Morgunblaðið - 08.06.2019, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019
✝ Erla Jóhanns-dóttir fæddist í
Goðdal á Strönd-
um 29. janúar
1937. Hún lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Dyngju 22.
maí 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Jóhann
Kristmundsson,
bóndi í Goðdal, f.
23. júlí 1906, d. 28.
febrúar 1953, og Svanborg Ingi-
mundardóttir frá Svanshóli, f.
19. júlí 1913, d. 12. desember
1948. Systkini Erlu; Bergþór, f.
11. desember 1933, d. 10. desem-
ber 2006, Haukur, f. 25. janúar
1935, Svanhildur, f. 25. desem-
ber 1940, d. 17. desember 1948,
og Ásdís, f. 19. ágúst 1946, d. 15.
desember 1948.
Guðný Finnbogadóttir hús-
freyja, f. 4.1. 1894, d. 23.7. 1987.
Systur Boga: Svanhvít, f. 9.12.
1929, og Hrefna, f. 18.7. 1931, d.
4.12. 2015.
Bogi og Erla bjuggu til ársins
1959 í Reykjavík, en þá fluttu þá
á Djúpavog, þar sem þau bjuggu
til ársins 2000, þegar þau fluttu
á Egilsstaði.
Börn Boga og Erlu: 1) Svan-
dís Guðný, f. 3.8. 1954. Maki;
Reynir Arnarson. 2) Ragnar Jó-
hann, f. 21.10. 1957, maki; Svava
Skúladóttir. 3) Ágúst, f. 3.8.
1959, maki; Bríet Birgisdóttir.
4) Ómar, f. 30.6. 1960 maki; Mar-
grét Urður Snorradóttir, 5) Gísli
Borgþór, f. 5.9. 1961, 6) Gunn-
laugur, f. 27.10. 1962, maki Kol-
brún Eiríksdóttir. 7) Hafdís
Erla, f. 24.3. 1965.
Bogi og Erla eiga 23 barna-
börn og 23 barnabarnabörn.
Útför Erlu fer fram frá
Djúpavogskirkju í dag, 8. júní
2019, klukkan 13.
Erla ólst upp í
Goðdal. Hún var í
farskóla í Asparvík
þegar snjóflóð féll á
bæinn 12. desember
1948, en bræður
hennar Bergþór og
Haukur voru við
nám í Reykjaskóla í
Hrútafirði. Í flóðinu
lést móðir hennar
og tvær systur en
faðir hennar komst
lífs af. Alls fórust þar sex
manns.
Erla giftist 27.6. 1954 Boga
Ragnarssyni pípulagninga-
meistara, sem lést 8. ágúst 2018.
Bogi fæddist 22. desember 1933
í Hlíð á Djúpavogi, þar sem
hann ólst upp. Foreldrar hans
voru Ragnar Eyjólfsson sjómað-
ur, f. 22.8. 1891, d. 30.1. 1965 og
Elsku mamma.
Nú komið er að kveðjustund
og það er okkur huggun að vita
til þess að nú eruð þið pabbi
sameinuð á ný.
Okkur hlýnar í hjartanu að
leiða hugann að því hversu blíð
og góð ár þið áttuð saman eftir
að vera búin að koma upp stóra
barnahópnum ykkar og umvefja
stórfjölskylduna gleði, hlýju og
ást í gegnum lífið.
Þig sem í fjarlægð fjöllin bak við
dvelur
og fagrar vonir tengdir líf mitt við.
Minn hugur þráir, hjartað ákaft
saknar
er horfnum stundum ljúfum dvel ég
hjá.
(Karl O. Runólfsson)
Textabrotið hér fyrir ofan er
úr ljóðinu Í fjarlægð og er bæði
táknrænt og fallegt. Ljóð sem
þið pabbi völduð að spilað yrði í
viðtali þínu í þættinum Milli
mjalta og messu. Einlægt viðtal
ykkar Önnu Kristine Magnús-
dóttur opnaði hjörtu okkar fyrir
því mikla hjartasári og harmi
sem þú barst í svo mörg ár í
hljóði. Það varð auðveldara fyr-
ir okkur börnin þín að skilja eft-
ir viðtalið þá skilyrðislausu um-
hyggju sem þú barst fyrir
okkur alla tíð. Móðurástin var
ómælanlega mikil og að reyna
að útskýra umhyggjuna og bar-
áttugleðina þegar komið var að
því að gæta okkar og leiðbeina
út í lífið er jafn erfitt og að telja
stjörnurnar á himninum um
bjarta vetrarnótt. Stjörnur him-
insins eru óteljandi margar,
bjartar og fagrar alveg eins og
minningar okkar um þig elsku
hjartans mamma okkar.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Börnin þín sjö.
