Morgunblaðið - 06.07.2019, Síða 16

Morgunblaðið - 06.07.2019, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019 ÚTSALA verslunin.companys companyskringlan 30–40% AFSLÁTTUR STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Hvar er laxinn? spyrja veiðimenn sem veiðileyfasalar sig þessa dagana og ekki að undra, myndin sem töl- urnar draga upp af laxveiðinni til þessa er ekki ýkja björt. Af fimmtán aflahæstu ánum og veiðisvæðunum til þessa hefur aðeins veiðst meira nú í einni, Eystri-Rangá, en á sama tíma í fyrra. Og aðeins veiðst betur í tveimur en á sama tíma fyrir tveim- ur árum. Og hér er ekki einungis hægt að kenna hinum fordæmalausu þurrkum í júnímánuði um, því það hefur líka veiðst minna í ám í öðrum landshlutum. Sem beinir sjónum að hafinu: hvernig reiddi þeim seiðum af sem gengu til hafs í fyrra? „Menn hafa eðlilega áhyggjur,“ sagði einn viðmælenda úr hópi veiði- manna í gær. Og annar, Ingólfur Ás- geirsson staðarhaldari við Þverá og Kjarrá, sagði stöðuna vissulega und- ir væntingum en hvatti fólk jafn- framt til að bíða aðeins með að fella dóma um laxagöngur sumarsins, það gætu enn komið góðar göngur í júlí. „Veiðitölur endurspegla ekki hvað er gengið í árnar á Vesturlandi, alls ekki,“ sagði Haraldur Eiríksson hjá Hreggnasa þar sem hann var við Laxá í Kjós í gær, en hún er æði vatnslítil. „Svona er veiðin og ég er pollrólegur,“ bætti hann við og sagði góðar fréttir, að þegar aðeins þykkn- aði upp yfir Grímsá í Borgarfirði og Kjósinni í fyrradag þá „sprautaðist“ smálaxinn inn, fyrstu raunverulegu smálaxagöngurnar í báðar ár. „Og nú eru skyndilega 50 laxar í Kvísl- arfossi. Fyrir vikið er betra hljóð í okkur en fyrir tveimur dögum. Það hefur staðið illa á straumum og að- stæðurnar verið erfiðar, ætli hin hefðbundna Jónsmessuganga sé ekki bara að koma fyrst núna,“ sagði hann. Betra en takan sýnir Ingólfur sagði svipaða sögu ofan úr Borgarfirði: „Það eru ágætar göngur núna í Þverá,“ sagði hann, „betri göngur en takan sýnir og það á sér einhverjar skýringar. Það eru nú um hundrað laxar telja menn í Kaðalstaðahyl,“ en það er einn besti veiðistaðurinn í neðsta hluta Þverár. Ingólfur bætti við að besti dagur sumarsins til þessa í Þverá og Kjarrá hefði verið á miðvikudag er 19 var landað, 10 náðust síðan á fimmtudag. „Hollið sem er nú í Þverá er komið með eina 15 eftir fjórar vaktir,“ sagði hann. Og fall- egir stórir laxar eru inni á milli í afl- anum, 84, 89 og 96 cm laxar. Þegar horft er á veiðitölurnar í Þverá og Kjarrá til þessa voru þær á miðvikudag aðeins rúmlega tíu pró- sent þess sem hafði veiðst á sama tíma í fyrra, en það verður að taka tillit til þess að áin var ekki fiskgeng í júnímánuði. Það er fyrst nú á síð- ustu dögum, eftir að tók að rigna, að fiskur hefur getað þokast upp ána. Laxinn hefur því þurft að bíða í Brennu, ármótunum í Hvítá, en þar er veitt með þremur stöngum. 107 hafði verið landað þar á miðvikudag á stangirnar þrjár sem er gott en samt minna en síðustu ár. Absúrd sjóbirtingsár „Við sjáum laxinn bíða við ósa Laxár og Dölum og Laxár í Kjós,“ sagði Haraldur Eiríksson og líkti því við störukeppni sem myndi ekki ljúka fyrr en aðstæður breyttust til batnaðar og laxinn kæmist upp í árn- ar. Því þegar þeir koma, eins og í Laxá í Dölum smá ganga í gærkvöldi, þá fengu veiðimenn þar neðst í ánni strax fimm. „En sjóbirtingurinn hefur heldur betur gengið óhikað hér í Kjós,“ bætti hann við og að meðalvigt veidds birtings fyrstu viku veiðinnar hefði verið um tíu pund. „Það er eins og tveggja ára lax, bara sterkari. Það stefnir í absúrd ár hér hvað sjóbirt- ingsgöngur varðar.