Morgunblaðið - 08.06.2019, Side 25

Morgunblaðið - 08.06.2019, Side 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019 Húsnæðismál eru eitt stærsta velferð- armál þjóðarinnar. Þak yfir höfuðið er ein af grunnþörfum mannsins og öruggt húsnæði óháð efnahag og bú- setu er ein af grunn- forsendum öflugs sam- félags. Húsnæðismarkaður- inn hér á landi hefur einkennst af miklum sveiflum í gegnum tíðina, ekki síst síðastliðinn áratug. Í dag er staðan sú að stór hópur fólks býr við þröng- an kost og óöryggi í húsnæðismálum og margir, einkum þeir tekjulægri, hafa takmarkaðan aðgang að við- unandi húsnæði. Þeir verja sömu- leiðis of stórum hluta tekna sinna í húsnæði. Við það verður ekki unað. Núverandi ríkisstjórn hefur frá upphafi haft skýra stefnu í húsnæð- ismálum. Hún er að tryggja jafn- vægi á húsnæðismarkaði og nægj- anlegt framboð af viðunandi húsnæði fyrir alla, óháð efnahag og búsetu. Húsnæðismál hafa verið sett í skýran forgang en til marks um það má nefna að þriðjungur þeirra 38 aðgerða sem ríkis- stjórnin lagði fram í tengslum við lífs- kjarasamningana snýr að húsnæðismálum. Gert er ráð fyrir að Íbúðalánasjóður fylgi þeim aðgerðum eftir og skili stöðuskýrslu þrisvar á ári svo að sem best yfirsýn fáist yfir framgang þeirra. Til að skapa aukinn stöðugleika á húsnæð- ismarkaði þarf breytta umgjörð í húsnæðis- málum, sem grundvallast á stefnu- mótun og áætlanagerð til langs tíma og er byggð á áreiðanlegum upplýs- ingum. Mörg mikilvæg skref hafa verið stigin í þá átt á nýliðnum vetri. Íbúðalánasjóði hefur verið falið mik- ilvægt hlutverk í þeim efnum með breytingu á lögum um húsnæðismál og er það fagnaðarefni að sterk stofnun fari nú með samhæfingu og framkvæmd húsnæðismála á lands- vísu. Þá hefur sveitarfélögunum verið falið veigamikið hlutverk við gerð húsnæðisáætlana en þær munu framvegis vera lykilþáttur í stefnu- mótun stjórnvalda í húsnæðismálum. Í þeirri aðgerð kristallast mikilvægi þess að gott samstarf sé á milli ríkis og sveitarfélaga þegar kemur að húsnæðismálum. Í apríl síðastliðnum skilaði starfs- hópur á mínum vegum skýrslu með fjórtán tillögum til að auðvelda ungu fólki og tekjulágum að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Þær miða sér- staklega að því að auðvelda fyrr- nefndum hópum að safna fyrir út- borgun í íbúð og létta hjá þeim afborgunarbyrði lána. Eru þær nú í vinnslu innan stjórnsýslunnar til endanlegrar útfærslu. Markvisst hefur einnig verið unn- ið að fjölgun hagkvæmra leiguíbúða í gegnum uppbyggingu almenna íbúðakerfisins sem studd er af stofn- framlögum ríkis og sveitarfélaga. Ljóst er að mikil þörf er á slíku úr- ræði en almenna íbúðakerfið mun auka aðgengi tekju- og eignalágra að öruggu leiguhúsnæði á viðráð- anlegu verði. Á haustmánuðum fór Íbúðalána- sjóður jafnframt af stað með til- raunaverkefni að mínu frumkvæði í því skyni að leita leiða til þess að bregðast við langvarandi stöðnun á húsnæðismarkaði á landsbyggðinni. Í samvinnu við Byggðastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga valdi sjóðurinn sjö sveitarfélög sem eru að glíma við ólíkar áskoranir í húsnæðismálum en eiga það sameig- inlegt að óvirkur íbúða- og/eða leigu- markaður hefur