Svandís Guðný, Ragnar
Jóhann, Ágúst, Ómar, Gísli
Borgþór, Gunnlaugur og
Hafdís Erla.
Í dag kveð ég elskulega
tengdamóður mína, Erlu Jó-
hannsóttur. Tvö orð koma upp í
huga mér þegar ég hugsa til
hennar. Það fyrra er þakklæti.
Þakklæti fyrir samferðina í líf-
inu, þakklæti fyrir að veita
börnunum mínum alla þá ást og
umhyggju sem hægt var að
biðja um. Hjá Erlu áttu börnin
athvarf, þar fundu þau öryggi,
fengu knús og spjall, bestu
pönnukökurnar og kakóið og
ekki spillti fyrir ef afi Bogi tók
fram harmonikkuna og þá var
sungið og dansað. Hitt orðið er
endurfundir.
Þegar sorgin knýr dyra er
gott að geta leitað huggunar og
þetta orð, endurfundir, veitir
mér huggun.
Ég sé það fyrir mér að þegar
Erla kvaddi þennan heim hafi
tekið á móti henni falleg mót-
tökunefnd í blómabrekkunni
hinum megin. Fremstur stend-
ur elsku Bogi með Tíbrána okk-
ar skokkandi í kringum sig og
þá mamma Erlu og litlu systur
hennar tvær sem hún missti
ung og saknaði svo sárt.
Þakka þér kærleikann, hjartalag hlýtt,
af gæsku þú gafst yl og hlýju.
Í heimi guðsenglanna hafðu það blítt,
uns hittumst aftur að nýju.
(höfundur ókunnur)
Elsku Erla, takk fyrir allt og
allt.
Þín tengdadóttir,
Margrét Urður.
Elsku amma mín,
Úlfarsárdalurinn er þakinn
lúpínum og þær hafa alltaf
minnt mig svo á Borgarlandið
og þig. Strákarnir tíndu lúpínur
í vasa sem við erum með inni í
stofu og hvítu sumarblómin sem
við völdum okkur á svalirnar
heita tóbakshorn, afi er örugg-
lega hæstánægður með þau.
Faðmlagið þitt er það fyrsta
sem kemur upp í hugann þegar
ég hugsa um þig. Faðmlagið
þitt var alveg sérstakt. Og þeg-
ar ég faðma mitt fólk, þá faðma
ég eins og þú – aðeins lengur og
aðeins þéttara.
Ég minnist þess þegar við
hittumst í síðasta skiptið. Þú
sagðir mér hvað þér fyndist
gaman að fylgjast með hvað ég
væri góð við strákana mína, að
ég gæfi mér tíma fyrir þá og
hvað ég væri góð mamma. Þetta
hafði enginn sagt við mig áður
og mér þótti svo vænt um það.
Betra hrós er vart hægt að fá.
Við töluðum um fleira sem ég
mun aldrei gleyma. Við höfðum
ekki talað svona saman áður, en
þetta spjall sem við áttum hafði
mikil áhrif á mig og mun ég lifa
með því alla tíð.
Það eina sem ég óska er að
þér líði vel. Mér hlýnar svo mik-
ið í hjartanu við tilhugsunina
um að þú fáir loksins mömmu-
faðm sem þú þráðir svo lengi.
Að þú fáir að hitta litlu systur
þínar og pabba.
Afi Bogi hefur beðið eftir
Erlu sinni, enda eruð þið eitt og
eigið að vera saman í öllum líf-
um. Og mikið ofboðslega hlýnar
mér við að stóri bróðir fái loks-
ins ömmu Erlu faðm.
Takk fyrir allt, elsku amma
mín. Mikið á ég eftir að sakna
ykkar. Þvílík forréttindi að fá að
vera lítil stelpa á Djúpavogi og
búa í næsta húsi við ömmu og
afa sem sýndu öllum svo mikla
ást og hlýhug. Ég mun minnast
ykkar og segja fjölskyldunni
minni frá ömmu Erlu og afa
Boga á Djúpavogi alla mína tíð.
