Morgunblaðið - 08.06.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 08.06.2019, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Útskorinn taflmaður sem fannst í lok 19. aldar í kartöflugarði á gamla bæjarhólnum í Kollsvík á Vest- fjörðum er áþreifanlegur vitnis- burður um hefð eða iðnað sem að öllum líkindum hefur tíðkast á Íslandi fyrr á öldum, að skera taflmenn í rost- ungstönn til sölu á erlendum mörkuðum eða innanlands. Þetta segir Valdimar Össurarson, framkvæmdastjóri Valorku, sem er mikill áhugamaður um fornar minj- ar og menningarsögu. Hann hefur nýlega tekið saman fróðleik um tafl- manninn forna og birt á vef Kolls- víkur en þaðan er hann ættaður. Fréttir um að áður óþekktur tafl- maður úr hinu sögufræga Lewis- safni hafi komið í leitirnar í Bret- landi og verði boðinn upp hjá Sothebys í byrjun næsta mánaðar, hafa á ný vakið umræður um út- skurðarlist Íslendinga til forna og hugsanlegan íslenskan uppruna nær eitt hundrað útskorinna taflmanna sem fundust á Lewiseyju við strönd Skotlands í byrjun 19. aldar en eru taldir vera frá því um 1200. Taflmaðurinn í Kollsvík er varð- veittur í Þjóðminjasafninu. Í lýsingu safnsins á honum segir: „Skáktafls- maður úr tönn, skorinn í fulla manns líking, með töluvert skegg og hárið stýft um eyrun, kolllágan, barðastóran hatt á höfði, í aðskor- inni, einhneptri treyju með breiðum kraga og ákaflega síðum stutt- brókum og skjöld á vinstri hlið og nær sporðurinn niður jafnlangt fót- um mannsins. Þetta mun vera kon- ungur úr tafli og eptir því sem ráða má af búninginum, mun hann vera frá síðari hluta 16. aldar.“ Valdimar er þeirrar skoðunar að hinn óþekkti útskurðarmeistari tafl- mannsins í Kollsvík hafi gert tafl- manninn í mynd Magnúsar prúða Jónssonar, sem var valdamikill og stórefnaður höfðingi á Vestfjörðum á 16. öld. Telur hann að mynd af Magnúsi á samtímamálverki sýni sterk líkindi með honum og svip- móti taflmannsins. Líklegt sé að taflmaðurinn hafi verið gerður af heimilismanni Gunnars Jónssonar, sem þá var bóndi í Kollsvík, ef ekki af honum sjálfum. Annar fundur á Siglunesi Þess má geta að sumarið 2011 fannst við fornleifarannsókn á Siglunesi fínlega útskorinn tafl- maður. Hann er talinn frá 12. eða 13. öld og svipar um margt til Lewistaflmannanna, en er úr ýsu- beini. Taflmenn merki um útskurðarhefð  Útskorinn taflmaður í mannslíki frá 16. öld fannst í Kollsvík í lok 19. aldar  Hugsanlega gerður fyrir auðmanninn Magnús prúða og í mynd hans  Öðrum sem fannst 2011 svipar til Lewistaflmannanna Ljósmynd/Kollsvik.is Útskurður Taflmaðurinn sem fannst í Kollsvík. Ljósmynd/Vefur Fornleifastofnunar Íslands. Forngripur Taflmaðurinn sem fannst á Siglunesi. Skák Einn Lewistaflmannanna Valdimar Össurarson Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Hjólastillingar | Smurverkstæði/þjónusta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.