Morgunblaðið - 08.06.2019, Page 38
38 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019
Pepsi Max-deild kvenna
HK/Víkingur – ÍBV...................................1:3
Valur – Fylkir ........................................... 6:0
Staðan:
Valur 6 6 0 0 23:3 18
Breiðablik 6 6 0 0 18:4 18
Þór/KA 6 4 0 2 11:11 12
ÍBV 6 3 0 3 12:8 9
Stjarnan 6 3 0 3 5:8 9
Selfoss 6 2 0 4 6:12 6
HK/Víkingur 6 2 0 4 4:10 6
Fylkir 6 2 0 4 6:15 6
Keflavík 6 1 0 5 8:12 3
KR 6 1 0 5 5:15 3
Inkasso-deild kvenna
Tindastóll – Fjölnir .................................. 6:2
Staðan:
Þróttur R. 4 4 0 0 19:3 12
ÍA 4 2 2 0 7:2 8
FH 4 2 1 1 10:7 7
Grindavík 4 2 1 1 5:5 7
Haukar 4 2 0 2 5:3 6
Tindastóll 4 2 0 2 13:12 6
Augnablik 4 2 0 2 5:5 6
Afturelding 4 1 1 2 6:7 4
Fjölnir 4 0 1 3 3:11 1
ÍR 4 0 0 4 2:20 0
Inkasso-deild karla
Haukar – Þór ............................................ 0:3
Þróttur R. – Leiknir R ............................. 3:0
Grótta – Fjölnir ........................................ 0:0
Afturelding – Magni................................. 4:1
Staðan:
Fjölnir 6 4 1 1 12:6 13
Þór 6 4 0 2 12:6 12
Fram 6 3 2 1 10:7 11
Keflavík 5 3 1 1 11:4 10
Víkingur Ó. 5 3 1 1 6:3 10
Leiknir R. 6 3 0 3 11:10 9
Grótta 6 2 2 2 9:10 8
Þróttur R. 6 2 1 3 12:11 7
Njarðvík 6 2 1 3 5:7 7
Afturelding 6 2 0 4 9:16 6
Haukar 6 0 3 3 5:11 3
Magni 6 0 2 4 6:17 2
2. deild karla
Kári – Víðir ............................................... 0:4
Staðan:
Víðir 6 4 1 1 15:9 13
Selfoss 5 3 1 1 12:4 10
Völsungur 6 3 1 2 8:9 10
Leiknir F. 5 2 3 0 10:5 9
Fjarðabyggð 5 3 0 2 9:6 9
KFG 5 3 0 2 9:8 9
Dalvík/Reynir 6 1 4 1 7:7 7
Vestri 5 2 0 3 7:9 6
ÍR 5 1 2 2 5:7 5
Þróttur V. 5 1 2 2 5:7 5
Kári 6 1 2 3 8:13 5
Tindastóll 5 0 0 5 3:14 0
Undankeppni EM karla 2020
A-RIÐILL:
Tékkland – Búlgaría ................................ 2:1
Svartfjallaland – Kósóvó.......................... 1:1
Staðan:
England 2 2 0 0 10:1 6
Tékkland 2 1 0 1 2:6 3
Kósóvó 2 0 2 0 2:2 2
Búlgaría 3 0 2 1 3:4 2
Svartfjallaland 3 0 2 1 3:7 2
B-RIÐILL:
Litháen – Lúxemborg.............................. 1:1
Úkraína – Serbía ...................................... 5:0
Staðan:
Úkraína 3 2 1 0 7:1 7
Lúxemborg 3 1 1 1 4:4 4
Portúgal 2 0 2 0 1:1 2
Litháen 2 0 1 1 2:3 1
Serbía 2 0 1 1 1:6 1
D-RIÐILL:
Georgía – Gíbraltar .................................. 3:0
Danmörk – Írland..................................... 1:1
Staðan:
Írland 3 2 1 0 3:1 7
Sviss 2 1 1 0 5:3 4
Georgía 3 1 0 2 3:3 3
Danmörk 2 0 2 0 4:4 2
Gíbraltar 2 0 0 2 0:4 0
F-RIÐILL:
Færeyjar – Spánn .................................... 1:4
Noregur – Rúmenía ................................. 2:2
Svíþjóð – Malta ......................................... 3:0
Staðan:
Spánn 3 3 0 0 8:2 9
Svíþjóð 3 2 1 0 8:4 7
Rúmenía 3 1 1 1 7:5 4
Malta 3 1 0 2 2:6 3
Noregur 3 0 2 1 6:7 2
Færeyjar 3 0 0 3 3:10 0
G-RIÐILL:
Austurríki – Slóvenía ...............................1:0
Norður-Makedónía – Pólland ................. 0:1
Lettland – Ísrael....................................... 0:3
Staðan:
Pólland 3 3 0 0 4:0 9
Ísrael 3 2 1 0 8:3 7
N-Makedónía 3 1 1 1 4:3 4
Austurríki 3 1 0 2 3:5 3
Slóvenía 3 0 2 1 2:3 2
Lettland 3 0 0 3 1:8 0
HM kvenna í Frakklandi
A-RIÐILL:
Frakkland – Suður-Kórea ...................... 4:0
Eugénie Le Sommer 9., Wendie Renard
35., 45., Amandine Henry 85.
