Morgunblaðið - 08.06.2019, Side 34

Morgunblaðið - 08.06.2019, Side 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019 ✝ Kristjana Larsenfæddist 4. september 1946. Hún lést á heimili sínu, Eiðsvallagötu 34 á Akureyri, 18. maí 2019. Foreldrar Krist- jönu voru þau Hólm- fríður Jónsdóttir og Gunnar Larsen og var hún yngst fimm systkina. Elstur er Ólafur, f. 1940, þá Hermann, f. 1941, Svanfríður, f. 1942, og loks Gunnfríður, f. 1945. Kristjana fékk heilahimnu- bólgu sem smábarn, tapaði heyrn um tíma og varð fyrir varanlegri þroskaskerðingu. leysingja. Þar var hennar heim- ili og skóli og naut hún marg- víslegrar þjálfunar í antrópósóf- ískum anda undir handleiðslu Sesselju Sigmundsdóttur. Eftir að Kristjana hafði átt heima á Sólheimum í um 48 ár varð ljóst að yfirmenn heimilisins töldu sig ekki getað þjónað henni lengur og töldu hana eiga heima á sjúkrastofnun. Hún flutti aftur norður til Akureyrar 2009 og fékk félagslega þjónustu hjá Akureyrarbæ, fyrst á sambýli og síðan í eigin íbúð í íbúða- kjarna. Síðustu tíu ár ævinnar var hún því nálægt fjölskyldu sinni, naut góðrar þjónustu starfsmanna bæjarins og fékk læknisþjónustu við hæfi. Þar réð för skilningur á þörfum hennar, virðing og fagmennska. Útför hennar fór fram frá Höfðakapellu 28. maí 2019. Þegar hún var 12 ára lést Hólm- fríður móðir hennar en Gunn- ar hafði látist vorið áður en Kristjana fædd- ist. Um tveggja ára skeið var Kristjana á veg- um frænku sinn- ar, Helgu Stef- ánsdóttur frá Geirastöðum í Mývatnssveit. Hún fermdist frá Akureyrarkirkju með jafn- öldrum og flutti síðan að Sól- heimum í Grímsnesi sem þá þótti besti staðurinn fyrir stönd- ugan, þroskaheftan munaðar- Ég var tæpra fjögurra ára og móðir mín, Hólmfríður Jónsdótt- ir, var lögst á sæng til að fæða sitt fimmta barn. Ég ákvað að yfirgefa staðinn og bróðir minn, Hermann, ári eldri slóst í för með mér og við tókum stefnuna á Ameríku! Mamma var nýlega orðin ekkja, elsta barnið var sex ára og það yngsta, rúmlega ársgöm- ul stúlka, vanheil frá fæðingu. Hraust og falleg stúlka bættist við barnahópinn þennan dag. Fyrir henni lá að veikjast ung af heilahimnubólgu, tapa um skeið heyrn og hljóta varanlegan heilaskaða. Telpuhnokki stendur uppi á stól og leggur annað eyrað að viðarloki plötuspilarans. Þrátt fyrir heyrnarskerðingu nemur telpan, sem þarna hefur verið skírð Kristjana, titringinn frá tónlistinni og heimtar stöðugt meira. Fötlun hennar sér allri fjölskyldunni fyrir sígildri tónlist því þeir Caruso, Gigli og Stefán Íslandi syngja allan daginn! Ást á tónlist og næmt tóneyra átti eftir að fylgja henni alla ævi. Kristjana fékk heyrnina aftur, tileinkaði sér fagurt tungutak móðurinnar og lærði að lesa sér til gagns. Hún varð alvörugefinn og nákvæmur einstaklingur og lærði ljóð og söngtexta að því er virtist fyrirhafnarlaust. Tveimur árum eftir andlát móðurinnar, þá 14 ára, flutti Kristjana að Sólheimum í Gríms- nesi og hlaut þar fjölþætt upp- eldi. Sesselja Sigmundsdóttir (d. 1974) stýrði skólun íbúanna m.a. í tónlist, leiklist og myndlist. Kristjana lærði líka til verka og vann við eldhússtörf, kertagerð og garðrækt á sumrin. Ekkert gat þó bætt henni móðurmissinn og flutninginn að heiman – því fátt er dýrmætara fötluðum einstaklingi en að eiga sterka fjölskyldu og njóta henn- ar. Árið 1970 flutti ég og fjöl- skylda mín til Akureyrar eftir dvöl erlendis. Kristjana kom þá reglulega í heimsókn og fylgdist með systurbörnum sínum vaxa úr grasi. Á Sólheimum skiptust á skin og skúrir og fór það eftir stjórnendum heimilisins og and- legri heilsu Kristjönu. Í tíð Katrínar Guðmundsdótt- ur sótti hún t.d. vinnu á veit- ingastaðnum Þrastarlundi í tvö sumur og söng með kirkjukórn- um í sókninni um tíma. Á Sól- heimum fékk hún einnig tæki- færi til utanlandsferða, m.a. til Noregs, Kanada og Spánar. Hún vandist snemma útivist og göngu, varð liðtæk í sundi og síð- ar í boccia. Tvívegis tók hún þátt í sérstökum