Morgunblaðið - 08.06.2019, Síða 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019
Það er mér hulin ráðgáta hvers
vegna það er ekki löngu uppselt
á landsleik Íslands og Albaníu í
undankeppni EM í knattspyrnu
sem fram fer á Laugardalsvelli í
dag klukkan 13. Vissulega er leik-
tíminn ekki sá hentugasti en það
útskýrir samt ekki af hverju það
er ekki uppselt á leikinn sem er í
raun hálfgerður úrslitaleikur um
það hvort íslenska liðið ætlar að
blanda sér í alvöru baráttu um
að komast á lokakeppni EM
2020 og þriðja stórmótið í röð.
Sem starfandi blaðamaður
hefur maður fundið fyrir
ákveðnum pirringi hjá stuðnings-
mönnum íslenska liðsins í garð
Knattspyrnusambands Íslands
og þjálfarateymis íslenska liðs-
ins. KSÍ hefur dregið lappirnar í
mörgum stórum málum að und-
anförnu sem er efni í sér pistil út
af fyrir sig. Þjálfateymið hefur
vissulega tekið stórar ákvarðanir
sem má deila um en hvorki KSÍ
né þjálfarar íslenska liðsins eru
að fara að spila leikinn á morg-
un.
Íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu hefur verið samein-
ingartákn þjóðarinnar und-
anfarin ár. 10% þjóðarinnar
skelltu sér til Frakklands á EM
2016 og margir Íslandingar voru
að heimsækja Rússland í fyrsta
sinn á heimsmeistaramótinu
2018. Strákarnir hafa fært Ís-
lendingum ómælda gleði á und-
anförnum sex árum, svo mikla í
raun, að fólk fann ekki neitt til
þess að tuða yfir á samfélags-
miðlum svo dögum skipti þegar
mest lá við.
„Eins og við vitum öll þá ger-
ast óvæntir hlutir þegar við
stöndum saman,“ sagði Aron
Einar Gunnarsson, fyrirliði ís-
lenska liðsins, á blaðamanna-
fundi í gær og þessi orð eiga vel
við. Mætum á völlinn og styðjum
strákana í dag því það á það eng-
inn meira skilið. Áfram Ísland!
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
EM 2020
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Allir leikir eru mikilvægir en sumir
jafnvel mikilvægari en aðrir. Þessi
speki á við um viðureign Íslands og
Albaníu sem hefst klukkan 13 á
Laugardalsvellinum í dag en segja
má að þetta sé gríðarlega mikilvægt
uppgjör um hvort liðið ætli að koma
sér í góða stöðu í baráttunni um sæti
í lokakeppni Evrópumótsins í fót-
bolta sem fram fer á næsta ári og
verður leikið víðsvegar um Evrópu.
Ísland stendur betur að vígi eftir
tvær fyrstu umferðirnar, enda þótt
báðar þjóðirnar séu með þrjú stig
eftir einn sigur og einn ósigur, og
markatala Albana sé betri.
Bæði liðin unnu Andorra á útivelli,
Ísland vann 2:0 og Albanía vann 3:0,
en Ísland tapaði 4:0 fyrir Frakklandi
á útivelli á meðan Albanar töpuðu 2:0
fyrir Tyrkjum á heimavelli.
Ósigur Íslands í París var fyrir-
sjáanlegur, þó 4:0 hafi verið óþarf-
lega stórt tap. Útileikur við Frakka
var fyrirfram sá leikur þar sem síst
var að búast við stigi eða stigum í
þessari undankeppni. Þar tapaðist
ekkert nema hluti af stoltinu.
Albanar biðu hinsvegar vondan
ósigur á heimavelli gegn Tyrkjum.
Fyrirfram var reiknað með að Ís-
lendingar, Tyrkir og Albanar myndu
slást um annað sæti riðilsins og það
var því afar slæmt fyrir albanska lið-
ið að byrja á því að missa af dýr-
mætum heimastigum gegn keppi-
nautunum frá Tyrklandi.
Allt í húfi hjá Albönum
Fyrir Albana er því allt undir í
dag og þeir gáfu tóninn strax eftir
Tyrkjaleikinn með því að reka þjálf-
arann. Eftir fyrsta leik í undan-
keppni!
