Morgunblaðið - 06.07.2019, Page 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019
Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta
Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda
og hagræða málin fyrir húsfélög
Traust - Samstaða - Hagkvæmni
eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005
Ráðgjöf
Veitum faglega ráðgjöf
til húsfélaga
Bókhald
Höfum umsjón með
bókhaldi fyrir húsfélög
Þjónusta
Veitum persónulega þjónustu
sem er sérsniðin að hverju
og einu húsfélagi
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
mið tilskipunarinnar er að marka
betur reglur sem gilda um fjártækni-
fyrirtæki og greiðslumiðlun. Með því
munu fleiri fyrirtæki, þar á meðal
fjártæknifyrirtæki, geta veitt upp-
lýsingar sem bankar bjuggu einir að
áður. Þá hafa sérfræðingar varað við
því að verðmæti banka kunni að
rýrna svo um munar sé ekki brugðist
rétt við. Spurður hvort hann óttist að
eignarhlutur ríkisins í bönkunum
rýrni á næstu árum segir Bjarni að
ekki sé hægt að útiloka það. Bankar
séu þó í góðri stöðu til að innleiða
tæknina og halda þannig í við þró-
unina.
„Allir bankar gera sér grein fyrir
því að örar breytingar hafa átt sér
stað og munu eiga sér stað í fjár-
málaheiminum. Fjártæknin er einn
angi þessara breytinga og bankarnir
hafa verið að innleiða tæknina. Með
því hafa þeir reynt að grípa tækifær-
in sem í henni felast. Það er eins í
þessu og öðru, þeir sem sitja eftir
verða fyrir tjóni. Það er ekki gott að
segja á þessari stundu hvort verð-
mæti bankanna geti rýrnað vegna
uppgangs fjártækni, en það er ekki
útilokað. Ég held að það sé óhætt að
segja að allar líkur séu á því að þeir
bankar sem sitja eftir og ekki fylgja
þróuninni muni lækka í verðmæti,“
segir Bjarni og bætir við að Sjálf-
stæðisflokkur hafi talað fyrir því að
selja eignarhlut íslenska ríkisins í
bönkunum. „Við höfum talað um að
ríkið losi um eignarhald sitt í bönk-
unum og sú vinna er í farvegi.Ég er
þeirrar skoðunar að til lengri tíma
litið þá myndi það duga íslenska rík-
inu að fara með hlut í einum kerf-
islega mikilvægum banka. T.d. til að
tryggja að höfuðstöðvar hans væru á
Íslandi,“ segir Bjarni.
Staðan óbreytt frá því í janúar
Í janúar fyrr á þessu ári kom fram
í viðtali við Bjarna að mikilvægt væri
fyrir ríkið að draga úr umfangsmiklu
eignarhaldi sínu á bönkunum. Að
hans sögn er staðan óbreytt frá þeim
tíma. Vonir standi þó til að hægt
verði að hefja söluferlið á kjörtíma-
bilinu. „Það væru vonbrigði að hefja
ekki söluferli bankanna á þessu kjör-
tímabili,“ segir Bjarni sem telur vel
gerlegt að fara í árangursríka skrán-
ingu á markað líkt og gert var í til-
felli Arion banka. Þá kveðst hann
vongóður um að hægt sé að fá hag-
stætt verð fyrir bankana. „Ég held
að það sé óvitlaus nálgun að miða við
markaðsvirði Arion banka. Með því á
ég við að við getum fengið sama
margfeldi eigin fjár fyrir hina bank-
ana tvo,“ segir Bjarni.
P/B (Price to book) hlutfall Arion
banka er 0,72. Sé horft til uppgjörs
fyrstu þriggja mánaða hjá hinum
bönkunum ásamt því að miða við
sama P/B hlutfall, er verðmæti bank-
anna um 300 milljarðar króna. Mark-
aðsverðmæti Landsbankans væri þá
tæpir 180 milljarðar kr. og Íslands-
banka rétt rúmir 120 milljarðar kr.
Enginn lýst yfir áhuga
Bankar Svo virðist sem nær enginn áhugi sé á íslensku ríkisbönkunum.
Fjármálaráðherra segist ekki vita til þess að áhugi sé á ríkisbönkunum Engin
tillaga um söluferli borist frá Bankasýslu ríkisins Fjártækni geti rýrt verðmæti
FRÉTTASKÝRING
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Ég veit ekki til þess að aðilar hafi
sýnt bönkunum áhuga. Bankasýsla
ríkisins heldur á eignarhlutum rík-
isins í bönkunum og mér er ekki
kunnugt um að nokkur aðili hafi lýst
yfir áhuga á að kaupa bankana í heilu
lagi,“ segir Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra. Vísar hann í máli
sínu til söluferlis Landsbanka og Ís-
landsbanka, en til hefur staðið að
selja bankana í nokkur ár.
Lítil hreyfing hefur verið á málinu
síðustu misseri. Að sögn Bjarna er
þess beðið að tillaga um sölu bank-
anna berist frá Bankasýslu ríkisins.
