Morgunblaðið - 08.06.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
SALURINN.IS
13. júní kl. 17
Tríó Andrésar Þórs
Frítt inn
Sumarjazz
Mynd sem tekin var úr eftir-
lits- og björgunarvél Land-
helgisgæslu Íslands, TF-LIF,
sýnir greinilega mikinn upp-
blástur við jökla á hálendi Ís-
lands.
Þegar flogið var yfir landið
í gær sást mikill uppblástur í
Flosaskarði og við Sandvatn.
Á myndinni má sjá Eiríks-
jökul í bakgrunni og Lang-
jökul framar og til hægri.
Landsmenn hafa fagnað sól-
inni þar sem hún hefur skinið
en eftir langvarandi þurrkatíð
er upplástur mikill þegar
hreyfir vind. Þetta verða íbúar
varir við þegar fínt ryk leggst
yfir borg og bæ.
Eins og sjá má á myndinni
er efniviður í uppblásturinn
nægur. Landhelgisgæslan
hafði nóg að gera í gær því
einnig var farið í a.m.k. þrjú
þyrluæfingaflug, samkvæmt
upplýsingum frá Landhelgis-
gæslunni. Æfingaflug eru far-
in reglulega til þess að við-
halda þekkingu og reynslu
áhafna.
TF-LIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, á flugi yfir hálendi landsins í gær
Uppblástur
á hálendinu
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Þurrkur Uppblástur fylgir óneitanlega þurrkatíð eins og þeirri sem ríkt hefur undanfarnar vikur. Flestir fagna sólinni og nýta hverja stund sem sú gula lætur
sjá sig en einhverjir eru farnir að bíða eftir a.m.k. einum rigningardegi þar sem það er talið gott fyrir gróður og túnsprettu að fá vökvun öðru hverju.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Landsréttur staðfesti dóm héraðs-
dóms í tveimur atriðum og sneri við
dómi héraðsdóms í einu atriði í
þremur dómsmálum þar sem erfingj-
ar og dánarbú stefndu byggingasam-
vinnufélagi Samtaka aldraðra (bsvf),
en dómarnir féllu allir félaginu í hag.
Að sögn Magnúsar Björns Brynj-
ólfssonar, formanns bsvf, er félagið
með um 500 íbúðir á sínum snærum.
Hægt er að ganga í félagið 50 ára og
kaupa íbúð á vegum byggingafélags-
ins 60 ára. Félagsmenn í bsvf geta
keypt eina íbúð með því að gangast
undir skilamála félagsins.
Að sögn Magnúsar staðfesti
Landsréttur dóm héraðsdóms um að
þrátt fyrir að í fáum tilfellum fyndust
ekki gögn sem sýndu að frumbyggj-
ar hefðu gengist undir samþykktir
félagsins, giltu samþykktir félagsins
við sölu.
Landsréttur sneri við úrskurði
héraðsdóms þess efnis að bsvf mætti
ekki taka 1% gjald af endursöluverði
eigna. Magnús segir að skv. úrskurði
Landsréttar sé bsvf heimilt að inn-
heimta gjaldið sem tekjustofn fyrir
rekstur félagsins. Landsréttur stað-
festi einnig úrskurð héraðsdóms um
að krafa um að eingöngu félagsmenn
gætu keypt íbúðir af bsvf stæðist.
,,Árið 2017 staðfesti Hæstiréttur
að enginn gæti selt íbúðir á vegum
félagsins nema kaupandinn sé skráð-
ur og samþykktur félagsmaður og
uppfylli ákveðin aldurstakmörk.
Einnig að bsvf sé heimilt að setja þá
skilmála í kauptilboð, kaupsamninga
og afsöl að seljandi og kaupandi séu
ætíð bundnir af skilmálum 12. gr.
samþykkta félagsins um verðmat fé-
lagsins, sem byggist aðallega á vísi-
tölu byggingarkostnaðar, ástandi og
viðskeytingu eignar hverju sinni,“
segir Magnús sem er sáttur við af-
dráttarlausan dóm Landsréttar.
Hann segir úrskurðinn tryggja til-
verurétt bsvf og vonast til þess að
friður ríki eftirleiðis.
Vann þrjú mál í Landsrétti
Morgunblaðið/G.Rúnar
Íbúðir Bsvf við Sléttuveg 19-23.