Um leið er þetta sá leikur sem
getur skipt sköpum fyrir íslenska lið-
ið í keppninni. Með sigri kæmi það
sér í betri stöðu fyrir slaginn við
Tyrkina á þriðjudagskvöldið. Tyrkir
mæta Frökkum á heimavelli í kvöld,
þannig að staðan gæti hæglega orðið
sú að bæði þeir og íslenska liðið
myndu mæta með sex stig í leikinn á
þriðjudag.
Tyrkir unnu Albaníu og Moldóvu í
fyrstu tveimur umferðunum og eru
þegar með sex stig, eins og Frakkar,
svo því sé haldið til haga.
Moldóva og Andorra eru án stiga
og mætast í dag. Moldóva verður
fimmti andstæðingur Íslands á
Laugardalsvellinum í september
þegar fyrri umferðinni lýkur og sú
síðari hefst, en eins og kunnugt er
fer öll undankeppnin fram á þessu
ári og er seinni hlutinn leikinn í sept-
ember, október og nóvember.
Tvö efstu liðin í hverjum riðli fara
á EM, tuttugu lið alls, og í mars 2020
verður síðan umspil um fjögur síð-
ustu sætin, byggt á útkomu liðanna í
Þjóðadeild UEFA. Þriðja sæti í riðli
gefur því ekkert að þessu sinni – þar
mun frammistaðan í Þjóðadeildinni
verða rifjuð upp. Í því samhengi er
rétt að gleyma því ekki að þó Ísland
hafi tapað öllum sínum leikjum gegn
Belgíu og Sviss þá gæti íslenska liðið
staðið vel að vígi þar sem það lék í
A-deild keppninnar og viðbúið er að
flestar þeirra tólf þjóða sem þar
spiluðu komist beint á EM í gegnum
riðlakeppnina. En þær vangaveltur
er betra að geyma til haustsins þeg-
ar skýrari mynd fer að koma á þessa
undankeppni.
Ræður reynslan úrslitum?
Við hverju megum við búast á
Laugardalsvellinum í dag? Þegar tvö
lið sem mega alls ekki við því að tapa
eigast við er hætt við að leikurinn
beri keim af því. Íslenska liðið verð-
ur að mestu leyti skipað leikmönnum
með mikla reynslu af undankeppni
og lokakeppni EM og HM á meðan
albanska liðið hefur tekið talsverðum
breytingum síðan það lék á EM
2016.
Gylfi, Aron Einar, Birkir Bjarna,
Jóhann Berg, Ragnar og Kári verða
væntanlega allir í liðinu og mynda
geysisterkan kjarna með gríðarlega
mikla reynslu á bakinu. Nú er þörf á
því sem aldrei fyrr að þeir nýti hana
eins og best verður á kosið.
Leikurinn sem ræður svo
miklu um framhaldið
Mikið undir hjá Íslandi og Albaníu í EM-slagnum á Laugardalsvellinum í dag
AFP
EM Gylfi Þór Sigurðsson og félagar voru skrefinu á eftir Frökkum í síðasta leik í undankeppninni en í dag mæta
þeir Albönum á Laugardalsvellinum og þar verður heldur betur mikið í húfi fyrir bæði liðin.
EM 2020
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Það var afar bjart yfir Erik Hamrén, þjálfara ís-
lenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, þegar
hann gekk inn á blaðamannafund íslenska liðs-
ins á Laugardalsvelli í gær fyrir leikinn mik-
ilvæga gegn Albaníu í undankeppni EM. Ham-
rén var rólegur og yfirvegaður á fundinum og
virkaði algjörlega pressulaus en gengi liðsins
undir stjórn Svíans hefur ekki verið til þess að
hrópa húrra yfir. Níu leikir, fimm töp, þrjú jafn-
tefli og aðeins einn sigur. Samt sem áður var
engan bilbug að finna á þjálfararnum sem er að
stýra íslenska liðinu inn í mikilvægustu leiki
liðsins frá því hann tók við landsliðinu 8. ágúst
síðastliðinn.
„Ég hef verið í þjálfun í þrjátíu ár og það er
alltaf pressa en ég get ekki sagt að ég finni fyrir
einhverri sérstakri pressu fyrir þennan leik. Ég
er með fiðring í maganum og er meira spenntur
að takast á við þetta verkefni,“ sagði Hamrén
kokhraustur á blaðamannafundinum en það
verður að viðurkennast að það er ákveðin, ut-
anaðkomandi pressa, á landsliðsþjálfaranum
fyrir verkefni dagsins.
