Morgunblaðið - 06.07.2019, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 06.07.2019, Qupperneq 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019 hún geti ferðast frjáls um þær slóðir sem voru henni kærastar. Systrabörnum okkar þeim Guð- jóni Ármann, Ólafi, Árna Þórði og Þóru Sólveigu og fjölskyldum þeirra sendum við innilegar sam- úðarkveðjur og biðjum Guð að blessa minningu systur okkar. Við látum fylgja þessum orðum vísur sem Valdís fékk á tíu ára af- mælisdaginn. Guðrún Valdís Guðjóns mæta dóttir glöð og fríð sem nýútsprungin rós. Æ þér vaxi allskyns dyggðar gnóttir Auðn og viska, þróttur, prýði og hrós. Lífs á vegi ljúfur Guð þig styðji og leiði þig um ævi þinnar braut. Böli öllu beint úr götu ryðji og beini þér í Drottins náðarskaut. (Jón Bjarnason.) Friðný og Jóhanna Ármann. Líf okkar manna einkennist af tímamótum. Þau stærstu eru þeg- ar við fæðumst og kveðjum. Guð- rún Valdís var skírð við kistu langömmu sinnar Guðrúnar Jóns- dóttur. Gamalt segir að fjórðungi bregði til fósturs og fimmtungi til nafns. Hvort tveggja markaði eig- indir Valdísar móðursystur minn- ar og það í ríkum mæli. Dugnað- ur, þrautseigja, umhyggja og tryggð eru þar á meðal. Allt frá barnæsku var Valdís ein af mikilvægu persónunum mínu lífi. Tveir elstu synir hennar á mínum aldri og mikil samvera og jafnvel sambúð við alla fjöl- skyldu hennar lengst af. Þessi samvera minnir um margt á kommúnur hippatímans. Valla, eins og hún var gjarnan kölluð, systur hennar og eiginmennirnir voru samstiga í uppeldi okkar frændsystkinanna. Við dvöldum lengri og skemmri tíma undir verndarvæng móðursystra okkar löngu eftir að hver þeirra hafði stofnað sitt eigið heimili. Amma okkar og afi, Sólveig og Guðjón, voru tryggir bakhjarlar enda reynslunni ríkari af frábærlega vel heppnuðu uppeldi þeirra systra. Valla átti það til að vera hvöss í orðavali. Einu sinni sem oftar kom ég við á heimili hennar á leið heim úr skóla í frí. Þegar ég heilsa henni þá segir hún: „Ósköp er að sjá þig auminginn, færðu ekki nóg að borða þarna fyrir norðan?“ Þetta var auðvitað bara vel meint því eitt af því sem ein- kenndi Völlu var að bera fram góðan mat og mikið af honum. Hún var mjög flinkur kokkur og miðlaði af þeim hæfileikum til ungmenna á Eskifirði sem kenn- ari um árabil og víðar, sem ráðs- kona til sjós og lands. Kökurnar hennar í veislum voru rómaðar og ég man að móðir mín leit mikið upp til systur sinnar þegar kom að matseldinni og leitaði oft ráða og álits hjá henni. Mamma og Valla voru mjög nánar enda bara tvö ár sem skildu þær að í aldri. Þær fóru saman til Akureyrar, ungar stúlkur til náms og til að mannast. Þar styrktist þráðurinn á milli þeirra sem aldrei slitnaði og náði út yfir gröf og dauða. Ég naut þessa sambands þeirra systra í ríkum mæli hjá Völlu. Það fann ég ekki síst þegar undan fór að halla með heilsuna hjá henni. Ég held að á stundum hafi henni þótt eins og mamma væri að syngja með henni, sprella eða spauga. Valla hafði góða söngrödd og hafði yndi af því að beita henni. Söng lengi í kórum og fór í söng- ferðalög langt út fyrir landstein- ana. Hún var alltaf til í að bresta í söng á góðum stundum. Hámark- ið var þó oftast þegar hún söng Gunnuvísurnar ein eða með systr- um sínum. Í æsku var Valdís mikið á hest- um að þeirra tíma hætti og hest- urinn Þytur henni hjartfólginn. Þytur var lengi til á Skorrastað og