Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2019, Blaðsíða 8
Eggert
Óttarr Hrafnkelsson, deildarstjóri í ævintýra-
miðstöðinni Siglunesi í Nauthólsvík, notaði
blíðviðrið í vikunni til þess að mála merki Of-
urmennisins á brautina niður í fjöruna. Í Siglu-
nesi er boðið upp á siglinganámskeið fyrir börn
og unglinga á aldrinum níu til sextán ára.
Merkið var fyrst málað þarna 1996 og vísar til
að siglingakrakkarnir séu ofurhetjur
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2019
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
Opið 11-16
laugardag
Fyrir ferðalagið framundan
aGO
5.995 kr.
Þú finnur útskriftargjöfina í Fakó
Rými fyrir
ráðstefnur
í Hörpu
Taktu næstu stóru ákvörðun hjá okkur
Nánar á harpa.is/radstefnur
Orð dagsins er kolefnisjöfnun.Nú síðast hjá sjálfri þjóð-kirkjunni. Í vikunni kom
fram að hún ætlar að kolefnisjafna
sjálfa sig eins og það heitir. Þetta er
prýðilegt. Jákvæður vilji og svo um-
ræðan um málefnið hefur án efa áhrif
á breytni okkar til góðs. Það eru hin-
ar stífu formúlur og kerfi sem hins
vegar er ástæða til að gjalda varhug
við. Siðareglur alþingismanna koma
upp í hugann. Það sést strax og á að
fara að beita þeim.
En er þá umræðan um kolefnis-
jöfnun mikilvægari en jöfnunin sjálf?
Umræðan er mikilvæg að því leyti að
hún er leitandi og þá vonandi einnig
fyrirbyggjandi. Hins vegar er alltaf
hætt við því að fyrr en varir sé fram-
kvæmdin orðin að einhverju allt öðru
en lagt var upp með. Þannig getur
kolefnisjöfnun hæglega orðið að eins
konar syndaaflausn. Við höldum
áfram að fljúga, keyra, sigla, byggj-
um jafnvel kolakyntar verksmiðjur
og stórskipahafnir, en viti menn, eftir
að við erum búin að hola niður nokkr-
um hríslum, kannski mörgum ef við
höfum syndgað mikið, þá, eins og
hendi sé veifað, eru allar okkar syndir
að baki.
Auðvitað er þetta svolítið öfug-
snúið því allt tengist þetta viðleitni til
að gera vel. Til þess að koma góðum
markmiðum og áformum í fram-
kvæmd komum við okkur saman um
aðferðir og smíðum reglur og jafnvel
heil kerfi til að gera framkvæmdina
sem markvissasta.
En þá gerist það. Kerfin taka yfir,
fara að lifa sjálfstæðu lífi, verða að til-
gangi í sjálfu sér. En upphafleg
markmið, til dæmis að slá saman í eitt
stuðningi við dreifðar byggðir og að
klæða landið skógi til nytja og fegurð-
arauka gleymist að ræða í tilætluðu
samhengi.
Ég ætla að nefna dæmi til að skýra
hvað átt er við. Sjálfum finnst mér
skógrækt virðingarverð og æskileg.
Þar sem hún á við. En það er ekki
alls staðar. Og þar kemur að dæminu
mínu. Ég var einu sinni boðinn í sum-
arbústað norður í landi. Þetta var
efsti bústaðurinn í fagurri fjallshlíð.
Yfir gnæfðu fjallatindar. Ég spurði
húsráðanda, sem var í leigulandi með
bústað sinn, hverju það sætti að hlíðin
ofan við bústaðinn væri alsett nýlega
gróðursettum trjáhríslum. Þarna
væru lyngbrekkur sem kæmu til með
að hverfa undir trén þegar vöxtur
kæmi í þau. „Er ekki eftirsjá að
berjalynginu,“ leyfði ég mér að
spyrja, „til hvers öll þessi tré sem í
senn eyðileggja lyngið og byrgja
fjallasýn?“
Gestgjafi minn sagðist vera mér
sammála. „En vandinn er sá,“ út-
skýrði hann, „að landeigandinn er
skógarbóndi sem fær styrk fyrir
hverja plöntu sem hann kemur í jörð.
Og því miður er hann þannig sinn-
aður að hann gildir einu hvar gróður-
sett er. Og bókhaldara fjárveitandans
er líka sama. Sá telur bara trén.“
Eflaust á þessi afstaða norðlenska
landeigandans ekki við um alla skóg-
arbændur. Fjarri lagi. En þetta á
hins vegar við um öll kerfi eða flest.
Þau þurfa á því að halda að við um-
göngumst þau með gagnrýnum huga
og látum þau ekki taka af okkur völd-
in.
Annað dæmi um skógrækt og nú
jákvætt. Skógræktarfélag Kópavogs
hefur með áratuga ræktunarstarfi
gert jörðina Fossá í Hvalfirði að
sannkölluðum unaðsreit með skjól-
sælum lundum en jafnframt gætt að
því með hugkvæmni að varðveita út-
sýnið yfir Hvalfjörðinn á völdum
stöðum. Þetta minnir okkur á hverju
alúðarstarf skógræktarfélaga skilar.
Það þýðir hins vegar ekki að skóg-
rækt eigi alls staðar við. Alls ekki,
enda er Ísland land víðerna og fjalla-
sýnar. Varla viljum við skerma hana
af með trjágróðri þannig að okkur
verði hulin grasi gróin túnin, lyng-
brekkurnar og bláminn í fjarlægð-
inni.
Nú þegar samfélagið setur í fjórða
gír við kolefnisjöfnun verður að gæta
að því að hið sama gerist ekki og hjá
norðlenska trjábóndanum sem áður
er nefndur: hrísla í jörð og þá komi
krónur í vasann; og nú aftur hrísla í
jörð og ég má kaupa næsta flugmiða!
Við þetta bætast hagsmunir afláts-
sölunnar sem nú er hafin á fjöl-
þjóðavettvangi – að sögn til að vernda
umhverfið. Hún gengur út á að sá
sem ekki mengar, og er duglegur að
gróðursetja, geti selt hinum sem
mengar bréf upp á skipti, hinn hreini
fær evrur í vasann, hinn óhreini má
áfram vera óhreinn.
Hrein orka frá náttúrunnar hendi
hefur sett Íslendinga í kjörstöðu á
þessum markaði meintrar umhverf-
isverndar. Enda er það ástæðan fyrir
því að þrátt fyrir umhverfisvæna
orku sína mælist Ísland sem um-
hverfissóði. En sóðaskapurinn skýr-
ist af syndabréfabraski, ekki orkuöfl-
un!
Það er ekki allt sem sýnist. Getur
verið að kolefnisjöfnun muni á end-
anum gera tvennt, fjölga flugferðum
og eyðileggja víðernin?
Spyr sá sem ekki veit.
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is ’
Getur verið að kolefn-
isjöfnun muni á end-
anum gera tvennt, fjölga
flugferðum og eyðileggja
víðernin?
Ógnar kolefnisjöfnun náttúrunni?