Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2019, Blaðsíða 18
1 kg kjúklingabaunir
safi úr hálfri sítrónu
1-2 tsk. salt
6-8 msk. tahini
hálfur bolli vatn
ólífuolía
cumin
Setjið kjúklingabaunir í
stóra skál og hellið vatni
þannig að flæði yfir baun-
irnar. Sjóðið svo baunirnar
þar til mjúkar og kælið
svo.
Setjið öll hráefnin sam-
an í matvinnsluvél en byrj-
ið á kjúklingabaunum og
vatni og bætið svo við
sítrónusafa, tahini og salti.
Hrærið þar til silkimjúkt.
Berið fram með ólífuolíu,
cumin og brauði.
Hummus
Það er kryddilmur í loftinu áMandi og hádegisgestir byrj-aðir að streyma inn þegar
blaðamann ber að garði. Þannig vill
til að unglingssynir blaðamanns eru
sólgnir í matinn á Mandi, enda er
staðurinn uppáhald margra ung-
linga bæjarins. En það eru ekki bara
unglingar sem kunna að meta sýr-
lenska matinn hjá þeim hjónum Hlal
Jarah frá Sýrlandi og Iwonu Soc-
hacka frá Póllandi sem eiga og reka
Mandi á Ingólfstorgi. Fullorðnir
jafnt sem börn kunna líka vel að
meta staðinn, enda er maturinn þar
bæði ódýr og góður og vilja eigendur
ná hylli allra aldurshópa.
„Hingað kemur fólk á öllum aldri.
Bæði nemendur og starfsfólk hér í
kring,“ segir Hlal sem segir að þau
reyni eftir fremsta megni að halda
verðinu niðri. Þau segja ánægð frá
því að meirihluti gestanna séu Ís-
lendingar, enda eru það kúnnarnir
sem koma aftur og aftur.
Lærði að elda af pabba
Hjónin hittust á Café París fyrir tíu
árum og tóku tal saman. Innan árs
voru þau trúlofuð og eru í dag gift og
eiga tvö börn. Iwona hafði aðeins
ætlað að staldra við á Íslandi í eitt ár
en örlögin gripu í taumana þegar
ástin bankaði upp á.
Hlal er frá Damaskus, kominn af
kokkum en faðir hans kenndi honum
handtökin strax í æsku. Maturinn á
Mandi er að mestu sýrlenskur en þó
er þar einnig hægt að fá hamborgara
og bæði er hægt að borða á staðnum
og eins taka með sér heim.
„Vinsælast er kjúklingashawarma
og einnig falafel,“ segir hann.
„Við viljum frekar vera með fáa og
góða rétti heldur en of marga og rugla
fólk í ríminu. Það er helst í veitinga-
þjónustunni að fjölbreytnin er meiri,“
segir Hlal, en meðfram vinnunni í
Mandi reka þau veisluþjónustu sem
býður upp á sýrlenska smárétti.
„Það er stundum svo svakalega
mikið að gera að ég þarf að neita
fólki sem vill panta fyrir veislur, en
við erum að leita að aukastarfsfólki
núna,“ segir Iwona.
Leynileg sósa á frönskum
„Við erum alltaf að vinna. Hér er op-
ið alla daga frá tíu til að ganga tvö á
nóttunni. Um helgar er opið til sex á
morgnana,“ segir hún.
„Kokkarnir á veitingastöðum í
kring koma gjarnan til okkar um
helgar þegar þeirra vakt lýkur,“
segir hann og hlær.
„Við höfum verið hér í sjö ár en
erum að opna nýjan stað í Faxafeni 9
innan skamms,“ segir Iwona.
Blaðamaður hafði fengið veður af
því að frönsku kartöflurnar á Mandi
væru einstakar. Ofan á þær er sett
sérstök sósa sem gerir gæfumun-
inn. Í upphafi fannst gestum þessi
sósa fullsterk og kunnu ekki að
meta frönsku kartöflurnar. Þau
tóku þá upp á því að gefa fólki fríar
franskar til að fá fólk til að komast
upp á bragðið. Eitt sinn gáfu þau
þúsund skammta fólki sem var sam-
ankomið á Ingólfstorgi og er óhætt
að segja að bragðið hafi tekist. Að-
spurð hvort þau vilji gefa Morg-
unblaðinu uppskrift að leynisósunni
góðu brosa þau og svara einum
rómi: „Nei!“
Leyndarmál
Sýrlands
Hjónin Hlal Jarah frá Sýrlandi og
Iwona Sochacka frá Póllandi
kynntust á Íslandi og opnuðu veit-
ingastaðinn Mandi. Brátt verður
opnaður nýr staður í Faxafeni.
Sýrlenski kokkurinn Hlal Jarah og kona hans
Iwona Sochacka frá Póllandi hafa staðið vaktina á
Mandi í sjö ár. Sýrlenski skyndibitinn rennur ljúf-
lega ofan í landann enda er maturinn bæði ein-
staklega bragðgóður og ódýr.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Það er alltaf nóg
að gera á Mandi
á Ingólfstorgi.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2019
LÍFSSTÍLL