Morgunblaðið - 08.06.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019
Ríkisútvarpið hefur í seinni tíðgengið æ lengra í sókn sinni á
auglýsingamarkaði. Þetta þekkja
aðrir fjölmiðlar vel og þá ekki ein-
göngu ljósvakamiðlar þó að þeir
verði fyrir mestu búsifjunum vegna
ágengni Ríkisútvarpsins.
Síminn kvart-aði til Fjöl-
miðlanefndar í
mars vegna
þeirrar stað-
reyndar að
Ríkisútvarpið fór fram úr leyfilegri
heildarlengd auglýsingatíma í út-
sendingu á söngvakeppni á tiltek-
inni klukkustund. Þar reyndist ekki
muna mjög miklu, 28 sekúndum,
sem er þó töluvert þegar horft er til
þess að hámark auglýsinga var 8
mínútur.
Ríkisútvarpið gaf þá skýringu aðmistök hefðu átt sér stað og
Fjölmiðlanefnd lauk málinu með
því að segja að Ríkisútvarpið hefði
brotið lög, en að ákveðið hefði verið
að sekta ekki vegna lögbrotsins.
Ríkisútvarpinu er þess vegnavæntanlega óhætt að halda
áfram að gera slík mistök.
Vandinn er þó ekki þessar 28sekúndur, heldur sífellt harð-
ari sókn Ríkisútvarpsins inn á
auglýsingamarkaðinn og þessar 28
sekúndur eru aðeins til marks um
það virðingarleysi sem Ríkis-
útvarpið sýnir rammanum sem það
á að starfa eftir og það tillitsleysi
sem stofnunin sýnir keppinautum
sem ekki búa við fimm milljarða
forskot frá skattgreiðendum.
Sérkennilegt er með hliðsjón afumræðunni um stöðu einkarek-
inna fjölmiðla að Ríkisútvarpið fái
eftirlitslaust að starfa með þessum
hætti.
28 sekúndur
eru lýsandi dæmi
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Mest af búpeningnum er selt og
áhuginn hefur verið mikill,“ segir
Gestur Einarsson bóndi í Skál-
holti. Búi hefur nú verið brugðið á
biskupssetrinu og í vikunni voru
kýr, kvígur og kálfar þar seld á
fæti. Aðeins örfáir gripir voru eft-
ir þegar Morgunblaðið ræddi við
Gest síðdegis í gærdag. Ýmsir
hafa sömuleiðis komið á staðinn til
að kanna með kaup á ýmsu lausafé
sem tilheyrir búskapnum svo sem
mjólkurtank, röramjaltatæki og
annað sem tengist mjólkurfram-
leiðslunni.
Framleiðsluréttur á mjólk, um
80 þúsund lítrar, hefur tilheyrt
jörðinni. Hann verður nú seldur
og andvirði kvótans, búpeningsins
og tækjanna varið til uppbygg-
ingar og reksturs á Skálholti.
Skálholtsjörðin sem er landmikil
og kostarík á flestan mælikvaða
verður í umsjón stjórnar Skál-
holtsstaðar, sem skipuð verður
kirkjunnar fólki. Er sömuleiðis
stefnt að því að auglýst verði eftir
ráðsmanni í sumar, sem er liður í
skipulagsbreytingum sem miða að
því að skerpa skipulag og stjórn
alla mála á staðnum, segir sr.
Kristján Björnsson vígslubiskup í
samtali við Morgunblaðið.
sbs@mbl.is
Mikill áhugi á kúnum í Skálholti
Búi brugðið Söluandvirði kvóta og
kúa verður varið til uppbyggingar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skálholt Breytingar á biskupssetri.
Borgarráð hefur heimilað umhverf-
is- og skipulagssviði að ljúka hönnun
og bjóða út framkvæmdir vegna
hjólreiðaáætlunar ársins 2019.
Verkefnin eru að hluta samstarfs-
verkefni með Vegagerðinni. Kostn-
aður er áætlaður 530 milljónir
króna. Þar af er hluti Reykjavíkur
450 milljónir. Áformað er að leggja
um 2,4 kílómetra af nýjum hjólastíg-
um á árinu 2019. Hjólastígar verða
aðgreindir frá umferð gangandi og
akandi þar sem því verður við komið.
Um er að ræða eftirfarandi verk-
efni á þessu ári:
Eiðsgrandi frá bæjarmörkum Sel-
tjarnarness að dælustöð við Keilu-
granda. Nýr hjólastígur verður að-
greindur frá gangandi umferð.
Bústaðavegur milli Háaleitis-
brautar og brúar yfir Kringlumýr-
arbraut. Nýr hjólastígur norðan
Háaleitisbrautar verður aðgreindur
frá gangandi umferð.
Elliðaárdalur. Stekkjarbakki að
stíg við Fagrahvamm. Nýr hjólastíg-
ur verður aðgreindur frá gangandi
umferð.
Elliðaárdalur. Lagfæringar og
endurbætur á stíg milli Reykjanes-
brautar og Höfðabakka.
Geirsgata við Miðbakka, milli
Lækjargötu og Pósthússtrætis. Nýr
hjólastígur verður aðgreindur frá
gangandi umferð.
Víðidalur. Nýr göngu- og hjóla-
stígur frá Vallarási að stígakerfi Ell-
iðaárdals við Klapparás.
Innifalið í upphæðinni er að setja
upp fleiri hjólateljara en nú eru svo
og að setja upp nokkur leiðbeining-
arskilti. Loks verður unnið að und-
irbúningi og forhönnun vegna verk-
efna ársins 2020. sisi@mbl.is
Nýir hjólastígar
lagðir í borginni
Verja á 530 millj-
ónum króna í verk-
efnið á þessu ári
Morgunblaðið/Hari
Hjólastígar Borgin hefur verið að
fjölga stígum á undanförnum árum.