Morgunblaðið - 08.06.2019, Side 42

Morgunblaðið - 08.06.2019, Side 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019 SÉRBLAÐ Grillblað • Grillmatur • Bestu og áhugaverðustu grillin • Áhugaverðir aukahlutirnir • Safaríkustu steikurnar • Áhugaverðasta meðlætið • Svölustu drykkirnir • Ásamt fullt af öðru spennandi efni fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 14. júní PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 11. júní. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Jón Kristinn Jónsson Sími 569 1180, jonkr@mbl.is AF MYNDLIST Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Ég var fyrst um sinn undir amer- ískum áhrifum og málaði einlit verk og gerði klippimyndir. Ég límdi líka auglýsingar og ýmislegt lauslegt inn í málverkin. Ég var hrifinn af popp- listinni, Warhol og Rauchenberg, á þessum tíma,“ sagði Sigurður Ör- lygsson við blaðamann Morgun- blaðsins er þeir gengu saman um sali Gerðarsafns þegar listamað- urinn setti þar árið 1996 upp athygl- isverða yfirlitssýningu. Tilefnið var ærið, fimmtugsafmæli og aldarfjórð- ungur síðan hann byrjaði að sýna verk sín opinberlega, árið sem hann útskrifaðist úr MHÍ. Og sögumaðurinn Sigurður hélt áfram að útskýra þróunina á ferli sínum: „Ég hef í raun farið öfuga leið á mínum ferli miðað við til dæm- is impressjónísku málarana sem byrjuðu á realískum myndum af fólki og fjöllum og einfölduðu mynd- mál sitt allan ferilinn. Ég gerði þetta akkúrat öfugt. Ég fór ekki að taka fígúruna inn í myndir mínar fyrr en árið 1981 og núna er ég mikið að mála andlitsmyndir, landslag og hús. Það var fjærst mér af öllu að mála portrett hér áður fyrr.“ Líklega finnst mörgum að á þess- um tíma hafi Sigurður verið á há- tindi ferils síns, þegar hann tókst á við flennistóra og fantasíukennda fleka sem þrívíðar höggmyndir stóðu gjarnan út úr en þær sýndu sumar ógurleg tól og tæki valta yfir ósnortna náttúru. Og þarna sýndi hann líka áhrifamiklar og persónu- legar fjölskyldumyndir, þar sem börn hans, eiginkona og foreldrar komu við sögu. Og vitaskuld voru líka myndir af tónlistarmönnum, djassmeisturum og óperusöngv- urum en bæði formin dáði Sigurður og var alltaf gaman að hlýða á hann og ræða við hann um tónlist, sem ómaði hátt í vinnustofunni þegar lit- ið var inn hjá honum. Þeir blaðamaðurinn stöldruðu við mynd sem hann málaði af Plácido Domingo. „Nú er hann að hlusta á mig. Ég er búinn að hlusta á hann svo lengi,“ sagði Sigurður. Kvöldklæðnaður og ópera Nú er Sigurður allur, rúmlega sjö- tugur, eftir erfiða glímu við blóð- sjúkdóm. Og það er sjónarsviptir að þessum ástríðufulla og kappsama listamanni, sem var svo næmur og ljúfur en gat líka verið hrjúfur. Ég hafði nokkrum sinnum mynd- að Sigurð og tekið viðtöl við hann en við þekktumst ekkert að ráði fyrr en hann hringdi veturinn 1993 til okkar Ingibjargar út til New York, þar sem við vorum í námi. Hann falaðist eftir gistingu í nokkrar nætur, sem var sjálfsagt, en þeir Helgi Þorgils Friðjónsson voru á leið í móttöku á Plaza-hótelinu þar sem átti að sýna fána sem þeir höfðu málað vegna Ól- ympíuleikanna. Þegar Sigurður birt- ist var hann við skál og kátur og leið- ur í senn, sagðist ekki hafa drukkið í allmörg ár. Við tóku eftirminnilegir dagar; gesturinn eins og kraftmikið náttúruafl, hann tók yfir diskasafnið á heimilinu – gladdist yfir að finna nokkra með átrúnaðargoðinu Miles Davis og óperudiska að auki; ná- grannarnir hafa líklega hlýtt á há- væra tónlistina með okkur þessa daga. Og það var rætt um listina fram og til baka, sögur sagðar og hlegið, en myrkrið var líka til staðar, sektarkenndin yfir að hleypa Bakk- usi aftur í boðið. Ég aðstoðaði við að klæða Sigurð í smóking í fyrsta sinn sem hann fór í slíkan klæðnað, en það var skylda á Plaza, og mér tókst líka að kaupa miða fyrir okkur á Fidelio eftir Beethoven í Metropolitan-óperunni. Var afar gaman að vera með Sigurði í hans fyrstu ferð í óperuhús erlend- is þar sem við dáðumst að risastór- um flekum Chagalls í forsalnum og þessari einu óperu Beethovens. Kvaddur með sveiflu List Sigurðar Örlygssonar má skipta í nokkur tímaskeið og er at- hyglisvert að sjá hvernig áhrif til að mynda bandarísku expressjónist- anna og popplistamanna lita verk hans á áttunda áratugnum, síðar nýja málverkið svokallað, og svo tók aftur við ljóðrænn abstraktheimur og smærri myndverk er leið á ævina – og alltaf voru efnistökin persónu- leg og mótuð af