Tryggir tilverurétt byggingasamvinnufélags Samtaka aldraðra
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður
Framsóknarflokksins, sagði í ræðu á
vorfundi miðstjórnar í gær að Fram-
sóknarflokkurinn væri sátta- en ekki
sundrungarafl og hart hefði verið
sótt að flokknum af klofningsbroti
sem enga samleið hefði átt með
Framsóknarflokknum. Hann gagn-
rýndi fordæma- og innihaldslaust
málþóf Miðflokksins á Alþingi og
sagði: ,,Við þetta brot segi ég eins og
sagt er í frægu lagi:
Þér er ekki boðið.“
Við höfum öll sofið
,,Líklega hefur engin þjóð betri
aðstöðu en við til þess að sameina
landvernd og nytsamar fram-
kvæmdir af því tagi sem við þurfum
til þess að lifa hér öfundsverðu lífi.
En það dugir ekki annað en að gera
sér grein fyrir því að hér verður þá
stórfelld stefnubreyting að koma til í
umhverfismálum, og skulum við
ekki metast um það sem orðið er.
Við höfum öll sofið og erum að
rumska. Það sama má víst ekki síður
segja um menn annars staðar. Við
erum þó svo gæfusöm að við eigum
fleira óspillt í þessu tilliti en margir
aðrir,“ sagði hann og tók fram að
orðin sem hann mælti væru hvorki
hans né ný.
,,Það sem hefur verið kallað eftir
af þjóðinni er að íslenskir stjórn-
málamenn standi vörð um íslenskar
orkuauðlindir og það fyrirkomulag
sem hefur ríkt hér sem felst einna
helst í því að orkufyrirtækin eru að
langstærstum hluta í samfélagslegri
eigu. Það hefur einnig verið mjög
skýrt ákall um að erlendir aðilar geti
ekki gert stórinnkaup á íslensku
landi. Þar er sýn okkar skýr. Það er
ekki í boði að stóreignamenn og
braskarar geti vaðið um héruð og
keypt upp jarðir og réttindi þeim
tengd. Hvorki innlendir né erlendir,
hvort sem þeir eru innan EES-
svæðis eða utan. Að því er unnið
hörðum höndum að styrkja lagaum-
hverfi í kringum jarðir,“ sagði hann.
Sigurður Ingi sagði áhyggjur vegna
þriðja orkupakkans snúa frekar að
íslenskri pólitík og EES-samningur-
inn og ESB komi þar hvergi nærri.
Þá sagði hann Framsóknarflokk-
inn hafa unnið hörðum höndum að
því að tryggja hagsmuni Íslands,
m.a. með því að sækja yfirlýsingar
frá ESB og sameiginlegu EES-
nefndinni. ge@mbl.is
„Stórfelld stefnubreyting“
,,Þér er ekki boðið“ Stóreignamenn og braskarar fá
ekki vaðið um héruð Áhyggjur frekar af íslenskri pólitík
Morgunblaðið/Eggert
Ávarp Sigurður Ingi Jóhannsson,
formaður Framsóknarflokksins.
Morgunblaðið kemur næst
út þriðjudaginn 11. júní.
Fréttaþjónusta verður um
hvítasunnuhelgina á frétta-
vef Morgunblaðsins, mbl.is.
Hægt er að koma ábend-
ingum um fréttir á net-
fangið netfrett@mbl.is.
Þjónustuver áskriftardeildar
er opið í dag frá kl. 8 til 12
en lokað er á hvítasunnudag
og annan dag hvítasunnu.
Netfang áskriftardeildar er
askrift@mbl.is og síma-
númer er 5691122. Þjón-
ustuverið verður opnað á ný
á þriðjudag kl. 7. Auglýs-
ingadeildin er lokuð um
helgina en verður opnuð aft-
ur á þriðjudag kl. 8. Hægt
er að bóka dánartilkynn-
ingar á mbl.is.
Fréttaþjón-
usta mbl.is
um helgina
Mikil bílaumferð hefur verið frá höf-
uðborginni í byrjun hvítasunnuhelg-
arinnar sem er fyrsta stóra ferða-
helgi ársins.
Guðbrandur Sigurðsson, aðal-
varðstjóri lögreglunnar í Reykjavík,
segir umferðina hafa gengið vel að
því er best sé vitað. Hún hafi byrjað
snemma og streymdu bifreiðar bæði
austur og vestur úr borginni. Að
sögn Guðbrands virðist sem fólk hafi
hætt fyrr í vinnu gær til þess að
komast sem fyrst af stað út úr borg-
inni. Það sé gott þegar umferðin
dreifist. Bæjarhátíðin Kótelettan
hófst á Selfossi í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Golli
Frí Landinn nýtir hvítasunnuna til
þess að ferðast og njóta lífsins.
Landinn á
ferðinni