Morgunblaðið - 08.06.2019, Side 30
30 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Þór Hauksson þjónar fyrir altari
og prédikar. Organisti Kristina Kalló
Szklenár. Félagar úr kór Árbæjarkirkju
leiða almennan safnaðarsöng.
ÁSKIRKJA | Messa og ferming kl.
11. Sigurður Jónsson sóknarprestur
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
Kristnýju Rós Gústafsdóttur djákna.
Kór Áskirkju syngur, organisti Bjartur
Logi Guðnason. Guðsþjónusta á hjúkr-
unarheimilinu Skjóli kl. 13. Séra Sig-
urður Jónsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Organisti Bjartur Logi Guðna-
son. Almennur söngur. Vinir og vanda-
menn heimilisfólks velkomnir með
sínu fólki.
ÁSTJARNARKIRKJA | Alþjóðleg
guðsþjónusta kl. 11. Nýbúar lesa ritn-
ingarlestra á sínu móðurmáli. Prédik-
un verður á ensku. Sýnishorn af mat
frá ýmsum löndum verður á boð-
stólum á eftir guðsþjónustuna. Keith
Reed leiðir tónlistina. Prestur er Kjart-
an Jónsson.
BAKKAGERÐISKIRKJA | Hátíðar-
messa kl. 15. Ferming. Prestur Þor-
geir Arason. Organisti Torvald Gjerde.
Meðhjálpari Kristjana Björnsdóttir.
Bakkasystur á Borgarfirði syngja.
Bergsstaðakirkja í Svartárdal |
Mánudagur. Fermingarmessa kl. 13.
Bryndís Valbjarnardóttir sóknarprestur
þjónar fyrir altari. Kór Bergsstaða-
Bólstaðarhlíðar og Holtastaðakirkju
syngur undir stjórn Sveins Árnasonar
organista.
BORGARPRESTAKALL | Sunnu-
dagur. Hátíðarguðsþjónusta í Borgar-
neskirkju kl. 11 og í Borgarkirkju kl.
14. Organisti: Steinunn Árnadóttir.
Prestur: Þorbjörn Hlynur Árnason.
Mánudagur. Guðsþjónusta í Brákar-
hlíð kl. 16.30.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Biskups-
vísitasía kl. 11. Skálholtsbiskup Krist-
ján Björnsson prédikar. Sr. Magnús
Björn Björnsson þjónar fyrir altari. Kór
Breiðholtskirkju syngur. Organisti er
Örn Magnússon. Ensk bænastund kl.
14. Biskupsvísitasía. Prestur Ása
Laufey Sæmundsdóttir.
Dómkirkja Krists konungs,
Landakoti | Messa á sunnud. kl.
8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku,
kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl.
8, lau. kl. 16 er vigilmessa á spænsku
og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Fermingarmessa kl.
11. Prestur Sveinn Valgeirsson, Kári
Þormar dómorganisti og Dómkórinn.
Bílastæði við Alþingi.
Á annan hvítasunnudag er messa kl.
11. Prestur Sveinn Valgeirsson, Dóm-
kórinn og Kári Þormar dómorganisti.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Hátíðar-
messa kl. 10.30. Ferming. Prestur
Þorgeir Arason. Organisti Torvald
Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju. Fiðla:
Kristófer Gauti Þórhallsson.
FELLA- og Hólakirkja | Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson þjónar og predikar. Reynir
Þormar leikur á saxófón. Kór kirkj-
unnar syngur undir stjórn Arnhildar
Valgarðsdóttur.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Ferming-
armessa kl. 14. Hjörtur Magni Jó-
hannsson safnaðarprestur þjónar fyrir
altari. Hljómsveitin Mantra og Söng-
hópurinn við Tjörnina leiðir sönginn
ásamt Gunnari Gunnarssyni organ-
ista.
GARÐAKIRKJA | Hátíðarmessa kl.
11. Árni Heiðar Karlsson organisti
leiðir sönginn og sr. Hans Guðberg Al-
freðsson prédikar og þjónar fyrir altari.
GLERÁRKIRKJA | Hátíðarmessa kl.
11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjón-
ar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir
stjórn Valmars Väljaots organista.
GRAFARVOGSKIRKJA | Kaffi-
húsamessa kl. 11. Séra Arna Ýrr Sig-
urðardóttir prédikar og þjónar. Kór
Grafarvogskirkju leiðir söng og undir-
leikari er Hákon Leifsson.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11 í
Grensáskirkju og guðsþjónusta kl.