lundarfari lista- mannsins og margbreytilegum áhrifavöldum víða að. Sigurður kenndi myndlist um tíma og hef ég nokkrum sinnum hitt fyrrverandi nemendur hans sem hafa dásamað þá orku og natni sem honum tókst að sameina í kennsl- unni og hvatti nemendur óspart til dáða. Það sama mátti sjá í heim- sóknum á vinnustofuna til hans hér áður, þar sem börnin þeirra Stellu léku sér meðan Sigurður málaði undir blæstri Miles og lék samtímis við þau og hélt að þeim litum og pappír. Það hefur ekki komið á óvart að sjá þau öll gangast listinni á hönd, tón- eða myndlist. Sá þytur er í blóði þeirra allra. Á fimmtudaginn var Sigurður kvaddur af fjölda vina og ættingja með tilhlýðilegum hætti, í kirkju en án tilvitnana í einhvern guð, annan en guðdómlega tónlistina sem hljómaði. Hann kvaðst trúlaus en sagði mér eitt kvöldið í New York forðum að hann tryði á listina. Við útförina var aðeins minnst á „fimmta guðspjallamanninn“, sjálf- an Bach, þar sem Davíð Þór Jónsson lék aríuna úr Goldbergtilbrigðunum og svo var djassað og það með sveiflu yfir kistunni, eins og vera bar. Og hún var svo borin út við It don’t mean a thing, if it ain’t got that swing – og Sigurður hafði heldur betur sveiflu í lífi sínu og list – og hans er saknað. Morgunblaðið/Einar Falur Fjölskyldumyndir Sigurður með börnum sínum að setja upp umfangsmikla og eftirminnilega yfirlitssýninguna í Gerðarsafni í Kópavogi árið 1996. Morgunblaðið/Einar Falur Kraftmikill Sigurður í vinnustofu sini árið 1992, við einn hinna miklu fleka sem hann málaði á þeim árum, með tækjum og ásjónum í náttúrunni. Ástríðufullur málari sveiflunnar  „Ég hef í raun farið öfuga leið á mínum ferli,“ sagði myndlistarmaðurinn Sigurður Örlygsson þeg- ar hann stóð á fimmtugu  Hinn kröftugi listamaður, og þekkti djass- og óperugeggjari, kvaddur Kirkjulistahátíð lýkur á mánudag og það verður nóg um að vera nú um helgina. Í dag kl. 17 verður aftan- söngur og flutt kantatan Bleib bei uns eftir J. S. Bach. Stemmning hvítasunnunnar verður færð gest- um Hallgríms- kirkju og Kirkjulistahátíð- ar með þessari undurfallegu kantötu Bachs, segir í tilkynn- ingu og flytjendur eru David Erler kontratenór, Benedikt Kristjánsson tenór, Oddur A. Jónsson bassi, Schola cantorum og Alþjóðlega bar- okksveitin í Hallgrímskirkju. Stjórn- andi er Hörður Áskelsson. Kl. 21 verður leikin tónlist eftir raftónskáld með nýjum hljómi þar sem midi-tölvubúnaður Klais orgels- ins er nýttur og verk tónskáldanna verða leikin af tölvum. Umsjón- armaður er Guðmundur Vignir Karlsson og tónskáld sem eiga verk á tónleikunum eru Ingi Garðar Er- lendsson, Gunnar Andreas Krist- insson, Ragnhildur Gísladóttir, Sveinn Ingi Reynisson, Guðmundur Vignir Karlsson, Hlynur Aðils Vilm- arsson og Halldór Eldjárn. Aðgang- ur er ókeypis. Á morgun hefst dagskrá kl. 11 með hátíðarguðsþjónustu og flutt verður O ewiges Feuer eftir J.S. Bach. Um flutning sjá Mótettukór Hallgríms- kirkju, Alþjóðlega barokksveitin með barokktrompetum og pákum, David Erler kontratenór, Benedikt Krist- jánsson tenór og Oddur A. Jónsson bassi. Stjórnandi er Hörður Áskels- son og Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgel. Kl. 20 verða haldnir hátíðartónleikar með Alþjóðlegu bar- okksveitinni í Hallgrímskirkju og flutt hátíðartónlist fyrir óbó, tromp- eta, pákur og strengi, m.a. hin heims- þekkta hljómsveitarsvíta í h-moll eft- ir J.S. Bach. Einleikari er Georgia Brown, flautuleikari frá Ástralíu og konsertmeistari er Tuomo Suni. Á mánudaginn, 10. júní, verður há- tíðarmessa á annan í hvítasunnu og flutt hátíðartónlist. Graduale Nobili syngur undir stjórn Þorvaldar Arnar Davíðssonar. Kl. 15 verður boðið upp á tónleikaspjall í Ásmundarsal, rætt við tónskáldið Sigurð Sævarsson um nýja verkið hans, Veni sancte spiri- tus sem hann samdi fyrir Kirkjulista- hátíð. Kl. 17 hefjast svo lokatónleikar Kirkjulistahátíðar, „Eilífðareldur, uppspretta ástar“ þar sem fluttar verða þrjár hvítasunnukantötur eftir J. S. Bach og Veni sancte spiritus, ný hvítasunnukantata eftir Sigurð Sæv- arsson verður frumflutt. Flytjendur eru Herdís Anna Jónasdóttir sópran, Hildigunnur Einarsdóttir alt, David Erler kontratenór, Benedikt Krist- jánsson tenór og Oddur A. Jónsson bassi, Schola cantorum, Mótettukór Hallgrímskirkju og Alþjóðlega bar- okksveitin í Hallgrímskirkju. Stjórn- andi er Hörður Áskelsson. Hátíðlegir lokadagar Hörður Áskelsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.