Morgunblaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 2
VIÐTAL
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Við eigum ekki að samþykkja þriðja
orkupakkann,“ segir Dóra Ólafs-
dóttir ákveðin, þegar okkur Kristin
ljósmyndara ber að garði. Hún er
elsti núlifandi Íslendingurinn, á 107
ára afmæli í dag.
Dóra fæddist í Sigtúnum á Kljá-
strönd í Grýtubakkahreppi í Suður-
Þingeyjarsýslu 6. júlí 1912. Hún var
talsímavörður hjá Landsímanum á
Akureyri frá 1936 til 1978, en flutti
suður þegar hún var 100 ára. „Ég
ætlaði að búa hjá Áskeli, syni mínum,
en var þar stutt því mjöðmin bilaði,
ég þurfti að fara á sjúkrahúsið og
þaðan fór ég hingað á Skjól í desem-
ber 2012, þar sem ég hef búið síðan.“
Dagurinn hjá Dóru fer að stórum
hluta í að lesa Morgunblaðið. „Ég fæ
allar mínar fréttir úr Mogganum, því
ég sé svo illa á sjónvarpið,“ segir hún.
Bendir á að grein um orkumál eftir
Ara Trausta Guðmundsson, sem birt-
ist 17. maí sl., hafi verið góð. „Ég gæti
vel hugsað mér að sjá hana birta aft-
ur, því hún var svo fróðleg.“
Lengi vel prjónaði Dóra dýr og gaf
ættingjum og öðrum, en nú eru það
pottaleppar. „Þarna er nýjasti
prjónaskapurinn,“ segir hún og bend-
ir á einn slíkan. „Svo les ég mikið,“
heldur hún áfram og dásamar bóka-
safnið á Skjóli. „Ég lærði líka að mála
í handavinnustofunni niðri, en gaf all-
ar myndirnar.“
Ekki gleyma Jóni
Eiginmaður hennar var Þórir Guð-
mundur Áskelsson, sem andaðist
2000. Þau eiga tvö börn, Ásu Drexler,
sem býr í Bandaríkjunum, og Áskel.
„Ég hætti að vinna, þegar sonur Ásu
kom til okkar 14 ára gamall. Ég vissi
að ég gæti ekki gert mikið fyrir hann
með fullri vinnu svo ég sagði bara
upp.“
Dóra gekk alltaf í og úr vinnu. „Við
Þórir eignuðumst fyrsta bílinn 1943
en ég kunni ekkert á bíl,“ rifjar hún
upp. „Einu sinni ætlaði bílstjóri að
kenna mér á bílinn, en ég sá strax að
ég var ekki manneskja til að keyra.
Það náði ekki lengra.“
Heyrnin er farin að bila, en annars
er Dóra við góða heilsu, andlega
hress og minnið gott. Hún man til
dæmis eftir Kötlugosinu 1918 og eftir
að hafa hitt Matthías Jochumsson
skáld. Hún hreyfði sig mikið á árum
áður og tekur nú út það sem hún lagði
inn í heilsubankann. „Ég átti ekki von
á því að verða svona gömul, en ég hef
lifað heilbrigðu lífi, hef hvorki verið í
áfengi né tóbaki. Á meðan ég get lesið
og gengið þarf ég ekki að kvarta. Ég
þarf að vísu alltaf að ganga með
kerru, en ég geng bæði í mat og kaffi
og hef nóg fyrir stafni. Ég þarf ekki
að láta mér leiðast.“ Dóra segir að líf-
ið sé ekki bara „músík og fín föt“ og
ástæða sé til þess að halda nafni Jóns
Sigurðssonar forseta vel á lofti. „Það
er eins og allir hafi gleymt honum. Ég
hef ekki heyrt minnst á hann síðan ég
settist hér inn. Það virðist gleymt að
hann bjargaði landinu, að við urðum
sjálfstætt ríki. Við eigum að halda
áfram að vera Íslendingar og eiga
okkar ríki, ekki gefa það frá okkur.“
Vill ekki samþykkja
þriðja orkupakkann
Dóra Ólafsdóttir er elsti núlifandi Íslendingurinn, 107 ára
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Elsti Íslendingurinn Dóra Ólafsdóttir, sem er 107 ára í dag, er ákveðin og lék við hvern sinn fingur í gær.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019
Hefur þú prófað nýju
kjúklingasteikurnar?
NÝTT OG
SPENNANDI
FRÁ HOLT
A
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Ég vona að okkar barátta komi
bæði til með að hjálpa okkur og öðr-
um sem lenda í sömu stöðu,“ segir
Asadullah Sarwary, hælisleitandi
frá Afganistan.
Vísa átti honum og tveimur son-
um hans, Mahdi og Ali, úr landi síð-
astliðið sunnudagskvöld en brottvís-
uninni var frestað sökum ofsakvíða
sem blossaði upp hjá Mahdi vegna
fyrirhugaðrar brottvísunar.
Seinnipartinn í gær gaf Þórdís
Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
dómsmálaráðherra út breytingar á
reglugerð um útlendinga.