13.30 í Mörk. Prestur er María Ágústs-
dóttir, organisti Antonía Hevesí.
Félagar úr Kirkjukór Grensáskirkju
leiða söng. Fjóla Haraldsdóttir djákni
þjónar einnig í Mörk.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Fermingarguðsþjónusta kl. 10.30.
Prestur Karl V. Matthíasson. Organisti
Guðmundur Ómar Óskarsson og kór
Guðríðarkirkju syngur. Meðhjálpari
Guðný Aradóttir og kirkjuvörður Lovísa
Guðmundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA |
Hátíðarmessa og ferming kl. 11. Sr.
Jón Helgi Þórarinsson predikar og
þjónar ásamt sr. Þórhildi Ólafs. Hilmar
Örn Agnarsson leikur á orgel og fé-
lagar í Barbörukórnum syngja.
HALLGRÍMSKIRKJA | Sunnudagur.
Hátíðarguðsþjónusta kl. 11. Sr. Irma
S. Óskarsdóttir prédikar og þjónar
ásamt sr. Sigurði Á. Þórðarsyni og
messuþjónum. Hvítasunnukantata e.
J.S. Bach. Flytjendur Mótettukór Hall-
grímskirkju, Alþjóðlega barokksveitin
og einsöngvarar. Stjórnandi Hörður
Áskelsson. Organisti Björn S. Sól-
bergsson.
Mánudagur. Hátíðarmessa kl. 11. Sr.
Irma S. Óskarsdóttir prédikar og þjón-
ar ásamt sr. Sigurði Á. Þórðarsyni.
Kórinn Graduale Nobili syngur. Stjórn-
andi Þorvaldur Örn Davíðsson. Organ-
isti Björn S. Sólbergsson.
Hjúkrunarheimilið Skjól | Guðs-
þjónusta kl. 13. Séra Sigurður Jóns-
son prédikar og þjónar fyrir altari.
Organisti Bjartur Logi Guðnason. Al-
mennur söngur. Vinir og vandamenn
heimilisfólks velkomnir með sínu
fólki.
HOFTEIGSKIRKJA | Laugardagur.
Messa kl. 14. Ferming. Prestur Þor-
geir Arason. Organisti Torvald Gjerde.
HÓLANESKIRKJA Skagaströnd |
Messa kl. 13. Ferming. Bryndís Val-
bjarnardóttir sóknarprestur og Kristín
Leifs Árnadóttir djákni þjóna fyrir
altari. Kór Hólaneskirkju syngur undir
stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner
organista. Meðhjálpari: Lárus Ægir
Guðmundsson.
HVAMMSKIRKJA í Laxárdal |
Messa kl. 14. Ferming. Organisti
Rögnvaldur Valbergsson, prestur Sig-
ríður Gunnarsdóttir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkoma kl. 11. Translation into
English. Samkoma á spænsku kl. 13.
Reuniónes en español. Samkoma á
ensku kl. 14. English speaking ser-
vice.
ÍSLENSKA KIRKJAN í Kaup-
mannahöfn | Mánudagur. Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 14 í Esajas kirkju,
Malmøgade 14, í 10 mínútna göngu-
færi frá Jónshúsi. Kvennakórinn í
Kaupmannahöfn syngur. María Ösp
Ómarsdóttir og Finnur Karlsson syngja
og flytja tónlist. Fermd verða: Kristófer
Örn Arnaldsson og Fríða Simone Frið-
riksdóttir. Organisti: Sólveig Anna Ara-
dóttir. Prestur: Ágúst Einarsson.
Kirkjukaffi í Húsi Jóns Sigurðssonar.
ÍSLENSKA KIRKJAN í Svíþjóð |
Laugardagur. Lundur: Fermingarguðs-
þjónusta í Uppåkrakirkju kl. 14. Prest-
ur Ágúst Einarsson.
Sunnudagur. Gautaborg: Hátíðarguðs-
þjónusta í V. Frölundakirkju kl. 14. Ís-
lenski kórinn í Gautaborg syngur. Org-
elleik og kórstjórn annast Lisa
Fröberg. Kirkjukaffi. Prestur Ágúst
Einarsson.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Mánu-
dagur. Samkoma kl. 20 með lofgjörð
og fyrirbænum. Ólafur H. Knútsson
predikar. Kaffi að samverustund lok-
inni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa kl.
