða markinu eftir klukkutíma leik gull- tryggði Breiðablik sér enn einn sig- urinn. KR lagaði stöðuna aðeins í lokin, en sigur Breiðabliks var ekki í hættu. Það segir allt sem segja þarf að miðverðir KR voru bestu leik- menn liðsins, þrátt fyrir fjögur mörk fengin á sig. Gæðin of mikil hjá Blikum Gæðin hjá Breiðabliki voru ein- faldlega of mikil fyrir KR. Ekki bætti úr skák fyrir gestina að Breiðablik skoraði tvö sáraeinföld og keimlík mörk eftir hornspyrnur í fyrri hálfleik. Kristín Dís Árnadóttir sá um að skora þau með höfðinu af stuttu færi og tvöfaldaði miðvörð- urinn ungi markafjölda sinn í efstu deild á sjö mínútum. Agla María Al- bertsdóttir, Berglind Björg Þor- valdsdóttir og Karólína Lea Vil- hjálmsdóttir skipa illviðráðanlegt sóknarþríeyki. Þar fyrir aftan eru Alexandra Jóhannsdóttir og Hildur Antonsdóttir eins og drottningar á miðjunni og er vörnin sterk. Það verður oft til þess að Sonný Lára Þráinsdóttir hafi lítið að gera í markinu, en hún var áberandi í gær. Hún hefði getað gert mun betur í báðum mörkum KR, en í bæði skipt- in var hún afar sein í sínum aðgerð- um. Betra lið en KR hefði getað refs- að fyrir mistök Sonnýjar og Breiðablik misst af stigum. Það virðist vera nokkuð ljóst að Valur og Breiðablik eru töluvert betri en önnur lið deildarinnar. Þau skiptast á sannfærandi sigrum á meðan liðin í kring missa af stigum. Bæði lið eru nú með 15 stig og búin að skora 17 mörk, en Breiðablik er búið að fá á sig fjögur og Valur að- eins þrjú. KR-liðið reyndi hvað það gat og gerði vel í að skora tvö mörk á Kópavogsvelli. Tímabil KR veltur hins vegar ekki á leikjum á móti lið- um eins og Breiðabliki, heldur öðr- um liðum í neðri hluta deildarinnar. Að sama skapi má Breiðablik ekki misstíga sig á móti liðum eins og KR. Breiðablik sannfærandi þrátt fyrir áfall í byrjun  Blikar enn með fullt hús eftir sigur á KR  Kristín tvöfaldaði markafjöldann Morgunblaðið/Hari Mark Kristín Dís Árnadóttir lyftir höndum og fagnar öðru af tveimur mörkum sínum fyrir Breiðablik í gær. 0:1 Ásdís Karen Halldórsdóttir 6. 1:1 Kristín Dís Árnadóttir 30. 2:1 Karólína L. Vilhjálmsdóttir 32. 3:1 Kristín Dís Árnadóttir 37. 4:1 Berglind B. Þorvaldsdóttir 63. 4:2 Hlíf Hauksdóttir 71. I Gul spjöldEkkert. MM Kristín Dís Árnadóttir (Breiðabliki) BREIÐABLIK – KR 4:2 M Agla María Albertsdóttir (Breiða.) Karólína L. Vilhjálmsdóttir (Brei.) Berglind B. Þorvaldsdóttir (Breið.) Alexandra Jóhannsdóttir (Breið.) Ingunn Haraldsdóttir (KR) Lilja Dögg Valþórsdóttir (KR) Ásdís Karen Halldórsdóttir (KR) Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson 7. Áhorfendur: 412. Ekki er komin niðurstaða í máli Björgvins Stefánssonar, framherja KR í knattspyrnu, en Klara Bjartmarz, fram- kvæmdastjóri KSÍ, vísaði ummælum sem hann viðhafði í lýsingu á Youtuberás Hauka á leik Hauka og Þróttar Reykjavíkur í Inkasso-deild karla í knattspyrnu um síð- ustu helgi, til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ. Aga- og úrskurðarnefndin kom saman á vikulegum fundi í gær. Halldór Frímannsson, annar af varafor- mönnum nefndarinnar, sagði í samtali við mbl.is í gær að mál Björgvins væri enn í ferli hjá aga- og úrskurð- arnefndinni. Þeir aðilar sem að málinu koma, Björgvin, Þróttur og Haukar, fá tækifæri til leggja fram sín gögn í málinu og á næsta fundi aga- og úrskurðarnefndarinnar eftir viku ætti að liggja fyrir niðurstaða varð- andi þetta mál. Kristinn Freyr Sigurðsson úr Val og Sölvi Geir Ottesen úr Víkingi voru úrskurðaðir í eins leiks bann en báðir fengu þeir að líta rauða spjaldið í 6. umferð Pepsi Max-deildarinnar. sport@mbl.is Niðurstaða fæst eftir viku Björgvin Stefánsson Spænska lögreglan hefur handtekið knattspyrnumenn og stjórnarmenn úr efstu deildum Spánar vegna rann- sóknar á ólöglegri hagræðingu úrslita. „Aðgerðir lögreglu koma í kjölfar ábendinga um mögulegt veðmálasvindl vegna leiks í maí 2018 í La Liga,“ sagði talsmaður La Liga, efstu deildarinnar á Spáni. Átta leikir til viðbótar eru til skoðunar vegna gruns um hagræðingu úrslita. Spænska blaðið El Periódico hefur nafngreint nokkra hinna handteknu en þar á meðal eru Raúl Bravo, fyrr- verandi leikmaður Real Madrid, Borja Fernández úr Real Valladolid sem nýverið tilkynnti að ferlinum væri lokið, Carlos Aranda, fyrrverandi leikmaður nokkurra félaga í 1. deildinni, og Inigo López, leikmaður Deportivo La Coruna. Þá hafa Agustín Lasaosa, forseti Huesca sem féll úr efstu deild í vor, og Juan Carlos Galindo Lanuza, yfirmaður sjúkrateymis félagsins, verið handteknir. sport@mbl.is Þekktir menn teknir höndum Raúl Bravo  Þórey Rósa Stefánsdóttir, leik- maður Fram og íslenska landsliðsins í handknattleik, lék sinn 100. landsleik í gær gegn B-landsliði Noregs. Hún er áttunda konan til að leika 100 lands- leiki fyrir Íslands hönd. Hinar eru: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Arna Sif Pálsdóttir, Berglind Íris Hans- dóttir, Dagný Skúladóttir, Hanna Guðrún Stefánsdóttir, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og Rakel Dögg Bragadóttir. Hrafnhildur Ósk á flesta landsleiki, 170. Arna Sif er önnur með 148 leiki. Hún og Þórey Rósa eru þær einu í 100 leikja klúbbnum sem leika með landsliðinu um þessar mundir.  Arnór Ingvi Traustason og samherjar hans í Malmö náðu í gær sex stiga forskoti á toppi sænsku úr- valsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 2:1 sigur gegn Sundsvall á heimavelli. Var þetta tíundi leikur Malmö í röð án taps en liðið hefur unn- ið átta og gert tvö jafntefli í síðustu tíu deildarleikjum sínum. Arnór Ingvi lék allan tímann á miðjunni hjá Malmö en hann hefur spilað alla tólf deildarleiki liðsins og hefur í þeim skorað tvö mörk.  Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, neitar algjörlega þeim orð- rómi að hann yfirgefi Liverpool í sum- ar til að taka við þjálfarastarfinu hjá Juventus. Í síðustu viku fullyrtu nokkr- ir ítalskir fjölmiðlar að Pep Guardiola væri á leið til félagsins. Enginn fótur var fyrir þeirri frétt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.