staðið framþróun fyrir þrifum. Unnið hefur verið að því með tilraunasveitarfélögunum að greina þann vanda sem þau standa frammi fyrir og á grundvelli þeirr- ar vinnu hefur Íbúðalánasjóður unnið tillögur að lausnum til þess að mæta þeim áskorunum sem steðja að. Þær snúa meðal annars að því hvernig hægt sé að koma til móts við það misvægi sem ríkir á milli byggingarkostnaðar og mark- aðsverðs á stórum hluta landsins, ásamt því að tryggja aðgengi að fjármagni á sambærilegum kjörum og fást á virkari markaðssvæðum. Þegar lausnirnar verða komnar til framkvæmda verður lagt mat á áhrif þeirra á köldum markaðs- svæðum á landsbyggðinni með til- liti til þess hvort þær geti orðið að varanlegum úrræðum til að bregð- ast við óvirkum íbúða- eða leigu- markaði á landsbyggðinni til fram- tíðar. Sem stendur funda Íbúðalánasjóð- ur og Mannvirkjastofnun með sveit- arfélögum um allt land en stefnan er að efla samvinnu ríkis og sveitarfé- laga þegar kemur að stefnumótum í húsnæðismálum og skipan húsnæðis- mála til framtíðar. Tilgangur þeirra funda er að kynna tvö ný stjórntæki hins opinbera; ríkis og sveitarfélaga, sem koma til með að skipta sköpum í húsnæðismálum til framtíðar. Þetta eru húsnæðisáætlanir sveitarfélaga og byggingargátt sem munu gera það betur kleift að greina þörf fyrir húsnæði, gera áætlanir til þess að mæta þeirri þörf og fylgjast með því hvort verið sé að byggja húsnæði í samræmi við þörf á hverjum tíma. Aðgengi að viðunandi húsnæði er öllum nauðsynlegt. Í þeim efnum bera stjórnvöld ríka ábyrgð. Ég er þess fullviss að þau skref sem við höfum stigið síðustu misseri marki ákveðin vatnaskil, leggi grunninn að bættri umgjörð í húsnæðismálum og færi okkur í áttina að því markmiði að tryggja jafnvægi á húsnæðis- markaði ásamt nægjanlegu framboði af húsnæði fyrir alla, óháð efnahag og í öllum byggðum landsins. Eftir Ásmund Einar Daðason »Núverandi ríkis- stjórn hefur frá upp- hafi haft skýra stefnu í húsnæðismálum. Hús- næðismál hafa verið sett í forgang. Ásmundur Einar Daðason Höfundur er félags- og barnamálaráðherra. Víðtækar aðgerðir til aukins jafnvægis á húsnæðismarkaði Þingsályktunar- tillaga um að efla ís- lensku sem opinbert mál hér á landi var samþykkt með með 55 samhljóða atkvæðum á Alþingi í gær. Það er sérlega gleðilegt að finna þann meðbyr sem er með tillögunni bæði á þinginu og úti í samfélaginu. Það er pólitísk samstaða um að leggja í vegferð til að vekja sem flesta til vitundar um mikilvægi þess að við höldum áfram að tala íslensku í þessu landi. Við eigum að nota okk- ar litríka og lifandi tungumál til allra hluta, hvort sem er í starfi eða leik. Tungumál sem þróast Við eigum ekki að vera feimin við íslenskuna, hún er okkar. Hún hef- ur þjónað Íslendingum í nær 1150 ár og hún hefur þraukað allan þennan tíma einmitt af því hún hef- ur óspart verið notuð. Þannig hefur hún þróast en ekki staðnað. Hún á ekki heima á safni, hún er tæki sem við eigum að nota alla daga, allan daginn til hvers kyns samskipta. Við eigum að skapa, skrifa, lesa og syngja á henni – og kannski það sem er mikilvægast: við eigum að leika okk- ur með hana. Íslenska á öllum sviðum Meginmarkmið þingsályktunarinnar sem nú hefur