11. Séra Fritz Már Jörgensson þjónar
fyrir altari. Rafn Hlíðkvist Björgvinsson
sér um tónlist.
KIRKJUBÆJARKIRKJA | Hátíðar-
messa kl. 20. Prestur Þorgeir Arason.
Organisti Torvald Gjerde. Kór Kirkju-
bæjar- og Sleðbrjótskirkna syngur.
Meðhjálpari Svandís Skúladóttir.
KIRKJUVOGSKIRKJA Höfnum | Há-
tíðarguðsþjónusta klukkan 12.20. Sr.
Baldur Rafn Sigurðsson þjónar og
kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn
Stefáns H. Kristinssonar organista.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sigurður Arnarson sóknar-
prestur prédikar og þjónar fyrir altari.
Gunnar Gunnarsson, organisti og
Sara Grímsdóttir söngkona annast
tónlistarflutning.
LANGHOLTSKIRKJA | Helgistund kl.
11, Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknar-
prestur þjónar. Magnús Ragnarsson
og forsöngvarar úr Kór Langholtskirkju
sjá um tónlistina. Aðalsteinn Guð-
mundsson kirkjuvörður tekur á móti
gestum.
LAUGARNESKIRKJA | Útimessa kl.
20 í tóftum hinnar fornu Laugarnes-
kirkju á Laugarnestanga, við mót Sæ-
brautar og Klettagarða. Gengið verður
frá kirkjunni kl. 19.40 en einnig er
hægt að koma beint á staðinn. Sr.
Davíð Þór Jónsson og sr. Hjalti Jón
Sverrisson leiða stundina og leika
létta tónlist á gítar og úkúlele. Ferm-
ingarbörn ársins 2020 eru hvött til að
mæta. laugarneskirkja.is.
LÁGAFELLSKIRKJA | Fermingar-
messa kl. 11. Sr. Arndís G. Bernhards-
dóttir Linn leiðir helgihald og Hildur
Salvör Backman er meðhjálpari.
Kirkjukór Lágafellssóknar syngur.
Organisti Þorvaldur Örn Davíðsson.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Messa kl. 20. Óskar
Einarsson stjórnar kór Lindakirkju og
Holmestrand gospelkor frá Noregi
syngur nokkur lög undir stjórn Dag Ei-
vind Holhjem. Sr. Dís Gylfadóttir
þjónar.
Mánudagur. Tónleikar kl. 17. Kór
Lindakirkju, stjórnandi Óskar Ein-
arsson, og Holmestrand Gospelkor,
stjórnandi Dag Eivind Holhjem.
NESKIRKJA | Hátíðarmessa kl. 11.
Kór Neskirkju syngur. Organisti Stein-
grímur Þórhallsson. Prestur Skúli S.
Ólafsson. Samfélag og kaffi á Torginu
eftir messu.
Mánudagur. Helgistund kl. 18. Græn
ganga og gróðursett ávaxtatré í garði
kirkjunnar. Ásta Camilla Gylfadóttir
landslagsarkitekt gefur ráð. Kór Nes-
kirkju syngur sumarsöngva og sálma
undir stjórn Steingríms Þórhallssonar.
Glaðlegar veitingar. Sr. Skúli S. Ólafs-
son leiðir stundina.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Mánudag-
ur. Messa kl. 20. Séra Pétur þjónar
fyrir altari. Kór safnaðarins undir
stjórn Þorvaldar Davíðssonar, þema
verður tónlist Bjarna Þorsteinssonar.
Maul eftir messu. Ólafur Kristjánsson
tekur á móti kirkjugestum.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós |
Göngumessa. Gengið verður frá Reyni-
vallakirkju að kirkjugarði og þaðan inn
á gamla Kirkjustíginn og austur með
Reynivallahálsi í átt að Gíslagötu. Þá
er gengið niður að Laxá og með ánni til
móts við Reynivelli. Íhugunarstopp í
anda pílagrímagangna verða á leiðinni
og kaffi að göngu lokinni á pallinum
við prestssetrið. Arna Grétarsdóttir
sóknarprestur þjónar. Gangan er létt
og hentar öllum aldri.
