Morgunblaðið - 06.07.2019, Síða 24

Morgunblaðið - 06.07.2019, Síða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019 Orð eru til alls fyrst. Til eru orð í íslensku yfir alls kyns fyrirbærisem benda til sköpunarkrafts og geislandi ímyndunarafls, enekki síður nákvæmni og greinandi hugsunar. Mörg finnum viðí elstu handritum og eru enn jafn fersk í tungutaki dagsins og þau voru fyrir átta hundruð árum. Önnur eru splunkuný og eiga eftir að sanna sig í daglegu máli. Orðin geyma minningar um líf í landinu, hvern- ig við höfum skynjað umhverfi okkar og okkur sjálf. Fjölbreyttur veð- urorðaforði íslenskunnar minnir á endalausa baráttu við náttúruöflin og orðtök um störf á sjó og á landi eru heimildir um atvinnuhætti sem við fæst þekkjum í dag. Að sama skapi höndla þau nýjustu flókna og sí- breytilega tilveru okkar á 21. öldinni. Íslenskan hefur alltaf þrifist best í samspili við erlend tungumál og nýjar hugmyndir – og svo er enn – þó að áskoranirnar séu að sönnu flóknari nú en nokkurn tíma fyrr. Í Safnahúsinu við Hverf- isgötu í Reykjavík er sýning þar sem óravíddir íslensks orðaforða eru kannaðar. Þar er sýnt nýstárlegt myndbandsverk í þrívídd þar sem við fylgjumst með hvernig orðin tengjast saman og spinna vef sinn, og virðast orðaþyrpingarnar hringsóla hver um aðra eins og stjörn- ur vetrarbrautarinnar. Það er magnað að gefa sig þessu sjónarspili orðanna á vald og njóta auðlegðar tungumálsins. Sýningin byggist á Orðaneti Jóns Hilmars Jónssonar sem er birt á vefslóðinni málið.is, en til grundvallar eru hundruð þúsunda orða og samsetningar þeirra. Mér datt í hug að benda lesendum á þessa óvenjulega sýningu um ís- lenskuna þegar ég hlustaði í vikunni á snjallan og skemmtilegan pistil sem Stephen Fry flutti eins og honum er einum lagið á BBC 2. Þar hvet- ur hann landa sína til að vera frjálsa og skapandi í umgengni við móð- urmálið sitt enskuna, hræðast ekki regluverk og strangar umvandanir – heldur njóta þess að tjá sig. Við lærum flest að tala móðurmál okkar án þess að vita af því og eigum ekki að óttast að leika okkur með það. Skoðið það: www.facebook.com/watch/?v=457010668409339. Orð hans eiga líka erindi við okkur. Vitundarvakningin um íslenskuna sem mennta- og menningar- málaráðherra hefur hleypt af stokkunum byggist ekki síst á sköp- unarkraftinum sem felst í tungumálinu og þeirri grósku og styrk sem er í íslenskum bókmenntum og textagerð. Orðaforðinn eflist ekki af sjálfu sér, heldur með lestri og alls kyns örvun. Ef við gefum krökkum færi á að leika sér að íslenskunni á allan mögulegan máta, eins og Fry hvetur okk- ur til að gera, lesa sína uppáhaldstexta í skólanum, romsa út úr sér orð- um og reyna á þolrif tungunnar, skrifa og tala eins og þau lystir, er fram- tíð íslenskunnar björt. Vinsældir hraðmælskra og orðsnjallra rappara eru vísbending um að það sé kannski lag að vekja áhuga þeirra á óravídd- um tungunnar ef þau velja sjálf miðilinn og textana sem höfða til þeirra. Leikur að orðum Tungutak Guðrún Nordal gnordal@hi.is Sl. miðvikudag birtist í ViðskiptaMogganum, eittathyglisverðasta viðtal, sem birzt hefur árumsaman við forstjóra opinbers fyrirtækis. Þar erum að ræða viðtal Baldurs Arnarsonar blaða- manns við Birgi Jónsson, nýjan forstjóra Íslandspósts. Í því viðtali kveður við annan tón en fólk hefur átt að venj- ast frá þeim sem stjórna fyrirtækjum eða stofnunum á vegum ríkisins. Viðtalið hefst á þessum orðum blaðamannsins: „Það er hátt til lofts og vítt til veggja á skrifstofu Birg- is Jónssonar, nýs forstjóra Íslandspósts, við Stórhöfða í Reykjavík. Gestum er vísað til sætis í leðursófum og listaverk prýða veggi. Útsýni er út á sundin. Þessi fyrsta upplifun af fyrirtækinu bendir ekki til að það sé „tækni- lega gjaldþrota“ eins og Birgir orðar það í samtali við ViðskiptaMoggann.