Morgunblaðið - 08.06.2019, Page 39

Morgunblaðið - 08.06.2019, Page 39
ÍÞRÓTTIR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019  Handknattleiksmaðurinn Ólafur Ægir Ólafsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Hauka. Ólafur Ægir er 23 ára gamall og leikur í stöðu hægri skyttu. Hann lék með La- kers Stäfa í B-deildinni Sviss á síð- asta keppnistímabili. Ólafur Ægir lék upp yngri flokka Gróttu og lék einnig um skeið með Fram og síðar Val. Hann var í stóru hlutverki í Valsliðinu sem varð Íslands- og bikarmeistari fyrir tveimur árum og komst í undan- úrslit Áskorendakeppni Evrópu á sama tímabili.  Haraldur Franklín Magnús hafnaði í öðru sæti á Thisted Forsikring- golfmótinu sem lauk í Danmörku í gær, eftir að hafa verið með forystu fyrir lokahringinn. Haraldur lék á 70 höggum í gær og lauk keppni á sam- tals níu höggum undir pari, og endaði tveimur höggum á eftir sigurveg- aranum. Guðmundur Ágúst Krist- jánsson varð sjötti á fjórum höggum undir pari en Axel Bóasson lék á 12 höggum yfir pari og endaði í 64. sæti. Mótið var liður í Nordic-Tour at- vinnumótaröðinni.  Kylfingurinn Ólafía Þórunn Krist- insdóttir lék fyrsta hringinn á Shop- rite LPGA Classic mótinu í New Jer- sey í gær á 74 höggum, þremur yfir pari vallarins. Á fyrri níu holunum fékk hún einn skolla og einn tvöfald- an skolla en á seinni níu holunum fékk hún einn fugl og einn skolla. Ólafía Þórunn er í neðri hluta keppenda en alls eru 144 kylf- ingar skráðir til leiks. Leiknir verða þrír hring- ir á mótinu. Keppni heldur áfram í dag. Pornanong Phatlum frá Taílandi lék fyrsta hninginn á 63 höggum, átta undir pari, og er í fyrsta sæti. Eitt ogannað KNATTSPYRNA Undankeppni EM karla: Laugardalsvöllur: Ísland – Albanía ...... L13 2. deild karla: Vogar: Þróttur V. – Fjarðabyggð......... M14 Sauðárkr.: Tindastóll – Leiknir F ........ M16 Olísvöllur: Vestri – ÍR ........................... M17 Jáverkvöllur: Selfoss – KFG ........... M19.15 3. deild karla: Fjölnisv.: Vængir Júpíters – Einherji . M13 Vilhjálmsv.: Höttur/Hug. – Augnablik M14 Sindravellir: Sindri – Skallagrímur ..... M16 KR-völlur: KV – KF .............................. M16 2. deild kvenna: Húsavík: Völsungur – Álftanes ............ M14 GOLF Símamótið á mótaröð GSÍ fer fram á Hlíða- velli í Mosfellsbæ. Tveir hringir eru leiknir í dag, 36 holur, og síðustu 18 holurnar á morgun, sunnudag. UM HELGINA! Frakkland Undanúrslit, þriðji leikur: Nanterre – Lyon-Villeurbanne.......... 56:99  Haukur Helgi Pálsson lék í 23 mínútur með liði Nanterre, skoraði 2 stig og tók 2 fráköst.  Lyon-Villeurbanne vann 3:0 og mætir liði Mónakó í úrslitum. KÖRFUBOLTI Gestgjafar heimsmeistaramóts kvenna í knattspyrnu, Frakkar, fengu fljúgandi viðbragð í upphafs- leik keppninnar í gærkvöldi. Frakk- ar unnu þá afar öruggan sigur á landsliði Suður-Kóreu, 4:0, á Parc des Princes-leikvangi í París. Þrjú markanna voru skoruð í fyrri hálf- leik þar sem um hreina einstefnu var að ræða af hálfu heimakvenna. Lið Suður-Kóreu náði til að mynda ekki einu skoti á mark Frakka í fyrri hálfleik. Eugénie Le Sommer, leikmaður Evrópumeistara Lynon, hóf veislu franska landsliðsins með marki eftir aðeins níu mínútur. Wendie Renard, annar leikmaður frá Lyon, skoraði tvö næstu mörk Frakka með tíu mínútna millibili. Hið fyrra á 35. og það síðara rétt í þann mund sem fyrri hálfleikur var á enda. Amand- ine Henry, enn einn liðsmaður Lyon, kórónaði síðan sigurinn með fjórða markinu á 85. mínútu með frábæru langskoti nokkru utan vítateigs án þess að Kim Min-Jeong, markvörður Suður-Kóreu, fengi rönd við reist. Frakkland og Suður-Kórea eru í A-riðli keppninnar eins og landslið Noregs og Nígeríu sem eigast við síðdegis í dag. Keppni hefst einnig í B-riðli í dag með viðureign Þýska- lands og Kína og síðar í dag eigast við landslið Spánar og Suður-Afríku. Ógnarsterkir Frakkar  Leikmenn Evrópumeistara Lyon sáu um landslið S-Kóreu í upphafsleik HM AFP Kampakátar Amandine Henry t.v. fagnar fjórða