Íslendingar eru ekki alveg búnir að kaupa
Svíann sem landsliðsþjálfara enda gengi liðsins
verið undir væntingum það sem af er en allir
leikmenn liðsins eru heilir heilsu og tilbúnir í
leikinn. Vissulega eru stór skörð höggvin í fram-
línu liðsins en þeir Kolbeinn Sigþórsson, Jón
Daði Böðvarsson og Albert Guðmundsson eru
klárir í slaginn en Hamrén vildi lítið gefa upp
um hugsanlegt byrjunarlið sitt á fundinum. All-
ir í hópnum eru sagðir leikfærir.
Það er vissulega áhyggjuefni að margir fasta-
menn í liðinu hafa ekki verið að spila reglulega
með sínum félagsliðum en það má leiða að því
líkur að Hamrén setja traust sitt á reynslu-
mestu leikmenn liðsins sem hafa komið liðinu á
síðustu tvö stórmót undanfarinna ára. Að sama
skapi mæta leikmenn alltaf fullir af orku í verk-
efni með íslenska landsliðinu og Hamrén þarf
svo sannarlega að kafa djúpt til þess að kreista
út töfrana hjá leikmönnum liðsins en það er líka
eitt af hlutverkum þjálfarans, að ná því besta úr
úr hópnum sínum. Liðið virðist eiga mikið inni
eftir vonbrigðaleiki að undanförnu og það er
góðs viti fyrir íslenska stuðningsmenn.
Leikurinn gegn Albaníu er algjör úrslita-
leikur upp á framhaldið að gera í undankeppni
EM og Hamrén er meðvitaður um það. Liðið
þarf á þremur stigum að halda og eftir blaða-
mannafund gærdagsins er undirritaður sann-
færður um að íslenska liðið muni sækja til sig-
urs gegn Albaníu, enda lítið annað í boði.
Sigurhefðin enn við völd
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson
sat einnig fyrir svörum á fundum og var kok-
hraustur að vanda. Hann var með húmorinn í
lagi á fundinum í gær sem er góðs viti en ís-
lenska liðið hefur sótt til sigurs frá því að Lars
Lagarbäck tók við liðinu árið 2012 og sigurhefð
liðsins virðist algjörlega innstimpluð inn í fyr-
irliðann. Aron á von á erfiðum leik, líkt og und-
anfarin ár, þegar Ísland og Albanía hafa mæst
en oftast hefur eitt mark skilið liðin að.
Mikið hefur verið rætt og ritað um það að lið-
ið sé að taka ákveðna niðursveiflu, að leikmenn
liðsins séu komnir á aldur, og það sé ekki sama
hungur í hópnum og verið hefur. Það var ekki
að sjá á landsliðsfyrirliðanum að leikmenn liðs-
ins væru saddir. Stemningin í hópnum er góð,
líkt og hún hefur alltaf verið, og allir leikmenn
liðsins gera sér grein fyrir mikilvægi verkefn-
isins. Leikmenn liðsins setja mikla pressu á
sjálfa sig að gera vel fyrir land og þjóð og liðið
er staðráðið í að spila á þriðja stórmótinu í röð,
frekar en að horfa á það heima í sjónvarpinu.
Liðsheildin hefur verið stærsta vopn íslenska
liðsins á undanförnum árum og þar hefur Aron
Einar farið fremstur í flokki. Aron hefur æft vel
að undanförnu og náð fimm æfingum í röð sem
gerist sjaldan að sögn fyrirliðans. Hann mætir
því til leiks í fantaformi, eitthvað sem landsliðið
hefur sárlega vantað, síðan Erik Hamrén tók
við.
Það voru margir tilbúnir að afskrifa liðið í
undankeppni EM eftir vonbrigðin í Þjóðadeild-
inni síðasta haust en Aron var duglegur að
stappa stálinu í blaðamenn á Laugardalsvelli í
gær, líkt og hann hefur gert við liðsfélaga sína, á
undanförnum árum, en Aron hefur verið fyr-
irliði liðsins síðan í ágúst 2012. „Það er engin
niðursveifla í gangi, við erum allir á besta aldri,“
lét fyrirliðinn hafa eftir sér og það eru orð sem
hlýja manni um hjartarætur. Það virðist ekkert
annað en sigur koma til greina hjá fyrirliða ís-
lenska liðsins sem er að fara að spila sinn 84.
landsleik í dag.
Bjart yfir mönnum á
þjóðarleikvanginum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Brosmildir Erik Hamrén og Aron Einar Gunnarsson voru léttir í lundu á fundinum í gær.