“ Í framhaldi af þessum orðum blaðamanns segir Birg- ir: „Hér er fínt að vera nema hvað maður situr hérna eins og í gröf. Það heyrist ekki neitt og enginn kemur. Við erum með heilan gang fyrir framkvæmda- stjórn, þar sem allir framkvæmdastjórar hafa stórar skrifstofur. Þetta tíðkast ekki í nútímafyrirtækjum, sérstaklega ekki fyrirtækjum eins og þessu. Magnið er mikið í umsvifum félagsins en hagn- aðarprósentan lág.“ Ætli þessi hispurslausa lýsing geti kannski átt við fleiri opinber fyrirtæki og stofnanir? Þegar Birgir er spurður um vandamál Íslandspósts segir hann: „Fyrst og fremst að yfirbygging og almennur kostn- aður í fyrirtækinu er alltof hár. Hér er alltof mikið af starfsfólki. Stjórnunarlagið – millistjórnendur og yf- irstjórn – endurspeglar ekki tekjugrunn félagsins. Sama má segja um skrifstofurnar. Það er búið að skerða þjón- ustu, fækka dreifingardögum, loka pósthúsum og hækka verðskrána mikið en ekki búið að taka nógu mikið til í yf- irbyggingunni.“ Og forstjórinn bætir við: „Ég veit ekki hvað við getum skorið mikið niður en það er mjög mikið, hleypur á hundruðum milljóna … Hér hefur ekki verið sami agi á almennum rekstri og hjá mörgum fyrirtækjum. Ég veit ekki hvort það end- urspeglar eignarhaldið eða hvort þetta er gömul stofn- anamenning. Hitt veit ég að slíkt myndi ekki viðgangast í einkafyrirtæki. Það hefði ekki efni á því. Íslandspóstur hefur lengi verið rekinn með tapi og það er ekki búið að bregðast við því með öllum tiltækum ráðum, af því að það hefur einhvern veginn verið litið svo á að ríkið, eig- andinn, myndi á endanum koma til bjargar. Venjulegt fyrirtæki á einkamarkaði hefði farið á hausinn. Þetta fyrirtæki er tæknilega gjaldþrota, alla vega strand.“ Og spurður um fækkun starfsmanna segir Birgir: „Það verður mest breyting á fjölda starfsmanna í yf- irbyggingu fyrirtækisins og stjórnunarstöðum.“ Hér er skýrt talað. Lýsing hans á Íslandspósti end- urspeglar þá tilfinningu sem almennir borgarar hafa fyrir opinbera kerfinu hér á Íslandi. Hverjir bera ábyrgð á því að þetta hefur verið látið við- gangast í þessu litla landi og fámenna samfélagi? Það er augljóst að þar bera stjórnmálamennirnir, hinir kjörnu fulltrúar, sem sitja á Alþingi og í ríkisstjórn mesta ábyrgð. Þeir eiga að að vera það aðhald sem kemur í veg fyrir að svona „stofnanamenning“ verði til og vaxi mönn- um yfir höfuð. En þeir hafa ekki veitt það aðhald. Þeir hafa orðið samdauna „kerfinu“ og það á við um ráðamenn í öllum flokkum í mjög langan tíma. Eitt af því, sem vakti athygli í kjölfar hrunsins var að á sama tíma og einkafyr- irtæki fækkuðu fólki og áttu ekki annars kost var ekki um slíkar aðgerðir að ræða hjá opinberum aðilum þótt eitthvað væri um launalækkanir. Stjórnmálaflokkarnir hafa haft mismunandi afstöðu til ríkisvaldsins. Sjálfstæðisflokkurinn hvatti lengi til þess að því yrði sniðinn stakkur eftir vexti. Og einu sinni boðaði hópur ungra manna í Sjálfstæðisflokknum „báknið burt“. En þær raddir þögnuðu og Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki skorið sig úr öðrum flokkum að þessu leyti í langan tíma. Það er kominn tími til að breyting verði á. Stjórnkerfið er ekki aðeins orðið ofvaxið bákn, sem tekur til sín of mik- ið af skattfé þegnanna, sem væri betur varið annars stað- ar, heldur vinnur það leynt og ljóst að því að sölsa undir sig þau völd, sem samkvæmt stjórnskipan lýðveldisins eiga að vera í höndum kjörinna fulltrúa. Það verður að