SALT kristið samfélag | Sameigin-
legar samkomur Salts og SÍK kl. 17
alla sunnudaga í Kristniboðssalnum
Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. Barna-
starf. Túlkað á ensku.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Hátíðar-
messa kl. 11. Ferming. Kirkjukórinn
leiðir söng við undirleik Rögnvaldar
Valbergssonar. Prestur Sigríður Gunn-
arsdóttir.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson
predikar, félagar úr Kór Seljakirkju
leiða söng. Organisti: Douglas A.
Brotchie.
SELTJARNARNESKIRKJA | Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór
Bjarnason þjónar. Organisti er Kári All-
ansson. Félagar úr Kammerkór Sel-
tjarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar
og samfélag eftir athöfn í safnaðar-
heimilinu.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Hátíðar-
messa kl. 11. Ferming. Kór Seyðis-
fjarðarkirkju leiðir almennan safn-
aðarsöng. Organisti er Rusa
Petriashvili. Prestur er Sigríður Rún
Tryggvadóttir og meðhjálpari Jóhann
Grétar Einarsson.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Hátíðar-
og fermingarmessa kl. 14. Egill Hall-
grímsson sóknarprestur annast
prestsþjónustuna. Organisti er Jón
Bjarnason. Félagar úr Skálholts-
kórnum og Söngkór Miðdalskirkju
syngja. Sungnir verða hátíðasöngvar
sr. Bjarna Þorsteinssonar.
STRANDARKIRKJA | Messa annan
hvítasunnudag kl. 14. Kór Þorláks-
kirkju. Ester Ólafsdóttir. Prestur og
djákni þjóna fyrir altari.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Hvítasunnu-
messa kl. 14. Almennur söngur við
gítarundirleik.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Hátíðarhelgistund kl. 20.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Hátíðar-
guðsþjónusta klukkan 11. Sr. Baldur
Rafn Sigurðsson þjónar og kirkjukór-
inn leiðir söng undir stjórn Stefáns H.
Kristinssonar organista.
ÞINGVALLAKIRKJA | Hátíðarmessa
klukkan 14. Skírn og ferming. Kristján
Valur Ingólfsson predikar og þjónar fyr-
ir altari. Organisti Guðmundur Vil-
hjálmsson.
ÞORLÁKSKIRKJA | Fermingar-
messa kl. 13.30. Átta börn fermd. Kór
Þorlákskirkju, Ester Ólafsdóttir.
Prestur og djákni þjóna fyrir altari.
Orð dagsins: Hver
sem elskar mig.
(Jóh. 14)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Tálknafjarðarkirkja
✝ Guðjón Ant-onsson fæddist
2. nóvember 1944
á Skeggjastöðum í
Rangárvallasýslu.
Hann varð bráð-
kvaddur 29. maí
2019.
Foreldrar Guð-
jóns voru Anton
Kristinn Einars-
son, f. 22. septem-
ber 1907, d. 12.
mars 1986, og Vigdís Sigurðar-
dóttir, f. 11. júlí 1910, d. 16.
júlí 1998. Eftirlifandi eigin-
kona er Svanborg E. Óskars-
dóttir, f. 9. apríl
1956. Börn hans
eru Ólöf Mjöll
Guðjónsdóttir, f.
28. október 1985,
Halldór Kristinn
Guðjónsson, f. 26.
febrúar 1987, Ant-
on Vignir Guð-
jónsson, f. 12. júlí
1992 og Nína Guð-
rún Guðjónsdóttir,
f. 20. maí 1994.
Útför Guðjóns fer fram frá
Akureyjarkirkju, Vestur-
Landeyjum, í dag, 8. júní 2019,
klukkan 14.
Elsku pabbi minn. Ég trúi því
varla að þú sért farinn. Síðustu
daga er ég búin að bíða og vona
að einhver segi mér að þetta sé
allt bara grín eða að ég hrökkvi
upp af vondum draumi. Þetta er
svo óraunverulegt. Þú varst hins
vegar búinn að spila með líf þitt
og heilsu í mörg ár nauðugur vilj-
ugur. Við fjölskyldan höfðum því
lengi átt von á að einn daginn
myndi þetta taka endi og þá frek-
ar fyrr en seinna. Það er hins
vegar eitt að tala um yfirvofandi
dauða en annað að standa and-
spænis honum. Þegar kom að
þessum degi kom þetta aftan að
okkur öllum. Andlát þitt var of
skyndilegt og það er sárt að hafa
ekki haft tækifæri til að kveðja.
