Morgunblaðið - 06.07.2019, Qupperneq 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019
ÁRBÆJARKIRKJA | Sumarhelgi-
stund kl. 11. Sr. Petrína Mjöll Jóhann-
esdóttir þjónar. Félagar úr kór Árbæj-
arkirkju leiða sönginn og Benjamín
Gísli Einarsson leikur á flygilinn. Kaffi
og spjall eftir stundina.
ÁSKIRKJA | Messa 7. júlí fellur niður
vegna sumarferðar Safnaðarfélags
Ásprestakalls í Borgarfjörð.
Ferðalangar taka þátt í messu í Reyk-
holtskirkju kl. 14 þar sem séra Geir
Waage, sóknarprestur í Reykholti,
þjónar fyrir altari ásamt Kristnýju Rós
Gústafsdóttur, djákna Ássafnaðar.
Séra Sigurður Jónsson, sóknarprestur
Ásprestakalls prédikar.
Áskirkja verður lokuð vegna sum-
arleyfa sóknarprests og starfsfólk frá
8. júlí til 19. ágúst, og liggur helgihald
kirkjunnar niðri á meðan.
BORGARNESKIRKJA | Guðsþjón-
usta 7. júlí kl. 11. Boðið verður upp á
kaffi og með því í anddyri kirkjunnar
að guðsþjónustu lokinni. Messan
verður í umsjá sr. Brynhildar Óla El-
ínardóttur og Heiðrúnar Back guð-
fræðings. Kirkjukór Borgarneskirkju
leiðir sálmasöng undir stjórn Huldu
Bragadóttur organista.
BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessa
sunnudag kl. 20. Félagar úr kór Bú-
staðakirkju leiða sönginn undir stjórn
Hjartar I. Jóhannssonar. Messuþjónar
og sr. Pálmi annast þjónustu. Hress-
ing eftir messuna.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur er Guðni Már Harðarson.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti | Messa á sunnud. kl.
8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku,
kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö.
kl. 8, lau. kl. 16 er vigilmessa á
spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11.
Prestur er Sveinn Valgeirsson, Dougl-
as er organisti, félagar úr Dómkórn-
um syngja. Minnum á bílastæðin við
Alþingi.
GARÐAKIRKJA | Messa kl. 11 við
Vífilsstaðavatn í Garðabæ. Kirkju-
gestir hittast á bílastæðinu við vatn-
ið og þar verður guðsþjónusta. Að
lokinni guðþjónustu er gengið í kring-
um vatnið og guðspjall dagsins rætt.
GLERÁRKIRKJA | Kvöldhelgistund
kl. 20 í umsjón Gunnlaugs Garð-
arssonar og Valmars Väljaots. Fyr-
irbænir og sakramenti.
GRAFARVOGSKIRKJA | Kaffi-
húsamessa kl. 11. Séra Grétar Hall-
dór Gunnarsson prédikar og þjónar.
Forsöngvari leiðir söng og organisti
er Hákon Leifsson.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11.
Þórdís Emelía og Björney Anna Ar-
onsdætur leika á fiðlu. Organisti er
Ásta Haraldsdóttir og félagar úr
Kirkjukór Grensáskirkju leiða söng.
Sr. María Ágústsdóttir þjónar ásamt
messuþjónum. Heitt á könnunni fyrir
og eftir messu. Næst verður messað
í Grensáskirkju 11. ágúst kl. 11.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Helgistund sunnudag kl. 20. Prestur
er Karl V. Matthíasson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA |
Messuganga við Vífilsstaðavatn í
Garðabæ kl. 11 í umsjón sr. Jónu
Hrannar Bolladóttur sóknarprests Ví-
dalínskirkju. Ekki er messað í Hafn-
arfjarðarkirkju þennan sunnudag.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Sigurður Árni Þórðarson pré-
dikar og þjónar fyrir altari ásamt Grétu
Konráðsdóttur og Jónu Heiðdísi Guð-
mundsdóttur. Messuþjónar aðstoða.
Félagar úr Móttettukór Hallgrímskirkju
syngja. Organisti er Björn Steinar Sól-
bergsson.
Alþjóðlegt orgelsumar: Tónleikar laug-
ard. kl. 12 og sunnud. kl. 17. Jo-
hannes Skoog organisti frá Svíþjóð
leikur. Fyrirbænaguðsþjónusta
þriðjud. kl. 10.30. Árdegismessa mið-
vikud. kl. 8.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Organisti er Kristján Hrannar Pálsson,
prestur er Eiríkur Jóhannsson.
