Morgunblaðið - 08.06.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 08.06.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Íslendingurinn Pétur Sturla Bjarna- son sigraði í 24 kílómetra hlaupi karla í „The Arctic Triple“ fjalla- hlaupinu sem fór fram um síðustu helgi. Er hlaupið haldið á Lofoten, eyjaklasa í norðvesturhluta Noregs sem er þekktur fyrir einstaka nátt- úrufegurð. Pétur, sem varð m.a. Ís- landsmeistari í maraþonhlaupi árið 2013, segist fyrst hafa heyrt um hlaupið fyrir rúmu ári en hann fékk miða í hlaupið í afmælisgjöf frá sam- býliskonu sinni. Falleg náttúra en kalt Segir Pétur að 14 mínútur hafi verið á milli hans og þess sem lenti í öðru sæti. „Þannig að þetta var smá rúst,“ segir hann og hlær. Pétur segir að náttúran hafi verið stórfengleg á leiðinni en hlaupið tók hann um tvo og hálfan klukkutíma. „Leiðin er yfir fjöll, í gegnum firði og með ströndum. Rosalega falleg nátt- úra og geggjað umhverfi,“ segir hann. Pétur segir þó veðrið hafa verið erfitt á leiðinni en snjór var víða í fjöllum, mikið um þoku og hiti aðeins á bilinu núll til sjö gráður sem hann segir að hafi sett strik í reikninginn fyrir marga. Margir hafi þurft að hætta við keppnina, sérstaklega þeir sem voru að hlaupa lengri vega- lengdir í hlaupinu. Sjálfur þurfti Pétur að lengja brautina vegna veð- urs og endaði á að hlaupa átta auka- kílómetra vegna þessa eða 32 kíló- metra. Lofoten-hlaupið er fyrsta fjalla- hlaupið sem Pétur tekur þátt í en hann segir töluverðan mun á fjalla- hlaupum og götuhlaupum. Meiri áhersla sé á tíma og hraða í götu- hlaupum en fókusinn í fjallahlaupum sé meiri á náttúruna og að komast á milli staða. Segir hann tímann skipta minna máli í því síðarnefnda. „Flest- ir sem eru með í þessum hlaupum eru með til að fara þessa leið og sjá og upplifa,“ segir Pétur. „Svo eru til svona keppnishausar eins og ég og nokkrir aðrir sem vilja alltaf taka á því og komast eins hratt og hægt er.“ Ljósmynd/Sportograf Sigurvegari Pétur Sturla Bjarnason sigraði í 24 kílómetra hlaupi karla í „The Arctic Triple“ fjallahlaupinu sem fór fram á Lofoten í Noregi síðustu helgi. Sigraði í fjalla- hlaupi í Noregi  Hljóp átta aukakílómetra út af veðri Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Pylsustaðurinn Bæjarins beztu pylsur við Tryggvagötu í Reykja- vík er einn vinsælasti veitinga- staður landsins og eitt helsta kennileiti borgarinnar. Til stendur að festa líka rætur í Akureyr- arkaupstað. Söluvagn á vegum fyrirtækisins er kominn á Ráðhús- torgið og verður hann opnaður klukkan 13:00 í dag. Guðrún Kristmundsdóttir, eig- andi fjölskyldufyrirtækisins, segir að opnunin eigi sér töluverðan að- draganda. Barði Jónsson, borinn og barnfæddur Akureyringur, hafi haft samband og viðrað hugmynd- ina. Eftir að hafa hugsað málið hafi verið ákveðið að slá til, samskonar söluvagn og er í Tryggvagötu hafi verið smíðaður, vagninn hafi verið fluttur norður í fyrrinótt og síðan hafi verið unnið við að gera hann tilbúinn fyrir opnunina í dag. Fjórir ættliðir Bæjarins beztu pylsur er eitt elsta fyrirtækið í Reykjavík. Fjórir ættliðir pylsusala hafa starfað hjá því frá opnun 1937 eða í 82 ár. Auk vagnsins í Tryggvagötu eru sölu- staðir í Holtagörðum, Skeifunni, Smáralind og við Byko í Breidd- inni. Ennfremur fengu gestir á jólamarkaðnum í Strassborg í Frakklandi Bæjarins beztu pylsur beint í æð í mánuð fyrir jólin 2017. Fyrirkomulagið á Akureyri verð- ur svipað og í Tryggvagötu. Til að byrja með verður opnað klukkan 11 á morgnana og opið fram á kvöld og lengur um helgar. „Barði ætlar að reka staðinn í okkar anda og vera með fjölskylduna í rekstr- inum,“ segir Guðrún, en Baldur Halldórsson, sonur hennar, hefur tekið við daglegum rekstri af henni og er fjórði ættliðurinn í starfinu. „Ég vona að norðanmenn taki okk- ur opnum örmum og að Bæjarins beztu pylsur verði hluti af miðbæj- armenningunni á Akureyri rétt eins og í Reykjavík.