á honum hófst hestamennska flestra afkomenda þeirra systra af fyrstu kynslóð. Löngu síðar tengdist Valla hestamennsku öðr- um böndum er börnin hennar eignuðust hesta. Lét hún þá ekki sitt eftir liggja við að heyja ofan í þá og sinna ef með þurfti. Tímamót verða oft þegar ólíkar aðstæður mætast. Þá er gjarnan glaðst en einnig syrgt og saknað. Valdís Ármann mun eiga stað í hjarta þeirra sem nutu umhyggju hennar og samfylgdar. Blessuð sé minning hennar. Þórður Júlíusson. Valla móðursystir okkar hefur kvatt tilveru okkar hér á þessari jörð og þar með losnað undan þeim viðjum sem sjúkdómur lagði á hana síðustu æviárin. Þrátt fyrir veikindi sín missti Valla aldrei þann sterka persónuleika sem henni var gefinn og glæsileikinn sem yfir henni var hélst allt til loka. Hún var dökk á brún og brá og var einstaklega lagleg kona. Einn gamall sveitungi okkar hafði á sínum tíma líkt henni við Elísa- betu Taylor, ekki slæm samlíking það. Valla var ein af fimm systrum og það er óhætt að segja að þær systur hafi haldið ákaflega vel saman enda ólust þær upp hjá for- eldrum sem héldu vel utan um sitt fólk. Það ríkti mikil samheldni hjá systrunum og við börnin þeirra höfum fengið að njóta þeirra gæða. Það eru margar minningar sem koma upp í hugann þegar við hugsum um Völlu móðursystur okkar og flestar tengjast þær samverustundum fjölskyldnanna á Skorrastað. Það er mjög eðlilegt þar sem afi okkar og amma bjuggu þar ásamt foreldrum okk- ar. Á hátíðum, afmælisdögum og í annan tíma komu systurnar með fjölskyldum til að heimsækja for- eldra sína og okkur þá um leið. Það er ekki hægt að minnast Völlu öðruvísi en upp í hugann komi söngur. Hún var mikil söng- manneskja og söng með kórum í sínu byggðarlagi langt fram á ald- ur. Á þessum vettvangi sáum við hvað hún naut sín. Valla hafði ákaflega bjarta og fallega söng- rödd og hún hélt röddinni alveg ótrúlega lengi. Hún kunni líka heil ósköp af söngtextum og alls konar ljóðum sem þær systur höfðu meðal annars heyrt og lært í æsku sinni. Löngu eftir að Valla fór að finna mikið fyrir sjúkdómi sínum var hreint undur að horfa á hana þegar verið var að syngja. Þá tók hún undir á fullum styrk og hafði hvorki gleymst lag né texti hjá henni. Það var gott að koma á fallegt heimili þeirra Völlu og Jóns á Eskifirði. Þar var okkur alltaf tekið opnum örmum og þau bæði höfðingjar heim að sækja. Valla var auðvitað snillingur í öllu sem hét að búa til mat og framreiða fallegar og góðar veitingar fyrir gesti og gangandi. Ósjaldan var millilent hjá þeim áður en haldið var yfir Oddsskarðið. Ófá eru þau skipti þegar ófært var fyrir okk- ur, sem þekktum Oddsskarðið ekki vel, að Jón bauðst til að fara með okkur og kom okkur yfir á Skorrastað. Það var mikið þakkarefni. Við erum núna smám saman að horfa á þessar yndislegu Skorrastaðar- systur hverfa frá þessari tilvist, ekkert er eilíft og heldur ekki þær. Valla er sú þriðja af systr- unum sem kveðja og við vonum að hún sé komin til þeirra sem voru henni hugstæðastir allt til síðasta andardráttar. Við systkinin og fjölskyldur okkar, sendum Guð- jóni Ármann, Ólafi, Árna Þórði, Þóru Sólveigu og öllum afkom- endum og tengdabörnum Völlu, okkar innilegustu samúðarkveðj- ur við fráfall yndislegs ástvinar. Guð og góðir englar vaki yfir þér, elsku Valla okkar. Elínborg, Jón, Sólveig, Friðný og Guðjón. Ég á Valdísi Ármann margt að þakka. Ég kynntist