HVERAGERÐISKIRKJA | Guðsþjón-
usta 7. júlí kl. 14. Guðsþjónustan er í
samstarfi við Félag fyrrverandi presta
og mun sr. Svavar Stefánsson fv.
sóknarprestur í Fella- og Hólakirkju
prédika. Sr. Gunnar Jóhannesson
þjónar fyrir altari og Kristín Waage leik-
ur á orgel.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Kl. 11 Samkoma. Translation into
English. Samkoma á spænsku kl. 13.
Reuniónes en español. Samkoma á
ensku kl. 14 . English speaking ser-
vice.
LAUGARNESKIRKJA | Vegna sum-
arleyfa starfsfólks verður ekkert
helgihald í Laugarneskirkju í júlí-
mánuði. Næsta guðsþjónusta verður
4. ágúst kl. 20.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11, sr. Ragnheiður Jónsdóttir
þjónar fyrir altari og fer með hugleið-
ingu. Þórður Sigurðarson spilar á org-
el. Kirkjuvörður er Hildur Salvör Back-
man.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta í
Kapellu kl. 20. Katrín Valdís Hjart-
ardóttir syngur ásamt Páli Pálssyni á
bassa og Óskari Einarssyni á píanó.
Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson
þjónar.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar
úr kór Neskirkju syngja og leiða söng.
Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir
prédikar og þjónar fyrir altari. Árni Þór
Þórsson guðfræðinemi les ritning-
arlestra og bæn. Barnasvæði með
blöðum og litum til staðar fyrir yngri
kynslóðina. Kaffi og samfélag á torg-
inu eftir messu að vanda. Nánar á
neskirkja.is
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11, sr. Bryndís Malla Elídóttir prédik-
ar og þjónar fyrir altari, Tómas Guðni
Eggertsson leikur á orgel og félagar
úr Kór Seljakirkju leiða söng, messu-
kaffi í lokin.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Guðs-
þjónusta með altarisgöngu kl. 11.
Séra Skírnir Garðarsson þjónar fyrir
altari og prédikar. Organisti er Jón
Bjarnason. Steinunn Arnbjörg Stef-
ánsdóttir leikur á selló.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Kvöldmessa
sunnudag kl. 20. Almennur söngur
við gítarundirleik.
Morgunblaðið/Helgi BjarnasonHof í Öræfum Hofskirkja.
ORÐ DAGSINS:
Hinn týndi sauður.
(Lúk. 15)
Messur á morgun
✝ Theódóra Björg-vinsdóttir fædd-
ist í Garðhúsum í
Innri-Njarðvík 27.
júlí 1937. Hún lést á
dvalarheimilinu
Seljahlíð 12. júní
2019.
Foreldrar hennar
voru Magnús Björg-
vin Magnússon, f. 9.
júlí 1909, d. 14. des-
ember 1958, og Jó-
hanna Sigríður Jónsdóttir, f. 11.
desember 1906, d. 15. nóvember
1981. Hún var þriðja í röðinni af
fimm systrum, hinar eru: Ólafía
Katrín, f. 1932, d. 2011; Björg, f.
1935, d. 2012; Kristín Ólöf, f. 1938;
gift Trausta Ólafssyni og þau eiga
þrjú börn, Einar Þór, Snorra og
Guðlaugu Dóru. 5) Sigríður, f.
1966, gift Sigurði Böðvarssyni og
þau eiga fjögur börn, Auði Örnu,
Brynju, Bjarka og Fannar.
Barnabarnabörnin eru átta.
Dóra og Jónas bjuggu á Hellis-
sandi í upphafi búskapar en flutt-
ust til Reykjavíkur 1972. Dóra
hafði verið heimavinnandi meðan
börnin voru lítil og þau bjuggu á
Hellissandi, en hún fór á vinnu-
markaðinn eftir að þau fluttu suð-
ur og vann ýmis störf, meðal ann-
ars í saumastofu Hagkaups,
raftækjaverslun, á elliheimilinu
Grund og í verslun Hagkaups í
Skeifunni. Samhliða dagvinnu
skúraði hún jarðfræðideild Há-
skóla Íslands í áratugi. Lengst af
vann hún hjá Tollstjóraembætt-
inu, þar til hún lét af störfum
vegna aldurs.