ráðast til atlögu við þetta kerfi og koma böndum á það. Og til þess þarf fólk með það hugarfar, sem fram kemur í máli Birgis Jónssonar í fyrrnefndu viðtali. Kannski eru ráðandi öfl í öllum stjórnmálaflokkum orð- in svo samdauna þessu kerfi eða samvaxin því að þau skilji ekki hvað hefur verið að gerast í kringum þau. Hættan sem vofir yfir þeim er þá þessi: Að fram komi stjórnmálaafl á Íslandi sem hafi það sem eitt af helztu stefnumálum sínum að koma böndum á op- inbera kerfið, hvort sem er hjá ríki eða sveitarfélögum og skera rækilega niður þann óþarfa kostnað, sem lýsir sér, eins og hjá Íslandspósti í alltof stórri yfirbyggingu á einu smæsta lýðveldi veraldar. Slíkt stjórnmálaafl gæti í krafti slíks málflutnings sópað til sín fylgi frá flokkunum sem hafa annaðhvort orðið sam- dauna kerfinu eða gengið því á hönd. Ungu mennirnir í Sjálfstæðisflokknum, sem boðuðu „báknið birt“ fyrir bráðum hálfri öld, höfðu rétt fyrir sér. Kannski er kominn tími til að einhverjir í þeim her- búðum dustið rykið af „gömlum“ hugsjónum. Ferskir vindar blása – frá Íslandspósti „Báknið burt“ þarf að endurnýjast. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Þótt furðulegt sé, átti Josíf Stalínmarga vini í Norðurálfunni um miðja tuttugustu öld. Hér á landi voru þeir raunar fleiri en víðast ann- ars staðar. Flokkur þeirra, sem hafði kastað kommúnistanafninu og kenndi sig við sósíalisma, fékk nær fimmtung atkvæða í þingkosningum 1946 og 1949. Naut hann rausnar- legra, en leynilegra framlaga frá Moskvu, sem auðveldaði honum að reka voldug útgáfufyrirtæki og kosta verkföll í stjórnmálaskyni. Andstæðingarnir sættu ofsóknum og útskúfun, ef og þegar til þeirra náðist, ekki síst rithöfundar. Eins og Þór Whitehead prófessor lýsir í smáatriðum í bókinni Sovét-Íslandi, óskalandinu, beittu kommúnistar ekki aðeins ofbeldi í vinnudeilum, heldur reyndu líka með öllum ráðum að koma í veg fyrir Keflavíkursamn- inginn 1946. Þeir létu svívirðingar ekki duga, heldur veittust að ráða- mönnum á götum úti og fóru að heimilum þeirra. Það þurfti kjarkmenn til að skora þetta illvíga lið á hólm. Ásgeir Pét- ursson, sem lést í hárri elli 24. júní 2019, var slíkur kjarkmaður. Hann var laganemi, þegar hann birti árið 1948 tímamótagrein þess efnis, að lýðræðissinnar yrðu að sameinast um að tryggja lög og reglu í landinu. Það féll síðan í hlut hans að skipu- leggja varalið til stuðnings lögreglu, þegar kommúnistar gerðu sig lík- lega til að ráðast á Alþingishúsið 30. mars 1949 og hindra afgreiðslu þingsályktunartillögu um aðild Ís- lands að Atlantshafsbandalaginu. Tókst að hrinda þeirri árás, en ein áreiðanlegasta heimildin um at- burðarásina þann örlagadag er rækilegur hæstaréttardómur frá 1950. Sennilega er annað framtak Ás- geir síður kunnugt. Hann var að- stoðarmaður Bjarna Benedikts- sonar í menntamálaráðuneytinu 1953-1956, og er óhætt að segja, að þeir hafi í sameiningu skipulagt gagnsókn lýðræðissinna í menning- armálum. Þeir Guðmundur G. Haga- lín og Kristmann Guðmundsson, sem kommúnistar höfðu lagt í ein- elti, fengu til dæmis störf, þar sem hæfileikar þeirra fengu að njóta sín, og Almenna bókafélagið var stofnað 17. júní 1955 til að búa borgara- legum rithöfundum skjól. Rek ég stuttlega þá sögu í formála bók- arinnar Til varnar vestrænni menn- ingu: Ræður sex rithöfunda 1950- 1958, sem Almenna bókafélagið gaf út 1. desember 2018 á 100 ára af- mæli fullveldisins. Ásgeir Pétursson var einn þeirra manna, sem stóðu vörð um fullveldi Íslands, þegar á reyndi. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Ásgeir Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.