Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2019, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.6. 2019
LÍFSSTÍLL
Útivera er stór hluti af okkartilvist, verandi börn foreldraokkar. Þau eru mikið ævin-
týrafólk,“ segir Benedikt og Helga
Guðrún tekur undir það. Systkinin
eru 21 árs Reykvíkingar, börn
hjónanna Helgu Sverrisdóttur og
Bjarna Ármannssonar. Þau segjast
alin upp við útivist og göngur. Helga
Guðrún segir að ferðir fjölskyldunnar
út í náttúruna í gegnum tíðina hafi
verið afar skemmtilegar og lærdóms-
ríkar. „Við höfum ágæta reynslu af
göngum og að ganga í Nepal var ekk-
ert mjög ósvipað því að ganga Fimm-
vörðuháls, fyrir utan hæðina.“
Hinn 24. mars lögðu systkinin af
stað ásamt föður sínum og fjöl-
skylduvini, Hilmu Sveinsdóttur, til
Himalajafjalla. Í Nepal biðu ævin-
týrin, því á dagskrá var að ganga upp
í grunnbúðir og eiga í leiðinni góðar
stundir saman. Þar myndi leiðir
skilja; þau þrjú halda niður á ný en
Bjarni myndi reyna við hæsta tind
heims.
Flottustu fjöll í heimi
Flogið var til Katmandú og segja þau
bæði að furðulegt hafi verið að fljúga
yfir borgina, sem ekki virtist lúta
neinum reglum venjulegs borgar-
skipulags. „Maður er vanur að sjá
götur í röðum, en þarna er enginn
beinn vegur lengri en nokkur hundr-
uð metrar og engin reiða á hlut-
unum,“ segir Benedikt. „Svo eru
þarna heilagar kýr á götunum.“
Helga Guðrún tekur undir að borg-
in hafi verið afar framandi og ólík öllu
sem þau eigi að venjast. „Mér fannst
merkilegast að þarna eru engar um-
ferðarreglur; fólk keyrir eftir sínu
höfði og vonar það besta. Enda deyja
þarna fimmtán manns á dag í umferð-
inni.“
Hópurinn dvaldi einn dag í Kat-
mandú og notuðu þau tímann til að
skoða sig um áður en lagt var í göng-
una löngu upp í grunnbúðir. Flogið
var með hópinn til bæjarins Lukla.
„Þar er lent á einum hættulegasta
flugvelli heims. Hann er frægur fyrir
það. Það var dauðsfall þar tveimur
dögum eftir að við vorum þar, en það
er ekki hægt að fljúga þangað blind-
flug,“ útskýrir Benedikt.
„Mér fannst mjög skrítið að koma
til Lukla og vera þar í Himalajafjöll-
unum. Þau eru alveg jafn klikkuð og
maður ímyndar sér. Það er svo gam-
an að sjá þessi flottustu fjöll í heimi,“
segir Helga Guðrún. Benedikt tekur
undir það. „Manni fannst maður mjög
lítill einhvern veginn í þessum stóru
fjallasölum. Þarna voru endalausir
fjallgarðar. Þegar maður komst ná-
lægt tindum sá maður hvað þeir voru
ógnvænlega háir.“
Bannað að leggja sig
Frá Lukla var lagt af stað eftir stíg-
um í átt að grunnbúðum Everest, og
tók gangan alls tíu daga, með hvíldar-
dögum. Göngufólkið þurfti að bera
léttan dagpoka en burðarmenn báru
Ljósmyndir/Benedikt Bjarnason
Lítil í stórum
fjallasölum
Tvíburarnir Benedikt og Helga Guðrún Bjarnabörn upplifðu
mikið ævintýri í lok mars þegar þau gengu upp í grunn-
búðir Everest. Þar kvöddu þau föður sinn, Bjarna Ármanns-
son, sem toppaði hæsta tind veraldar nokkrum vikum síðar.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Í grunnbúðum eru tjaldbúðir svo langt sem augað eygir. Landslagið er afar hrjóstrugt og undir grjóti er
jökull sem er á sífelldri hreyfingu. Krakkarnir sáu snjóflóð falla úr fjöllunum fyrir ofan.
Benedikt og Helga Guðrún
fylgdu föður sínum, Bjarna
Ármannssyni, upp í grunn-
búðir Everest. Þar skildi
leiðir; unga fólkið hélt nið-
ur en Bjarni upp á topp.
Systkinin segja að kveðju-
stundin hafi verið erfið.
Ein öflugustu meltingarensím ámarkaðnum í dag
l Ensím eru nauðsynleg fyrir meltingu og
öll efnaskipti líkamans.
l Betri melting, meiri orka!
l Inniheldur ATPro (ATP (orkuefni líkamans),
Magnesíum Citrate, Coensime Q10, Phytase).
l Söluhæsta meltingarvaran í Bandaríkjunum.
l 100% vegan hylki. Án fylliefna, bindiefna eða
annarra flæðiefna.
Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og og í heilsuhillum stórmarkaða
Mér finnst gott að fá mér bjór með pizzu
en því miður þá verð ég alltaf útþaninn
eftir það. Ég að prófaði að taka „Digest
Gold“ fyrir máltíðina og viti menn, það bara
svínvirkaði!
Haraldur Egilsson, 47 ára sjómaður og
ævintýragjarn matgæðingur
Það bara svínvirkaði!
Digest Gold
Ensím geta hjálpað til við að slá á óþægindi svo sem,loftmyndun,
uppþembu, meltingartruflanir og meltingaróreglu