Í henni felst að Útlendingastofn-
un er heimilt, á grundvelli sérstakr-
ar beiðni eða að eigin frumkvæði, að
taka til efnismeðferðar umsókn
barns sem hefur fengið vernd í öðru
ríki, séu meira en tíu mánuðir liðnir
frá því að umsókn barst íslenskum
stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu
hennar séu ekki á ábyrgð umsækj-
andans.
Ellefu mánuðir eru síðan feðg-
arnir sóttu hér um vernd og falla
þeir því undir nýju reglugerðina.
„Ég gerði almennt ráð fyrir því
að við kæmum fram með þessar til-
lögur í ágúst, eftir vinnu undan-
farna mánuði. En í ljósi umræðunn-
ar og vilja ríkisstjórnarinnar til
þess að forgangsraða sérstaklega í
þágu barna ákváðum við að vinna
hraðar til þess að geta komið því á
framfæri þannig að það lægi fyrir,“
segir Þórdís Kolbrún um reglugerð-
ina.
Frábært að sjá fólk mótmæla
Hún samsinnir því að vissulega
hafi umræðan um Sarwary-feðgana
og aðra fjölskyldu sem vísa átti úr
landi, Safari-fjölskylduna sem einn-
ig er frá Afganistan, haft áhrif á
það að Þórdís hafi ákveðið að láta
breytingarnar verða að veruleika.
Fjölmenni mótmælti fyrirhugaðri
brottvísun feðganna og Safari-fjöl-
skyldunnar í fyrradag.
Asadullah mætti á mótmælin og
segir að hann hafi orðið mjög glað-
ur að sjá að Íslendingum stæði ekki
á sama um þeirra mál. „Það var
margt fólk og það var alveg frá-
bært.“
Heimilar upptöku máls feðganna
Breytingar á reglugerð um útlendinga hafa bein áhrif á Sarwary-feðga og
Safari-fjölskylduna Ráðherra segir umræðuna hafa flýtt fyrir breytingunum
Morgunblaðið/Hallur Már
Bræður Mahdi Sarwari, tíu ára (t.h.), og bróðir hans Ali, níu ára. Mahdi var
illa haldinn af kvíða vegna áður fyrirhugaðrar brottvísunar þeirra feðga.
Lögmaður feðganna, Magnús
Davíð Norðdahl, segir í samtali
við mbl.is að öruggt sé að feðg-
unum verði ekki vísað úr landi.
Hann segir feðgana himinlifandi
yfir nýju reglugerðinni og Saf-
ari-fjölskylduna einnig.
„Þau fengu ekki efnis-
meðferð og ekki var litið til að-
stæðna þeirra í heimalandi
þeirra,“ segir Magnús Davíð.
„Nú fá þau slíka meðferð og þá
taka lögmenn Rauða krossins
við málinu á ný og fylgja því eft-
ir,“ segir hann.
„Ég held að það sé borðleggj-
andi að báðar fjölskyldur fái al-
þjóðlega vernd,“ segir Magnús
Davíð.
Öruggt að
þeir fái vernd
VIÐBRÖGÐ LÖGMANNS
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Efling hefur skrifað undir endur-
skoðaða viðræðuáætlun við Reykja-
víkurborg. Þar kemur fram að við-
ræður verða teknar upp að nýju um
miðjan ágúst og fyrirhugað er að
klára kjarasamning fyrir 15. septem-
ber. Á vef Eflingar kemur fram að
vegna þeirra tafa sem verið hafa á
samningsgerð fái starfsmenn
greidda innágreiðslu á kjarasamning
þann 1. ágúst upp á 105.000 kr.
Upphæðin greiðist hlutfallslega
miðað við starfstíma og starfshlutfall
á tímabilinu frá og með 1. apríl 2019
til og með 30. júní 2019. Þá er einnig
tekið fram að Efling hafi setið
nokkra fundi með Reykjavíkurborg
en enginn árangur hefur náðst í
þeim viðræðum. „Er það m.a. vegna
þess að borgin neitar að ræða um
raunstyttingu vinnutímans sem
kemur mjög á óvart þar sem Reykja-
víkurborg hefur verið í fararbroddi
tilraunaverkefnis um þannig stytt-
ingu, með mjög góðum árangri.
Þessum árangri hefur borgin hamp-
að á málþingum og fundum,“ segir á
vef Eflingar.
Viðræðum Eflingar við Samband
íslenskra sveitarfélaga hefur verið
vísað til ríkissáttasemjara. Á samn-
ingafundum Eflingar við ríkið hefur
verið rætt um styttingu vinnuvik-
unnar og leggur félagið mikla
áherslu á að í þessum samningum
náist raunstytting á vinnutíma, segir
á vef Eflingar.
Samninganefnd Eflingar telur því
augljóst að hér komi ekki til greina
að slá af kröfum.
Viðræðum frestað
um rúman mánuð
105.000 kr. greiðsla fyrir starfsfólk
Morgunblaðið/Ómar
Kjaramál Viðræðum Eflingar og
Reykjavíkurborgar frestað.