Vináttuleikur U21 karla
Danmörk – Ísland.................................... 1:2
Stefán Teitur Þórðarson 20., Erlingur Agn-
arsson 90.
KNATTSPYRNA
HLÍÐARENDI/KÓRINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
Bjarni Helgason
Valur endurheimti toppsæti Pepsi
Max-deildar kvenna í fótbolta með
6:0-stórsigri á Fylki á heimavelli í
gærkvöldi. Valur er með fullt hús
stiga og markatöluna 23:3.
Landsliðsframherjinn Elín
Metta Jensen fór á kostum og
skoraði fjögur mörk og lagði upp
tvö í viðbót. Elín skoraði þrennu í
síðasta deildarleik og er því komin
með sjö mörk í síðustu tveimur
leikjum. Sjálfstraustið geislar af
Elínu og kláraði hún færin sín afar
sannfærandi. Hún virðist trúa því
að hún skori í hvert skipti sem hún
fær boltann nálægt teignum. Hún
var ekki ein síns liðs því Valsliðið
spilaði heilt yfir mjög vel. Elín
Metta og Margrét Lára Viðars-
dóttir ná mjög vel saman í framlín-
unni og er gaman að sjá Margréti
vera að nálgast sitt besta form eft-
ir meiðsli og barnsburð. Ásgerður
Stefanía Baldursdóttir og Dóra
María Lárusdóttir voru sterkar á
miðjunni og Hlín Eiríksdóttir og
Fanndís Friðriksdóttir hættulegar
á köntunum. Vörnin réð svo auð-
veldlega við allt sem Fylkir reyndi.
Valur spilaði vel, en Fylkiskonur
buðu hættunni heim. Varnarlína
liðsins var nánast á miðlínunni
stóran hluta fyrri hálfleiks og áttu
Valskonur ekki í neinum erf-
iðleikum með að komast á bak við
hana. Línan bakkaði í seinni hálf-
leik, en þá voru Valskonur með öll
völd og léku þær sér að því að
bæta við mörkum. Valur er búinn
að skora 21 mark í síðustu fjórum
leikjum og verður erfitt að sjá
nokkurt lið stoppa Val á þessari
siglingu.
Fylkiskonur eru komnar aftur
niður á jörðina eftir sigurinn góða
á Breiðabliki í bikarnum og kemur
landsliðshlé á fínum tíma. Fylkir
getur nú stillt saman strengi.
Lacasse reið baggamuninn
Cloé Lacasse gerði útslagið þeg-
ar lið hennar ÍBV vann 3:1-sigur
gegn HK/Víkingi í 6. umferð úr-
valsdeildar kvenna í knattspyrnu,
Pepsi Max-deildinni, í Kórnum í
Kópavogi í gær.
Cloé kom ÍBV yfir á 23. mínútu
með laglegu einstaklingsframtaki
en Guðrún Gyða Haralz jafnaði
metin fyrir HK/Víking, tveimur
mínútum síðar. Kristín Erna Sig-
urlásdóttir kom ÍBV yfir á 31. mín-
útu eftir vandræðagang í vörn HK/
Víkings og það var svo Cloé La-
casse sem innsiglaði sigur ÍBV
með marki úr vítaspyrnu á 69.
mínútu sem hún hafði fiskað sjálf
og úrslitin ráðin.
ÍBV komst yfir gegn gangi
leiksins með marki frá Cloé La-
casse. Cloé er alltof góð til þess að
spila í Pepsi Max-deildinni og hún
sannaði það með frammistöðu sinni
í leiknum. ÍBV gat lítið sem ekkert
þangað til Cloé kom þeim yfir en
eftir það kom ákveðin ró og sjálfs-
traust í liðið. Varnarleikur liðsins
var tæpur en sem betur fer fyrir
þær var lítil ógn í sóknarmönnum
HK/Víkings.
HK/Víkingur var sterkari að-
ilinn í fyrri hálfleik en var þrátt
fyrir það undir í hálfleik. Fatma
Kara, miðjumaður liðsins, hangir
alltof mikið á boltanum og er lengi
að skila honum frá sér. Sókn-
arleikur liðsins er hægur og fyr-
irsjáanlegur og liðið hefur aðeins
skorað fjögur mörk í deildinni í
sumar, fæst allra liða, og það kann
ekki góðri lukku að stýra.