Ó hve létt er þitt skóhljóð
og hve lengi ég beið þín,
það er vorhret á glugga,
napur vindur sem hvín,
en ég veit eina stjörnu
eina stjörnu sem skín,
og nú loks ertu komin,
þú ert komin til mín.
(Halldór Laxness)
Þín,
Helga Eir Gunnlaugsdóttir.
Elsku amma mín
Það sem mér finnst erfitt að
þú sért farin. Ég get bara ekki
hætt að gráta, ég er eiginlega
bara dofin og brotin, finn svo
fyrir miklum tómleika.Ég talaði
við þig oft í viku og núna bara
get ég ekki hringt í þig lengur.
Ég var svo mikil ömmustelpa,
elskaði að heyra í þér og tala við
þig og alltaf fékk ég þig til að
skellihlæja í símann, það fannst
mér svo gaman.
En ég bjó á Djúpavogi þang-
að til ég var 7 ára og það er
ótrúlegt að segja frá því en þá
bara hreinlega man ég ekki eft-
ir að hafa sofið heima hjá mér,
var bara alltaf hjá ykkur afa,
ásamt Frey. Ég spurði þig ein-
mitt um daginn hvort að við
hefðum aldri verið óþekk, ó nei
sagðir þú, alltaf svo stillt og
prúð! Einmitt amma, þú hlýtur
að hafa verið að plata.
Ein minning kemur svo
sterklega upp í hugann, þegar
ég fór 10 ára gömul með þér og
afa keyrandi til Reykjavíkur frá
Djúpavogi. Það var stoppað í
hverri einustu sjoppu til að
kaupa litla dós af kóki og
súkkulaði. Þú varst með svo
miklar áhyggjur að ég væri
svöng og auðvitað sagðist ég
alltaf vera svöng. Þessi bílferð
man ég að tók 10 klukkutíma!
Sunnudagurinn 19. maí 2019
verður í hjarta mínu að eilífu.
Það sem ég er þakklát fyrir að
hafa komið til þín í dagsferð til
Egilsstaða. Ég get fullyrt að
þetta var erfiðasti dagur sem ég
hef upplifað.
En mikið rosalega áttum við
góðan dag saman. Ég setti göm-
ul og góð lög á fóninn og við lág-
um saman og hlustuðum á þau.
Þegar ég setti lagið okkar á
amma „Erla góða Erla“ og
sagði við þig „amma, þú veist
hvað ég elska þig mikið og hvað
ég er mikil ömmustelpa“ þá
kreistirðu á mér höndina og ég
fann væntumþykjuna frá þér
skína í gegn.
Elsku amma mín, mér finnst
þetta svo erfitt. Pabbi sagði við
mig um daginn, vitandi hvað ég
væri aum, að ég yrði að sleppa
takinu og hleypa þér til afa og
fjölskyldu þinnar. Mér finnst
það bara svo erfitt, sakna þín
svo rosalega mikið. En ég veit
að þú kemur í draumum mínum
núna, búin að dreyma þig tvisv-
ar eftir að þú fórst í sumar-
landið og það finnst mér svo
gott. Í öðrum draumnum þá var
ég heima hjá þér og var í vest-
inu sem að þú prjónaðir á mig
og ég er búin að ákveða að vera
í því þegar ég kveð þig í hinsta
sinn, elsku amma mín.
Elsku amma mín, nú eruð þið
afi sameinuð á ný og það veitir
mér yl.
Erla, góða Erla,
ég á að vagga þér.
Svíf þú inn í svefninn
í söng frá vörum mér.
Kvæðið mitt er kveldljóð,
því kveldsett löngu er.
(Stefán frá Hvítadal)
Elska þig að eilífu.
Þín ömmustelpa
Erla.
Það er aðeins ein amma Erla
og hún er besta fyrirmynd sem
hægt er að hugsa sér. Stórkost-
leg í öllu sem hún gerir, svo
yndislega hjartahlý og einlæg,
lífsglöð, sterk, æðrulaus og svo
sannarlega með bein í nefinu.
Þú hefur miðlað til okkar
dásamlegum viskumolum, kennt
okkur hógværð, þolinmæði og
nægjusemi ásamt svo mörgu
öðru.
Tilhugsunin um að fá ekki
rembingsknús og koss frá þér
nístir svo djúpt. Að heyra yndis-
lega hláturinn þinn, finna fyrir
hamingju þinni, ást og stolti.
