Morgunblaðið - 06.07.2019, Side 22

Morgunblaðið - 06.07.2019, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Öryggis-lögreglan íAustur- Þýskalandi, ógn- valdurinn Stasi, var birtingarmynd tilraunar til að hafa heilt þjóð- félag undir eftirliti. Hlutverk Stasi var að fylgjast með borg- urunum með öllum tiltækum ráðum. Allir voru á skrá og menn njósnuðu hver um annan og veittu öryggislögreglunni upplýsingar. Þeir sem lentu á svörtum lista gátu litlar vonir gert sér um framgang og fjöl- skyldur þeirra voru einnig brennimerktar. Tilraun ráðamanna í austur- þýska alþýðulýðveldinu til að vakta borgarana öllum stund- um í vöku jafnt sem svefni vek- ur flestum ugg og óhug. Ein- hverjir fylltust þó öfund. Má gera ráð fyrir að sú hafi verið raunin hjá valdhöfum í Peking og voru þeir þó býsna ötulir við að fylgjast með almenn- ingi. Nú hefur taflinu hins vegar verið snúið við. Stasi er horfið veg allrar veraldar og Kínverj- ar teknir til við svo rækilegt eftirlit með borgurunum að Austur-Þjóðverjarnir blikna í samanburði. Kínverjar hafa tekið tæknina í sína þjónustu og fylgjast með fólki nánast við hvert fótmál. Hvarvetna eru myndavélar, alls 200 milljónir að talið er, og alls kyns grein- ingabúnaður og upplýsinga- bankar eru notaðir til að skrá ferðir manna og greina hverjir eru á ferð. Þá eru lögreglu- menn jafnvel með snjallgler- augu til að bera kennsl á fólk. Eftirlitið er síðan notað til að vega fólk og meta og raða því upp. Ekki er nóg með það heldur er það notað til að niðurlægja fólk opinberlega. Fjallað var um þetta kerfi í Kína í fréttaskýringu í Morg- unblaðinu á fimmtudag og var það sláandi lesning. Þar er það kallað „sómastöðukerfi“ og kemur orðið því til skila hvað átt er við. Eftirlitsæðið er slíkt að hermt hefur verið í fréttum að yfirvöld komi fyrir smáfor- ritum í símum ferðamanna við landamæraeftirlit til að geta fylgst með þeim á meðan þeir dvelja í Kína. Ýmislegt getur orðið til þess að fólk hrapi niður sómastig- ann í þessu kerfi og verði skil- greint ótraustvekjandi ein- staklingar. Þar má nefna allt frá lánum í vanskilum til gagn- rýni á stjórnvöld á félagsmiðl- um og þaulsetu við tölvuleiki. Sumir byrja með mínus í kladda þessa kerfis áður en nokkuð annað er fært inn. Það á til dæmis við um uig- hura, sem eru fjöl- mennir í Xinjiang og sæta sennilega mestu eftirliti allra þjóðfélags- hópa í Kína. Þeir sem lenda í neðsta þrepinu í sómastöðukerfinu eiga ekki sjö dagana sæla. Þar munu vera um 13 milljónir manna. Segir í fréttaskýring- unni að yfirvöld líti á þetta fólk sem „letingja, slæpingja og sníkjudýr“. Kerfið er síðan notað til að spilla fyrir fólki í neðri stigum þess með ýmsum hætti. Í fréttaskýringunni er tekið sem dæmi að fólk með of lága sómastöðu fái ekki að kaupa flugmiða og verði að kaupa miða með hægfara lest í stað- inn. Allt er skráð og fólki ein- faldlega vísað frá í miðasöl- unni. Þá eru reikniritar notaðir til að breyta hringitóni „óæski- legra“ einstaklinga. Þegar símar þeirra hringja á al- mannafæri vita allir nær- staddir um leið að þar er á ferð einstaklingur sem ekki er í náðinni. Í ofanálag hafa stjórnvöld smíðað smáforrit sem segir notandanum hverjir í nágrenni hans séu slæpingjar. Þegar ýtt er á einstaklinginn á kortinu birtast ýmsar upplýsingar, þar á meðal fullt nafn og ástæður fyrir því hversu lágt skrifaður viðkomandi er. Það eina sem vantar er fullt heimilisfang. Það er þó birt að hluta til. Opinber smánun er ekki eina refsingin. Þeir sem hrapa niður sómastigann eru útilok- aðir frá vel launaðri vinnu og lánum af ýmsum toga og fá ekki að bóka hótelherbergi. Börn þeirra fá ekki að ganga í einkaskóla. Ekki er síður ógnvekjandi að eina leiðin til að mjakast upp sómastigann á ný er að segja til annarra. Enn er þetta kerfi ekki orðið að fullu virkt en stefnt mun að því að