Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2019, Síða 17
ræsinu er ekki sú framtíðarsýn sem honum hugnast.
Trump hefur nú bannað sínum mönnum að nefna
Gaddafi aftur til sögunnar.
En svo er það stóra málið
Trump forseta liggur á í mörgu því hann gengur með
þá meinloku sem íslenskir stjórnmálamenn eru nú
orðið algjörlega lausir við. Hann telur að hann eigi að
efna sín kosningaloforð. Vitrustu menn hafa hver af
öðrum bent á að þar sé forsetinn kominn út á hála
braut. En meinloku sína rígheldur forsetinn í og eitt
helsta kosningaloforðið er að koma viðskiptum við
Kína í það horf að þar hafi eitthvað þokast í átt við það
sem tíðkast á alþjóðavísu.
Trump segir Xi Jinping forseta vin sinn, en þeir eru
þó komnir í deilu sem gjarnan er jafnað við að við-
skiptastríð sé skollið á og það á milli stórvelda. Trump
teflir hratt og djarft.
Þótt Xi sé æðsti valdamaður í alræðisríki og hafi
aldrei heyrt prófkjör nefnt og aðeins kosningar þar
sem talningunni er lokið fyrst og kjörstaðir opnaðir
svo, eins og Stalín hafði það líka, er ekki þar með sagt
að hann verði ekki að horfa af sínum ástæðum til al-
menningsálitsins. Staða hans og heiður mega ekki
endilega við því að hann láti í minni poka fyrir Donald
Trump, sem ræður ekki fyllilega við Kim litla kóng í
Kóreu.
Kína er fjölmennasta ríki veraldar og það er ekki
lengur fátækt og frumstætt bændasamfélag. Þetta
kommúnistaríki framleiðir fleiri nýja milljarðamær-
inga í dollurum talið á hverju ári en dollaradýnan sjálf
austan Kyrrahafsins. Kína er í fremstu röð í marg-
víslegri vísindaiðkun, frá því smæsta og flóknasta upp
í geimvísindin. Ef að gangverkið þar hikstar fer
margt á hliðina nær og fjær. Það kemur alls staðar
við. Kína er alheimsframleiðandi á lyfjum og nálgast
hratt að hafa eins konar einokunarstöðu á því sviði.
Nú er svo komið að sá þáttur er talinn getað ógnað ör-
yggi á vesturlöndum.
Kína hefur langfjölmennasta landher í heimi. Hann
sendir mikilvæg skilaboð til umheimsins en ekki síður
inn á við. Flotaveldi og flugher eflast með degi hverj-
um. Kína blæs á mótmæli um manngerðar eyjar sem
er svo breytt í hernaðarlegar bækistöðvar með því að
veifa hendi. Áhrif þess á alþjóðlegar siglingaleiðir
aukast í kjölfarið. Kína lætur ekki sinn hlut í sigl-
ingum um norðurleiðina sem hefur verið að opnast og
er með puttann í Afríku og Suður-Ameríku. Kína læt-
ur til sín taka um allan heim.
Það kvað vera langt á
milli kosninga í Kína
Forystumenn risaríkisins þurfa hins vegar ekki, eins
og Trump, að einblína á haustkosningarnar á næsta
ári. Viðskiptaþvinganir vestra og gagnaðgerðir gætu
dugað til þess að Trump tapaði vígstöðu á þeim svæð-
um sem tryggðu sigur hans síðast. Það veit Xi forseti
eins vel og Trump forseti.
Kim Jong-un á næst síðasta orðið um það hvort að
hann semur við Trump fyrir kosningarnar í nóvember
2020. Síðasta orðið um það á hins vegar Xi Jinping
forseti Kína. Þess vegna fór eins og fór í Singapúr.
Viðskiptastríðið er óþægilegt fyrir Xi. Áhrifin inn-
anlands geta orðið óþægileg, enda hefur Kína búið við
samfelldan hagvöxt um allangt skeið. Hagvaxt-
arskellur yrði ekki aðeins erfiður heldur beinlínis
hættulegur. Hundruð milljóna manna eru nú orðnir
góðu vanir og hafa byggt með sér kröfur um lífsgæði
sem voru óþekktar í tíð Maós og samferðamanna hans
í Göngunni miklu.
Það er lítill vafi á því að Xi forseti og valdakjarni
hans eru meðvitaðir um þessar hættur, ekki síst á
tímamótum þegar að umheimurinn minnist atburð-
anna á Torgi hins himneska friðar og heimamenn
gera það í hljóði.
En þrátt fyrir þetta þá eru engin líkindi til þess að
Trump gæti með aðgerðum sínum stuðlað að stjórn-
arskiptum í Peking, þótt hann vildi.
En það er á hinn bóginn fjarri því að vera útilokað
að Xi forseti geti ráðið miklu um það, hvort að Trump
sitji áfram í Hvíta húsinu eftir forsetakosningarnar í
nóvember. Eina spurningin er sú, hvenær þessi stað-
reynd rennur upp fyrir Donald Trump.
Flestir þykjast vita að sá maður hugsi jafnan um
heildarhagsmuni.
Þá er átt við heildarhagsmuni Donalds Trump.
Þetta veit Xi.
Morgunblaðið/Hari
2.6. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17