Morgunblaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is • Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Einnig getum við úvegað startara og alternatora í allskonar smávélar frá Ameríku Rafstilling ehf er sérhæft verkstæði í alternator og startaraviðgerðum. Við höfum áratuga reynslu í viðgerðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Verkstæðið er með öll nauðsynleg tæki og tól til þessara verka. Allir viðgerðir hlutir eru prófaðir í prufubekk til að tryggja að allt sé í lagi. Þeim er einnig skilað hreinum og máluðum. Áratug a reynsla VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Störf bændanna í Lambhaga á Rang- árvöllum breytast mikið á næstu dögum þegar þeir taka í notkun nýtt og tæknivætt fjós. Öll líkamlega erf- iðustu störfin verða unnin með sjálf- virkum vélum og tölvubúnaði. Bænd- urnir geta einbeitt sér að eftirliti og stjórnun framleiðslunnar fram í tím- ann. Opið fjós verður í Lambhaga í dag. „Við erum að auðvelda okkur störfin. Við getum þá einbeitt okkur að því að stýra framleiðslunni þannig að húsið nýtist til fulls og hver gripur skili sem mestu. Með stækkun er einnig verið að bæta velferð dýr- anna,“ segir Ómar Helgason, bóndi í Lambhaga. Bræðurnir Ómar og Björgvin og konur þeirra Margrét Harpa Guðsteinsdóttir og Dóra Steinsdóttir standa að Lambhaga- búinu ehf. ásamt móður þeirra bræðra, Sjöfn Guðmundsdóttur. „Svo eigum við báðir fjögur börn þannig að það standa margir að þessu,“ segir Ómar. Geta borðað með börnunum Eldra fjós er fyrir í Lambhaga og hefur oft verið byggt við það og húsið lagfært. Það er að verða úrelt og sjá bændurnir enga framtíð í því. Það nýtist þó áfram, meðal annars fyrir uppeldi gripa. Bygging nýja fjóssins hefur tekið ár en áður höfðu þau undirbúið fram- kvæmdina í heilt ár. Fjósið er um 1.700 fermetra hús, ætlað fyrir 140- 150 mjólkurkýr, auk smákálfa. Þar er aðstaða fyrir geldkýr og meira að segja velferðardeild fyrir kýr sem þarfnast sérstaks eftirlits. Tveir mjaltaþjónar eru í fjósinu, sjálfvirkt gjafakerfi sem saxar niður heyið og blandar í það steinefnum eftir þörfum og gefur úr vagni mörg- um sinnum á dag. Og sópar fóður- ganginn. Þá sér sjálfvirk flórskafa um skítmoksturinn. Myndavélakerfi er í fjósinu sem hægt er að fylgjast með í símanum. Ómar segir að þægi- legt sé að geta litið í símann og það spari fýluferðir í fjósið, til dæmis þegar verið er að bíða eftir burði. Ómar bætir því við að nýja fjósið auki möguleika þeirra bræðra á að vera með fjölskyldum sínum. „Við munum hitta börnin okkar meira. Það er varla að við höfum borðað með þeim kvöldmat.“ Fjósbyggingin hefur verið undir- búin með því að fjölga gripum. Bændurnir hafa því ágætan stofn til að flytja í nýja fjósið. Framleiðslu- rétturinn er þó ekki nægur til að fullnýta bygginguna og standa und- ir aukinni nyt með tilkomu mjalta- þjóna. Erfitt er að bæta úr því vegna mikilla takmarkana á framsali kvóta. Alltaf óvissa í landbúnaði Ómar er oft spurður að því hvort ekki sé varasamt að leggja út í 250 milljóna króna fjárfestingu eins og staðan er í landbúnaði. Hann svarar því til að svona hafi ástandið verið frá því hann man eftir sér. Aldrei hafi verið gott að búa, alltaf einhver óvissa framundan, of stuttir búvöru- samningar, tollamál og innflutningur og ekki víst hvað megi framleiða mik- ið. „Annaðhvort er að ráðast í þessa framkvæmd eða draga saman.“ Margrét kona hans segir að þau hafi öll óbilandi trú á íslenskum land- búnaði og telji að trú neytenda og skilningur fari vaxandi. Ómar bendir á að alltaf sé hægt að finna ódýrari vörur erlendis. „Af hverju erum við að flytja inn vörur, yfir hálfan hnött- inn, vörur sem við getum framleitt á Íslandi? Þetta skiptir líka máli fyrir loftslagið, kolefnisspor innfluttra matvæla er meira en innlendra,“ seg- ir Margrét og Ómar bætir því við að landbúnaðurinn skipti ekki aðeins máli fyrir bændur heldur einnig þétt- býlið þar sem fjöldi fólks hafi vinnu við þjónustu við landbúnað. Vélar vinna öll erfiðustu störfin  Mikil sjálfvirkni er í nýju fjósi sem byggt hefur verið í Lambhaga á Rangárvöllum  Opin fjós í dag  Bændurnir einbeita sér að því að stýra framleiðslunni og sjá til þess að hver gripur skili sem mestu Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Lambhagi Hjónin Dóra og Björgvin og Ómar og Margrét og með börnum sínum framan við nýja fjósið. Sjöfn móðir þeirra bræðra stendur einnig að búinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.