Morgunblaðið - 08.06.2019, Page 1
Þettaer baraævintýri
Með garðaá heilanum
Helgi Tómasson efaðist aldrei um
að hann myndi ná á toppinn. Það
hefur hann gert í tvígang; fyrst sem
ballettdansari og síðar sem listrænn
stjórnandi San Francisco-ballettsins.
Litli drengurinn sem sá ballett í
Vestmannaeyjum sumarið 1947 er
enn að vinna við dansinn. Þrotlaus
vinna liggur að baki, en dansinn er
ástríðan og lífið mikið ævintýri. 12
9. JÚNÍ 2019SUNNUDAGUR
Dikta
fagnar20 árum
Hróður hljómsveitarinnar
Diktu hefur farið víða á 20 árum
og heldur hún afmælistónleika
í Hörpu.Haukur Heiðar, söngv-
ari hennar, fer yfir ferilinn. 10
Þórunn Þórðardóttirbeið í 70 ár eftir aðheimsækja Bútan. 18
Æskudraumur rættist
Á Facebooker 34 þúsundmanna samfélagum garða oggarðrækt. 20
L A U G A R D A G U R 8. J Ú N Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 134. tölublað 107. árgangur
SIGUR RÓS
FAGNAR 20
ÁRA AFMÆLI
BÆJARINS
BEZTU PYLSUR
Á AKUREYRI
OPNA Á RÁÐHÚSTORGI 4KJARTAN SVEINSSON 43
Helga Ívarsdóttir, veðurfræðingur á vakt hjá Veðurstofunni,
segir að hægt sé að gleðjast yfir veðurspá næstu viku en
landsmenn viti að spáin sé fljót að breytast. Það virðist stefna
í hæð yfir landinu með hlýju lofti í vikunni. Að öllum líkindum
fer hiti yfir 20 stig og ef bestu spár ganga eftir gæti hitinn
farið í 25 til 26 stig á miðvikudag, fimmtudag og föstudag.
Helga segir að íbúar á norðaustanverðu landinu ættu að finna
fyrir hlýnandi veðri eftir helgi og reikna megi með þurru og
björtu veðri á öllu landinu í næstu viku, víða verði léttskýjað.
Helga segir að í hlýju veðri séu alltaf líkur á að þokuloft nái
inn á ströndina, nú séu líkur á það geti náð inn á norður- og
austurströndina og þá verði mun svalara í þokunni. Hlýjast
verði í innsveitum og að öllum líkindum sunnan- og vestan-
lands. Nú um hvítasunnhelgina verði veður svipað og verið
hefur en hugsanlega má búast við éljum á fjallvegum. »16
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Spáir 25
stiga hita í
næstu viku
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þessi heilbrigðisstefna fjallar eig-
inlega eingöngu um ríkisrekna hluta
kerfisins sem er ekki nema um 70%
af því. Hún felur ráðherra hverju
sinni nánast einræðisvald í að ákveða
hvaða starfsemi lifir og hvaða starf-
semi deyr,“ segir Þórarinn Guðna-
son, formaður Læknafélags Reykja-
víkur. Þórarinn er gagnrýninn á
nýsamþykkta heilbrigðisstefnu Svan-
dísar Svavarsdóttur heilbrigðisráð-
herra sem gilda á til 2030.
Hann kveðst telja að þingmönnum
hafi orðið á mistök þegar heilbrigð-
isstefnan var samþykkt. Þeir hafi
mögulega talið að hægt væri að
stýra framlögum til heilbrigðismála á
fjárlögum eins og var áður fyrr.
„Fjárlagagerðin hefur breyst.
Fjárlagaliðirnir eru orðnir stærri og
það er verr skilgreint en áður hvað
féð innan þeirra á að fara í nákvæm-
lega. Ráðherra hefur því meira vald
til að stýra hvert fjármagnið fer og
færa milli verkefna og liða. Fjárlög
munu því ekki setja neinn ramma
um starfsemina í heilbrigðiskerfinu.
Alþingi hefur í raun skilað auðu í
stefnumótun heilbrigðiskerfisins,
sérstaklega í þeim hluta sem ekki er
ríkisrekinn. Þingið hefur í staðinn
falið heilbrigðisráðuneytinu öll völd.
Ég er ekki viss um að það verði
breið sátt um það í samfélaginu
hvort sem um er að ræða núverandi
ráðherra og hans stefnu eða næsta
ráðherra sem kemur og snýr stefn-
unni ef til vill í þveröfuga átt,“ segir
hann.
Þingmenn „skiluðu auðu“
Formaður Læknafélags Reykjavíkur gagnrýnir nýsamþykkta heilbrigðisstefnu
stjórnvalda Segir þingið hafa falið heilbrigðisráðuneytinu öll völd í stefnumótun
MGagnrýnir skort á samráði »6Marel var skráð til leiks í Euronext-
kauphöllinni í Amsterdam í gær.
Tók markaðurinn vel í skráninguna
og hækkuðu bréf þess um 5,4% í við-
skiptum dagsins. Þannig var dags-
lokagengið 3,9 evrur á hlut en í um-
fangsmiklu hlutafjárútboði sem
ráðist var í og lauk fyrr í vikunni var
útboðsgengið 3,7 evrur á hlut. Það
var Árni Oddur Þórðarson, forstjóri
Marels, sem „sló“ fyrirtækið inn á
markaðinn og notaðist þar við víga-
legt gong. Í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins, sem var viðstaddur
athöfnina í Amsterdam, sagði Árni
Oddur að sér væri efst í huga þakk-
læti gagnvart starfsfólki fyrir-
tækisins og viðskiptavinum sem
tryggt hefðu hina miklu velgengni
þess á síðustu áratugum. »22
Marel tekur
flugið og er
metið á 421
milljarð
Skráning Árni Oddur slær í gong.
Morgunblaðið/Ásdís
Listrænn stjórnandi „Vinnan hefur
alltaf verið mitt líf,“ segir Helgi.
Saga litla drengsins úr Vestmanna-
eyjum sem gerðist heimsfrægur
ballettdansari og síðar listrænn
stjórnandi San Francisco-dans-
flokksins er ævintýri líkust. Helgi
Tómasson hefur unnið við ballett í
yfir sextíu ár en er ekki á leið á eft-
irlaun í bráð. Hann var staddur í
London í vikunni þar sem dans-
flokkur hans sýndi fyrir fullu húsi
átta kvöld. Mikil vinna liggur að baki
ævistarfinu en Helgi hefur aldrei
hræðst mikla vinnu. Iðjuleysi hins
vegar hræðir hann.
Helgi segist í viðtali í Sunnudags-
blaði Morgunblaðsins ekki ætla að
hætta að vinna í bráð.
„Ég bara get ekki ímyndað mér að
vinna ekki lengur. Ég kann ekki að
vera iðjulaus og kannski hræðist ég
það að hætta. Vinnan hefur alltaf
verið mitt líf. Ég hef unnið frá því ég
var drengur í sveit, átta, níu ára
gamall,“ segir Helgi sem náð hefur á
toppinn í tvígang.
„Ég fékk tvo ferla, fyrst dansferil
þar sem ég næ upp á toppinn og svo
sem stjórnandi fyrir dansflokk sem
er kominn upp á toppinn. Mér var
ætlað að gera eitthvað mikið.“
Enn að eftir rúm sextíu ár
Helgi Tómasson getur ekki hugsað sér að hætta að vinna