Slík tillaga hefur enn ekki borist, en
nú eru liðin fimm ár frá því að stofn-
unin átti upphaflega að vera lögð nið-
ur. „Við bíðum þess að það komi til-
laga frá Bankasýslu ríkisins um að
hefja söluferli bankanna. Sú tillaga
hefur ekki enn borist. Ferlið fer ekki
af stað fyrr en tillagan hefur verið
lögð fram og það er erfitt að segja til
um hvenær það verður,“ segir
Bjarni.
Mikilvægt að fylgja þróuninni
Líkt og komið hefur fram í um-
fjöllun Morgunblaðsins undanfarnar
vikur styttist nú óðum í innleiðingu
nýrrar tilskipunar Evrópusam-
bandsins, PSD2, hér á landi. Mark-
verkefni sé að ræða. „Þetta er
hugsað sem flottur veitingastaður
þar sem verði er stillt í hóf. Við
viljum að fólk geti t.d. komið
þarna áður en það fer út að
skemmta sér,“ segir Pálmar.
Nýr aðili kom inn í viðræðurnar
Líkt og ViðskiptaMogginn greindi
frá í síðustu viku átti Þingvangur í
viðræðum við tvo aðila um aðkomu
að rekstri í húsnæðinu. Pálmar
segir að slitnað hafi upp úr við-
ræðum við báða. Þeirra í stað kom
nýr aðili að samningsborðinu, sem
vinnur nú að því að fá fleiri með
sér í verkefnið. „Viðræðurnar við
hina duttu upp fyrir og þriðji aðili
kom inn í myndina. Við erum sátt-
ir við það og nú er sá aðili að
kanna hvort hann geti fengið fleiri
með sér í verkefnið. Við viljum
auðvitað fyrst og fremst fá góðan
leigjanda og erum alveg til í að
vera með í „startinu“ ef þörf er á,“
segir Pálmar. aronthordur@mbl.is
Ráðgert er að nýr veitingastaður
sem koma mun í stað Skelfisk-
markaðarins í nýbyggingunni við
Klapparstíg verði opnaður í haust.
Þetta segir Pálmar Harðarson,
eigandi og framkvæmdastjóri
verktakafyrirtækisins Þingvangs.
Fram undan eru lítilsháttar breyt-
ingar á innréttingum húsnæðisins,
sem vonir standa til að klárist í
haust. „Þetta eru algjörar minni-
háttar breytingar. Því verður
þetta í raun nýr rekstur í núver-
andi húsnæði með að mestu
óbreyttum innréttingum. Menn
hafa tekið þessu rólega enda vilj-
um við vanda til verka. Staðurinn
verður því aldrei opnaður fyrr en
kannski í september,“ segir Pálm-
ar og bætir við að um spennandi
Nýr aðili í stað Skelfiskmarkaðarins
Veitingastaður opnaður með haustinu
Morgunblaðið/Valli
Veitingastaður Nýr staður kemur í stað Skelfiskmarkaðarins í haust.
● Vöruviðskipti júnímánaðar voru
óhagstæð um 22,8 milljarða króna.
Nam verðmæti vöruútflutnings 46,5
milljörðum króna og innflutnings 69,3
milljörðum króna. Þetta kemur fram í
bráðabirgðatölum Hagstofunnar.
Vöruviðskipti reiknuð á fob-verðmæti
voru því óhagstæð um 22,8 milljarða
króna. Sé horft aftur til júnímánaðar í
fyrra voru viðskiptin óhagðstæð um
20,2 milljarða króna á gengi hvors árs.
Mest lækkun milli ára var í við-
skiptum með iðnaðarvörur, en verð-
mæti vöruútflutnings í júní var um fjór-
um milljörðum króna lægra en á sama
tíma í fyrra. Mesta lækkun í innflutningi
var í eldsneyti, smurolíu og neysluvör-
um.
Vöruviðskipti verulega
óhagstæð í júnímánuði
6. júlí 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 125.23 125.83 125.53
Sterlingspund 157.5 158.26 157.88
Kanadadalur 95.73 96.29 96.01
Dönsk króna 18.932 19.042 18.987
Norsk króna 14.661 14.747 14.704
Sænsk króna 13.429 13.507 13.468
Svissn. franki 127.0 127.7 127.35
Japanskt jen 1.1612 1.168 1.1646
SDR 173.41 174.45 173.93
Evra 141.3 142.1 141.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.5458
Hrávöruverð
Gull 1415.25 ($/únsa)
Ál 1754.0 ($/tonn) LME
Hráolía 63.88 ($/fatið) Brent
● Icelandair hækk-
aði mest allra fé-
laga í kauphöllinni í
gær, eða um 2,9% í
152 milljóna króna
viðskiptum.
Alls hefur verð
bréfanna hækkað
um 4,38% frá ára-
mótum, en gengið
stendur nú í 10,29
kr.
Litlar hreyfingar voru á verði í kaup-
höllinni í gær en næstmest var hækk-
unin hjá Símanum eða 0,67% í 112
milljóna króna viðskiptum.
Mest var lækkunin hjá Origo eða
1,57% í 3 milljóna króna viðskiptum.
Þar á eftir kom Eik fasteignafélag, en
verð bréfa félagsins lækkuðu um 1,25%
í 31 milljónar króna viðskiptum.
Icelandair hækkaði um
2,9% í kauphöllinni
Kauphöll Ice-
landair hækkar.
STUTT