Útför hennar fór fram í kyrr-
þey.
Jónína Valgerður, f.
1943.
Dóra giftist 31.
desember 1962 Jón-
asi Sigurðssyni, f. 4.
ágúst 1927, d. 18.
nóvember 1998, og
ólu þau upp fimm
börn saman. Þau
skildu árið 1992. 1)
Vilhjálmur Hafberg,
f. 1953, giftur Svölu
Geirsdóttur og þau
eiga þrjú börn, Geir Má, Ragnar
Má og Elínu Ósk. 2) Jarþrúður, f.
1959, og á hún eina dóttur, Jar-
þrúði Birgisdóttur. 3) Lárus Skúli,
f. 1960, hann á einn son, Ingvar
Christiansen. 4) Auður, f. 1964,
Elsku mamma, nú ertu farin og
hvíldinni fegin. Þú varst svo löngu
tilbúin til að fara og hitta systur
þínar í draumalandinu. Ég vona
að þær Kata og Björg hafi tekið á
móti þér með gítarspili og söng.
Mamma var í miðjunni af
fimm systrum sem voru mjög
nánar og góðar vinkonur og voru
saman í saumaklúbb á sínum
fullorðinsárum. Þær ólust upp
við kröpp kjör á höfuðborgar-
svæðinu, lengst af í Vogi sem var
braggi staðsettur við Elliðavog.
Þær voru allar flinkar í hönd-
unum en þó bar Kata af. Engar
dúkkur áttu þær svo Kata bara
græjaði það með því að binda ut-
an um kodda til að gera höfuð,
teikna andlit og svo voru „dúkk-
urnar“ kallaðar púða-lillur.
Handavinna lék í höndum þeirra
systra, sumar á saumavélar aðr-
ar í útsaum og prjóni. Þú varst
snillingur á saumavél. Saumaðir
heilu samkvæmis- og hversdags-
kjólana á margar konur á Hellis-
sandi á meðan við fjölskyldan
bjuggum þar. Og auðvitað saum-
aðir þú allt á okkur börnin fimm.
Þið pabbi keyptuð gamlan
sumarbústað við Meðalfellsvatn
sem þið kölluðuð „kofann“.
Nokkrum árum síðar hófuð þið
byggingu á nýjum bústað sem
þið eydduð ómældum tíma að
gera fínan og svo þurfti jú líka að
gróðursetja aspir og birki. Pabbi
keyrði ekki bíl svo þú sást um
það eins og svo margt annað.
Toppgrind full af timbri var al-
geng sjón á meðan byggingu
stóð. Þú varst rafvirkinn á heim-
ilinu og áttir líka Black og Dec-
ker-borvél.
Þú kenndir mér að þvo, tókst
okkur systurnar með í sameig-
inlega þvottahúsið í blokkinni og
kenndir að flokka í 40°, 60°og 90°
þvott. Svo skúraðir þú í Jarð-
fræðihúsi Háskóla Íslands í
mörg ár. Þangað fórstu aldrei
ein, alltaf vorum við börnin höfð
með, pabbi eða við öll. Þar lærði
maður ýmis handtök hjá þér.
Þú varst engin rosa barna-
gæla og varst ekki þessi amma
sem bara breiðir út vænginn yfir
barnabörnin. Vildir ekki vera að
troða þér upp á okkur, sagðir þú.
Eftir að ég og Siggi fluttum heim
frá Noregi 1998 með dæturnar
tvær varstu hjá okkur um hver
jól og páska. Svo bættust tvíbur-
arnir okkar við árið 2000 og öll
kynntust þau ömmu Dóru á sinn
hátt. Það var aldrei neitt mál að
fá aðstoð frá þér ef maður bað
um það en þú hafðir ekki oft
frumkvæðið. Að skutla börnun-
um mínum í dansskólann eftir að
þú hættir að vinna var auðsótt
mál. Í seinni tíð, þegar þú varst
farin að veikjast, kom ég við hjá
þér í Hraunbænum á hverjum
degi eftir vinnu, til að aðstoða þig
við að hita upp mat. Þegar ég
kom svo heim sögðu börnin
gjarnan: „Varstu að koma frá
ömmu Dóru?“ Þau þekktu lykt-
ina þína, sambland af ilmvatni og
tóbaki. Haustið 2016 varstu svo
heppin að fá litla íbúð í Seljahlíð í
Breiðholti. Þar var þessi fína
þjónusta; matur eins og á hóteli
fjórum sinnum á dag, hárgreiðsla
í hverri viku og lést laga negl-
urnar og lakka í hverjum mán-
uði. Mér fannst þú yrðir bara að
halda áfram að vera falleg, fín og
vel tilhöfð. Ég fór í Verðlistann á
vorin, keypti fullt af fallegum lit-
ríkum fötum á þig og þú ljómaðir
í hvert sinn. Hinn 12. júní sofn-
aðir þú svo friðsæl eftir hádeg-
ismat í Seljahlíð og vaknaðir ekki
aftur.
