Morgunblaðið - 06.07.2019, Síða 27

Morgunblaðið - 06.07.2019, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019 27 Tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir miðbæ Egilsstaða Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er auglýst tillaga að breytingu á deili- skipulagi í Fljótsdalshéraði. Á fundi bæjarráðs Fljótsdalshéraðs þann 1. júlí 2019 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deili- skipulagi fyrir miðbæ Egilsstaða. Við endurskoðun á miðbæjarskipulaginu er unnið áfram með grunnhugmynd sem byggir á gildandi deiliskipulagi frá 2006. Leitast er við að færa skipu- lagið í átt að vistvænu skipulagi og skapa vandaða miðbæjarbyggð. Meiri áhersla er lögð á umferðar- öryggi, lækkun hámarkshraða bíla og aukin áhersla er á fjölbreytta ferðamáta fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Byggðin hefur verið þétt til muna og hlutfall íbúða aukið. Með því að þétta byggðina er stuðlað að betri landnýtingu og skapað fjölbreytt og líflegt bæjarumhverfi. Þannig munu íbúar, starfsfólk, gestir og gangandi styrkja miðbæinn félagslega og efnahagslega. Tillagan er sett fram á deiliskipulags- og skýringar- uppdrætti ásamt skipulags- og byggingarskilmálum. Tillagan, með skilmálum, er aðgengileg á vef Fljóts- dalshéraðs og liggur frammi á bæjarskrifstofu að Lyngási 12, Egilsstöðum. Frestur til að skila inn skriflegum athugasemdum rennur út þann 18. ágúst nk. Athugasemdir skal senda í tölvupósti til gunnlaugur@egilsstadir.is eða í bréfpósti til Fljóts- dalshéraðs að Lyngási 12, 700 Egilsstaðir. f.h. bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson Skipulags- og byggingarfulltrúi Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkti á 27. júní s.l. að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skógarhverfis 2. áfanga vegna lóða við Fagralund og Akralund, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan felst í að breyta einbýlishúsalóðum við Fagralund 1, 3, 5, 7 og 2, 4, 6 í tvær þriggja íbúða raðhúsalóðir og þrjár parhúsalóðir (12 íbúðir). Fjölbýlishúsalóðir við Akralund 8, 10, 12 og 14 er breytt í tvær fjögurra íbúða raðhúsalóðir (ein til tvær hæðir) og eina parhúsalóð (ein til tvær hæðir). Tillagan verður til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18, Akranesi og á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is frá og með 4. júlí til og með 17. ágúst 2019. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 17. ágúst í þjónustuver Akraneskaupstaðar eða á netfangið skipulag@akranes.is. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar. Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi á Akranesi SK ES SU H O R N 2 01 9 SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 Upplýsingar veita: Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is Rannveig Jóna Haraldsdóttir, rannveig@hagvangur.is. Umsóknarfrestur er til 15. júlí. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is Einstaklingar af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Umsókn um starfið þarf að fylgja kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur veittur fyrir hæfi viðkomandi í starfið. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga ríkisins við viðkomandi stéttarfélag. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. SKJALASTJÓRI – BISKUPSSTOFA Biskup Íslands óskar eftir að ráða skjalastjóra. Starfið heyrir undir embætti biskups Íslands. Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri Biskupsstofu. Um er að ræða fullt starf. Æskilegt væri að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst. Starfs- og ábyrgðarsvið • Skjalasafn embættis biskups Íslands, kirkjuráðs, kirkjugarðaráðs og annarra kirkjulegra aðila sem njóta þjónustu Biskupsstofu hvað varðar skjalamál • Söfnun, móttaka, skráning, varðveisla og miðlun skjala Biskupsstofu • Þróun skjalastefnu og verklags við skjalastjórn • Svörun fyrirspurna og upplýsingaleit • Umsjón, uppbygging og þróun rafræns skjalastjórnunarkerfis Biskupsstofu • Umsjón og ábyrgð á varðveislu eldri skjala, skil til Þjóðskjalasafns, gerð skjalavistunaráætlunar og framkvæmd hennar • Fræðsla, ráðgjöf og stuðningur á sviði skjalamála og skjalakerfis við stjórnendur og starfsmenn á Biskupsstofu • Umsjón með bókasafni Biskupsstofu, útlánum, skráningu og innkaupum bóka Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun á sviði upplýsinga- og skjalastjórnar • Þekking og reynsla af skjalastjórn • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg • Mjög góð almenn tölvuþekking, færni og vilji til að tileinka sér nýjungar. • Mjög góð íslenskukunnátta og færni í erlendum málum, í ræðu og riti • Geta til að vinna undir miklu álagi • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum, háttvísi og lipurð • Skipulagshæfni, nákvæmni og fagmannleg vinnubrögð • Sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði Biskupsstofa er embættisskrifstofa biskups Íslands, þar sem annast er um starfsmannahald vegna presta þjóðkirkjunnar og stuðningur veittur í starfsmannamálum í sóknum, stofnunum og prófastsdæmum. Hlutverk Biskupsstofu er umfram allt að hvetja og styðja söfnuði, presta og aðrar stofnanir kirkjunnar til að sækja fram í starfi og þjónustu. Biskupsstofa sinnir m.a. í því skyni fræðslumálum, málefnum er varða kærleiksþjónustu, guðfræði og þjóðmál, kirkjutónlist og helgihald, upplýsingamál og samkirkjutengsl. Starfsmannastefnu Þjóðkirkjunnar má lesa á kirkjan.is Tilkynningar Raðauglýsingar 569 1100 Ráðgjafar okkar búa                   capacent.is      

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.