“ Bæjarins beztu pylsur Nýr söluvagn var fluttur norður í fyrrinótt. Bæjarins beztu pylsur fáanlegar á Akureyri  Vilja skapa sömu stemningu og er í Tryggvagötu Tvö mál eru í ferli hjá dómsmála- ráðuneytinu vegna kvartana sér- sveitarmanna sem saka yfirmenn embættisins um einelti. Jón F. Bjartmarz, yfirlögregluþjónn og yf- irmaður sérsveitar ríkislögreglu- stjóra, staðfestir að önnur kvörtunin beinist meðal annars að honum en vill ekki tjá sig að öðru leyti um mál- ið. Slíkar kvartanir hafi sinn eðlilega gang í samræmi við lög og reglur. Þau svör fengust í dómsmálaráðu- neytinu þegar spurt var hversu margar kvartanir vegna eineltis og tengjast sérsveitinni væru til með- ferðar, að ráðuneytið tjái sig ekki um hvort eða hvaða mál af þessu tagi, sem varða einstaklinga, séu til um- fjöllunar hjá því. Tengist Akureyri og stöðu Önnur kvörtunin er frá sérsveit- armanni á Akureyri sem telur að verið sé að ýta sér úr starfi, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að aðeins einn sérsveitarmaður er eftir á Akureyri en þeir voru fjórir þegar mest var en jafnframt kom fram að ekki stæði til að leggja starfsstöðina á Akureyri niður. Hin kvörtunin er frá sérsveitar- manni í Reykjavík og tengist óánægju vegna stöðuveitingar, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins. helgi@mbl.is Tvö eineltismál úr sérsveit- inni til athugunar í ráðuneyti  Kvarta undan yfirmönnum  Ekki veittar upplýsingar Ljósmynd/Eimskip Sjósetning Dettifoss gekk vel Dettifoss, annað tveggja skipa Eimskips sem eru í smíði í Kína, var sjósett í síðustu viku og því eru bæði skipin nú á sjó. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu fyrirtækisins. Fram kemur að sjósetningin gekk vel og hefur skipinu verið komið fyrir við sjókví þar sem smíði heldur áfram. „Skipin eru 2.150 gámaeiningar að stærð, 180 metra löng og 31 metra breið og mun umhverfis- vænni en skipin sem þau munu taka við af. Nýju skipin munu hljóta nöfnin Brúarfoss og Dettifoss,“ segir í umfjölluninni. Afhent næsta haust Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu er gert ráð fyrir að skipin verði afhent næsta haust, en smíði þeirra er liður í endurnýjun skipaflotans sem og fyrirhuguðu samstarfi við græn- lenska skipafélagið Royal Arctic Line. Skipin tvö eru sögð ríkulega útbúin stjórnbúnaði og umhverf- isvænni en eldri skip félagsins. sp ör eh f. Sumar 28 Róm, Sorrento,Amalfíströndin og eyjan Caprí eru sannkallaðar draumaperlur Ítalíu en kynngimögnuð fegurð þessara staða umvefur okkur í ferðinni.Við skoðum hinn dásamlega Napólíflóa sem er einn fallegasti flói landsins, siglum í Bláa hellinn í Caprí, siglum og ökum með Amalfíströndinni og endum ferðina í bænum Marina di Massa í Toskana 31. ágúst - 14. september Fararstjórn: Hólmfríður Bjarnadóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 414.400 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Róm&Amalfíströndin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.