Morgunblaðið - 08.06.2019, Síða 18

Morgunblaðið - 08.06.2019, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019 hefur alltaf tekist að ná lendingu. Með fjölgun íbúa, hærra mennt- unarstigi og meiri fjölbreytni í at- vinnulífinu vænti ég þó að sveifl- urnar í framtíðinni verði minni en verið hefur,“ sagði Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri í samtali við Morgunblaðið í vikunni. Fjölgun íbúa í Reyjanesbæ síð- ustu árin hefur verið hliðstæðulítil. Íbúarnir voru árið 2014 alls 14.610 en eru nú 19.020. Það er fjölgun um liðlega 23%. „Vissulega hefur fjölg- unin tekið á fjárhag bæjarins. Fleiri íbúum fylgja hins vegar meiri tekjur og hér voru til staðar ýmsir innviðir sem nýttust við þessar aðstæður, svo sem skólar, gatnakerfi og fleira. Á sama tíma hefur okkur tekist að koma fjárhag bæjarins í lag,“ sagði Kjartan sem bauð blaðamanni í bíl- túr um hinn ört vaxandi bæ. Spennandi vaxtarsvæði Leiðin lá fyrst í Hlíðahverfi sem er neðst í fyrrverandi varnarsvæði. Þar er nú verið að reisa einbýlis-, rað- og fjölbýlishús; 118 íbúðir í þessum fyrsta áfanga. Í hverfinu fullbyggðu verða íbúðirnar um 800. Uppbygging í Innri-Njarðvík er einnig komin vel á veg, meðal ann- ars framkvæmdir við nýjan skóla, Stapaskóla. Alls verða um 1.800 íbúðir í Innri Njarðvík þegar sá bæjarhluti verður fullbyggður. Ný- bygging skólans sem á að taka um 600 nemendur ætti að komast í gagnið haustið 2020. Starfsemi skól- ans er nú í bráðabirgðahúsnæði og mjór er mikils vísir, segir máltækið. „Ásbrú er mjög spennandi staður SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Málefni barna, svo sem samþætting skóladags og frístunda, fjölbreytni mannlífsins, efling félagslegrar þátttöku, umhverfismál, sjálfbærni og skilvirk þjónusta eru megin- atriðin í nýrri stefnu Reykjanes- bæjar 2020-2030. Unnið hefur verið að stefnumótun þessari að undan- förnu og verður málið tekið til fyrri umræðu á hátíðarfundi í bæjar- stjórn næstkomandi þriðjudag, 11. júní, þegar 25 ár eru liðin frá stofn- un Reykjanesbæjar. Það gerðist eft- ir að íbúar Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna höfðu samþykkt að sam- eina sveitarfélögin í eitt. Sveiflurnar verði minni „Bærinn stendur vel. Vissulega höfum við farið í gegnum ýmsar bylgjur og slíkt er ekkert einsdæmi í samfélagi sem breytist hratt. Þó og vaxtarsvæði,“ segir Kjartan. Á svæðinu eru skráðar um 100 kenni- tölur fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum og íbúarnir eru um 3.000. Til framtíðar verður að sögn bæj- arstjórans mikið byggt á Ásbrú, enda ýmsir innviðir á svæðinu til staðar og nóg af lóðum svo þar megi reisa 15.000-20.000 manna byggð. Á svonefndum Flugvöllum sem eru niður af Ásbrú við leiðina í Leifsstöð er svo gert ráð fyrir ýmiskonar þjónustustarfsemi, meðal annars í tengslum við flugið. Þarna eru nú þegar bílaleigur og hótelbygging í undirbúningi. Rígurinn er enn til staðar „Já, rígurinn milli Keflavíkur og Njarðvíkur hér fyrr á árum var mik- ill og er að einhverju marki til stað- ar enn. Núna eru knattspyrnulið beggja þessara hverfa í sömu deild, Inkasso-deildinni, í fótboltanum og það skapar heilbrigðan meting. En að öðru leyti segja sumir að samein- ing á sveitarfélagi taki þrjár til fjór- ar kynslóðir