Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2019, Blaðsíða 2
Um hvað fjallar Litla hafmeyjan?
Við búum til okkar eigin útgáfu af sögu um
hafmeyjar og marbendla sem er ekki hin
sígilda saga H.C. Andersen. Við fléttum
inn í söguna ýmis ævintýri og þá aðallega
söguna um Hlina kóngsson ásamt öðrum.
Við þetta verður til glæný saga með alls-
konar sögupersónum. Við höfum lagt
mikið uppúr því að sýningin höfði til
allra, bæði barna og fullorðinna.
Hvert munuð þið fara í sumar?
Við munum fara um allt land, vera að í allt sumar og það er varla staður sem
við heimsækjum ekki. Sjálfur hef ég ekki leikið utandyra áður svo það er
spennandi verkefni að takast á við það. Ég hlakka mikið til og það er góð
stemning í öllum hópnum.
Munu sýningar fara fram óháð veðri í sumar?
Já, við sýnum í öllum veðrum og það gerist varla að sýningar séu felldar
niður. Ef stormviðvörun er gefin út á svæðinu getur verið að við færum
okkur inn en vel getur verið að við sýnum í hellirigningu. Annars ætlum við
bara að taka þessu með ró og höfum fulla trú á sólríku sumri.
Hvernig er að leika hafbúa?
Það getur verið erfitt þar sem fæturnir eru alltaf fastir saman.
Eins er uppsetningin á sýningunni krefjandi þar sem hún
gerist að mestu neðansjávar og upp kom sú hugmynd að
sýna í sundlaugum landsins en ekkert varð úr því.
Morgunblaðið/Eggert
ÁRNI BEINTEINN ÁRNASON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í öllum
veðrum
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2019
Vöðva eða
liðverkir?
Voltaren Gel er bæði
verkjastillandi og
bólgueyðandi
Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun
lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
15%
afsláttu
r
af 100g
og 150
g
Voltare
n Gel
www.apotekarinn.is
- lægra verð
Voltaren Gel - njótum
þess að hreyfa okkur
Geturðu hringt í mig eftir svona klukkutíma? Ég er í sundi.“Þannig komst viðmælandi minn að orði fyrir nokkrum vikum.Maður lendir reglulega í því að fólk sé niðursokkið þegar hringt er í
það, enda þótt það svari, en þetta er í fyrsta sinn á löngum ferli hér á blaðinu
að ég næ beinu sambandi við mann sem er í sundi. Ekki kom fram hvort mað-
urinn var í miðri lauginni en eins og tækninni er komið á þessari öld fantasíu
og framfara er alls ekki hægt að útiloka það. Mögulega var hann bara sultu-
slakur á baksundi, með blútúþ í eyranu. Eins og iðnaðarmennirnir. Ég gef
mér alltént að hann hefði átt erf-
iðara með mál á skrið- eða flugsundi.
Tæknin lætur ekki að sér hæða.
Breski háðfuglinn Tracey Ullman
kynnti stórkostlega græju fyrir
áhorfendum í þætti sínum í Ríkis-
sjónvarpinu á dögunum; unglings-
ígildið. Um var að ræða lítið píra-
mídalaga tæki sem hefur þann
tilgang að lina fráhvörf foreldra eftir
að börnin þeirra flytja að heiman.
Þegar söknuðurinn eftir hjartagull-
unum verður óbærilegur kveikir
maður bara á tækinu og það lætur
mann hafa það óþvegið. „Nei, ég
nenni því ekki!“ „Ég tek til á morg-
un!“ „Get ég fengið fimmþúsundkall?“ „Drullaðu þér út!“ „Ertu að ganga
gegnum tíðahvörf eða eitthvað? Daaaaaaa!“ Ef græjan nennir þá yfirhöfuð
að svara. Allt eins og maður á að venjast.
Annars er ég kominn á næfurþunnan ís hérna; við tæknin höfum nefnilega
átt álíka mikla samleið gegnum tíðina og rjómaís og grænar baunir. Ég
meina, það er korter síðan ég lagði samlokusímanum! Í gærmorgun sat
Snorri tæknimaður í sætinu mínu hérna í Hádegismóum og ég stóðst ekki
mátið og laug því að vinnufélögunum að við kumpánar hefðum skipt um hlut-
verk. Mannskapurinn fölnaði og blánaði á víxl enda sá hann fram á flóknari
tíma. Enginn hafði að vísu efasemdir um að Snorri væri þess umkominn að
skrifa í blaðið en þegar kom að því að draga í huganum upp mynd af mér inn-
an um snúrur, vélar og örflögur þá fylltist hópurinn ómengaðri skelfingu.
Gefum hirðhönnuði Sunnudagsblaðsins orðið: „Aaaaaalmáttugur!“
Hringdu seinna,
ég er í sundi!
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Þegar söknuðurinneftir hjartagullunumverður óbærilegur kveikirmaður bara á tækinu
og það lætur mann
hafa það óþvegið.
Sandra Pétursdóttir
Mér fannst þau standa sig rosalega
vel. Mjög ánægð með þau.
SPURNING
DAGSINS
Hvað
fannst þér
um fram-
göngu Hat-
ara í Euro-
vision um
helgina?
Alex Gíslason
Hataði það!
Jón Pétur
Mér fannst þau mjög góð.
Rúnar Árnason
Mér fannst ekki neitt um þau. Ég
fylgist ekkert með Eurovision.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Íris Dögg Einarsdóttir
Leikhópurinn Lotta, með Árna Beintein innanborðs, sýnir Litlu
hafmeyjuna í allt sumar. Frumsýnt var 25. maí og sýnir hópurinn
um allt land. Miða á sýninguna má nálgast á tix.is.