Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2019, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2019, Síða 4
HEIMURINN 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.6. 2019 Langar þig í ný gleraugu! Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Það fyrsta sem Marilyn Monroe leikkona tók eftir þegar hún hitti Arthur Miller rithöfund, voru gleraugun! Ein sú áhrifa- mesta í heimi Irma Jóhanna Erlingsdóttir er álista Apolitical, alþjóðlegsfræðslu- og stefnumótunarvett- vangs fyrir ríkisstjórnir og aðra op- inbera aðila, yfir 100 áhrifamestu einstaklinga heims á sviði kynjajafn- réttis. Þar er hún ásamt fríðum hópi einstaklinga sem margir hverjir eru heimsþekktir baráttumenn fyrir jafnrétti kynjanna. Irma er með doktorspróf í sam- anburðarbókmenntum frá Sor- bonne-háskóla í París, Frakklandi, m.a. með áherslu á kynjafræði. Hún gegnir starfi lektors við Háskóla Ís- lands og hefur verið í forsvari fyrir ýmsar stofnanir og verkefni í tengslum við jafnrétti, bæði hér inn- anlands og utan. Irma segir þau verkefni sem hún hefur stýrt alþjóðlega og athyglin sem þau hafi vakið spili stóran þátt í því að hún hljóti þann heiður að vera á listanum. „Ég hef unnið að því síð- astliðin ár að kynna verkefnin sem ég stýri alþjóðlega, á ráðstefnum og í greinum, meðal annars í þeim til- gangi að fá til liðs við þau þátttak- endur frá fleiri svæðum og afla styrkja til þeirra. Ég hef líka litið svo á sjálf verkefnin séu á margan hátt til marks um nýstárlega nálgun og nýsköpun á sviðinu,“ segir Irma. Vill afhjúpa ójafnrétti Hún segir þær rannsóknir sem hún stundi og starfsemi þeirra stofnana sem hún leiði snúast um að afhjúpa ójafnrétti og finna leiðir til að sporna gegn því.„Ég geri ráð fyrir því að það sem spilar stærstan þátt í því að ég er á þessum lista sé áherslan á samspil rannsókna og praktískra lausna.“ Irma segir rannsóknir sínar hafa beinst að réttlæti og stjórnmálum. „Ég hef stundað rannsóknir á ímynd Norðurlandanna á sviði jafnrétt- ismála og #metoo-hreyfingarinnar í samstarfi við erlenda rannsak- endur.“ Aðeins þrír karlmenn eru á listan- um þetta árið. Irma segir það end- urspegla stöðuna á þessu sviði. „Hins vegar er þetta að breytast og sífellt fleiri karlar koma að mála- flokknum.“ Vænt um viðurkenninguna Irmu þykir mjög vænt um þá við- urkenningu að vera á listanum. „Ég vonast til að hún gagnist þeim verk- efnum sem ég stýri og öllum þeim sem koma að þeim þannig að við get- um haldið áfram að láta okkur dreyma um að koma á breytingum í jafnréttisátt,“ segir hún. Irma segir að starf á hennar sviði mæti ekki alltaf skilningi og enn minni á árum áður en nú til dags. „Ég er einmitt þess vegna ein- staklega þakklát öllum þeim sem hafa unnið með mér og stutt verk- efnin sem ég hef farið fyrir,“ segir Irma og bætir við að þau verkefni sem hún hefur unnið að velti ekki að- eins á hennar framlagi heldur allra þeirra sem komið hafa að þeim. Irma Erlingsdóttir er ein af 100 á lista Apolitical yfir áhrifamestu ein- staklinga heims á sviði jafnréttismála. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Irma Erlingsdóttir er einn af 100 áhrifamestu ein- staklingum á sviði jafnréttis í heiminum ef marka má nýjan lista Apolitical. Hún vonast til að nafn- bótin gagnist í baráttunni fyrir jafnrétti. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Apolitical eru samtök sem ná til 170 landa og hafa það að markmiði að miðla reynslu og efni sem nýtist við m.a. við op- inbera stefnumótun, þ.m.t. á sviði jafnréttismála. Þetta er í annað skipti sem samtökin gefa út lista yfir 100 áhrifamestu ein- staklinga heims á sviði stefnu- mótunar í jafnréttismálum. Í fyrra voru bæði Katrín Jak- obsdóttir forsætisráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi ráðherra og borg- arstjóri, á listanum en Katrín er þar einnig í þetta skipti. Emma Watson leikkona og Michelle Obama, fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, eru meðal