Morgunblaðið - 06.07.2019, Side 4

Morgunblaðið - 06.07.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019 GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is www.gimli.is Við vitum hvað þín eign kostar Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Fylkir Þórisson, sem er á 78. aldurs- ári, gengur nú lengstu pílagrímsleið í Noregi, Veg Ólafs helga, frá Osló til Þrándheims. Er leiðin 643 kílómetrar að lengd og var ein mikilvægasta píla- grímsleið í Evrópu á miðöldum. Leið- ina gengur Fylkir einsamall, að frá- töldum fyrsta og síðasta deginum en yngsta systir hans, Þorbjörg Þóris- dóttir, sem búsett er í Osló, gekk með honum fyrsta dag ferðalagsins og hyggst slást í för með honum þann síðasta. Fylkir segir að fjölskylda hans á Íslandi, systkini, börn og barnabörn, fylgist grannt með ferð- inni í gegnum samfélagsmiðilinn In- stagram sem Fylkir notar til að deila myndum af ferðalaginu. „Ég er bara að athuga hvort ég geti gert þetta á mínum aldri,“ segir Fylk- ir spurður hvers vegna hann hafi lagt af stað í þennan langa leiðangur. „Svo átti ég vísa gistingu á báðum endum. Systir mín býr í Osló og sonur hennar í Þrándheimi,“ segir Fylkir. „Ég er alltaf eitthvað að ganga. Ég geng svona fimm til tíu kílómetra á hverjum degi,“ segir hann og bætir við að mikilvægt sé að hreyfa sig þeg- ar fólk fari að eldast. Skemmtilegast að kynnast fólki Fylkir lagði af stað frá Osló 10. júní síðastliðinn og býst við að verða kom- in til Þrándheims 10. júlí næstkom- andi. Hann segist vera á undan áætl- un og kveðst hafa búist við því að verða lengur á leiðinni en hann hafi verið. „Ég er að stinga af miklu yngra fólk en ég er. Ég er búin að losna við heilmikið af samferðafólki sem hefur tekið sér hvíldardaga,“ segir Fylkir og bætir við að hann hafi aðeins tekið sér einn hvíldardag frá 10. júní. Fylkir segir að það sem honum þyki skemmtilegast á göngunni sé að kynnast nýju fólki, bæði fólki sem er að ganga pílagrímsleiðina og fólki í móttöku á gististöðum og í fjallakof- um sem eru víða á leiðinni. „Maður hittir fjölda fólks frá hinum og þessum þjóðum sem er að koma sérstaklega til að ganga þessa leið. Ég er búinn að ganga lengi með bæði Belgíumanni og stúlku frá Sviss,“ segir Fylkir. Hann bætir við að nátt- úran sé auk þess mjög falleg og að gamlar stafkirkjur og ýmsar minjar frá víkingatímanum séu víða á leið- inni sem gaman sé að skoða. Segist Fylkir hafa orðið var við nokkurt dýralíf á ferð sinni en kveðst hvorki hafa komið auga á moskusuxa né elgi. Hann hafi þó séð nokkur dádýr og rekist á tvær rjúpur í Dofrafjöllum sem hann er nýlega búinn að ganga yfir. Fylkir segir að kalt hafi verið á leiðinni miðað við árstíma en á fjöll- um fór hiti niður í -1 gráðu. Segir hann þó að ferðin hafi gengið mjög vel og að hann hafi hvorki látið kulda né aldur hindra sig. Hann kveðst þó vera farinn að hlakka nokkuð til að komast á leið- arenda. „Þetta er nú alveg orðið nokkuð gott,“ segir hann og hlær. Þrándheimur Osló Fylkir Þórisson lagði 10. júní í gönguna frá Osló og áætlar að koma 10. júlí til Þrándheims. Leiðin er um 640 km. Vegur Ólafs helga frá Osló til Þrándheims Kortagrunnur: Wikimedia Commons/Carta Marina Ljósmynd/Fylkir Þórisson Göngugarpur Myndin var tekin 1. júní, þá átti Fylkir 208 kílómetra göngu eftir til Þrándheims en þangað liggur pílagrímsleiðin sem hann gengur. Gengur 643 kílómetra með rúm tvö ár í áttrætt  Fylkir stingur miklu yngra fólk af á Vegi Ólafs helga Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Mönnunarvandi er ástæðan fyrir því að 15 af 31 rúmi á geðdeild Landspít- ala (LSH) númer 33A verður lokað og munu standa lokuð næstu fjórar vikurnar. Fjárskortur á deildinni er ekki ástæðan. Þetta segir Páll Matt- híasson, forstjóri LSH, í samtali við Morgunblaðið um sumarlokanir á of- annefndri geðdeild LSH sem fjallað var um í Morgunblaðinu í gær. Mönnunarmálin batna ekki „Þetta er eitthvað sem hefur verið gert á hverju ári í að minnsta kosti áratug. Ástæðan er mönnunarvandi, einkum vegna hjúkrunarfræðinga. Það er málið. Þetta er klínísk þjón- usta sem við viljum hlúa að og efla og fjárskortur spilar þar ekki inn í með beinum hætti,“ segir Páll. Hann segir það ekki vera ný tíð- indi að vöntun sé á hjúkrunarfræð- ingum og segir: „Mönnunarmálin hafa því miður ekki verið að batna. Mönnun- arvandi vegna hjúkrunarfræðinga er mjög víða.