verið samþykkt, eru þau að íslenska verði notuð á öllum sviðum sam- félagsins, að íslenskukennsla verði efld á öllum skólastigum ásamt menntun og starfsþróun kennara og að framtíð íslenskrar tungu í stafrænum heimi verði tryggð. Í ályktuninni eru tilteknar 22 að- gerðir til að ná þessum mark- miðum. Þær ná til skólanna, inn á heimilin, inn í snjalltækin, til allra listgreina, út í atvinnulífið, inn í stjórnsýsluna, til ferðaþjónust- unnar, inn í fjölmiðlana, til bókaút- gáfunnar, inn á bókasöfnin, inn í tölvuheiminn og út á göturnar. Við viljum ná til allra, hvar sem þeir eru. Fjölþættar aðgerðir Nokkrum aðgerðum hefur þegar verið ýtt úr vör og má þar nefna stuðning við útgáfu bóka á íslensku en með því að endurgreiða allt að fjórðung beins kostnaðar vegna út- gáfunnar er myndarlega stutt við aukið framboð á íslensku efni. Þá hefur verið settur á laggirnar nýr sjóður til að styrkja sérstaklega út- gáfu barna- og ungmennabóka á ís- lensku en óumdeilt er að sárlega vantar meira framboð af bókum sem hæfa yngri lesendum. Nýlega var úthlutað í fyrsta sinn úr þessum sjóði til 20 verkefna. Þetta eru bækur af ólíkum toga og fyrir ýms- an aldur. Sjóðurinn sjálfur fékk nafnið Auður sem þótti vel hæfa, enda er honum ætlað að minna á raunverulegan fjársjóð þjóð- arinnar, bókmenntirnar. Þjóð- arsáttmáli um læsi er enn í fullu gildi og verður fram haldið af þunga. Aukin áhersla verður lögð á fræðslu til foreldra og uppalenda ungra barna um mikilvægi þess að leggja grunn að málþroska og læsi barna strax í bernsku. Þegar er bú- ið að leggja upp með áætlun um að auka nýliðun í kennarastétt m.a. með launuðu starfsnámi og náms- styrkjum í starfstengdri leiðsögn. Fleiri tillögur sem snerta kenn- aranám og starfsþróun kennara eru í burðarliðnum. Þá liggja fyrir til- lögur um stuðning við einkarekna fjölmiðla um miðlun efnis á ís- lensku. Við ætlum einnig að huga sérstaklega að þeim sístækkandi hópi sem lærir íslensku sem annað mál, bæði skólabörnum og full- orðnum innflytjendum og finna leiðir til að auðvelda þeim að ná tökum á tungumálinu. Þá leggjum við mikla áherslu á notkun íslensku í hinum skapandi greinum. Íslensk- an er listræn, sama í hvaða formi listin birtist. Altalandi snjalltæki Til að tryggja að íslenskan verði gjaldgeng í stafrænum heimi, raf- rænum samskiptum og upplýsinga- vinnslu sem byggist á tölvu- og fjarskiptatækni er nú unnið eftir verkáætluninni Máltækni fyrir ís- lensku 2018-2022. Í því felst að þróa og byggja upp tæknilega innviði sem nauðsynlegir eru til þess að brúa bil milli talmáls og búnaðar, svo sem talgreini, talgervil, þýðing- arvél og málrýni/leiðrétting- arforrit. Það fylgir því nokkur fyr- irhöfn að tilheyra fámennri þjóð sem talar sitt eigið tungumál en við ætlum ekki að verða eftirbátar ann- arra sem geta notað sitt mál í sam- skiptum við tölvur og snjalltæki framtíðarinnar. Sjálfseignarstofn- unin Almannarómur hefur verið fengin til að halda utan um þetta risavaxna verkefni sem þegar er farið af stað og er fullfjármagnað. Allir leggja sitt af mörkum Ég þakka þær fjölmörgu ábend- ingar sem borist hafa við þings- ályktunartillöguna í ferli hennar í þinginu, þær gagnlegu umsagnir sem bárust