Þín
Sigríður.
Theódóra
Björgvinsdóttir
✝ Agnar Hall-grímsson fædd-
ist 20. júní 1940 á
Arnheiðarstöðum í
Fljótsdal. Hann lést
á heimili sínu,
Blikahólum 4,
Reykjavík, 29. maí
2019.
Foreldrar hans
voru Hallgrímur
Helgason, f. 29.8.
1909, d. 30.12.
1993, og Laufey Ólafsdóttir, f.
31.5. 1912, d. 11.8. 2003. Systkini
Agnars eru Helgi, f. 11.6. 1935,
Ólafur Þór, f. 18.9. 1938, Guð-
Íslands með sagnfræði sem að-
algrein í lok haustmisseris 1972.
Agnar kvæntist Auði Óskars-
dóttur úr Reykjavík 18. maí
1968. Þau slitu samvistum.
Agnar fékkst við ýmis störf,
vann hjá Samvinnutryggingum
og kenndi við Iðnskólann í
Reykjavík, en lengst var hann
skrifstofumaður hjá Kaupfélagi
Héraðsbúa á Egilsstöðum. Rit-
störf stundaði hann allnokkuð
og eftir hann liggja m.a. ritverk
um Hans Wíum, sýslumann, og
Sunnevumálin og Sögu Skriðu-
klausturs í Fljótsdal. Auk þess
margar greinar um fjölbreytileg
efni. Agnar var búsettur á
Egilsstöðum um árabil, en flutti
til Akureyrar 2003 og síðar
(2010) til Reykjavíkur.
Útför Agnars fór fram í kyrr-
þey frá Fossvogskapellu, 12.
júní 2019.
steinn, f. 7.3. 1945,
Guðrún Margrét, f.
27.5. 1948, d. 15.5.
2003, og Bergljót, f.
1.3. 1952.
Agnar ólst upp á
Droplaugarstöðum,
nýbýli úr landi
Arnheiðarstaða,
sem faðir hans
reisti 1942. Agnar
lauk landsprófi
miðskóla frá Eiða-
skóla vorið 1957. Hann var stúd-
ent frá Menntaskólanum á
Akureyri 1963 og cand. mag. í
íslenskum fræðum frá Háskóla
Það er vetur. Tveir drengir
eru að renna sér á heimatilbún-
um sleða niður Stekkhúslækj-
argilið á Droplaugarstöðum. Gilið
er fullt af snjó. Þeir byrja efst
uppi að renna sér alveg niður að
Stekkhúsunum, þar sem faðir
þeirra er að sinna gegningum.
Það er gaman hjá þeim. Þannig
er ein fyrsta minning mín um
Agnar bróður minn. Við ólumst
upp í sveit í skjóli ástríkra for-
eldra og vorum samrýndir bræð-
ur í æsku, enda aldursmunur að-
eins tvö ár.
Agnar var tápmikill unglingur
og óragur við að taka sér ýmis-
legt fyrir hendur. Að loknu
barnaskólanámi í Fljótsdalnum
fór hann í Eiðaskóla, þar sem við
deildum saman herbergi einn
vetur í sitthvorum bekk, en síðan
lá leiðin í Menntaskólann á Ak-
ureyri og að loknu stúdentsprófi
1963 í Háskólann, þar sem hann
lagði stund á íslensk fræði og
lauk þaðan cand. mag. prófi með
sagnfræði sem aðalgrein í febr-
úar 1972. Síðustu háskólaárin
reyndust Agnari þó að ýmsu leyti
erfið og reyndu á þrek hans, og
þá tók að örla á sjúkdómi þeim,
sem þaðan í frá setti mark sitt á
lífsferil hans og samskipti við
aðra. Agnar kvæntist Auði Ósk-
arsdóttur úr Reykjavík 18. maí
1968, hinni ágætustu konu. Þau
áttu nokkur góð ár, en slitu síðar
samvistum. Eitt sumar vann
Agnar hjá Samvinnutryggingum
í Reykjavík og kenndi einn vetur
við Iðnskólann í Reykjavík. Að
námsárum loknum fluttist Agnar
austur í heimahagana á Héraði
og fór að vinna sem skrifstofu-
maður hjá Kaupfélagi Héraðsbúa
á Egilsstöðum undir stjórn Þor-
steins Sveinssonar, sem reyndist
honum sannur velgjörðarmaður.