markinu gegn Suður-Kóreu ásamt samherjum við hliðarlínuna. Íslenska 21-árs landsliðið í knatt- spyrnu karla lagði 20-ára landslið Dana að velli, 2:1, í vináttulandsleik sem fram fór í Horsens í gær. Danir skoruðu snemma leiks en Stefán Teitur Þórðarson jafnaði metin á 20. mínútu með hörkuskoti af 25 metra færi. Erlingur Agnarsson skoraði sigurmark Íslands með skalla seint í leiknum eftir sendingu frá Hjalta Sigurðssyni en báðir komu þeir inná sem varamenn. Auk Erlings léku Þórir Jóhann Helgason, Kolbeinn Þórðarson og Ágúst Eðvald Hlynsson sinn fyrsta leik í þessum aldursflokki. Sigurmark Erlings í Horsens Morgunblaðið/Hari Sigurmark Erlingur Agnarsson skoraði rétt fyrir leikslok. „Ég hef þungar áhyggjur af Ómari Inga,“ sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik karla, við Morgun- blaðið í gær spurður um landsliðs- manninn Ómar Inga Magnússon. Hann fékk þungt höfuðhögg í síð- ustu viðureign Aalborg og Bjerr- ingbro/Silkeborg í undanúrslitum um danska meistaratitilinn. Hann hefur ekkert leikið með Álaborg- arliðinu síðan. Ósennilegt er að Ómar Ingi leiki með landsliðinu gegn Grikkjum í undankeppni EM í næstu viku. iben@mbl.is Þungar áhyggjur af Ómari Inga Ljósmynd/Robert Spasovski Högg Ómar Ingi Magnússon er nýj- asta fórnarlamb höfuðhögga. Þór Akureyri er nú aðeins stigi á eft- ir toppliði Fjölnis í Inkasso-deild karla í knattspyrnu eftir leiki sjöttu umferðar sem fram fóru í gærkvöld. Þórsarar unnu öruggan sigur á Haukum, 3:0, á Ásvöllum en Fjölnir náði aðeins í eitt stig úr heimsókn sinni til baráttuglaðra leikmanna Gróttu á Seltjarnarnesi. Leikmenn Þróttar slógu öll vopn úr höndum Leiknismanna í rimmu Reykavík- urvíkurliðanna á Eimskipsvellinum í Laugardal. Loktölur, 3:0, en með sigri hefði Leiknir komist upp að hlið Þórsara í öðru sæti. Aftureld- ingarmenn risu upp á afturlappirnar á heimavelli og lögðu leikmenn Magna, 4:1, á Varmárvelli þar sem Mosfellingurinn ungi, Jason Daði Svanþórsson, skoraði tvö af mörk- unum, hið fyrra á annarri mínútu. Frosti Brynjólfsson jafnaði metin á 16. mínútu en Alexander Aron Da- vorsson kom Aftureldingu yfir með marki úr vítaspyrnu þremur mín- útum síðar. Jason Daði skoraði síð- ara mark sitt á 37. mínútu. Hafliði Sigurðarson skoraði þriðja markið á 56. mínútu og þar með settu leik- menn beggja liða punktinn aftan við markaskorun á gervigrasvellinum að Varmá. Spánverjinn Alvaro Montejo kunni vel við sig í veðurblíðunni á Ásvöllum. Hann kom Þórsliðinu yfir strax á 17. mínútu og bætti síðan öðru marki sínu og liðsins við á 66. mínútu áður en honum var skipt af leikvelli 11 mínútum síðar. Jakob Snær Árnason innsiglaði verðskuld- aðan sigur Þórs með þriðja marki liðsins 18 mínútum fyrir leikslok. Nokkur strik setti það í reikning Haukaliðsins að Hafþór Þrastarson varð að víkja leikvelli fyrir fullt og fast þegar hann fékk sitt annað gula spjald á 59. mínútu. Eftir markalausan fyrri hálfleik á Eimskipsvellinum skoraði Rafael Victor tvö mörk með skömmu milli- bili fyrir Þróttara á 73. og 77. mínútu gegn Leiknismönnum úr Breiðholti. Victor hafði komið inn á sem vara- maður á 27. mínútu fyrir Ágúst Leó Björnsson sem fór meiddur af leik- velli. Jasper Van Der Heyden inn- siglaði sigur Þróttar er hann skoraði tíu mínútum fyrir leikslok. Leiknismenn áttu þess kost að komast yfir á 45. mínútu er þeir fengu vítaspyrnu. Þeim varð hins- vegar ekki kápan úr því klæðinu þar sem Sævari Atla Magnússyni brást bogalistin úr spyrnunni. Sem fyrr segir tókst toppliði Fjölnis ekki að kría út sigur í heim- sókn sinni til Gróttumanna á Vi- valdivöllinn á Nesinu þar sem leik- menn voru ekki á skotskónum að þessu sinni. iben@mbl.is Þór er kominn skrefi nær Fjölni  Varamaðurinn Victor á skotskónum Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Barátta Haukamaðurinn Birgir Magnús Birgisson freistar þess að snúa á leikmann Þórs í viðureigninni á Ásvöllum. Þórsarar fóru með stigin norður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.