Cloé Lacasse er besti leikmaður
deildarinnar og ÍBV mun alltaf
skora með hana innanborðs en
varnarleikur liðsins er hins vegar
stórt áhyggjuefni. Að sama skapi
eru varnarmenn HK/Víkings öfl-
ugir en liðið fer niður um deild í
haust ef Þórhallur Víkingsson,
þjálfari liðsins, finnur ekki einhver
svör í sóknarleiknum.
Elín Metta
og Valskonur
óstöðvandi
Skoraði fjögur og lagði upp tvö
Morgunblaðið/Eggert
Keppni Fanndís Friðriksdóttir, Val, saumar að Huldu Sigurðardóttur úr
Fylki á Origo-vellinum. Fanndís og samherjar unnu stóran sigur
Fljót Þórhildur Þórhallsdóttir, leikmaður HK/Víkings t.h. á fullri ferð með
boltann upp vinstri kantinn og freistar þess að stiga leikmann ÍBV af.
Breiðabliki hefur verið boðið að
leika áfram í úrvalsdeild kvenna í
körfuknattleik á næsta keppnis-
tímabili en liðið féll þaðan í vetur.
Stjarnan tilkynnti í gær að félagið
myndi draga lið sitt úr keppni í efstu
deild og senda það í 1. deild í staðinn.
Ástæðan er sú að flestir sterkustu
leikmenn liðsins hverfa á braut og
ákveðið hefur verið að byggja upp
nýtt lið á yngri iðkendum Stjörn-
unnar. Hannes S. Jónsson, formaður
KKÍ, sagði við mbl.is að Breiðablik
fengi viku umhugsunarfrest en síðan
væri Fjölnir næsta félag í röðinni.
Breiðablik í stað
Stjörnunnar?
Morgunblaðið/Eggert
Breytingar Breiðablik fær kost á að
taka sæti Stjörnunnar.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir deilir
öðru sætinu eftir tvo hringi af
þremur á Viaplay Ladies Finnish
Open golfmótinu í Messilä í Finn-
landi. Guðrún lék fyrsta hringinn á
67 höggum, var þá efst, og annan
hringinn í gær á 74 höggum. Hún
er samtals á þremur höggum undir
pari, tveimur á eftir Ninu Pegovu
frá Rússlandi sem er efst fyrir loka-
hringinn í dag. Berglind Björns-
dóttir er líka komin í gegnum nið-
urskurðinn. Hún lék fyrstu tvo
hringina á 77 og 74 höggum og er í
38.-43. sæti á sjö höggum yfir pari.
Guðrún í topp-
slag í Finnlandi
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Finnland Guðrún Brá Björgvins-
dóttir hefur spilað vel á mótinu.
0:1 Cloé Lacasse 23.
1:1 Guðrún Gyða Haralz 25.
1:2 Kristín Erna Sigurlásdóttir 31.
1:3 Cloé Lacasse 69.
I Gul spjöldMargrét Íris Einarsdóttir og
Cloé Lacasse (ÍBV)
I Rautt spjaldEygló Þorsteinsdóttir (HK/
Víkingi) 75.
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson, 8.
HK/VÍKINGUR – ÍBV 1:3
Áhorfendur: 54.
MM
Cloé Lacasse (ÍBV)
M
Sigríður Lára Garðarsdóttir (ÍBV)
Ragna Sara Magnúsdóttir (ÍBV)
Caroline Van Slambrouck (ÍBV)
Sesselja Líf Valgeirsdóttir (ÍBV)
Clara Sigurðardóttir (ÍBV)
Gígja V. Harðardóttir (HK/Víkingi)
Eygló Þorsteinsdóttir (HK/Vík.)
Guðrún Gyða Haralz (HK/Víkingi)
Karólína Jack (HK/Víkingi
1:0 Hlín Eiríksdóttir 19.
2:0 Margrét Lára Viðarsdóttir 35.
3:0 Elín Metta Jensen 44.
4:0 Elín Metta Jensen 54.
5:0 Elín Metta Jensen 74.
6:0 Elín Metta Jensen 81.
I Gul spjöldHulda Hrund Arnarsdóttir
(Fylki)
Dómari: Gunnar O. Hafliðason, 8.
Áhorfendur: 199.
VALUR – FYLKIR 6:0
MMM
Elín Metta Jensen (Val)
MM
Margrét Lára Viðarsdóttir (Val)
M
Hlín Eiríksdóttir (Val)
Hallbera G. Gísladóttir (Val)
Lillý Rut Hlynsdóttir (Val)
Dóra María Lárusdóttir (Val)
Fanndís Friðriksdóttir (Val)
Thelma L. Hermannsdóttir (Fylki)