Árin í kaupfélaginu voru að ýmsu
leyti góð ár, og þar var alltaf gott
að hittast í litlu íbúðinni hans á
Egilsstöðum, en svo heima á
Droplaugarstöðum í öllum fríum.
Árið 2003 flutti Agnar til Akur-
eyrar og bjó þar næstu sjö árin.
Síðan lá leiðin til höfuðborgarinn-
ar, fyrst í Grafarvoginn, en síð-
ustu sex árin var hann búsettur í
Blikahólum 4 í Breiðholti. Síð-
ustu árin hafði hann samskipti
við fáa og lokaði sig af, helst voru
það nokkrir félagar hans frá há-
skólaárunum auk frænda hans,
Hallgríms Helgasonar, sem
reynst hefur honum ómetanleg
hjálparhella.
Helsta afþreying hans og
áhugamál var að sitja á Lands-
bókasafninu við skriftir og ýmis-
legt grúsk, en hann fékkst alltaf
talsvert við ritstörf, enda vel rit-
fær og ritaði kjarngott mál. Hann
ritaði fjölda greina í blöð og tíma-
rit um margvísleg efni. Þar var
hann alltaf á heimavelli, hvernig
sem allt snerist. Lífið fór oft um
bróður minn ómjúkum höndum,
en hann var þrautseigur að eðl-
isfari og harður við sjálfan sig og
gafst í rauninni aldrei upp, þótt á
móti blési, heldur kraflaði sig í
gegnum erfiðleikana með hörk-
unni.
Það var honum metnaðarmál
að geta staðið á eigin fótum, eiga
sína íbúð og vera ekki upp á aðra
kominn. Það tókst honum líka.
Margt leitar á hugann, þegar
kær bróðir er kvaddur. Þar ber
bernskuminningarnar hæst, en
líka minningar frá öllum glöðum
og góðum samverustundum, þeg-
ar allt lék í lyndi og sól skein í
heiði. Minningarnar ylja nú við
leiðarlok. Vertu sæll, bróðir, og
Guð geymi þig. Hafðu þökk fyrir
allt og allt.
Ólafur Hallgrímsson.
Agnar, föðurbróðir minn, Hall-
grímsson er látinn tæpra 79 ára
gamall. Sem barni þótti mér hann
mjög merkilegur eins og reyndar
aðrir ættingjar mínir, hvort sem
þeir voru í móðurætt mína sem
kemur úr Aðaldal í Þingeyjar-
sýslu eða föðurætt sem er af
Fljótsdalshéraði. Agnar gat verið
svolítið stríðinn þegar maður var
barn, togaði gjarnan í eyrun á
manni og sneri upp á í glettni og
ég man að manni var ekki alltaf
alveg sama. En maður erfði það
ekki, allra sízt þegar hann og þá-
verandi kona hans, hún Auður
Óskarsdóttir, komu færandi
hendi að sunnan með dýrindis
leikföng eða sælgæti.
Og ekki voru bílarnir af verri
endanum, oft Broncóar eða
Willysar, þannig að flottari
fannst manni þeir ekki geta verið.
Einn er sá bíll sem þau áttu og er
mér sérstaklega minnisstæður í
barnsminninu, Ford nokkur Tau-
nus.
Vegirnir í þá daga, í kringum
1965-1970, voru vægast sagt mis-
jafnir, oft stórgrýttir og holóttir.
En Taunusinn þeirra Auðar og
Agnars fór vel með farþegar sína
og maður sveif áfram eins og á
töfrateppi.
Sú tilfinning fylgir mér alla
ævi. Ég segi við Agnar frænda
það sama og fólk sagði oft að
skilnaði á öldum áður: Gakktu
með guði.
Hallgrímur Helgason.
Agnar
Hallgrímsson