svo verði á næsta ári og kínverskir ráðamenn eru svo hrifnir af sköpunarverkinu að þeir eru farnir að bjóða öðrum einræðisherrum það til að auð- velda þeim að herða tök sín á valdataumunum. Eins og bent er á í frétta- skýringunni verður þjóðfélag, sem vaktað er með þessum hætti, eins og fangelsi. Eftirlit með þessum hætti mun virka eins og bremsa á fólk og hola samfélagið að innan. Undur hátækninnar eru orðin efnivið- ur í ógeðfelldustu martröð samtímans. Kínversk stjórnvöld stefna á að fylgjast með öllum alltaf og nota eftirlitið til að draga fólk í dilka} Undir eftirliti Ö rvæntingarfull pólitísk framganga litlu Samfylkingarinnar heldur áfram að vekja athygli. Nú síðast þegar þau tala ítrekað gegn sjónarmiðum sérfræðinga í þágu sérhagsmuna innflutningsaðila. Forsvarsmenn flokksins vefengja þannig sjónarmið heil- brigðis- og lýðheilsusérfræðinga í æ fleiri mál- um. Þetta hefur verið sérstaklega áberandi þegar kemur að varnaðarorðum gegn aukinni áfeng- isneyslu sem fylgir svokölluðu brennivíns- frumvarpi þeirra og þeirri stóru lýðheilsuvá sem fylgir auknu sýklalyfjaónæmi með óheft- um innflutningi á ferskum matvælum. Þá hefur orðræða þeirra varðandi nýlegar tillögur um aðgerðaáætlun gegn sykurneyslu Íslendinga verið undarleg. Fjórtán tillögur Embættis landlæknis hafa fengið falleinkunn flokksins þrátt fyrir að sumar þeirra væru til þess fallnar að stuðla að aukinni lýð- heilsu. Tillögur svo sem að upplýsa neytendur betur, þótt ekki sjái undirritaður ástæðu til að fara eftir tillögum eins og að hækka skatta umfram það sem nú nú er. Hugsan- lega er það svo að í huga Viðreisnar eru sérfræðingar ekki sérfræðingar nema þeir starfi innan Evrópusambandsins eða séu á snærum Félags atvinnurekenda. Spá fræði- manna um að sýklalyfjaónæmi eitt og sér verði stærri valdur að dauða en krabbamein eftir um þrjátíu ár virðist altént ekki ná þeirra athygli. Það mætti segja að hægt hefði verið að sjá þetta fyrir. Af fullkominni hræsni af- hentu skammlífir ráðherrar flokksins í emb- ættum lýðheilsuverðlaun og héldu ræður með innantómum orðum sem var fórnað um leið og færi gafst fyrir forsendur hinna ýtrustu við- skiptahagsmuna Félags atvinnurekenda. Kjósendur, sem jafnframt eru auðvitað neytendur, hafa tekið eftir þessu ósamræmi og vekja athygli á samfélagsmiðlum þrátt fyrir að enn sé langt í kosningar. Til dæmis má nefna þegar einn núverandi þingmaður og þáverandi ráðherra Viðreisnar óskar foreldrasamtökum gegn áfengisauglýsingum velfarnaðar í mikil- vægum verkefnum einn daginn en er vart kominn úr ráðherraembættinu næsta dag þeg- ar hann leggur fram brennivínsfrumvarp sem vinnur gegn verkefnum samtakanna. Sem betur fer sjá flestir í gegnum þessa hræsni þegar Viðreisn þykist í þessum málum í dag tala fyrir hagsmunum og frelsi neytenda en ekki sér- hagsmunum innflutningsaðilanna. Hagsmunir neytenda felast á endanum ekki í ódýrum vafasömum matvælum heldur heilbrigði og langlífi. Það er skynsamlegt að upp- lýsa neytendur um sjónarmið lýðheilsu- og heilbrigðis- stétta en ekki vefengja og hunsa ábendingar þeirra. Við- reisn er gott dæmi um flokk sem sinnir stefnulaust sérhagsmunum kostenda flokksins, eltir tíðarandann og þá sem eru virkir í athugasemdum, líkt og móðurskipið Samfylkingin. Gunnar Bragi Sveinsson Pistill Viðreisn gegn lýðheilsu Höfundur er þingmaður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Skilningur á hreyfiveiki hefurfarið vaxandi að undan-förnu í kjölfar nýrrartækni, m.a. sýndarveru- leika, sem hleypt hafi nýju blóði í rannsóknir á þessu sviði. Fjallað verður um hreyfiveiki á alþjóðlegri ráðstefnu, sem hefst í Menningar- húsinu Hofi á Akureyri á morgun og stendur fram á miðvikudag. „Við væntum þess að skilningur okkar muni á komandi árum aukast á þessu fyrirbæri og teljum jafnvel að sitthvað sé í pípunum varðandi