Morgunblaðið - 08.06.2019, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 08.06.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Íslenskum stjórnvöldum gæti orðið óheimilt að koma í veg fyrir útboð nýtingarréttar og rekstur vatnsafls- virkjana með lögfestingu opinbers eignarhalds, fari eftirlitsstofnun EFTA, ESA, með nýtingarréttar- fyrirkomulag Norðmanna fyrir EFTA-dómstólinn og hann dæmi fyrirkomulagið ólögmætt. Eins og fram kom í umfjöllun Morgunblaðsins um miðjan maí höfðaði framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins í mars samningsbrota- mál gegn átta aðildarríkjum á grundvelli þjónustutilskipunarinnar og reglugerðar um opinber inn- kaup, þar sem krafist er að nýting- arréttur vatnsfalla og að rekstur virkjana verði boðinn út. Í erindi til íslenskra stjórnvalda árið 2016 fer ESA fram á að krafist verði mark- aðsverðs fyrir nýtingarrétt með sama hætti og í Evrópusamband- inu. Lokuðu á einkaaðila Upphaflega miðaði norsk löggjöf við að eignarhald og nýtingarréttur vatnsfalla og vatnsaflsvirkjana yrði ávallt í opinberri eigu. Var í gildi endurgjöf sem hafði í för með sér að einkaaðilar sem byggðu og ráku vatnsaflsvirkjanir myndu afhenda norska ríkinu umrædda eign eftir að gildistími samninga um nýtingu við hið opinbera rann út. Þetta fyrirkomulag var hins veg- ar fellt úr gildi með dómi EFTA- dómstólsins árið 2007 sem taldi fyr- irkomulagið brjóta gegn ákvæðum EES-samningsins. Viðbrögð Norð- manna voru að þrengja löggjöfina enn meira með því að krefjast að allur nýtingarréttur og virkjanir yrðu að vera í eigu félaga þar sem ríki eða sveitarfélög væru eigendur meirihluta hlutafjár. Ekki þjónusta ESA gerði 30. apríl þessa árs at- hugasemd við þetta fyrirkomulag í takti við ákvörðun framkvæmda- stjórnar ESB um að höfða samn- ingsbrotamál, að því er fram kemur í umfjöllun ABC Nyheter. Er kraf- ist skýringa á því hvernig ráðstöfun nýtingarréttar vatnsfalla og rekstri virkjana er háttað. Í svari norskra stjórnvalda kemur fram að þau telja að um sé að ræða nýtingu náttúruauðlinda en ekki þjónustu og að ákvæði tilskipunarinnar eigi þess vegna ekki við. Telji ESA svar norðmanna ekki fullnægjandi fer málið fyrir EFTA-dómstólinn Ekki er vitað hver niðurstaða þessa máls verður, en líklega mun hún hafa áhrif á það hvort íslensk- um stjórnvöldum verður heimilt að takmarka eignarhald einkaaðila til þess að koma í veg fyrir að nýting- arréttur vatnsfalla og rekstur virkj- ana verði boðin út á EES-svæðinu. Opinbert eignarhald dugar mögulega ekki  ESA krefst útboðs nýtingarréttar og reksturs virkjana Morgunblaðið/Kristján Fordæmi Taki ESA ekki rökum norskra yfirvalda fer málið fyrir EFTA- dómstólinn. Dómurinn hefur áhrif á hvaða leiðir séu færar fyrir Íslendinga. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Í umræðunni er að Vestmanna- eyjaferjan Herjólfur henti vel til af- nota fyrir Slysavarnaskóla sjó- manna þegar ferjunni verður skipt út fyrir nýja sem er væntanleg á næstu dögum. Málið hefur verið rætt óformlega af forsvarsmönnum skólans við ráðamenn. Þeir taka er- indinu ekki fjarri, þótt engu hafi verið slegið föstu. „Herjólfur gæti hentað okkur vel og við höfum því haft augastað á skipinu. Um borð í skipinu eru með- al annars stór salarkynni og ýmis rými sem henta starfsemi okkar,“ segir Hilmar Snorrason skólastjóri. Ekki haffærnisskírteini Starfsemi Slysavarnaskóla sjó- manna hefur frá árinu 1998 verið um borð í Sæbjörgu, gömlu Akra- borginni. Skipið, sem er 1.774 tonn og smíðað 1974, var fengið skól- anum af ríkinu þegar ferjusiglingar milli Reykjavíkur og Akraness lögð- ust af með tilkomu Hvalfjarðar- ganga. Nú má segja að skipið sé komið á tíma og sitthvað er í ólagi, enda hef- ur það ekki haffærnisskírteini. Er því ekki lengur hægt að sigla því milli hafna landsins til nám- skeiðahalds, eins og lengi var gert. Alls sækja um 2.000 sjómenn skól- ann á hverju ári – og stundum fleiri. Þörfin er þekkt Nýr Herjólfur tekur við áætlunarsiglingum milli lands og Eyja síðar í sumar. Næstu tvö árin verður gamla ferjan þó áfram til taks, svo sem á álagstímum og til siglinga í Þorlákshöfn ef ekki gefur fyrir nýja skipið í Landeyjahöfn. „Ég er jákvæður fyrir því að slysa- varnaskólinn fái skipið og málið hef- ur verið nefnt við ráðherra,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson sam- gönguráðherra í samtali við Morg- unblaðið. Tiltók þó að málið hefði enn ekki verið tekið til formlegrar umfjöllunar en þörfin á að bæta að- stöðu Slysavarnaskóla sjómanna væri ráðamönnum kunn. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Herjólfur Skipið, hér í innsiglingunni til Vestmannaeyja, verður áfram til taks þar að minnsta kosti næstu tvö árin. Með augastað á Herjólfi  Vilja Vestmannaeyjaferju fyrir starfsemi Slysavarna- skóla sjómanna  Ráðherra jákvæður fyrir hugmyndinni Sigurður Ingi Jóhannson Hilmar Snorrason FINNA.is Skoðið laxdal.is Skipholti 29b • S. 551 4422 NÝTTU TÍMANN LAXDAL ER Í LEIÐINNI Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is 20.980 Nú 16.784 Margir litir • Þrjár síddir BUXNADAGAR 20%afsláttur af öllum buxum gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Opið 11-15 í dag Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Kr. 12.900 - Str. 36-52 Litir: Dökkblátt, ljósblátt, svart Gallabuxur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.