Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2019, Síða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2019, Síða 18
1 kg kjúklingabaunir safi úr hálfri sítrónu 1-2 tsk. salt 6-8 msk. tahini hálfur bolli vatn ólífuolía cumin Setjið kjúklingabaunir í stóra skál og hellið vatni þannig að flæði yfir baun- irnar. Sjóðið svo baunirnar þar til mjúkar og kælið svo. Setjið öll hráefnin sam- an í matvinnsluvél en byrj- ið á kjúklingabaunum og vatni og bætið svo við sítrónusafa, tahini og salti. Hrærið þar til silkimjúkt. Berið fram með ólífuolíu, cumin og brauði. Hummus Það er kryddilmur í loftinu áMandi og hádegisgestir byrj-aðir að streyma inn þegar blaðamann ber að garði. Þannig vill til að unglingssynir blaðamanns eru sólgnir í matinn á Mandi, enda er staðurinn uppáhald margra ung- linga bæjarins. En það eru ekki bara unglingar sem kunna að meta sýr- lenska matinn hjá þeim hjónum Hlal Jarah frá Sýrlandi og Iwonu Soc- hacka frá Póllandi sem eiga og reka Mandi á Ingólfstorgi. Fullorðnir jafnt sem börn kunna líka vel að meta staðinn, enda er maturinn þar bæði ódýr og góður og vilja eigendur ná hylli allra aldurshópa. „Hingað kemur fólk á öllum aldri. Bæði nemendur og starfsfólk hér í kring,“ segir Hlal sem segir að þau reyni eftir fremsta megni að halda verðinu niðri. Þau segja ánægð frá því að meirihluti gestanna séu Ís- lendingar, enda eru það kúnnarnir sem koma aftur og aftur. Lærði að elda af pabba Hjónin hittust á Café París fyrir tíu árum og tóku tal saman. Innan árs voru þau trúlofuð og eru í dag gift og eiga tvö börn. Iwona hafði aðeins ætlað að staldra við á Íslandi í eitt ár en örlögin gripu í taumana þegar ástin bankaði upp á. Hlal er frá Damaskus, kominn af kokkum en faðir hans kenndi honum handtökin strax í æsku. Maturinn á Mandi er að mestu sýrlenskur en þó er þar einnig hægt að fá hamborgara og bæði er hægt að borða á staðnum og eins taka með sér heim. „Vinsælast er kjúklingashawarma og einnig falafel,“ segir hann. „Við viljum frekar vera með fáa og góða rétti heldur en of marga og rugla fólk í ríminu. Það er helst í veitinga- þjónustunni að fjölbreytnin er meiri,“ segir Hlal, en meðfram vinnunni í Mandi reka þau veisluþjónustu sem býður upp á sýrlenska smárétti. „Það er stundum svo svakalega mikið að gera að ég þarf að neita fólki sem vill panta fyrir veislur, en við erum að leita að aukastarfsfólki núna,“ segir Iwona. Leynileg sósa á frönskum „Við erum alltaf að vinna. Hér er op- ið alla daga frá tíu til að ganga tvö á nóttunni. Um helgar er opið til sex á morgnana,“ segir hún. „Kokkarnir á veitingastöðum í kring koma gjarnan til okkar um helgar þegar þeirra vakt lýkur,“ segir hann og hlær. „Við höfum verið hér í sjö ár en erum að opna nýjan stað í Faxafeni 9 innan skamms,“ segir Iwona. Blaðamaður hafði fengið veður af því að frönsku kartöflurnar á Mandi væru einstakar. Ofan á þær er sett sérstök sósa sem gerir gæfumun- inn. Í upphafi fannst gestum þessi sósa fullsterk og kunnu ekki að meta frönsku kartöflurnar. Þau tóku þá upp á því að gefa fólki fríar franskar til að fá fólk til að komast upp á bragðið. Eitt sinn gáfu þau þúsund skammta fólki sem var sam- ankomið á Ingólfstorgi og er óhætt að segja að bragðið hafi tekist. Að- spurð hvort þau vilji gefa Morg- unblaðinu uppskrift að leynisósunni góðu brosa þau og svara einum rómi: „Nei!“ Leyndarmál Sýrlands Hjónin Hlal Jarah frá Sýrlandi og Iwona Sochacka frá Póllandi kynntust á Íslandi og opnuðu veit- ingastaðinn Mandi. Brátt verður opnaður nýr staður í Faxafeni. Sýrlenski kokkurinn Hlal Jarah og kona hans Iwona Sochacka frá Póllandi hafa staðið vaktina á Mandi í sjö ár. Sýrlenski skyndibitinn rennur ljúf- lega ofan í landann enda er maturinn bæði ein- staklega bragðgóður og ódýr. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís Það er alltaf nóg að gera á Mandi á Ingólfstorgi. 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2019 LÍFSSTÍLL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.