“ En hvað laxinn varðar hvatti Har- aldur menn til að vera rólega og minnti á að svipað hafði veiðst í Kjós- inni á þessum tíma sumrin 2007 og 2014 en þá urðu lokatölur í ágætu meðaltali. Nú er veiði hafin í öllum ám á norð- austurhorninu. Í Svalbarðsá veiddust fjórir í fyrsta hollinu en fyrsta alvörugangan birtist á miðvikudag og þá veiddust tíu á stangirnar tvær, átta stórlaxar og tveir smálaxar en þeir mæta því snemma þar í ár. Besta veiðin í sumar hefur verið á því svæði sem var opnað fyrst, við Urriðafoss í Þjórsá, en misgóð eftir dögum. Stundum er áin ærið moruð og þá vill veiðin vera lakari. Veiðin í Rangánum fer misvel af stað en betur veiðist nú í þeirri eystri en á sama tíma undanfarin ár, og mikið veiðist af rígvænum tveggja ára laxi sem gleður veiði- menn. Og ekki eru allir stangveiðimenn með lax á heilanum því sumir kjósa silunginn. Þeir hafa margir verið kátir undanfarið, til að mynda sá sem mokaði upp urriða á Skagaheiði og birti stoltur mynd af aflanum, yfir þrjátíu fiskum, á samfélagsmiðlum, og annar sem veiddi þrjár bleikjur í góðri á í Öxarfirði í fyrrakvöld í híf- andi roki, hverja á eftir annarri á sömu fluguna, Ölmu Rún: 52, 56 og 60 cm langar. Draumaveiði það. „Menn hafa eðlilega áhyggjur“  Afar rólegt yfir laxveiðinni  Fyrstu smálaxagöngur loks mættar í Grímsá og Kjósina  Haraldur Eiríksson hjá Hreggnasa bendir á að aðstæður hafi verið einstaklega erfiðar  „Er pollrólegur“ Morgunblaðið/Einar Falur Eftirsóttir Hilmar Jónsson háfar fallegan hæng í Fosshyl í Selá en hann tók flugu veiðimannsins Sams Ratcliffe fyrsta veiðidag sumarsins í ánni. Afl ahæstu árnar Heimild: www.angling.is 0 100 200 300 400 Staðan 3. júlí 2019 Veiðivatn Stanga- fjöldi Veiði 4. júlí 2018 5. júlí 2017 Urriðafoss í Þjórsá 4 427 577 435 Eystri-Rangá 12 235 86 98 Blanda 14 135 299 371 Miðfjarðará 6 118 320 451 Brennan (í Hvítá) 3 107 188 150 Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki 12 93 208 365 Þverá - Kjarrá 14 91 843 656 Haffjarðará 6 91 320 312 Elliðaárnar 6 81 228 238 Laxá í Aðaldal 17 70 113 100 Grímsá og Tunguá 8 66 175 133 Norðurá 15 55 557 575 Víðidalsá 8 36 76 148 Langá 12 35 195 331- Flókadalsá 3 33 82 141 Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur komist að þeirri niðurstöðu að Baldur Arnarson blaðamaður og rit- stjórn Morgunblaðsins teljist hafa brotið siðareglur félagsins í umfjöllun um starfslok Auðuns Freys Ingvars- sonar, fyrrverandi framkvæmda- stjóra Félagsbústaða hf. Séu brotin ámælisverð. Frétt um starfslokin birtist í Morg- unblaðinu og á mbl.is þann 4. mars sl. Auðun kærði til til Siðanefndar og kvartaði yfir því, að fréttaefnið hefði ekki verið borið undir hann áður en fréttin birtist. Einnig beindist kvört- un hans að efnishlið fréttarinnar. Í úr- skurði siðanefndar kemur fram að Auðun ritaði bréf til ritstjórnar Morg- unblaðsins 11. mars og fór m.a. fram á að grein sem fylgdi bréfinu yrði birt í blaðinu. Ekki var orðið við því. Í Morgunblaðinu 11., 13. og 14. maí var frekari umfjöllun um málið og 15. maí birti blaðið grein eftir Auðun þar sem hann fjallar um málið. Í niðurstöðu siðanefndar segir að siðareglur leggi engar sérstakar kvaðir á blaðamenn um að bera efni frétta undir þá sem fjallað er um, en að telja eigi blaðamanni skylt að bera frétt undir aðila máls ef telja megi að fréttin skaði hann eða sé honum til vanvirðu. Er það álit nefndarinnar að Baldur Arnarson, sem skrifaði frétt- ina, hafi ekki vandað upplýsingaöflun sína og ekki sýnt fyllstu tillitssemi í vandasömu máli. Einnig telur nefndin að umfjöllun um ástæðu starfsloka Auðuns beri merki um að ekki hafi verið vandað til upplýsingaöflunar. Nefndin segist þó ekki geta amast við því að þar sé getið um aðrar ástæður starfsloka en þær sem Auðun vilji halda á lofti. Hið sama eigi við um trúnaðarskýrslu sem blaðamaður virðist hafa undir höndum og það að blaðamaður kjósi að lýsa óánægju ótilgreindra aðila sem megnri. Loks segir siðanefnd að ritstjórn Morgunblaðsins hafi ekki brugðist við réttmætri kvörtun Auðuns þegar hann vakti athygli hennar á að blaða- maður hefði ekki haft samband við hann við vinnslu fréttarinnar, með því að gera strax grein fyrir sjónarmiðum Auðuns eða birta grein sem hann ósk- aði eftir að yrði birt. Hafi ritstjórnin því ekki sýnt honum fyllstu tillitssemi svo sem ætlast verði til og 3. grein siðareglna BÍ boði. Í siðareglum BÍ segir að siðanefnd greini brot í flokka eftir eðli þeirra: a) ámælisvert, b) alvarlegt og c) mjög al- varlegt. Sé óskað eftir birtingu í við- komandi fjölmiðli ef um brot sam- kvæmt skilgreiningu b) og c) sé að ræða. Fyllsta tillits- semi ekki sýnd

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.