lausn, þó ekki sé hún að fullu fram komin,“ segir Hannes Petersen, pró- fessor við læknadeild Háskóla Ís- lands og háls-, nef- og eyrnalæknir á Akureyri. Hannes er ráðstefnustjóri en hann hefur farið fremstur í flokki hér á landi í rannsóknum á sjóveiki. Meðal þekktra vísindamanna sem halda erindi á ráðstefnunni á Akureyri má nefna John Golding og Michael Gresty, sem báðir eru pró- fessorar frá Bretlandi, og Laurence Ratman Young, sem er yfirmaður rannsókna á sviði heilbrigðismála hjá NASA. „Það er mikill fengur að því að fá þessa vísindamenn á ráðstefnuna og fróðlegt að heyra þeirra innlegg,“ segir Hannes. Veikir í sjálfkeyrandi bílum Fulltrúar allra helstu bílafram- leiðenda heims eiga fulltrúa á ráð- stefnunni, en það er kannski ekki síst tilkoma sjálfkeyrandi bíla og þróun þeirra sem orðið hefur þess valdandi að rannsóknir á hreyfiveiki af öllu tagi hafa aukist. Hannes segir að ökumenn finni að jafnaði ekki sjálfir fyrir bílveiki, enda séu þeir með hugann í flestum tilvikum bundinn við aksturinn. Annað sé upp á teningnum þegar menn láta fara vel um sig í sjálfkeyr- andi bílum, þá blossi bílveikin upp þrátt fyrir að vísindamenn hafi skoð- að hreyfiveiki um alllangt skeið, án þess að menn hafi áttað sig á hvað veldur. Detti menn niður á lausn gildir hún væntanlega fyrir öll far- artæki sem valda hreyfiveiki; skip, bíla, flugvélar, geimför og lestir. Um 80% íslenskra sjómanna finna fyrir sjóveiki við störf sín og sjóriðu þegar í land er komið að því er fram kom í rannsókn sem gerð var hjá Slysavarnaskóla sjómanna. Einkenni sjóveiki eru margvísleg, en ógleði og uppköst þau sem eru hvað mest truflandi. „Þessi einkenni koma til vegna skynáreksturs sjón- ar, jafnvægis- og stöðuskyns og þar er þáttur jafnvægisins mikilvæg- astur, einkum tengsl við starf ósjálf- ráða taugakerfisins sem miðlar boð- um um ógleði og uppköst.“ Engin lyf eru til sem virka á sjóveiki. Eftir töluverðu að slægjast „Það hafa á liðnum árum komið fram tækninýjungar, geimferðir og sýndarveruleiki hafa orðið til þess að blása nýju lífi í rannsóknir á hreyfiveiki og þekking okkar hefur aukist. Allt sem hjálpar til við að auka skilning okkar er af hinu góða,“ segir Hannes og bendir á að með vaxandi aldri fólks aukist jafn- vægisleysi, fólk svimar og það finnur fyrir sundli í meira mæli en á yngri árum og dettur oftar. Beinbrot hjá fólki sem komið er yfir 75 ára aldur skerða mjög lífsgæði þess og lífs- líkur þeirra eru í raun verri en hjá fólki á sama aldri sem greinist með krabbamein. „Það er því eftir töluverðu að slægjast að komast að því hvað veld- ur. Jafnvægið hefur verið kallað hin þögla skynjun, við erum ekki með- vituð um það fyrr en við töpum því,“ segir Hannes Petersen. Alþjóðleg leit að orsökum hreyfiveiki Morgunblaðið/Margrét Þóra Rannsakar sjóveiki Hannes Petersen hefur verið í fararbroddi í rann- sóknum á sjóveiki hér á landi en um 80% sjómanna finna fyrir slíku. Á ráðstefnunni verður skrifað undir viljayfirlýsingu um stofn- un rannsóknaseturs um sjó- veiki. Sjóveikisetrið verður eins konar miðstöð rannsókna sem tengjast sjóveiki. Að setrinu standa Háskóli Íslands, Háskól- inn í Reykjavík og Háskólinn á Akureyri auk háskóla í Frakk- landi en Hannes segir opið fyrir þátttöku fleiri. Sjóveikisetrið mun sinna fræðslustarfi og rannsóknum. Hannes tekur ásamt fleirum þátt í rannsókn á rafvirkni í heilaberki, en hún fer fram í Há- skólanum í Reykjavík í sam- vinnu við Háskóla Íslands. Markmiðið er að reyna að finna út hvar í heilaberki mannsins hreyfiveiki á upptök sín og hvar aðlögunin fer fram. „Ef við finn- um út hvar upptökin eru er lík- legra að við finnum leiðir til að bregðast við. Við væntum þess að rannsóknin skili okkur nýjum svörum,“ segir hann. Sjóveikisetur á Akureyri VILJAYFIRLÝSING

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.