sem ég tel vera rétt. Svo er líka að koma hingað í bæinn fólk sem þekkir ekki þessa forsögu,“ segir Kjartan og heldur áfram. „Stór hluti nýrra íbúa í bænum er fólk erlendis frá, gjarnan Póllandi, sem hingað kemur, er hér í skamm- an tíma, kannski 1-2 ár. Þó eru þess mörg dæmi að eftir nokkur misseri komi fjölskylda viðkomandi og setj- ist hér að. Og nú þarf að koma betur til móts við þetta fólk, til dæmis börnin. Svo vitum við líka um full- orðið fólk sem hefur verið hér í bænum í kannski 15-20 ár, talar hvorki íslensku né ensku, og nær engum tengslum við samfélagið. Til þess þarf að ná,“ segir Kjartan sem segir blaðamanni á bíltúrnum um bæinn að brýnt sé nú að ná við- spyrnu í atvinnumálum. Slegið hafi í bakseglin með gjalþroti WOW og nú sé atvinnuleysi á Suðurnesjum um 6,5%. Ná fyrri stöðu í fluginu „Flug og ferðalög hvarvetna í heiminum er alls staðar að aukast – og ég vona því að brátt náum við að nýju fyrri stöðu. Á flugvellinum og í tengslum við hann starfa í dag um 8.000 manns og því eigum við mikið undir. En jafnframt þurfum við líka að fá ríkið meira að málum hér, meiri framlög til margvíslegrar þjónustu sem er á þess hendi,“ segir bæjarstjórinn þegar við ökum um miðbæinn og að bæjarskrifstofunni sem er við Tjarnargötu. Samfélag sem breytist hratt  Reykjanesbær 25 ára  Keflavík, Njarðvík og Hafnir  Mikil fjölgun íbúa á undanförnum árum  Mikil uppbygging  Ásbrú verði 15 -20.000 manna hverfi  Innflytjendur um fjórðungur bæjarbúa Morgunblaðið/Sigurður Bogi Mannlíf Bæjarstjórinn á förnum vegi með stúlkum úr vinnuskólanum. „Bærinn stendur vel. Vissulega höfum við farið í gegnum ýmsar bylgjur og slíkt er ekkert einsdæmi, segir Kjartan Már Kjartansson um stöðu mála á svæðinu. Reykjanesbær Fjölgun íbúa síðustu árin er hliðstæðulítil. Íbúarnir voru ár- ið 2014 alls 14.610 en eru nú 19.020. Það er fjölgun um liðlega 23%. Í nýrri stefnu Reykjanesbæjar 2020-2030 sem bæjarstjórn mun fjalla um næstkomandi þriðjudag eru sex stefnu- áherslur. Þær eru málefni barna, vellíðan íbúa, vistvænt samfélag, fjölbreytt störf, kraftur fjölbreytileikans og skilvirk þjónusta. Við mótun stefnunnar var horft til heims- markmiða Sameinuðu þjóð- anna, haft samráð við starfs- menn bæjarins og rætt við notendur þjónustu bæjarins um úrlausnarefni. Eftir umfjöll- un bæjarstjórnar fer tillagan til umfjöllunar meðal bæjarbúa og annarra og verður svo afgreidd endanlega í haust. Sé litið til einstakra þátta er í málefnum barna lagt til að þétta tíðni strætisvagna sem gangi á 20 mínútna fresti til að efla þátttöku barna í íþróttastarfi. Einnig á að sam- þætta skólastarf við íþróttir og tómstundir. Hvað fjölbreyti- leika mannlífsins viðvíkur á að efla upplýsingamiðlun og sam- skipti við innflytjendur og vinna að aukinni þáttttöku barna af erlendum uppruna í íþrótta- og tómstundastarfi. Einnig er hvatt til virkra sam- skipta milli ólíkra hópa, m.a. með því að halda þjóðhátíð- ardag Pólverja, 11. nóvember, hátíðlegan. Virk sam- skipti milli ólíkra hópa STEFNUMÓTUN 2020- 2030 Vantar þig ráðleggingar við sölu eignar þinnar? s 893 6001 Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is Guðbergur Guðbergsson Löggiltur fasteignasali og leigumiðlari Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.