Morgunblaðið - 08.06.2019, Page 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Rótgróin heildsala með sérhæfðar vörur fyrir byggingariðnað. Velta
100mkr. Góður hagnaður.
• Trésmiðja með 40 ára rekstrarsögu sem sérhæfir sig í innréttinga-
smíði fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Fyrirtækið er vel tækjum
búið og í eigin húsnæði. Velta 130 mkr.
• Fyrirtæki sem framleiðir ákveðnar tegundir einfaldra matvæla fyrir
aðra aðila á markaði. Töluverð sjálfvirkni þannig að kostnaði er
mjög stillt í hóf. Velta 100 mkr. og afkoman sérlega góð.
• Lítið ferðaþjónustufyrirtæki í góðum vexti sem býður fjölbreyttar ferðir
á Suðurlandi. Eigið húsnæði og góður búnaður. Velta 50mkr. Góður
vöxtur.
• Heildverslun sem flytur inn ýmsan tæknibúnað til hitunar, kælingar og
loftræstingar. Velta yfir 200 mkr. og góð afkoma.
• Lítil heildverslun með sterkan fókus í árstíðabundinni vöru. Tilvalinn
rekstur fyrir einstaklinga eða sem viðbót við aðra heildsölu. Stöðug
rekstrarsaga. Velta 45 mkr.
• Þjónustufyrirtæki á mjög sérhæfðu sviði sem hefur eftirlit með
hreinlæti á vinnustöðum, gerir tillögur að kerfum og sér um úttektir.
Velta 100 mkr. og góð afkoma.
• Hádegisverðarþjónusta þar sem bæði er sent í fyrirtæki og neytt á
staðnum í hádeginu. Tilvalið fyrir samhenta fjölskyldu og kokka. Velta
100 mkr. Töluverðir möguleikar fyrir duglega aðila að auka veltuna.
• Gott fyrirtæki með áratuga sögu sem sérhæfir sig í vélaviðgerðum og
sölu varahluta sem það flytur sjálft inn. Velta nokkuð stöðug
undanfarin ár og jákvæð afkoma.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Okkur fannst gaman að gera eitt-
hvað vegna þess hvað þessi plata var
mikilvæg fyrir okkur,“ segir Kjartan
Sveinsson, meðlimur Sigur Rósar til
margra ára en hljómsveitin mun
halda upp á 20 ára afmæli plötu sinn-
ar Ágætis byrjun með hlustunar-
partíi í Gamla bíói næsta miðviku-
dag, 12. júní. Viðburðurinn er
haldinn nákvæmlega 20 árum eftir
að hljómsveitin stóð á sama sviði á
útgáfutónleikum Ágætis byrjunar
og ætlar hún að halda upp á afmælið
með því að spila endurhljóðblandaða
upptöku frá útgáfutónleikunum.
Húsið opnar kl. 20 og upptakan
verður spiluð frá kl. 21. Frítt er inn á
afmælisviðburðinn en gestir þurfa
að skrá sig á vefsíðu Sigur Rósar á
slóðinni sigurros.com/ab20/june12/.
Auk þess verður uppákoma hjá
Smekkleysu plötubúð kl. 15 sama
dag, götupartí þar sem prufuupp-
tökur og annað sjaldgæft efni af
Ágætis byrjun verður leikið. Í kjöl-
farið verða svo haldnar pallborðs-
umræður með hljómsveitinni í
Mengi kl. 16 og 17.
„Við vorum ungir menn“
„Þetta konsept „ágætis byrjun“
átti eiginlega við fyrstu plötuna,
Von. Hún var alveg fín, ágætis byrj-
un, en nú vildum við gera eitthvað
meira og betra,“ segir Kjartan.
Hann rifjar upp ferlið við vinnslu
plötunnar: „Upptökuferlið gekk
mjög vel. Við tókum upp alla grunn-
ana á tveimur helgum, fjórum dög-
um, sem þótti nú ekki mikið þá. Svo
gáfum við okkur mjög góðan tíma í
alla eftirvinnslu. Við mixuðum plöt-
una til dæmis tvisvar,“ segir hann og
heldur áfram: „Við vorum að mixa
mikið á nóttunni, þá fengum við
ódýrari stúdíótíma. Á þessum tíma
varð maður að vinna miklu meira í
stúdíói en fólk er að gera í dag. Núna
getur fólk gert margt í svefnher-
berginu hjá sér í fartölvunni. Þetta
eru svolítið breyttir tímar“.
Kjartan játar því að þeir félag-
arnir í Sigur Rós hafi verið fullir af
eldmóði á þessum tíma. „Við vorum
náttúrulega ungir menn og það var
rosalega mikil orka. Við vorum allir í
dagvinnu en svo þegar við vorum að
klára plötuna vorum við eiginlega
allir hættir að vinna. Við helguðum
okkur þessu alveg.“
„Það var rosaleg orka og vissa í
okkur. Við vorum eiginlega alveg
ógeðslega hrokafullir,“ segir Kjart-
an og hlær. „Við vorum ákveðnir,
ekkert endilega í að sigra heiminn
en við vissum samt á ákveðnum
tímapunkti í ferlinu að þessi plata
væri eitthvað sem færi aðeins víðar
en upp í Efstaleiti og á X-ið. Þannig
að það var mikill spenningur í okkur.