“ Í viðtali við Morgunblaðið í gær sagði María Einisdóttir, fram- kvæmdastjóri geðsviðs LSH, að al- gengasta ástæða þess að fólk væri lagt inn á deildina væri sjálfsvígs- hætta. Um þetta segir Páll: „Þetta er almenn móttökugeðdeild. Ef þú ert í sjálfsvígshættu þá leggstu annað- hvort inn á þessa deild eða svokall- aða bráðageðdeild, sem er með enn meiri gæslu. Þeir sem eru í mestri hættu fara þangað. Það er alltaf for- gangsraðað og fólk sem er í alvar- legri sjálfsvígshættu kemur alltaf inn.“ Geta ekki dekkað sumarfríin Spurður frekar um ástæðurnar sem liggja að baki ákvörðuninni svarar Páll: „Hásumarið er sá tími sem fólk fer í frí og við þurfum að loka hluta deildarinnar.“ Þá nefnir hann að í ár sé hluti deildarinnar lok- aður í styttri tíma en undanfarin ár. „Við myndum vilja hafa deildina opna en þetta þurfum við að gera víða á spítalanum. Við erum að loka töluverðum fjölda rúma og það er gert vegna skorts á starfsfólki. Við höfum ekki umframmönnun og náum ekki að ráða að öllu leyti inn í sumarafleysingar til að dekka sum- arfrí.“ Þá segir Páll að að einhverju leyti dragi úr álagi yfir hásumarið. „Það dregur aðeins úr því á geðsviði, en ekki mikið.“ Betra en að „smyrja þunnt“ Spurður hvort unnt sé að flytja starfsfólk milli deilda til að manna stöður svarar Páll: „Það er verið að gera það töluvert. Við erum alltaf að reyna að besta mannskapinn. Til að tryggja öryggi í þjónustu er stund- um betra, í stað þess að smyrja starfsfólki mjög þunnt, að þétta það saman á einum stað og hafa þjónustu fullnægjandi þar.“ Í samtali við Morgunblaðið vísaði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra spurningum um málið til Páls og vildi ekki tjá sig um það. Mannekla ástæða lokananna Páll Matthíasson  Fjárskortur ekki ástæða þess að hluti geðdeildar 33A er lokaður næsta mánuðinn Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Útlit er fyrir góða berjasprettu þegar líður á sumarið og líkur á að hægt verði að líta í berjamó á sunnan- og vestanverðu landinu eftir rúman mán- uð. Þetta segir Sveinn Rúnar Hauks- son, læknir og einn helsti berja- sérfræðingur landsins. Hann segir mikla bjartsýni ríkjandi hjá berjaáhugafólki sunnan- og vestanlands eftir mikla ótíð undan- farin ár en algjör berjabrestur var, að sögn Sveins, á vestanverðu landinu í fyrra. Sætukopparnir lofa góðu „Ég á bara von á góðu. Það verð- ur ekki fyrr en um miðjan ágúst sem við getum farið að taka fram ílátin en á sumum stöðum má fara að líta í kring- um sig í byrjun ágúst, svona í hand- tínslu. En maður fer kannski ekki í neina stórútgerð fyrr en í lok ágúst,“ segir Sveinn. „Við höfum aldeilis feng- ið sólina og hlýjuna í maí, júní og það sem af er þessum mánuði. Ég heyri úr ýmsum áttum, sérstaklega hér sunn- anlands, að sætukopparnir hafa verið að lofa góðu um bláberjasprettuna,“ segir Sveinn og bætir við að sjálfur hafi hann orðið var við fallega sætu- koppa í Elliðaárdalnum, á Mýrunum og í Eldborgarhrauni í júnímánuði. „En maður veit aldrei alveg. Það er ekki alltaf treystandi á sætukopp- ana. Þeir þurfa jú að verða að berjum en þegar verðrið er svona, sérstaklega hlýindin í maí og júní þá má mikið vera ef lyngið ætlar að bregðast okkur,“ segir Sveinn og hlær. Hann segist lítið hafa heyrt um berjahorfur á austanverðu landinu en býst við að þar gæti berjasprettan orð- ið verri en annars staðar vegna veðurs. Þarf ekki að fara langt „Ég á von á því að fyrsta sprettan verði á fallegum og góðum berja- stöðum í Borgarfirði, í Dölunum, á sunnanverðum Vestfjörðum og svo hreinlega hér um sunnanvert landið,“ segir Sveinn og bætir við að gott berja- land sé að finna í Grímsnesi og á Þing- völlum. „Svo er um að gera að kíkja í Esjuna og fara fyrir ofan bæinn í Heið- mörk og þangað sem kallað var Geit- hálsinn hér áður fyrr. Þar eru berja- lönd. Það þarf ekki að fara langt.“ Von á góðri berjasprettu Morgunblaðið/Ómar Bláber Mikil bjartsýni ríkir um að berjaspretta verði góð í haust.  Líkur eru á að stutt sé í berjatíð Lögreglan á Krít hefur handtekið tvo þýska karlmenn sem grunaðir eru um að hafa nauðgað 19 ára ís- lenskri konu í bænum Hersonissos í síðasta mánuði. Báðir karlmennirnir, sem eru 34 ára og 38 ára, neita sök og segjast aldrei hafa hitt konuna. Greint er frá málinu í The Greek City Times en DV fjallaði um málið í gær. Konan var í fríi á eyjunni og hitti hún mennina tvo á veitingastað. Þar fengu þeir hana til að koma með sér út af staðnum og leiddu hana áleiðis í húsasund þar sem þeir réðust á hana og skiptust á að nauðga henni. Menn- irnir flúðu síðar af vettvangi og komst konan til baka á hótelið þar sem hún gisti, en hún var mjög skelk- uð. Konan tilkynnti nauðgunina til lögreglu og gekkst undir læknis- skoðun. Stuttu síðar voru mennirnir handteknir. Íslenskri konu nauðg- að á Krít

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.