henni 1961, þegar ég var sex ára gamall. Þá flutti hún ásamt Jóni manni sín- um og börnum þeirra í næsta hús við æskuheimili mitt á Eskifirði. Fljótlega tókst mikill og góður vinskapur á milli mín og Árna sonar þeirra og áður en ég vissi af var ég orðinn heimagangur hjá þeim Jóni og Valdísi og fékk strax á tilfinninguna að þar væri ég æv- inlega velkominn. Það var kannski aldrei sagt berum orðum en þau Jón og Valdís höfðu sínar aðferðir til að koma þessum skila- boðum á framfæri og einatt fannst mér ég meðhöndlaður eins og einn af fjölskyldunni. Engu breytti þótt plássið væri ekki allt- af mikið. Laust fyrir jólin 1965 fluttu Jón og Valdís inn í bráða- birgðaíbúð í nýreistu og hálfklár- uðu húsi sínu en alltaf var gest- risnin söm við sig. Á þessum árum bjuggu konur til föt á börn sín, hver eftir sínum smekk og færni. Valdís var eng- um eftirbátur á þessu sviði. Hún saumaði og prjónaði á krakkana sína og var ævinlega fús til að koma til móts við heitar þrár ungra manna um að tolla í tísk- unni. Og það vafðist ekki fyrir henni þótt hún hefði stundum ekki önnur snið í höndunum en mynd af einhverjum hljómsveit- argæja á plötuumslagi. Oft kom það fyrir, þegar hún var að útbúa eitthvað á strákana sína, að hún bjó til sams konar flík á mig. Valdís var mikill dugnaðar- forkur, hamhleypa til verka og flest lék í höndunum á henni. Hún var kappsfull og vildi láta sjá eitt- hvað eftir sig. Hún naut sín því vel á síldarár- unum þegar saltað var í akkorði og var annáluð fyrir snerpu sína á því sviði. Oft varð vinnudagur Valdísar langur því auk starfa sinna utan heimilis hélt hún uppi merki húsmóðurinnar með fá- heyrðum myndarbrag. Það kom því ekki á óvart að til hennar skyldi leitað þegar grunnskólann á Eskifirði vantaði heimilisfræði- kennara. Valdís kenndi við skólann árum saman við góðan orðstír og mætti nemendum með umhyggjusemi og þolinmæði. Valdís var músíkölsk og hafði fallega söngrödd. Hún kunni fjöldann allan af ljóðum og söng- textum og naut þess að syngja; söng m.a. í kirkjukórnum og Eskjukórnum á meðan hann var og hét. Þeir sem háum aldri ná eiga á hættu að skynjun þeirra á heim- inum taki breytingum með árun- um. Fyrir nokkrum árum fór að bera á því að Valdís upplifði veru- leikann stundum á annan hátt en fólk í kringum hana. En það er gott til þess að hugsa að henni virtist alla jafna líða vel í sinni veröld. Nú hefur Valdís fengið þá hvíld sem öllum er búin. Að leiðarlok- um votta ég henni og fjölskyldu hennar mínar hjartans þakkir fyrir löng og góð kynni og sendi börnum hennar og fjölskyldum þeirra samúðarkveðjur. Hilmar Hilmarsson. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda 551 1266 Skipulag útfarar Dánarbússkipti Kaupmálar Erfðaskrár Reiknivélar Minn hinsti vilji Fróðleikur Sjá nánar á www.utfor.is Vesturhlíð 9 Fossvogi | Sími 551 1266 | utfor.is Önnumst alla þætti útfararinnar með virðingu og umhyggju að leiðarljósi Reynslumikið fagfólk Elín Sigrún Jónsdóttir Framkvæmdastjóri Jón G. Bjarnason Útfararþjónusta Ellert Ingason Útfararþjónusta Lára Árnadóttir Útfararþjónusta Katla Þorsteinsdóttir Lögfræðiþjónusta Guðmundur Baldvinsson Útfararþjónusta Magnús Sævar Magnússon Útfararþjónusta Emilía Jónsdóttir Félagsráðgjafi Sigrún Óskarsdóttir Guðfræðingur Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta utfor.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.