mótum fyrir fatlaða erlendis og keppti í sundi. Á tíunda áratug síðustu aldar fór heilsu Kristjönu hrakandi og sótti ég fljótlega um búsetu fyrir hana á Akureyri. Snemma árs 2009 flutti hún loks heim og var það mikið heillaskref fyrir okkur systurnar báðar. Við nutum þess að fara saman á tónleika og í leikhús og að hitt- ast í hverri viku. Hún eignaðist einnig trausta bandamenn í nokkrum starfsmönnum hjá Ak- ureyrarbæ. Kristjana veiktist af illkynja meini sem var endanlega stað- fest í lok mars. Hún stóð sig eins og hetja í viðureigninni við vá- gestinn og þakkaði þeim sem hjálpuðu henni síðasta spölinn með því að ávarpa þá á þann fal- legasta hátt sem hún kunni. Kristjana var trygglynd og vönduð manneskja og hefur kennt mér margt, sérstaklega um eigin ófullkomleika og for- dóma. Samt hef ég ætíð saknað sárt þeirrar heilbrigðu systur, sem ég hefði getað átt, og gleð- innar yfir tækifærum hennar til vaxtar og þroska. Svanfríður Larsen. Hún var hávaxin, sterkleg og bar höfuðið hátt. Orðheppin og talaði vandað mál. Í eyrum ein- hverra hefur það getað hljómað eins og forníslenska. Fyrstu fundum okkar bar saman þegar þú komst í heim- sókn í Birkilundinn sem var ein af einingum Skógarlundar á Ak- ureyri, þar sem fram fer dag- þjónusta fólks með þroskarask- anir. Þú vildir akkúrat ekkert með mig hafa og vildir umfram allt drífa þig heim. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Þú sættist við Birkilundinn og seinna Skógar- lundinn og þá þjónustu sem þar er boðið upp á. Þú varðst líka sátt við mig. Vinkona mín, sagðir þú svo oft, þegar þú leist við á skrifstof- unni hjá mér. Þú hafðir sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og þér líkaði misvel við fólk og fórst ekkert í grafgötur með það. Þú varst hress og vinnusöm en undir það síðasta voru afköst þín ekki mikil og þú komst að- allega til að skipta um umhverfi og breyta til. Hlustaðir á tónlist og spjallaðir við þá sem voru í kring um þig. Þú áttir mörg snjöll tilsvörin og athugasemdirnar. „Útlend- ingurinn er í buffinu.“ Vera kalt í gegnum belg og bein og þú söngst „Ó, mig langar til að lifa lengur til að spila á spil.“ Fyrir tveimur árum rúmum hafðir þú eitt sinn á orði við mig að ég ætti afmæli næsta dag. Þú spurðir hversu gömul ég yrði og þegar ég sagðist verða fimmtíu og þrettán, þá sagðir þú að ég ætti að segja rétt. Og einu sinni hafðir þú orð á því að ég hefði hringt í kolvitlausa jarðarför. Þar sló saman hjá þér umræðu um jarðarför og símtali sem ég hafði nýlokið. Við vorum vinkonur og sögð- um hvor annarri frá væntum- þykju í garð hvor annarrar. Mér þykir gott að ég hafi náð því að kveðja þig. Þú varst örugglega lögð af stað í ferðalag- ið mikla og ekki er víst að þú hafir heyrt það sem ég sagði við þig. Ef eitthvað er til hinum meg- in, þá eigum við eftir að hittast þar. Elsku Svanfríður og fjölskyld- an þín öll, önnur systkini Krist- jönu og fjölskyldur, íbúar og starfsfólk í Eiðsvallagötu, ykkur öllum sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Nú er sál þín rós í rósagarði Guðs kysst af englum döggvuð af bænum þeirra sem þú elskaðir aldrei framar mun þessi rós blikna að hausti (Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir) Elsku Kristjana, nú er lífs- göngu þinni hér í mannheimi lokið og þú komin á annað til- verustig. Í hjarta mínu geymi ég mynd af þér þar sem þú ert frísk og glöð. Og ég mun fara í rétta jarðarför, þegar þú verður kvödd. Hafðu þökk fyrir allt. Margrét Ríkarðsdóttir (Magga). Kristjana Larsen Amma Gógó var einstaklega ljúf og góð kona, stundum aðeins of góð. Eins og t.d. þegar hún leyfði mér að horfa á hryllingsmynd þegar ég var gutti og ég svaf ekki í viku, ég get líklegast sjálf- um mér um kennt! En ófáar eru ljúfu minningarnar af Holtsgöt- unni og ekki síst úr sumar- bústaðnum. Sunnudagsbíó með ömmu og bláum Ópal á Holts- götunni klikkaði seint. Ekki síst þegar við sultuðum rifsberin úr garðinum