þeirra sem skipa listann í ár. Í hópi með Obama Nú eru liðnar tvær vikur frá Eurovisionog tómið hefur endurheimt okkur. Viðerum aftur farin að tala um orkupakk- að málþóf, áþreifanlegan skort á túristum og annað álíka spennandi. Við þurfum bara að gera þetta oftar. Eurovision: Ég sakna þín! Það var gaman að sjá þennan mikla áhuga sem skyndilega kviknaði fyrir keppninni. Eftir nokkur mögur ár gerðist það loksins að við Ís- lendingar komumst aftur í úrslit. Og þvílík ham- ingja! Ég held að margir geri sér ekki grein fyrir því hversu mikil áhrif þessi keppni hefur. Ekki bara þegar kemur að tónlist (og jafnvel síst þar) heldur svona andlega fyrir þjakaða þjóð. Loks- ins vorum við metin að verðleikum og í nokkra daga tókst okkur meira að segja næstum því að gleyma öllu nema að skipuleggja partí. Kaupmenn brostu út að eyrum og Vogaídýf- an rann í stríðum straumum. Allir voru glaðir og þegar upp var staðið voru flestir bara nokkuð sáttir við 10. sætið. Hatara tókst meira að segja að fara ákveðna millileið í mótmælum sínum sem róaði sniðgöngufólk en tók hið borgaralega íhald ekki alveg af hjörunum. En það sem gladdi mig mest var hvernig við föðmuðum þessa keppni að okkur. Hnuss- urunum fækkaði verulega og meira að segja stöku dauðarokkari hefur sennilega fórnað sér í að horfa. Eins og allir eiga að gera. Það er ekki hægt að gera öllum til hæfis. Ekki einu sinni mér sem hefur tekist í gegnum tíðina að þróa með mér þol fyrir allskonar fram- lögum. Stundum koma lög sem eru í besta falli skrýtin. Jafnvel furðuleg og hreint ekki skemmtileg. En þá má ekki gleyma því fallega smáatriði að hvert lag má aldrei vera lengra en þrjár mínútur. Svo færir keppnin okkur ákveðna landafræði- þekkingu. Við vitum miklu meira um landamæri eftir að hafa horft á Eurovision. Og hversu margir unglingar myndu hafa heyrt um Na- gorno Karabakh ef ekki væri fyrir þá staðreynd að Aserar gefa Armenum engin stig og öfugt? Þetta er líka grunnnámskeið í tvískinnungi. Um leið og við súpum hveljur yfir því að Grikkir verðlauni nágranna sína á Kýpur með tólf stig- um hendum við megninu af stigunum okkar á Danmörku, Noreg og Svíþjóð. Og getum illa fal- ið hneykslun okkar á því að fá ekki sömu þjón- ustu að launum. Svo er það bara allt hitt sem við sjáum, kynn- umst og lærum. Tungumál (eða að minnsta kosti blæbrigði enska hreimsins um Evrópu), saga þjóða, joik og öskursöngur pólskra mjaltakvenna, fjölbreytileiki og samkynhneigð. Ég held að það geri mörgum gott að sjá öðru hverju tvo hamingjusama karlmenn í kröftug- um skrúfusleik í ríkissjónvarpi landsins. Það er svo mikil gleði sem fylgir þessari keppni, jafnt í salnum sem á sviðinu. (Nema mögulega Georgíumennirnir sem ég vona að hafi fengið viðeigandi hjálp frá sálfræðingum. Þeir litu helst út fyrir að ætla að skamma mann til að kjósa sig). Jú, og svo má nú sennilega nefna að Hatari var kannski ekki á trampólíninu allan tímann, en það er líka erfitt í miðju lagi um að hatrið muni sigra. En fegurðin í keppninni myndgerir sig í 55 ára tannlækni frá Tyrklandi. Því miður fóru Tyrkir í fýlu og ákváðu að taka ekki þátt í keppninni. En okkar maður dó ekki ráðalaus heldur nánast keypti sig inn sem flytjanda San Marínó. Og þarna stóð hann á sviðinu, söng lag í anda Boney M, ekki alltaf í réttri tóntegund, í helst til þröngu hvítu jakkatöfunum sínum. Ég held að ég hafi aldrei séð glaðari mann. Það er þessi gleði sem er svo skemmtileg. Þegar maður hugsar út í það þá er það fjarri því sjálfgefið að það sé hægt að hrúga öllum þess- um þjóðum saman og það án þess að tapa gleðinni. Það er nefnilega aldrei of mikið af gleði. ’Við vitum miklu meira umlandamæri eftir að hafa horftá Eurovision. Og hversu margirunglingar myndu hafa heyrt um Nagorno Karabakh ef ekki væri fyrir þá staðreynd að Aserar gefa Armenum engin stig og öfugt? Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Þrjár mínútur af gleði

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.