Gleyma sér í samræðum með
þér um allt milli himins og
jarðar. Þetta voru dýrmætir
tímar.
Með harm í hjarta kveðjum
við þig og þökkum fyrir allar
okkar dásamlegu stundir
saman. Við elskum þig.
Þig sem í fjarlægð fjöllin bak við
dvelur
og fagrar vonir tengir líf mitt við.
Minn hugur þráir, hjartað ákaft
saknar
er horfnum stundum, ljúfum, dvel ég
hjá.
Heyrirðu ei, þig hjartað kallar á?
Heyrirðu ei storm, er kveðju mína
ber?
Þú fagra minning eftir skildir eina,
sem aldrei gleymist, meðan lífs ég er.
(Valdimar Hólm Hallstað)
Þar til við hittumst á ný,
elsku amma okkar.
Heiðdís, Andrea og Birta.
Elsku besta amma Erla.
Mikið er það sárt að þú sért far-
in en ég veit að þú ert á fal-
legum stað núna og að það var
vel tekið á móti þér.
Síðustu daga og vikur hafa
minningarnar streymt til mín
og þær eru svo margar og svo
frábærlega skemmtilegar. Þú
varst einstök amma og það eru
mín allra mestu forréttindi að
hafa alist upp með þig og afa
Boga í næsta húsi. Þið brölluðuð
endalaust með okkur krökkun-
um, í skautaferðir, berjamó, á
rúntinn í húsbílnum, við tókum
upp með þér kartöflur og ekki
má gleyma öllum harmonikku-
Erla Jóhannsdóttir
Sálm. 10.14
biblian.is
Þú gefur gaum að
mæðu og böli og
tekur það í hönd
þér. Hinn bágstaddi
felur þér málefni
sitt, þér sem hjálpar
munaðarlausum.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐLAUG G. JÓNSDÓTTIR,
áður til heimilis á Sléttuvegi 19,
lést á Hrafnistu í Reykjavík
miðvikudaginn 5. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Kolbrún Finnsdóttir Snorri Ingimarsson
Erna Finnsdóttir
Jón H. Finnsson
Hrönn Finnsdóttir Þráinn Sigurðsson
Frændi okkar,
HELGI GUNNAR ÞORKELSSON
skrifstofumaður,
Barmahlíð 51, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 30. maí á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útför hans fer
fram frá Háteigskirkju föstudaginn 14. júní
klukkan 11.
Sigríður Helga Þorsteinsd., Jón Ingi Guðmundsson,
Þorsteinn Kári, Guðmundur Kristján
og Friðgeir Ingi Jónssynir,
Þorsteinn, Guðrún Ása og Friðgerður Ósk Jóhannsbörn,
Elva Dögg Gunnarsdóttir, Vagn Leví Sigurðsson
og fjölskyldur
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
DÓRA INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
lést á Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki
þriðjudaginn 4. júní. Jarðsett verður frá
Sauðárkrókskirkju fimmtudaginn 13. juní
klukkan 14. Sérstakar þakkir færum við
starfsfólki deildar 5 fyrir frábæra umönnun í gegnum árin.
Hólmfríður Rögnvaldsdóttir Guðmundur Halldórsson
Ólína Rut Rögnvaldsdóttir Stefán Skarphéðinsson
Halla S. Rögnvaldsdóttir Haukur Steingrímsson
Magnús H. Rögnvaldsson Sigríður Valgarðsdóttir
Sigurbjörg Rögnvaldsdóttir Ólafur Jónsson
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GEIRÞRÚÐUR FINNBOGADÓTTIR
HJÖRVAR
sjúkraliði,
lést á Hrafnistu, Reykjavík, 6. júní.
Finnbogi Þormóðsson Sigrún Lára Shanko
Tryggvi Þormóðsson Anna S. Sigurðardóttir
Jóhanna Þormóðsdóttir Karl Ragnarsson
Þormóður Þormóðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri
JAKOB GÍSLI ÞÓRHALLSSON
lést þriðjudaginn 4. júní.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju
fimmtudaginn 13. júní klukkan 13.
Fríða Kristbjörg Hjálmarsdóttir
Ingi Þór Jakobsson Hanna Birna Jóhannesdóttir
Hreinn Jakobsson Aðalheiður Ásgrímsdóttir
Þórhallur Jakobsson Stefanía Bergmann Magnúsd.
barnabörn og langafabörn.