Morgunblaðið - 08.06.2019, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 08.06.2019, Qupperneq 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019 ENGINN ÐBÆTTUR SYKUR ENGIN ROTVARNAREFNI 85% TÓMATPÚRRA VI Hugsað um Hatara ast ekki með. Ég stóð við mitt, en fréttir af tilburðum Hatara bárust í augu mín og eyru engu að síður og ég er núna sannfærður um að þátt- taka sveitarinnar í keppninni gerði meira gott en ekki. RÚV var búið að taka ákvörðunina, eða eins og Hat- ari sagði við Stundina í aðdragand- anum: „En fyrst Ísland tekur þátt, þá er mikilvægt að sá sem fer fram fyrir hönd þjóðarinnar nýti dag- skrárvald sitt til hins ítrasta, gagn- rýni framgöngu Ísraelsríkis og bendi á fáránleikann sem felst í því að syngja, sprella og dansa á sama tíma og milljónir lifa innikróaðar og kúgaðar í næsta nágrenni.“ Og svo það komi fram, ég dæmi ekki ákvörðun RÚV né þeirra sem fylgd- ust með af ákefð. Ég er í engri stöðu til þess og finnst hrósvert hvernig yfirmenn þar brugðust við tiltækj- um Hatara þarna undir restina. Út- spil RÚV í þeirri umræðu voru svöl. Frá upphafi var ég hrifinn af Trójuheststækninni sem Hatari ýj- aði að. Og sveitin fór með það alla leið. Ég er því líka afskaplega ósam- mála að Hatari hafi farið í þetta ferðalag sitt til að fæða eigið egó, sé að gera Palestínu grikk fyrst og síð- ast og sé óupplýstir „hvítir bjarg- vættir“. Staðan niður frá er hörmu- leg. En það er hægt að hjálpa til með ýmsum hætti. Tilraunum til vit- undarvakningar um ástandið – eins og Hatari hefur reynt sig við und- anfarnar vikur – verður nefnilega aldrei hægt að miðstýra af Palest- ínumönnum og þeim sem láta sig mál þeirra varða. Það er einfald- lega ekki hægt. Nýlegt myndband sveitarinnar er síðan stórkostleg birtingarmynd á því hvernig með- limir sögðust ætla að nýta sér dag- skrárvaldið til góðra verka. Það má hártogast um áhrifin sem Hatari hefur haft út í hið óendanlega. Skiptir þetta miklu, litlu eða ein- hverju yfir höfuð? En enginn skyldi efast um að þessir drengir hafi góð og göfug hjörtu. Þetta er þeirra framlag til baráttunnar, og það er sannferðugt og heiðarlegt. Hatari tók afstöðu, stóð vaktina og sýndi áræði, dug og þor. » Fræðimennskustarf mitt við háskólana snýstmikið til um að sýna fram á að dægurtónlist, veri það grjóthart rokk eða fislétt popp; skipti máli, búi yfir gildi og hafi áhrif. Segja má að Hatari hafi fært mér öll þau rök sem að því hníga á leður- klæddu silfurfati með þátttöku sinni í Eurovision. Hljómsveitin Hatari hefur þyrlað upp pæl- ingum um erindi list- arinnar, breytingar- mátt tónlistarinnar og hvenær hlutir eru við hæfi – og alls ekki. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ég valdi að fylgjast ekki meðSöngvakeppni evrópskrasjónvarpsstöðva þetta árið vegna pólitískrar sannfæringar, auk þess sem ég sagði mig frá allri rýni og pælingum um keppnina, en undanfarin ár hef ég skrifað poppfræðilega texta um flestallt sem viðkemur keppninni og haft gaman af. Ástæðan var að sjálf- sögðu aðkoma Ísrael að keppninni og hvernig landið nýtti hana með- vitað í menningarlegan hvítþvott. Allt tal um að söngvakeppninni ætti að halda utan við pólitík, sem er göfugt markmið, var gert að hjómi af gestgjöfunum sjálfum. Ég fann það þess vegna ekki í mér að vera að leggja eitthvað til, þó að mín lóð séu afskaplega léttvæg í stóra sam- henginu. Ég fann samt líka að ég hreinlega kveið því að horfa á þessi stuttu brot á milli laga sem lönd nýta venjulega til að sýna hversu stórkostlegt allt sé hjá þeim. Það var einfaldlega ekki hægt að líta framhjá tvíræðninni í þessu. Fræðimennskustarf mitt við háskólana snýst mikið til um að sýna fram á að dægurtónlist, veri það grjóthart rokk eða fislétt popp; skipti máli, búi yfir gildi og hafi áhrif. Segja má að Hatari hafi fært mér öll þau rök sem að því hníga á leðurklæddu silfurfati með þátttöku sinni í Eurovision. Eftir að ljóst var að Hatari færi út var eiginlega ekki hægt að fylgj- Áhrif Hataramenn, Matthías Tryggvi og Klemens, með palestínska rapparanum Bashar Murad í nýjasta myndbandi Hatara. Strengjasveitin Íslenskir strengir heldur tónleika í Hvoli á Hvolsvelli í dag kl. 17. Flutt verður nýtt strengjaverk eftir Unni Malín Sigurðardóttur, söngkonu og tónlskáld, sem ber titilinn Glerhvolf og Einar Bjartur Egilsson pí- anóleikari flytur kafla úr hljómborðskonsert eftir J.S. Bach með hópnum og einnig verður flutt La Folia eftir Francesco Geminiani o.fl. Konsertmeistarar eru Chris- sie Guðmundsdóttir og Gróa Margrét Valdimarsdóttir og hljómsveitarstjóri Ólöf Sigursveinsdóttir. Tónleik- arnir eru haldnir í samstarfi við námskeið sem kallast Fiðlufjör. Ólöf Sigursveinsdóttir, hljómsveitarstjóri og sellóleikari, stofnaði Íslenska strengi árið 2017 og hefur hópurinn það að markmiði að vera atkvæðamikill kammerhópur sem hvet- ur kventónskáld til leiks. Íslenskir strengir leika á Hvolsvelli Unnur Malín Sigurðardóttir Bandaríski tón- listarmaðurinn Dr. John, réttu nafni Mac Reb- ennack, lést í fyrradag, 77 ára að aldri, af völd- um hjartaáfalls. Hann öðlaðist frægð og vin- sældir með bræð- ingi sínum á djass- og blústónlist þeldökkra úr heimaborg hans New Orleans, poppi, rokki og búgívúgí. Dr. John söng og lék á píanó og vakti fyrst athygli fyrir frumraun sína, plöt- una Gris-Gris frá árinu 1968, hlaut fjölda Grammy-verðlauna og var meðlimur í Frægðarhöll rokksins. Dr. John látinn, 77 ára að aldri Dr. John/ Mac Rebennack Tónlistarhóp- urinn Cauda Col- lective heldur tónleikana Óður til hafsins á morgun kl. 20 í Hafnarborg. Á þeim verður flutt tónlist samin til heiðurs hafinu á einn eða annan hátt, píanótríóið „Between tides“ eftir Toru Take- mitsu, „Sea Pictures“ eftir Edward Elgar og spunaverkið „Sjávarföll“. Cauda Collective leitar skapandi leiða til að miðla tónlist og brjóta upp hefðbundna tónleikaformið. Frekari upplýsingar má finna á fa- cebooksíðu hópsins. Óður til hafsins í Hafnarborg Tónskáldið Edward Elgar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.