og bök- uðum pönnukökur á meðan við hlustuðum á útvarpsleikritið á gufunni. Skógar áttu undir högg að sækja þegar ég reyndi að falsa alla meistarana úr Íslenskri myndlist þegar ég fékk að fljóta með ykkur afa í vinnuna í Hafnarborg. Þar lá ég á gólfinu og teiknaði upp eftir málverkunum sem héngu á veggjunum. Ég skil ekki ennþá hvar þið funduð allan Sigurlaug R. Líndal Karlsdóttir ✝ Sigurlaug R.Líndal Karls- dóttir fæddist 26. september 1932. Hún lést 15. maí 2019. Útför Sigur- laugar fór fram 24. maí 2019. þennan pappír sem ég gat krotað á. Það eru margar góðar minningar af Holtsgötunni, en við barnabörnin vorum þar oft í pössun hjá ömmu Gógó. Þar var alltaf mikið fjör og eitt það skemmtilegasta sem ég gerði var að spila svarta Pétur og veiðimann við ömmu. Mér fannst líka einstaklega gaman að horfa á bíómyndir með ömmu, sérstaklega þegar ég var of ung til að lesa textann sjálf, hún talaði nefnilega alltaf upp- hátt og lýsti öllu því sem gerðist í myndunum sem hún horfði á. Amma á mörg barnabörn og barnabarnabörn. Hún vissi alltaf upp á hár hvað var að gerast hjá hverjum og einum í fjölskyld- unni og hafði mikinn áhuga á öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur. Síðustu ár hefur hún eytt með okkur aðfangadagskvöldi og það- an eigum við margar dýrmætar minningar. Við kveðjum þig amma með söknuði og þakklæti fyrir allar þær ótal minningar sem við eig- um saman. Gísli Már, Margrét Thelma og Einar Atli. Hver er vilji þinn varðandi skipulag og fyrirkomulag útfarar, þ.e. hinsti vilji. Við bjóðum þér til samtals um það sem er þér mikilvægast við lífslok þín. Viljayfirlýsing þín verður eftirlifendum mikilvægt leiðarljós. Samtalið og varðveisla upplýsinga er þér að kostnaðarlausu. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Elín Sigrún Jónsdóttir, lögfræðingur Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Klettaskóli, Suðurhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Okkar innilegustu þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, INGU JÓHANNSDÓTTUR, Borgarbraut 65a, Borgarnesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Brákarhlíðar fyrir hlýhug og góða umönnun. Auðunn Bjarni Ólafsson Sigurjóna Högnadóttir Bryndís Ólafsdóttir Jón Bergmann Jónsson Kristmar Ólafsson Íris Hlíðkvist Bjarnadóttir Magnús Þ. Ólafsson Ólafur Ingi Ólafsson Björk Guðbjörnsdóttir Þröstur Þór Ólafsson Eydís Líndal Finnbogadóttir ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát ástkærs föður, tengdaföður, afa og langafa, BALDURS ÁGÚSTSSONAR Strikinu 12, Garðabæ, sem lést 1. maí. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Landspítalans fyrir einstaka umönnun og hlýju. Halla Elín Baldursdóttir Helga Guðbjörg Baldursd. Gísli Baldur Garðarsson Ágúst Baldursson Sigurlín Baldursdóttir Guðjón Ómar Davíðsson barnabörn og langafabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, BRAGA HLÍÐBERG, harmonikuleikara og fyrrverandi deildarstjóra. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar og hjartadeildar Landspítalans við Hringbraut. Ingrid Hlíðberg Ellert Þór Hlíðberg Anna María Gestsdóttir Jón Baldur Hlíðberg Ásta Vilborg Njálsdóttir Kristín Hlíðberg Ástvaldur Anton Erlingsson Hrafnhildur Hlíðberg Magnús J. Kristjánsson barnabörn og barnabarnabörn Við vinirnir kveðjum góðan vin. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Þín vinartryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást Ottó Einarsson ✝ Ottó Einarssonfæddist 10. jan- úar 1973. Hann lést 25. apríl 2019. Ottó var jarð- sunginn 8. maí 2019. þú hafðir fram að bjóða. Og hjá þér oft var heilla- stund, við hryggð varst aldrei kenndur. Þú komst með gleðigull í mund og gafst á báðar hendur. Svo, vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín gæta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ók.) Ólafur H. Wendel, Ingólfur E. Skarphéðinsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.