Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2019, Page 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2019, Page 2
Hvernig kemur til að þú spilar á þessum tónleikunum? Ég var spurður hvort mig langaði að vera með í þess- ari tónleikaröð. Þetta er ákveðin tenging við eitt af stærstu skáldum sögunnar sem ég var svo heppinn að hitta nokkrum sinnum. Þetta eru stuttir tónleikar svo þetta verður bara gaman. Hvaða lög muntu flytja á tónleikunum? Það er ekki alveg ákveðið en það liggur ljóst fyrir að ég mun spila lög af nýju plötunni minni, Regnbogans stræti, sem kemur út í ágúst. Ég mun spila eitt eða tvö gömul lög en reyni að einblína á nýtt efni. Verða einhverjir gestir með þér á nýju plötunni? Já, Kata [Katrín Halldóra Sigurðardóttir] syngur með mér í lag- inu Án þín sem komið er út en fyrir utan það er ég bara einn. Maður á aldrei að hafa fleiri en einn gest nema platan sé slík að maður raði inn gestum. Er eitthvert ákveðið þema á nýju plötunni? Það ægir öllu saman á þessari plötu. Þarna er sálartónlist, þjóð- lagarokk, hart rokk og allt þar á milli. Einhver sagði mér að þetta væri eins og „best of“-plata með mér nema bara ný lög. Ertu búinn að fara í ræktina í dag? Sippaðiru? Já, ég fór í morgun. Ég sippaði ekki en ég tók jafnhöttun, tog og endaði svo á því að taka 100 hæðir í stigavélinni. Á morgun ætla ég svo að sippa. Morgunblaðið/Eggert BUBBI MORTHENS SITUR FYRIR SVÖRUM Tónleikar á Gljúfrasteini Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.6. 2019 Hún er fædd fyrir seinna stríð segir í lagi Magnúsar Eiríkssonar og erég farin að halda að átt sé við mig. Unga fólkið í kringum mig skilurmig nefnilega ekki. Það skilur ekki einföldustu íslensk orð (eða danskar slettur) og þekkir ekki fólk sem ég taldi frægt, en var það líklega bara í mínu ungdæmi. Nú er ég ekkert svo gömul, að mínu mati, en staðan er engu að síður svona þessa dagana. Um daginn barst í tal Mick nokkur Jagger, sem ég taldi vera einn frægasta einstakling jarðar. En nei, unga konan á þrítugsaldri sem ég talaði við hafði ekki hugmynd um hver þessi ágæti maður er! „Hann er söngvari Rolling Stones,“ upplýsti ég hana, þess fullviss að þá myndi hún kveikja. En nei, aldrei hafði hún heyrt þessa hljómsveit nefnda! Annað dæmi var að ég nefndi að hægt væri að maka á sig „indíána- mold“ í staðinn fyrir að sóla sig eða fara í ljós. Viðkomandi hafði aldrei heyrt talað um indíánamold, sem var mikið notuð snemma á níunda ára- tugnum af ungum stúlkum sem vildu vera brúnar. Í staðinn vorum við allar mjög óeðlilega rauðbrúnar í framan, en það er önnur saga. Mér fannst eins og allir ættu að þekkja þetta orð, en líklega muna aðeins konur á mínum aldri eftir þessum misheppnaða andlitsfarða! Í Sunnudagsblaði helgarinnar fékk ég það verkefni að sjá um hönnunar- opnuna og er hún þar undir yfirskriftinni: Lekkerheit í lautarferð. Lekkerheit er svo lekkert orð. Eldra fólkið, og þá er ég að tala um alvöru eldra fólkið sem er í alvöru fætt fyrir seinna stríð eða þar um bil, slettir gjarnan dönsku. Hún var víst töluð spari á sunnudögum þegar við vorum undir dönsk- um kóngi. Einn gamall frændi segir gjarnan altså í upphafi setningar og mamma slettir gjarnan dönsku. Sum orðin eru viðurkennd íslensk orð í dag en kannski ekki mikið notuð af unga fólkinu; orð eins og huggulegur og lekker; orð sem mér finnst mjög fín! Svo hef ég sérstakt dálæti á orðinu geðslegur, sem er gamalt og gott íslenskt orð. Orðið ógeðslegt er hins vegar svo misnotað í dag; allt er svo ógeðslega töff, ógeðslega gott, ógeðslega kúl. Sem meikar ekki sens, eins og maður segir á góðri íslensku. En líklega tala ég stundum eins og gamla fólkið og stundum eins og unglingarnir! Annars er gott dæmi um ágæta setningu svona: „Mick Jagger er bæði afar geðslegur og huggulegur og sérlega lekker í tauinu.“ Algjör negla! Algjör negla í mínu ungdæmi Pistill Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’Hann er söngvari Roll-ing Stones,“ upplýsti éghana, þess fullviss að þámyndi hún kveikja. En nei, aldrei hafði hún heyrt þessa hljómsveit nefnda! Einar Victor Kreidler Það leggst sjúklega vel í mig núna í maí. SPURNING DAGSINS Hvernig leggst sum- arið í þig? Vala Ólafsdóttir Mjög vel. Ég er mikið sumarbarn. Guðmundur Jónsson Það leggst bara mjög vel í mig. Margrét Víkingsdóttir Æðislega. Sumarið í fyrra var hræði- legt svo þetta verður ekki verra. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal karl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson Bubbi Morthens spilar á stofutónleikum á Gljúfrasteini í Mosfells- dal í dag, sunnudag, kl. 16. Tónleikarnir eru þeir fyrstu í röð tón- leika í húsi skáldsins í sumar. Bubbi flytur bæði gömul lög og ný en plata hans, Regnbogans stræti, kemur út í ágúst. BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR Sunnumörk 2, Hveragerði, sími 483 1919, Almar bakari • Opið alla daga kl. 7-18 SÉRBAKAÐfyrir þig SALATBAR ferskur allan daginn

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.