Við hugsuðum: „Nú fer eitthvað að
gerast.“ Okkur fannst það nátt-
úrulega alveg sjálfsagt. Maður var
svolítið með þannig viðhorf. En það
er kannski líka bara lykillinn að vel-
gengni að vera svolítið „kreisí“.“
„Þetta var rosa ævintýri“
„Við gerðum hlutina náttúrulega
bara á okkar forsendum. Okkur
fannst þessi tónlistarbransi svolítið
fáránlegur og við ætluðum að breyta
því og gera hlutina bara eins og við
vildum gera þá. Þetta var voða gam-
an. Það var svo mikil orka á bakvið
þetta allt saman. Við vorum líka
bara rosa duglegir.
Platan var tekin upp á SSL mixer.
Ég held að við höfum verið fyrstir til
að taka upp á þennan mixer sem
kom í Sýrland. Það hafði aldrei verið
svona græja á Íslandi. Það hafði allt-
af verið þessi séríslenski tónn í öllu
hér sem var ekkert voðalega spenn-
andi. Þarna fengum við tækifæri til
að gera þetta af alvöru. Þetta var
rosa ævintýri. Við vorum ekkert
hræddir við kostnað, platan var rosa
dýr á sínum tíma en það var svo mik-
il vissa. Smekkleysa bakkaði okkur
líka upp. Þegar ég lít til baka þá held
ég að við höfum verið mjög heppn-
ir,“ segir Kjartan.
Gefa út afmælisútgáfu
Af tilefni stórafmælisins gefur
Sigur Rós út afmælisútgáfu plöt-
unnar. Það er kassi sem inniheldur
sjö breiðskífur á vínil og þar á meðal
er að finna sjaldgæft efni og áður
óútgefin lög og prufuupptökur. Þá
mun einnig fylgja vegleg innbundin
bók með ljósmyndum, textum og
fleira efni sem aðdáendur sveitar-
innar og aðrir gætu haft áhuga á.
Auk þessa stóra vínilsafns verður
gefinn út fjögurra geisladiska pakki.
Á fyrsta diskinum verður sjaldgæft
efni, á tveimur upptaka af útgáfu-
tónleikum hljómsveitarinnar árið
1999 sem spiluð verður á afmælis-
viðburðinum og á þeim þriðja verður
svo platan sjálf, Ágætis byrjun.
„Það var rosaleg orka
og vissa í okkur“
Sigur Rós heldur upp á 20 ára afmæli Ágætis byrjunar
„Lykillinn að velgengni að vera svolítið „kreisí“
Morgunblaðið/Kristinn
Samvinna Meðlimir Sigur Rósar og vinir þeirra að brjóta saman og líma plötuumslög Ágætis byrjunar árið 1999.
Draumkennt Umslag plötunnar
Ágætis byrjun sem orðin er tvítug.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Tónleikar Sigur Rós á Gauknum árið 1999, árið sem Ágætis byrjun kom út.
Blóðdropinn 2018, verðlaun Hins ís-
lenska glæpafélags fyrir bestu
glæpasögu ársins 2018, verður af-
hentur fimmtudaginn 20. júní og
hefur dómnefnd nú valið þá sem
hún taldi besta. 13 bækur komu til
greina, allar útgefnar íslenskar
glæpasögur ársins 2018 og hefur
hödundinum sem varð fyrir valinu
verið tilkynnt um verðlaunin.
Bækurnar sem komu til greina
eru (höfundur og titill) Arnaldur
Indriðason - Stúlkan hjá brúnni, Ár-
mann Jakobsson - Útlagamorðin,
Eva Björg Ægisdóttir - Marrið í
stiganum, Guðmundur Brynjólfs-
son - Eitraða barnið, Guðrún Guð-
laugsdóttir - Erfðaskráin, Jónína
Leósdóttir - Óvel-
komni maðurinn,
Lilja Sigurð-
ardóttir - Svik,
Óskar Guð-
mundsson - Blóð-
engill, Ragnar
Jónasson - Þorp-
ið, Stefán Máni -
Krýsuvík, Stefán
Sturla Sigur-
jónsson - Fléttu-
bönd, Yrsa Sigurðardóttir - Brúðan
og Kári Valtýsson - Hefnd.
Dómnefndina skipuðu Vera
Knútsdóttir formaður, Páll Krist-
inn Pálsson og Kristján Atli Ragn-
arsson.
13 bækur tilnefndar til Blóðdropans
Lilja
Sigurðardóttir
Bára Grímsdóttir og Chris Foster koma fram í tón-
leikaröð í Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðar-
strönd á morgun kl. 17 og flytja þjóðlög frá Íslandi
og Englandi. Tónleikaröðin er til styrktar kirkjunni
og mun allur ágóði af miðasölu verða notaður til við-
halds á henni og uppbyggingar á staðnum.
Bára og Chris hófu samstarf sitt árið 2001 og hafa
þau keppst við að blása lífi í íslenska þjóðlagatónlist
sem hefur leynst í gömlum upptökum og lítt þekkt-
um bókum og handritum, auk þess sem þau hafa
bætt við nýjum lögum í þjóðlegum stíl.
Þjóðlög frá Íslandi og Englandi
Bára Grímdóttir
og Chris Foster