Það var eins og þú værir eilífur
því þú stóðst alltaf aftur upp og
náðir þér á strik. Það er í raun
lyginni líkast að þú skyldir ná
tæplega 75 ára aldri og vera við
svona góða heilsu miðað við aldur
og fyrri störf. Þú varst eins og
köttur með níu líf en allt í einu
voru þín níu líf uppurin.
Það er erfitt að finna orð sem
lýsa þér nógu vel því þú varst svo
margslunginn maður. Þú varst
ekki maður margra orða en þú
hafðir góða nærveru. Það var
gott að vera í kringum þig og
jafnvel bara sitja saman í þögn-
inni og bara vera. Mér fannst allt-
af kærleikur, hlýja og góðvild
stafa frá þér. Þú varst dugnaðar-
forkur og ég efast um að ég muni
nokkurn tímann komast með
tærnar þar sem þú varst með
hælana. Þú hafðir líka einstak-
lega skemmtilegan, launfyndinn
húmor. Þú verður samt seint kall-
aður brandarakarl en þú sagðir
skemmtilega frá og ekkert var
skemmtilegra og yljaði manni
meira um hjartað en þegar þú
skellihlóst. Hláturinn þinn var
svo einlægur. Þegar ég rifja upp
samverustundir okkar síðastliðin
ár stendur ýmislegt upp úr. Ég
mun sakna þess að fá þig í kaffi til
mín í Árbæinn, að rúnta með þér
um allt höfuðborgarsvæðið að út-
rétta, fá mér kaffibolla með þér
snemma á morgnana á Hvolsvelli
og spjalla um daginn og veginn á
meðan mamma og Anton sofa
lengur og síðast en ekki síst að fá
vöfflur hjá þér.
En elsku pabbi minn, nú er
komið að kveðjustund. Mér finnst
ég afskaplega heppin að hafa
fengið að eiga þig að í 25 ár og er
stolt af því að vera dóttir þín. Þú
hefur kennt mér ótalmargt, en
umfram allt umburðarlyndi,
þolinmæði og seiglu og ég mun
taka það með mér út í lífið. Ég
vona heitt og innilega að nú hafir
þú fengið frið. Baráttu þinni er
lokið og í mínum augum stendur
þú uppi sem sigurvegari. Þú
gerðir þitt besta og það er það
eina sem skiptir máli.
Ég veit að Dísa amma og Ant-
on afi munu taka vel á móti þér í
Sumarlandinu.
Þín,
Nína.
Guðjón Antonsson
Fallinn er frá
góður félagi okkar
í Kiwanisklúbbnum
Eldey.
Reynir Carl
gekk í klúbbinn í september
2011. Hann reyndist vera mjög
ötull og samviskusamur félagi.
Hann var m.a. formaður fjáröfl-
unarnefndar í tvö ár. Það starf
getur verið ansi fórnfúst og er-
ilsamt, m.a. að sjá um pökkun
og sölu á jólasælgæti, skötu-
veislu á Þorláksmessu, þorra-
Reynir Carl
Þorleifsson
✝ Reynir CarlÞorleifsson
fæddist 25. septem-
ber 1952. Hann lést
25. apríl 2019.
Útför Reynis fór
fram 7. maí 2019.
blót og sölu konu-
dagsblóma. Þessu
sinnti Reynir Carl
með miklum dugn-
aði og sóma. Reyn-
ir starfaði m.a.
einnig í stjórn
klúbbsins, hús-
stjórn og golf-
nefnd. Við ýmsa at-
burði kom hann oft
með góðgæti úr
bakaríinu sem
hann rak. Það féll í mjög góðan
jarðveg hjá félögunum. Eld-
eyjarfélagar sakna sárt drengs
góðs og trausts félaga.
Við vottum Jennýju Þóru og
fjölskyldu innilega samúð.
Fyrir hönd félaga í Kiwanis-
klúbbnum Eldey í Kópavogi,
Steingrímur Hauksson.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein.
Minningargreinar
Davíð
útfararstjóri
551 3485 - www.udo.is
Óli Pétur
útfararstjóri
FALLEGIR LEGSTEINAR
Verið velkomin
Á góðu verði
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Opið: 10-17 alla virka daga