og þá góðu umfjöllun sem málið fékk fengið í allsherjar- og menntamálanefnd. Við höfum hafið ákveðna vegferð og þær að- gerðir sem lagðar eru til snerta vel- flest svið þjóðfélagsins. Í þessu mikilvæga máli þurfa allir að leggja sitt af mörkum: stofnanir, atvinnu- líf og félagasamtök – og við öll. Við getum, hvert og eitt okkar, tekið þátt í að þróa tungumálið okkar, móta það og nýta á skapandi hátt. Það eru sameiginlegir hagsmunir okkar allra að íslenskan dafni og þróist svo hún megi áfram þjóna okkur og gleðja alla daga. Áfram íslenska Eftir Lilju Alfreðsdóttur Lilja Dögg Alfreðsdóttir » Við getum, hvert og eitt okkar, tekið þátt í að þróa tungumálið okkar, móta það og nýta á skapandi hátt. Höfundur er mennta- og menningar- málaráðherra. Á næsta ári stóð til að hætta urðun í Álfs- nesi, þar sem allt sorp frá höfuðborgarsvæð- inu hefur verið urðað síðastliðin tæplega 30 ár. Ekki hefur fundist nýr urðunarstaður og málið er í algjörum hnút. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu gerðu með sér sam- komulag að urðun skyldi hætt árið 2020 en engin önnur staðsetning hefur fundist, það vill nefnilega eng- in ruslahauginn í sinn bakgarð. Staðsetningin á Álfsnesi hefur um langt skeið truflað Mosfellinga vegna sjón- og lyktarmeng- unar frá svæðinu, en frá 1991 hefur allt sorp frá höfuðborgarsvæð- inu verið flutt til Álfs- ness og liggja þar nú um 2,8 milljón tonn af sorpi í jörðu. Þrátt fyrir áhyggjur af sorpmálum framtíð- arinnar eru jákvæð teikn á lofti. Loksins hillir undir langþráða gas- og jarðgerðarstöð á Álfsnesi, sem mun draga verulega úr urðun enda mun allur lífrænn úrgangur fara í gegnum stöðina. Afurðir stöðv- arinnar eru metangas, sem leysir annað og óumhverfisvænna elds- neyti af hólmi, og jarðvegsbætir sem nýta má við landgræðslu. Gas- og jarðgerðarstöðin er stórt skref í rétta átt, en við þurfum áfram að urða það sorp sem ekki fer í jarð- gerðarstöðina, í endurvinnslu eða brennslu. Bregðast þarf við því ófremdar- ástandi sem ríkir í úrgangsmálum þjóðarinnar, enda er hér um að ræða í senn mikilvæga þjónustu við lands- menn, umhverfismál og loftlagsmál. Hingað til hafa sorpmál verið á for- ræði sveitarfélaga, en nú er lag að horfa til aðkomu ríkisvaldsins að málaflokknum. Við þurfum að skoða til hlítar hvort fýsilegt sé að rík- isvaldið taki málaflokkinn yfir, þar sem horft er til nýsköpunar og einkaframtaksins til að tryggja að lausnirnar séu umhverfisvænar. Heildstæða nálgun þarf þar sem gas- og jarðgerðarstöðin í Álfsnesi getur þjónað stærra svæði en höf- uðborgarsvæðinu. Finna þarf urð- unarstað hið fyrsta fyrir það sem þó þarf að fara í urðun eins og nauðsyn- legt er að tryggja aðgengi að brennslustöð. Dýrar lausnir á borð við fullkomna brennslustöð og gas- og jarðgerðastöð verða aldrei marg- ar á Íslandi og því nauðsynlegt að horfa til lausna fyrir landið allt. Eftir Bryndísi Haraldsdóttur » Loksins hillir undir langþráða gas- og jarðgerðarstöð á Álfs- nesi, sem mun draga verulega úr urðun enda mun allur lífrænn úr- gangur fara í gegnum stöðina. Bryndís Haraldsdóttir Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Í rusli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.